Morgunblaðið - 08.11.1996, Page 1
72 SIÐUR B/C
256. TBL. 84. ÁRG. FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Stærstu stjórnarandstöðuflokkar Rúmeníu boða samstarf
Farþega-
þotu saknað
Lagos. Reuter.
FARÞEGAÞOTU með 141 mann
innanborðs var saknað í Nígeríu í
gærkvöldi.
Þotan var af gerðinni Boeing 727
og á leiðinni frá borginni Port Harco-
urt til Lagos. Um borð voru 132
farþegar og níu manna áhöfn.
Björgunarsveitir leituðu að þot-
unni í gærkvöldi og hafði þá ekkert
heyrst frá flugmönnunum í fimm
klukkustundir.
Reuter
Byltingar-
innar minnst
ÞÚSUNDIR kommúnista gengu
undir rauðum fánum í Moskvu
í gær til að minnast þess, að 79
ár voru liðin frá byltingu bolsé-
víka í Rússlandi 1917. Borís
Jeltsín forseti, sem er á góðum
batavegi að sögn lækna, hélt
hins vegar upp á daginn með
því að gefa út tilskipun um, að
héðan í frá skyldi hann heita
„Dagur samstöðu og sátta“.
■ „Dagur samstöðu/21
Banda-
lag gegn
Iliescu
forseta
Búkarest. Reuter.
TVEIR stærstu stjórnarandstöðu-
flokkarnir í Rúmeníu mynduðu í gær
bandalag gegn Ion Iliescu forseta
fyrir síðari umferð forsetakosning-
anna 17. nóvember eftir að hafa
borið sigurorð af flokki hans í þing-
kosningum.
Flokkarnir lofuðu að styðja Emil
Constantinescu, sem varð í öðru
sæti í fyrri umferð forsetakosning-
anna 3. nóvember. I síðari umferð-
inni verður kosið milli hans og
Iliescus, sem er fyrrverandi
Christopher hættir
kommúnisti. Flokkarnir telja að
Rúmenar losni ekki við arfleifð
kommúnismans nema þeir losi sig
við Iliescu úr forsetaembættinu.
Constantinescu og Petre Roman,
fyrrverandi forsætisráðherra, föðm-
uðust eftir að hafa undirritað sam-
komulag um samvinnu flokkanna.
Roman varð í þriðja sæti í fyrri
umferðinni, með 20,5% fylgi, en
Constantinescu 28% og Iliescu 32%.
Boða „sanna lýðræðisstjórn"
Constantinescu sagði að flokkarn-
ir tveir hygðust mynda „sanna lýð-
ræðisstjórn" á næstu dögum og taka
höndum saman í forsetakosningun-
um til að tryggja að lýðræðisöflin
færu með sigur af hólmi.
Roman var forsætisráðherra í
stjórn lliescus í tæp tvö ár en honum
var vikið frá 1991 vegna óeirða
meðal námamanna, sem lögðust
gegn efnahagsumbótum hans.
Flokkur Romans, Samband jafnað-
armanna (USD), fékk 13% fylgi í
þingkosningunum, miðflokkabanda-
lag Constantinescus (CDR) 30% og
flokkur Iliescus, PDSR, 23%.
Oljóst
um arf-
taka
Washington. Reuter.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
hélt í gær blaðamannafund með
Warren Christopher utanríkis-
ráðherra og
skýrði frá af-
sögn hins síð-
arnefnda.
Kvaðst Clinton
samþykkja
lausnarbeiðn-
ina „með mikl-
um trega“,
fáir einstakl-
ingar hefðu átt
jafnmikinn
þátt i að móta stefnuna á fyrra
kjörtímabili hans.
Clinton kvaðst ekki hafa tek-
ið ákvörðun um eftirmann Chri-
stophers. Vitað er að William
Perry varnarmálaráðherra
hyggst einnig hætta og skýrt
var frá afsögn Federico Pena
samgönguráðherra í gær. Pena
þótti gera ýmis mistök í tengsl-
um við mál flugfélagsins Valu-
Jet.
Warren
Christopher
Reuter
LEIÐTOGAR tveggja stærstu stjórnarandstöðuflokkanna í Rúm-
eníu, Emil Constantinescu (t.v.) og Petre Roman, takast í hend-
ur og mynda sigurmerki með fingrunum eftir að hafa undirrit-
að samkomulag um samstarf. Flokkarnir ætla að mynda sam-
steypustjórn og bandalag gegn Ion Iliescu forseta í síðari um-
ferð forsetakosninganna 17. nóvember.
Indland
Hátt í 500
farast í
fellibyl
Hyderabad. Reuter.
AÐ MINNSTA kosti 465
manns biðu bana í fellibyl sem
gekk yfír helsta landbúnaðar-
ríki Indlands, Andhra Pradesh,
að sögn yfirvalda í ríkinu í
gærkvöldi.
V. Chandrababu Naidu,
æðsti ráðherra ríkisins, sagði /
að allt að 1.000 manns gætu
hafa farist í óveðrinu. Fellibyl-
urinn gekk yfir suðaustur-
strönd Indlands í fyrrakvöld,
eyðilagði hús, uppskeru, síma-
og rafmagnslínur og vegi.
Oveðrinu slotaði í gær.
Yfirvöld sögðu þetta mesta
fellibyl á svæðinu í tíu ár. Allt
atvinnulíf lamaðist í hafnar-
borginni Kakinada og í hérað-
inu Austur-Godavari eyðilögð-
ust eða skemmdust 100.000
íbúðir, auk þess sem hrís-
gijónauppskera á 8,5 milljóna
hektara svæði eyðilagðist
vegna flóða. Að minnsta kosti
309 manns fórust í héraðinu.
Flestir létu lífið í flóðum eða
þegar hús hrundu og margir
dóu af völdum raflosts.
Margir flóttamenn sagðir
devja úr þorsta í Zaire
Goma, Keshero, Brussel. Reuter.
MARGIR flóttamenn frá Rúanda
hafa þegar dáið úr þorsta á íjöllum
í austurhluta Zaire, að því er emb-
ættismenn Sameinuðu þjóðanna
höfðu eftir flóttafólki sem kom frá
þessu stríðshrjáða svæði í gær.
1,2 milljónir hútúa frá Rúanda
og Búrúndí eru á svæðinu, þar af
er helmingurinn yngri en 16 ára.
Flóttamenn sem fóru yfir landamær-
in til Rúanda sögðu embættismönn-
unum að margir hefðu dáið af völd-
um vatnsskorts á hijóstrugu eld-
fjallasvæði norðan við Kivu-vatn.
„Þeir sögðust hafa séð fólk hrynja
niður ofan við flóttamannabúðirnar.
Einn reyndi að sjúga vatn úr rótum
tijánna," sagði talsmaður Flótta-
mannahjálpar Sameinuðu þjóðanna.
Fregnir hermdu ennfremur að
vopnaðir hópar öfgamanna úr röðum
hútúa hefðu rænt um hundrað börn-
um í þorpum nálægt borginni Goma
og héldu þeim í gíslingu í flótta-
mannabúðum. Mikil spenna var'
einnig í höfuðborginni, Kinshasa, og
þúsundir námsmanna réðust inn í
þinghúsið til að krefjast afsagnar
forsætisráðherrans, Kenga wa
Dongo, sem er tútsi í aðra ættina.
Námsmenn hafa efnt til mótmæla í
borginni undanfarna daga vegna
óánægju með ófarir stjórnarhersins
í austurhlutanum, sem er að mestu
á valdi uppreisnarmanna úr röðum
tútsa.
Deilt um
hernaðaríhlutun
Mobutu Sese Seko, forseti Zairé,
er hlynntur tillögu Frakka og Spán-
veija um að sendar verði alþjóðlegar
hersveitir til austurhluta landsins,
enda gæti það orðið til þess að her
hans næði svæðinu aftur á sitt vald.
Bandaríkjastjórn er hins vegar treg
til að verða Mobutu að liði og kvart-
ar yfir því að tillögur Frakka séu
óljósar.
Tillaga Frakka og Spánveija um
hernaðaríhlutun fékk ekki hljóm-
grunn á fundi ráðherra frá ríkjum
Evrópusambandsins en samþykkt
var að senda þijá utanríkisráðherra
til að meta ástandið í Zaire.
Hjálparstofnanir greinir einnig á
um hvernig afstýra eigi hungurs-
neyð í iandinu. Yfirmaður Flótta-
mannahjálparinnar sagði að senda
þyrfti „hlutlausan her“ til að hand-
taka og afvopna stríðandi fylkingar
í austurhluta Zaire. „Hernaðaríhlut-
un er engin lausn á ástandinu," sagði
hins vegar hjálparstofnunin Hjálpið
börnunum. „Slík íhlutun tæki of
langan tíma og þótt samkomulag
næðist um hana myndi hún aðeins
gera illt verra.“