Morgunblaðið - 08.11.1996, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 08.11.1996, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Pizza 6 7-staðir opnaðir í Noregi HAFMEYJAN hf. eignarhaldsfyrir- tæki Pizza 67 í Danmörku, hefur gert samning við íslenskan aðila í Noregi um sérleyfi fyrir sjö Pizza 67-veitingastaði þar í landi og er stefnt að því að opna þá á næstu tólf mánuðum. Að sögn Gísla Gísla- sonar, lögmanns Hafmeyjunnar, hyggst þessi aðili bæði kaupa eldri pizzastaði í þessu skyni og breyta þeim til samræmis við kröfur Pizza 67 og byggja upp nýja staði frá grunni. Fyrsti Pizza 67-staðurinn utan íslands var sem kunnugt er opnaður á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn fyrir skemmstu og segir Gísli að reksturinn hafi_ farið vel af stað. Er fyrirhugað að Olafur Ragnar Gríms- son, forseti íslands, komi þar við og snæði pizzu að viðstöddu fjölmiðla- fólki í heimsókn sinni til Danmerkur í nóvember. Gísli segir ýmislegt fleira á pijón- unum hjá Hafmeyjunni á Norður- löndunum. Næsta skref verði að fjölga stöðum í Danmörku með sér- leyfi frá Pizza 67. í fyrstu sé stefnt að því að semja við íslenska aðila um slík sérleyfi en síðar muni Dönum standa þau til boða. Þá horfa þeir hjá Pizza 67 á fleiri lönd og hafa átt í viðræðum um opnun pizzastaða með sérleyfi í Svíþjóð og Færeyjum. í samningum um slík leyfi er kveð- ið á um staðlað útlit veitingastað- anna, sama matseðil, sömu gerð pizzuofna o.s.frv. Hafmeyjan mun síðan annast gæðaeftirlit með reglu- legu millibili, en fyrir þetta greiðir viðkomandi aðili 6% af veltu til keðj- unnar. Myndbær með fræðslu- þætti fyrir varnarliðið MYNDBÆR hf. hefur að ósk félags- málaskrifstofu varnarliðsins á Kefla- víkurflugvelli hafið undirbúning að gerð fræðsluþátta um ísland sem sendir verða út á Rás 20, kapalkerfi Keflavíkursjónvarpsins. Heiti þátt- anna verður Iceland — New Horiz- ons. Þeir verða endursýndir hálfs- mánaðarlega þar sem stöðug end- urnýjun á sér stað á starfsliði varnarliðsins. Samkvæmt upplýsingum frá Myndbæ hefur samsetning starfs- mannahóps varnarliðsins breyst nokkuð frá því sem áður var. Nú ber mest á fjölskyldufólki sem sam- kvæmt könnunum hefur áhuga á að kynnast landi og þjóð með ferðalög- um og viðskiptum við landsmenn. Þáttaröð Myndbæjar er liður í því að kynna ísland og íslenskt samfélag fyrir þessu 5 þúsund manna samfé- lagi á Suðurnesjum. Áætlað er að framleiða fimm þætti sem hver um sig er 60 mínút- ur að lengd. VIÐSKIPTI Sala hljómplötuframleiðenda 1., 2. og 3. ársfjórðung 1996 Skífan Polygram EMI-Virgin Skífan-eigin framl. BMG Innfl. án einkaumb. Önnur innlend Spor Sony Music Spor-eigin framl. VVarner Music Önnur erlend Time Life Music Collection Önnur innlend Toco International Innfl. án einkaumb. I milljónum íslenskra króna (f heildsölu án vsk.) 10 20 30 40 50 ■141,65 ■ 6,92 4,83 11,89 20,98 ! 26,58 39,10 Samtals 140,056 millj. kr. 33,83 22,74 ; 29,10 Samtals 105,256 millj. kr. Japis Önnur erlend Önnur innlend Japis-eigin framl. Innfl. án einkaumb. Smekkleysa Naxos ísl. Tónv.miðst. eigin framl. Gæðavika haldin í annað sinn GÆÐASTJÓRNUNARFÉLAG ís- lands efnir til gæðaviku dagana 11-15. nóvember í samvinnu við Evrópusambandið. Þetta er í annað sinn sem slík vika er haldin og ber hún yfirskriftina „Vinnum saman — gæði í þágu þjóðar". Gæðavikan hefst með morgun- verðarfundum á mánudag. Gæða- starf Svæðisskrifstofu málefna fatl- aðra á Reykjanesi verður kynnt á fundi hjá Svæðisskrifstofunni í Kópa- vogi og haldinn fundur í Ráðhúsi Reykjavíkur um visthæfa ferðaþjón- ustu og umhverfisstjórnun. Á þriðju- dag verður haldinn fundur faghópa í stjórnstöð Landsvirkjunar. Síðdegis á þriðjudag verður fundur í heilbrigð- is- og tryggingamálaráðuneytinu og á miðvikudag munu nemendur í við- skiptadeild HÍ kynna verkefni úr atvinnulífinu í Þjóðarbókhlöðu. Á fimmtudag verður fagnað 10 ára afmæli GSFÍ í Listasafni íslands og á föstudaginn verður flallað um gerð gæðakerfis í Smáraskóla í Kópavogi. Veltanjókst um 12,5% HEILDARSALA geislaplatna, hljóm- platna og snældna hjá aðilum innan Samtaka hljómplötuframleiðenda nam alls 307,5 milljónum króna fyrstu níu mánuði ársins sem er um 12,5% aukning frá fyrra ári. Seldust alls 359.313 eintök á tímabilinu. Ef miðað er við að smásöluálagn- ing hafi verið 50% að meðaltali á tímabilinu fæst út að heildarveltan á smásölumarkaðnum að meðtöldum virðisaukaskatti hafið numið um 574 milljónum króna. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Hagvangs hf. um hljómplötumark- aðinn, en fyrirtækið annast upplags- eftirlit fyrir Samtök hljómplötufram- leiðenda. Allir stærstu aðilar sem framleiða og seija íslenskt og erlent tónlistarefni^ tóku þátt í könnuninni, en það eru íslensk tónverkamiðstöð, Japis, Skífan og Spor. Miðað við töl- ur Hagstofunnar ráða þessi fyrirtæki um 95% af markaðnum. Söluaukning á erlendu efni varð mun meiri á tímabilinu eða 17,8%, en einungis 2,2% á innlendum plöt- um. Samtök hljómplötuframleiðenda benda á í þessu samoandi að nú fari í hönd aðalvertíð íslenskrar hljóm- plötuframleiðslu, en ráðgert sé að gefa út um 100 íslenskar plötur nú fyrir jólin. Reynslan sé sú að um 40-50% af heildarsölu hljómplatna fari fram á síðasta ársfjórðungi og því sé ljóst að staða íslenskra platna eigi eftir að batna nokkuð í þessum samanburði. Skífan ræður stærsta hluta markaðarins Á meðfylgjandi töflu má sjá mark- aðshlutdeild einstakra fyrirtækja á þessum markaði. Skífan ber þar höf- uð og herðar yfir hin fyrirtækin með samtals 45,5% markaðshlutdeild, en þess ber að geta að Skífan á helming hlutafjár í næststærsta fyrirtækinu, Spori, sem hafði 34% markaðshlut- deild. Ætlunin er að framkvæma slíka könnun ársfjórðungslega og gefa út niðurstöður eftir hvern ársfjórðung ásamt heildarskýrslu fyrir hvert ár. Kröfu um afhendingu bókbandsvélar hafnað HÆSTIRÉTTUR hefur vísað frá héraðsdómi kröfu Flateyjar hf. bók- bandsstofu á hendur prentsmiðjunni Odda hf. um að fá afhenta bókbands- vél af gerðinni Stahl BL100. Jafn- framt er kröfu Flateyjar um beina aðfarargerð á hendur prentsmiðjunni Grafík hf. hafnað. Forsaga málsins er sú að bók- bandsstofan Flatey keypti vélina fyr- ir 5,5 milljónir króna af holienskum vélakaupmönnum í febrúar í vetur, en þeir höfðu fengið vélina hjá prent- smiðjunni Odda. Helmingur kaup- verðs var greiddur strax en hinn helminginn átti að greiða við afhend- ingu vélarinnar 1. mars. Þegar til kom neitaði hins vegar Oddi að af- henda vélina, þar sem samkomulag um sölu hennar hefði verið háð því að vélin yrði seld úr landi. Þetta er í annað skipti sem Hæsti- réttur hefur málið til umfjöllunar og það hefur einnig tvívegis farið fyrir héraðsdóm. Hingað til hefur dómur gengið Flatey í vil. í fyrra tilvikinu sem málið var til umfjöllunar dóm- stóla var málið höfðað á hendur prent- smiðjunni Odda. Þegar gera átti aðför á grundvelli þess dóms kom í ljós að umrædd vél var ekki í vörslu Odda heldur í vörslu prentsmiðjunnar Graf- íkur, sem að langmestu leyti er í eigu prentsmiðjunnar Odda. Þurfti því að höfða mál á nýjan leik gagnvart Graf- ík. Hæstiréttur vísar nú frá kröfu gagnvart prentsmiðjunni Odda á þeim grundvelli að Flatey hafí þegar með fyrri dómi Hæstaréttar „þá heimild, sem honum er þörf að lögum til að leita fullnustu á réttindum sínum með aðfarargerð á hendur sóknaraðilanum Prentsmiðjunni Odda hf., enda stend- ur heimildin óhögguð, þótt ekki hafi enn reynst unnt að fylgja henni eft- ir,“ eins og segir í dóminum. Þá hafnar Hæstiréttur kröfu um aðför á hendur Grafík á þeirri for- sendu, að sá vafi Ieiki á eignarrétti að mununum sem um er deilt og eftir atvikum hvort Oddi hafi haft heimild frá Grafík til að ráðstafa mununum í eigin nafni, að varhuga- vert sé að láta aðfarargerðina ná fram að ganga. Er meðal annars vísað til yfírlýsingar frá löggiltum endurskoðanda Grafíkur hf. frá 1. október síðastliðnum þar sem segir að bókbandsvélin sé hluti af eignum félagsins samkvæmt fyrningar- skýrslu. „Einnig liggur fyrir yfirlýs- ing þriggja stjórnarmanna í félaginu frá sama degi, þar sem fram kemur að því tilheyri munirnir, sem deilt er um í málinu, og hafí hvorki prent- smiðjunni Odda hf. né forsvarsmanni þess félags verið veitt heimild til þess að selja munina upp á sitt ein- dæmi. Þá er því jafnframt haldið fram af hálfu sóknaraðilans, prent- smiðjunnar Grafík hf., að hinir um- deildu munir séu í vörslu hans,“ seg- ir ennfremur í dómi Hæstaréttar. Þá kemur fram í dóminum að náin tengsl eru á milli prentsmiðjunn- ar Odda og prentsmiðjunar Grafíkur. Það megi meðal annars ráða af því að allir stjórnarmenn í prentsmiðj- unni Grafík, fjórir að tölu, eigi sæti í stjórn prentsmiðjunnar Odda ásamt fímmta stjómarmanninum. Ráðstefna um nýja tíma Möguleikar án takmarkana 26. - 27. nóyember
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.