Morgunblaðið - 01.11.1996, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996 29
Málþing um
handverk
MÁLÞING Handverks -
reynsluverkefnis og Heimilis-
iðnaðarfélags íslands verður
haldið í Norræna húsinu laug-
ardaginn 2. nóvember nk. kl.
13-17.30.
Menntamálaráðherra, Bjöm
Bjarnason, mun ávarpa mál-
þingsgesti við opnunina. Boðið
verður upp á átta fyrirlesara
sem munu tala úm nám og
menntun í list- og verkgrein-
um, handverk og listhandverk
sem atvinnu eða tómstunda-
starf, hönnunarsafn á íslandi
o.fl. Fyrirspurnir og umræður
á eftir. Fyrirlesarar verða Að-
alsteinn Ingólfsson listfræð-
ingur, Elín Antonsdóttir at-
vinnuráðgjafi, Eygló Eyjólfs-
dóttir skólameistari, Jóhann
Sigurjónsson trérennismiður
og kennari, Margrét Jónsdóttir
leirlistakona, Helga Thorodd-
sen stjórnarformaður Hand-
verks - reynsluverkefnis og
Tinna Gunnarsdóttir listhönn-
uður. Fundarstjóri verður
Hansína B. Einarsdóttir fram-
kvæmdastjóri. Á meðan á
málþinginu stendur verður
sýning á úrvali af íslensku
handverki og listhandverki í
anddyri Norræna hússins.
Málþingið er opið öllum
áhugasömum. Þátttökugjaldið
er 1.500 kr. og eru veitingar
innifaldar.
KRISTJÁN við nokkur
verka sinna.
Kristján
sýnir í
Grindavík
NÚ stendur yfir myndlistar-
sýning Kristjáns Árna Ingólfs-
sonar í Menningarmiðstöðinni
Víkurbraut 21, Grindavík.
Kristján er fæddur á Akra-
nesi 1941. Sýningin í Grinda-
vík er hans fyrsta einkasýning.
Sýningin er opin virka daga
frá kl. 18-21, laugardaga og
sunnudaga frá kl. 14-19. Sýn-
ingunni lýkur 3. nóvember.
Fjölskyldu-
tónleikar I
Tjamarsal
KYNNINGARTÓNLEIKAR
Dimmu verða haldnir í Tjarn-
arsal Ráðhúss Reykjavíkur á
sunnudaginn kemur. Þar verð-
ur flutt efni af tveimur nýjum
hljómplötum, lesið úr nýút-
komnum bókum og jafnframt
flutt barnaefni.
Gunnar Gunnarsson leikur
lög af plötu sinni Skálm sem
er gefin út í minningu Ingi-
mars Eydal, Anna Pálína og
Aðalsteinn Ásberg flytja
ásamt Gunnari efni af plötunni
Fjall og fjara og Aðalsteinn
kynnir jafnframt barnabókina
Furðulegt ferðalag og bókina
Ljóð á landi og sjó.
Á efnisskránni verða einnig
eldri lög, sálmar, djass, barna-
lög og vísnatónlist. Tónleik-
arnir standa með hléum frá
kl. 14-17. Þeir eru öllum opnir
og aðgangur er ókeypis.
LISTIR
Morgunblaðið/Halldór
BJÖLLUKÓR Bústaðakirkju heldur tónleika í
Stykkishólmskirkju á laugardaginn.
Bjöllukór Bústaðakirkju
heimsækir Stykkishólm
BJÖLLUKÓR Bústaðakirkju
heldur tónleika í Stykkishólms-
kirkju laugardaginn 2. nóvember
næstkomandi kl. 17.
Á tónleikunum verður bæði
boðið upp á sígilda tóniist og
dægurtónlist. Bjöllukórinn er
skipaður börnum á aldrinum
11-12 ára. Ásamt því að spila á
bjöllur leika börnin öll á önnur
hljóðfæri og mynda hljómsveit.
Stjórnandi Bjöllukórsins er
Guðni Þ. Guðmundsson organisti
Bústaðakirkju.
TOPPTILBOÐ
Hl LINE HERRASKOR
skinnfóðraðir
GUMMISÓLA
Teg: 2348
Stærðir: 40-46. Litir: Brúnir, svartir
Verð áður: 4^95j- Verð nú: 2.495,-
Ath. Mlkið úrval af herraskóm
POSTSENDUM SAMDÆGURS
'Tbppskórinn
• Veltusundi við Ingólfstorg
• Sími 552 1212.
Markaás stemmning
í JVIiábæ Hafnarfirái
NU TÖKUM VIÐ
ÆRLEGA TIL
7Í OG SETJUM
UPP MARKAÐ!
SÖLUBORÐ ÚT UM ALLA GANGA
HANDVERKSFÓLK Á STAÐNUM
Búsáhöld & Gjafavörur
nv.
H A F N A R F J OR Ð U R
RAFMÆTTI
augnsýn
gleraugnaverslun
Glasgow DÍSELLA
^ SNYRTIVÖR UVERSL UN
KERTA OG
GJAFAGAIXERÍ