Morgunblaðið - 31.10.1996, Qupperneq 48
. 48 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Ljóska
Ferdinand
Smáfólk
50METIME5, !F YOU 5TARE AT
THE BACK POOR HARD EN0U6H,
YOUR 50PPER C0ME5 OUT EARLY..
50METIME5 IT W0RK5 AND
50METIME5 IT DOESN'T..
"----Or
E5PECIALLY IF YOO 00
IT EVERY NI6HT..
Ef horft er nógu fast á bak-
dyrnar, þá kemur það fyrir
að kvöldmaturinn komi
snemma.
Stundum virkar það og stund-
um ekki...
Sérstaklega ef það er gert á
hverju kvöldi.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Stöð 2 o g hægriorgían
Frá Erpi Þórólfi Eyvindarsyni
og Grími Hákonarsyni:
25. OKTÓBER síðastliðinn sendu
Jón Ársæll og félagar hans á Stöð
2 frá sér ansi káta umfjöllun sem
hafði því miður meira gysgildi en
sannleiksgildi. Hér er átt við heim-
Grímur Erpur Þórólfur
Hákonarson Eyvindarson
sókn „ísland í dag“-bræðra á 2 ára
afmælisfund Sósíalistafélagsins. Til
að umfjöllunin yrði sem hressust var
brugðið á það alkunna hægri trix
að slíta allt tiltækt úr samhengi og
fylla upp í eyður með einræðisherr-
um í leik og starfi. Daginn eftir
voru greinarhöfundar spurðir hve
lengi þeir hefðu aðhyllst til sung-
eða stalínisma og hve lengi 3. Al-
þjóðasamband kommúnista hefði
stjórnað gjörðum þeirra.
Við teljum sennilegt að bros Jóns
Ólafssonar og hægriorgíunnar
myndi skekkjast talsvert ef frétta-
umijöllun af landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins yrði skreytt myndum af
Mússólíní, Hitler, Pinochet og Milton
Friedman til þess eins að auka spé-
gildi fréttarinnar. Tölum nú ekki
um ef það yrði sérstaklega tekið
fram að Sjálfstæðisflokkurinn hafi
boðið fram með nasistum í Reykja-
vík, ef nefna á hliðstæðu við
heimskuleg fræðiinnskot Jóns Ár-
sæls um Komintern og íslensku
kommúnistana.
Ef Jón skyldi ekki hafa tekið eft-
ir því þá eru Ráðstjórnarríkin ekki
til staðar lengur og þar af leiðandi
hefði verið erfitt að halda fundinn
í sal félagsins „Menningartengsl
íslands og Ráðstjórnarríkjanna". En
það þjónaði e.t.v. fréttinni ekki nógu
vel að segja að félagið „Menningar-
tengsl íslands og Rússlands“ hefðu
átt húsnæðið. Kannski var það sama
uppi á teningnum þegar gagnrýnin
ummæli undirritaðra á Sovétríkin
voru klippt burt.
Réttast væri að kæra Stöð 2 fyrir
þetta en staðreyndin er sú að allt
lögfræðingastóð þessa heims nægði
ekki til að kæra stöðina í hvert skipti
sem þeir sendu frá sér heimskulega
frétt. Maður yrði að fá lánaða lög-
fræðinga úr öðrum sólkerfum sem
er frekar vandasamt verk.
Við búumst ekki við því að þessi
greinarstúfur eigi eftir að breyta
miklu um aðferðafræði fijálsrar
fjölmiðlunar né hegðunarmynstri
hægriorgíunnar yfirleitt. Samt sem
áður minnumst við á að frelsi fylgir
ábyrgð.
ERPUR ÞÓRÓLFUR
EYVINDARSON,
GRÍMUR HÁKONARSON,
meintir maóistar, stalínistar, enver
hoxhaistar og kim il sungistar.
Slæm stjórnsýsluaðgerð?
Frá Haraldi Asgeirssyni:
í NÝJU blaði félags eldri borgara,
Listin að lifa, bls. 27 í greininni
Skoðun stjórnmálamanns ritar ijár-
máiaráðherra m.a. eftirfarandi
setningu:
„Sú leið að undanþiggja iðgjöld
til Iífeyrissjóða skatti í stað þess
að veita 15% skattaafslátt var fyrst
og fremst farin að ósk aðiia vinnu-
markaðarins við gerð febrúar-
samninganna 1995.“
í setningunni felst ábending um
það sem mér sýnist vera óviður-
kvæmileg stjórnsýsluaðgerð. Skv.
henni er verið, - fyrir „ósk aðila
vinnumarkaðarins", að víxla skatt-
fríðindum. í stað skattaafsláttar líf-
eyrisþega kemur skattfrelsi á ið-
gjaldagreiðslur þeirra sem eru að
afla sér réttinda í lífeyrissjóðum.
Um er því að ræða víxlun skatt-
fríðinda milli tveggja hópa innan
þjóðfélagsins, lífeyrisþega og laun-
þega. Launþegar eru á vinnumark-
aði en lífeyrisþegar utan hans eftir
að hafa lokið starfsævi og greitt
skattlögð iðgjöld í lífeyrissjóði sína,
gjarnan í 30-32 ár.
Aðilar vinnumarkaðarins eiga
þannig lítið tilkall til lífeyris-
greiðslnanna og því getur „ósk“
þeirra um víxlun fríðinda varla tal-
ist fróm.
Skattafslátturinn fyrir lífeyris-
þega var veittur til þess að jafna
út þá tvísköttun sem fram kom við
endursköttun á því fé sem þeir
höfðu lagt í lífeyrissjóðina og sjóð-
irnir síðan ávaxtað í langan tíma.
Endursköttun var og er líka óeðlileg
í ljósi þess að aðrar sparifláreignir
eru undanþegnar skatti. Upphæð
undanþágunnar, 15%, sýnist reikn-
ingslega eðlileg útjöfnun tvískött-
unarinnar, þótt ijarri sé að það sé
gert lýðum ljóst.
Sú fríðindavíxlun sem hér hefir
verið rædd virðist því vera harla
óviðurkvæmileg stjórnsýsluaðgerð
og þeim mun verri er hún sem fleiri
hafa staðið að henni.
HARALDUR ÁSGEIRSSON,
Ægisíðu 48, Reykjavík.
Hvað skal segja? 52
Væri rétt að segja: Nýtt hlutafélag mun taka yfir reksturinn.
Svar: Að taka yfir er í slíkum samböndum tekið beint úr ensku
(to take over) og er ósæmilegt orðbragð á íslenzku. Rétt væri:
Nýtt félag mun taka við rekstrinum.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.