Morgunblaðið - 31.10.1996, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996 37
h
&
)
I
I
I
J
j
3
J
!
3
■
1
4
4
i
Í
i
i
i
i
i
i
Eru þingmenn
haldnir æsihneigð?
SEX þingmenn hafa lagt fram
tillögu á Alþingi um að hámarks-
hraði á bundnu slitlagi utan þétt-
býlis verði 110 kílómetrar á
klukkustund í stað 90 km. Sem
rök fyrir tillögunni segja þeir m.a.
að vegakerfið hafi stórum batnað.
Það er vissulega rétt að malarköfl-
um fer óðum fækkandi á þjóðveg-
um landsins en hraðbrautir eru
þeir ekki. Á flestum þjóðvegum
er engin lýsing og akreinar eru
víðast hvar aðeins tvær, þ.e. ein
í hvora átt. Einbreiðar brýr á
stofn- og tengivegum eru 815, þar
af eru 137 einbreiðar brýr á hring-
veginum en mörg og alvarleg
umferðarslys hafa orðið við ein-
breiðar brýr undanfarin ár. Síðast
en ekki síst er sú staðreynd að
vegirnir eru ekki hannaðir fyrir
meiri hraða en 90 kílómetra á
klukkustund. Síðasttalda atriðinu
virðast þingmennirnir algerlega
gleyma. Þeir gleyma líka (eða vita
ekki) að flest alvarleg umferðar-
slys þar á meðal dauðaslys verða
á þjóðvegunum. Útafakstur er t.d.
svo til eingöngu á þjóðvegum.
Árið 1995 létust 24 í umferðar-
slysum þar af létust 18 manns á
þjóðvegum landsins.
Dauðaslysum fjölgar
við aukinn hraða
Reynsla annarra þjóða á sam-
bærilegri aukningu hámarkshraða
sýndi fjölgun dauðaslysa um 30%.
Leiða má að því Iíkur að 6 manns
til viðbótar dæju í umferðarslysum
hér á landi ef tillaga um hækkun
hámarkshraða úr 90
km í 110 km næði
fram að ganga. Það
er út í hött að miða
þjóðvegi á íslandi við
hraðbrautir erlendis.
Á Vesturlöndum er
hvergi . leyfður 110
km hraði á vegum
sem eru eins og þjóð-
vegir á íslandi.
Eru
sexmenningarnir
haldnir æsihneigð?
í umferðarsálar-
fræði segir m.a.: „Hjá
sumum þarf ný
reynsla að fela í sér
Reynsla annarra þjóða
af sambærilegri aukn-
ingu hámarkshraða,
segir Margrét Sæ-
mundsdóttir, sýndi
30% fjölgun dauðsfalla.
spennu eða áhættu til að hún verði
eftirsóknarverð. Slíka þörf má
kalla æsihneigð. Oft er það svo
að sé um áhættu að ræða er það
ekki aðeins áhætta fyrir einstakl-
inginn sjálfan heldur umhverfi
hans.“ Síðar í kaflanum segir:
„Ókostir mikillar æsihneigðar eru
að einstaklingar, sem henni eru
haldnir, lenda fremur
í slysum en aðrir, aka
undir áhrifum áfeng-
is, vegna áhættunnar
sem því fylgir, eða
taka of mikla áhættu
í fjármálum. Í um-
ferðinni hafa þeir til-
hneigingu til að aka
hraðar en aðrir. í
umferðinni er æsi-
hneigð til lítils gagns.
Líttu í eigin barm og
hugleiddu hvort þú
sért einn þeirra öku-
manna sem ekur
gjarnan yfir hámarks-
hraða, sem ekur oft
yfir á rauðu ljósi eða
stundar framúrakstur. Slíkt gefur
til kynna æsihneigð. Þeirri hegðun
þarf að breyta og reyna að finna
vettvang fyrir æsihneigð sína þar
sem líf og limir annarra eru ekki
í hættu.“
Þeir sem hafa gaman af að aka
hratt geta gerst félagar í aksturs-
íþróttafélögum, þar eru aðstæður
skapaðar til þess að láta gamminn
geisa. Tillaga um hækkun há-
markshraða er fráleit og í hróp-
andi andstöðu við umferðarörygg-
isáætlun til ársins 2001 sem al-
þingismenn hafa nýverið sam-
þykkt.
Heimildir: Umferðarsálarfræði eftir Ásþór
Ragnarsson og Kjartan Þórðarson.
Höfundur átti sæti í stjórnskipaðrí
nefnd uni umferðaröryggis&ætlun
til ársins 2001.
Margrét
Sæmundsdóttir
LANCOME
TÍ][f ^
Tefðu tímann með
Primordiale.
Kaupauki, glæsileg
ferðasnyrtilaska fylgir
hverju 50 ml kremi og
Fluide.
Kynning fimmtudag,
föstudag og laugardag.
H Y G E A
.1 nyrt iv ö rucer.i l u n
Kringlunni og Austurstræti
1
Mégane Coupó, 2 dyra.
Aukabúnaöur á mynd, álfelgur og vindskeið.
i
Renault Mégane
uppfyllir allar þínar óskir
Renault Mégane 5 dyra
Ríkulega búinn og einstaklega öruggur. Loftpúðar fyrir ökumann og
farþega. Öryggisbelti með strekkjara og höggdeyfi. Rafdrifnar rúður,
fjarstýrð samlæsing á hurðum og skottloki, aflstýri, útvarp með fjarstýringu,
snúningshraðamælir, þokuljós o.m.fl.
Verö frá 1.468.000 kr.
Mégane Coupé 2 dyra
Draumur þeirra sem eru ungir - og þeirra sem vilja halda sér ungum. 90 eða
150 hestafla vél. Loftpúðar fyrir ökumann og farþega. Öryggisbelti með
strekkjara og höggdeyfi. Fjarstýrð samlæsing á hurðum og skottloki, aflstýri,
útvarp með fjarstýringu, snúningshraðamælir o.m.fl.
Verö frá 1.468.000 kr.
REMAULT
FER Á KOSTUM