Morgunblaðið - 31.10.1996, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996 41
ERLA ELÍNBORG
SIG URÐARDÓTTIR
+ Erla Elínborg
Sigurðardóttir
fæddist á Akureyri
29. janúar 1931.
Hún lést á Landspít-
alanum 18. október
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Sigurður Samsonar-
son, f. 25.11. 1901,
d. 14.5. 1969, og
Svanhvít Vatnsdal,
f. 22.2. 1907, d. 23.8.
1974.
Hinn 30.11. 1963
giftist hún eftirlif-
andi eiginmanni sín-
um Jóhanni H. Haraldsyni, raf-
virkja, f. 6.3. 1938. Börn þeirra
eru: Svanhvít, hjúkrunarfræð-
ingur, f. 17.10. 1961, gift Þor-
Elsku amma, loksins fékkstu
hvíldina eftir löng og mikil veikindi.
Söknuðurinn er samt sár.
Ég man hve oft við sátum við
eldhúsborðið og spiluðum. Oftast
spiluðum við rommý. Síðan bauðstu
mér kökur eða brauð. Og þegar þú
gerðir heitt brauð í ofninum var það
steini G. Gunnars-
syni, framkvæmda-
stjóra ÍFA, f. 7.12.
1960. Börn þeira eru
Lilja, f. 30.10. 1982,
og Ari Gunnar, f.
1.11. 1988. Lára,
rekstrarfræðingur,
f. 17.10. 1961, gift
Guðmundi Þór
Norðdahl, háskóla-
nema, f. 4.4. 1960.
Barn þeirra er
Snævar Þór, f. 26.3.
1983. Haraldur, þýð-
andi, f. 2.2. 1966.
Erla vann marg-
vísleg störf um ævina. Lengst
af starfaði hún í Breiðholtsbak-
aríi og hjá Fönn.
Útför Erlu fór fram í kyrrþey.
alltaf það besta. Ég hef oft reynt
að gera brauð eins og þitt en það
verður aldrei jafn gott.
Stundum gisti ég hjá þér og þá
mátti Halla María vinkona mín
koma líka. Við tókum dansskóna
okkar með og héldum danssýningu
fyrir þig og afa. Eftir hverja ein-
ustu keppni (hvort sem það sem var
í dansi, handbolta eða fótbolta)
hringdi ég alltaf beint til þín og
sagði þér úrslitin. Það var bara regla
hjá mér. Þú varst líka alltaf með
þeim fyrstu að vita einkunnirnar
mínar.
Það var gaman að þú skyldir
komast í fermingarveisluna mína.
Þú fékkst leyfi frá spítalanum til
að koma. Þá hittir þú marga sem
þú þekktir og þér fannst svo gaman.
Það var alltaf gaman að koma
og hitta þig, líka þegar þú varst á
spítala. Það var þó skemmtilegast
þegar ég kom ein hjólandi á Vífils-
staði að heimsækja þig. Þá spjölluð-
um við saman um allt milli himins
og jarðar. Við gátum oft setið tím-
unum saman og talað. Hvar sem
þú varst hafðir þú skúffu undir
góðgæti til að bjóða úr.
Þú varst alltaf svo góð og vildir
gleðja alla.
Hvíldu í friði, elsku amma.
Þín
Lilja.
Þau leiðu mistök urðu við birtingu
minningargreina um Erlu Elín-
borgu Sigurðardóttur í Morgun-
blaðinu 29. október síðastliðinn
að grein um Olínu Sigríði Bjöms-
dóttur birtist með greinum um
Erlu Elínborgu. Greinarnar um
Erlu eru hér birtar á ný og hlutað-
eigandi innilega beðnir velvirð-
ingar á mistökunum.
+ Ólína Sigríður
Björnsdóttir var
fædd á Siglufirði 17.
nóvember 1927.
I Hún lést á Sjúkra-
húsi Siglufjarðar
21. október síðast-
liðinn. Foreldrar
Olínu voru hjónin
Konkordia Ingi-
marsdóttir, f. 14.6.
1905 á Ólafsfirði, og
Björn Ólsen Björns-
son, f. 11.9. 1903 á
Akureyri. Systkini
Ólínu eru: Þóra,
| Erlendur, Margrét,
Agúst og Björn.
Ólína giftist Hólmsteini Þór-
arinssyni 8.4. 1950. Börn þeirra
eru: 1) Jóninna, gift Grími Laxd-
al og eiga þau þrjú börn. 2) Sig-
urður, kvæntur Sigurlaugu Þór-
hallsdóttur, eiga þau fjögur
börn. 3) Díana, gift Viðari Kon-
ráðssyni, eiga þau fjögur börn.
4) Oddný, gift Mar-
kúsi Ingasyni og eru
börn þeirra tvö.
Útför Ólínu fór
fram frá Siglufjarð-
arkirkju 29. októ-
ber.
Það haustar að og
blómin falla á einni
hélunótt. Haustið þitt
var langt og strangt, en
loksins fékkstu frið. Nú
getur þú dáðst að fegurð
heimsins á nýjan leik og
gengið frjáls um feg-
urstu garða. Þú, þessi
litla kona sem hugsaðir
svo stórt, gekkst hiklaust á móti
straumnum, lagðir orð í belg er aðrir
þögðu, varst í rauninni fyrsta rauð-
sokkan sem ég kynntist. Þú fórst
ótroðnar slóðir og varst ekki sátt við
þá stöðu konunnar sem samfélagið
hafði skapað. Þegar venjulegar hús-
mæður klæddust hagkaupssloppum
við húsverkin varst þú á stuttbuxum.
Þegar aðrar konur voru að basla við
böm og bú hafðir þú fyrir löngu
komið á þeirra skipan að „Steini
Gústa“ gæti þrifið og eldað til jafns
við þig. Það var þér kappsmál að
allir hefðu sama rétt og sömu tæki-
færi til lífsins lystisemda. Ég var
farin að stálpast þegar mér skildist
hvað þú varst í rauninni óvenjuleg
og heilsteypt manneskja. Þú hræddist
aldrei álit annarra, heldur gekkst
bein í baki og tókst þvi sem verða
vildi. Það veganesti sem þú skildir
eftir handa okkur, bömunum þínum,
verður gott að eiga í framtíðinni. Það
viðhorf þitt að gera alla hluti vel, eða
bara sleppa því, verður okkur von-
andi hvatning um ókomna tíð.
Takk fyrir hugulsemina, heilræðin.
Takk fyrir samveruna. Góða ferð.
Þín dóttir,
Díana.
Þau leiðu mistök urðu við birtingu
minningargreina um Ólínu Sigríði
Björnsdóttur í Morgunblaðinu 29.
október síðastliðinn, að greinin
hér á undan birtist með greinum
um Erlu Elínborgu Sigurðardótt-
ur í sama blaði. Greinarnar eru
hér birtar á ný og hlutaðeigandi
innilega beðnir velvirðingar á
mistökunum.
ÓLÍNA SIGRÍÐUR
BJÖRNSDÓTTIR
t
BJÖRN ÞÓRÐARSON
frá Gilhaga,
Blönduhlíð,
Hörðudal,
sem lést í sjúkrahúsinu á Akranesi
þriðjudaginn 22. október, verður jarð-
sunginn frá Prestbakkakirkju f Hrútafirði
föstudaginn 1. nóvember kl. 13.30.
Aðstandendur hins látna.
Erfidrykkjur
Glæsilegkaffi-
lilaðborð, fallegir
salir og mjög
góð þjónusta
Upplýsingar
í síma 5050 925
og 562 7575
1
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma
GUÐRÍÐUR EIRÍKSDÓTTIR,
Hringbraut 70,
Keflavík,
áðurtil heimilis
á Hafnargötu 77,
lést í Sjúkrahúsi Suðurnesja föstudag-
inn 25. október.
Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 1. nóvember kl. 14.00.
Björn Jóhannsson, Hrönn Sigmundsdóttir,
Sigríður Jóhannsdóttir, Roy Ólafsson,
barnabörn og langömmubörn.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
JÓN HÖRÐURÁRNASON,
Stifluseli 5,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Seljakirkju föstu-
daginn 1. nóvember kl. 13.30.
Hrefna Gunnarsdóttir,
Gunnhildur Hlöðversdóttir,
Árni J. Strandberg,
Reyndís Harðardóttir, Gunnlaugur Hilmarsson,
Jón Magnús Harðarson, Kolbrún Sigtryggsdóttir
og barnabörn.
I
_______________^ium^________________
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, stjúpi, afi og langafi,
KRISTJÁN HÓLMSTEINN
HELGASON
(Lilli frá Bjargi),
Njálsgötu 85,
Reykjavík,
sem andaðist í Landspítalanum 26. októ-
ber sl., verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 1. nóvember kl. 10.30.
Guðrún Ó. H. Jóhannesdóttir,
Matthildur Kristjánsdóttir, William E. Calvert,
Ásgeir J. Kristjánsson, Hólmfríður Á. Vilhjálmsdóttir,
Kristrún Kristjánsdóttir, Halldór Guðmundsson,
Elín G. Kristjánsdóttir, Kristjón H. Ólafsson,
Gunnlaugur Þ. Kristjánsson, Vigdís H. Ólafsdóttir,
Helgi Kristjánsson, Sæunn Guðmundsdóttir,
Alda B. Indriðadóttir, Einar Bjarnason,
Pétur B. Indriðason, Sigurveig Árnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, bróðir, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
VALTÝR HÓLMGEIRSSON
fyrrv. stöðvarstjóri
Pósts og síma
á Raufarhöfn,
verður jarðsettur frá Raufarhafnarkirkju
laugardaginn 2. nóvember kl. 11.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent
á líknarstofnanir.
Steingerður Theodórsdóttir,
Vilhjálmur Hólmgeirsson,
Sólveig Valtýsdóttir, Hörður Rúnar Einarsson,
Bragi Davfð Valtýsson,
Ragnheiður Valtýsdóttir, Sæmundur Einarsson,
Rósa Valtýsdóttir
og barnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
PÉTURPÉTURSSON
fyrrverandi alþingismaður,
Kleppsvegi 62,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni
í Reykjavík föstudaginn 1. nóvember
kl. 13.30.
Hrefna Guðmundsdóttir,
Magnús Pétursson, Hildur Eiríksdóttir,
Pétur Oli Pétursson, Anna Harðardóttir
Guðmundur Agúst Pétursson,
Ingibjörg Pétursdóttir,
Pétur Pétursson,
Guðrún Pétursdóttir,
Kolbrún Sveinsdóttir,
Erla Sveinsdóttir,
barnabörn og aðrir
Sesselja Auður Eyjólfsdóttir,
Hartwig Miiller,
Dóra Kristin Björnsdóttir,
Ævar Pálmi Eyjólfsson,
Pétur J. Eiríksson,
aðstandendur.
t
Ástkær móðir okkar, fósturmóðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
UNNUR BJÖRNSDÓTTIR
frá Hrísey,
verður jarðsungin frá Hríseyjarkirkju
laugardaginn 2. nóvember kl. 14.00.
Tryggvi Ingimarsson, Ester Júlíusdóttir,
Ingibjörg Ingimarsdóttir, Hallgrímur Sigmundsson,
Eygló Ingimarsdóttir, Árni Kristinsson,
Halla Grímsdóttir, Jósef Kristjánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.