Morgunblaðið - 08.11.1996, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 08.11.1996, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Lögreglan á Egilsstöðum handtók mann eftir stympingar Miðaði byssu á starfsstúlku veitingastaðar MAÐUR sem á við geðræn vandamál að stríða beindi byssu að afgreiðslustúlku á veitingastað í Fellabæ í fyrra- kvöld og viðhafði orðbragð og látæði sem starfsfólki og gest- um stóð stuggur af. Lögreglan á Egilsstöðum handtók manninn, sem virtist vera undir áhrifum vímu- gjafa. Hafði breytt byssunni Lögreglan var kölluð til um klukkan 22, en þá hafði mað- urinn veifað byssunni inni á staðnum og ógnað fólki þar og sjálfum sér. Að sögn lögreglu var þar um að ræða nokkurs konar „sjóræningjabyssu“ af þvítagi sem víða má fá á suðrænum ferðamannastöðum, en mað- urinn kvaðst hafa gert breyt- ingar á henni til að hægt væri að skjóta úr henni. Hann skipaði afgreiðslustúlkunni að horfa í byssuhlaupið og hafði orð á að hann hygðist fyrir- fara sér. Annað athæfi mannsins var af sama tagi, auk þess sem hann æddi inn og út úr veit- ingastaðnum og sinnti engu fortölum starfsfólks. Þegar lögreglan kom á staðinn bar maðurinn byssuna ekki á sér og leikur grunur á að hann hafi fleygt henni frá sér í ná- grenninu, Menn úr björgunarsveitum svipuðust eftir vopninu í gær, en sú leit hafði ekki borið árangur síðia kvölds. Mótþrói við handtöku Maðurinn veitti nokkra mótspyrnu við handtöku og sparkaði m.a. út hliðarrúðu í bifreið lögreglunnar. Honum var sleppt í gærmorgun að lokinni yfirheyrslu. Úlfar Jónsson lögreglu- varðstjóri á Egilsstöðum kveðst telja það mikið áhyggjuefni hve fáliðað emb- ætti sýslumanns er í bænum, en aðeins tveir lögreglumenn starfa þar. „Svæðið er mjög stórt og það er að verða nánast árviss viðburður að við þurfum að kljást við vopnaða menn sem eru til alls líklegir. Það er deg- inum ljósara að hér þyrftu að vera sex menn en ekki tveir, og mér er kunnugt um að ósk þar að lútandi hefur komið frá sýslumanni á Egilsstöðum, en þetta virðist stranda í ráðu- neytunum í Reykjavík," segir hann. Morgunblaðið/Ingvar Klipptur úr flakinu HARÐUR árekstur varð á gatnamótum Nýbýla- vegar og Skemmuvegar um klukkan ellefu í gærmorgun þegar fólksbifreið og jeppi skullu saman. Okumaður fólksbílsins festist í bílnum og þurfti að kalla til tækjabíl slökkviðliðsins í Reykjavík til að klippa hann út úr flakinu. Hann var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild en er ekki talinn alvarlega slasaður, samkvæmt upplýsingum frá Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Hinn ökumaðurinn er talinn hafa sloppið ómeiddur. Minni bifreiðin er talin gjörónýt. Samkeppnisstofnun óskar upplýsinga um viðskipti VÍS SAMKEPPNISSTOFNUN telur að lokinni frumathugun að ástæða sé til að kanna frekar kaup Vátrygg- ingafélags íslands á þremur félög- um Skandia hér á landi og kaup Flugleiða á þriðjungshlut í Ferða- skrifstofu íslands hf. Kannað verð- ur hvort kaupin brjóti gegn ákvæð- um samkeppnislaga um markaðs- ráðandi stöðu fyrirtækja, sem leiði til þess að samkeppni skerðist. Eins og skýrt vai frá í Morgun- blaðinu í síðustu viku ákvað Sam- keppnisstofnun að gera frumkönn- un á því, hvort ástæða væri til að kanna mál VÍS og Flugleiða frek- ar. Guðmundur Sigurðsson, for- stöðumaður samkeppnissviðs Sam- keppnisstofnunar, sagði þá að hann gæti ekki tjáð sig um horfur á nánari rannsókn. „Ég get stað- fest að við höfum ritað Vátrygg- ingafélagi íslands og Flugleiðum bréf, þar sem við förum fram á nánari upplýsingar vegna fjárfest- inga þeirra," sagði Guðmundur í samtali við blaðið í gær. Framhald athugunar Sam- keppnisstofnunar ræðst þegar svör hafa borist frá fyrirtækjunum. Mannréttindanefnd Evrópu telur kæru íslensks lögmanns tæka til meðferðar MANNRÉTTINDANEFND Evr- ópuráðsins telur að kæra frá Sig- urði Georgssyni, hæstaréttarlög- manni, um að tjáningarfrelsi hans hafi verið skert með áminningu sem stjórn Lögmannafélags Is- lands veitti honum fyrir ummæli sem eftir honum voru höfð í blaða- grein, sé tæk til efnislegrar með- ferðar hjá nefndinni. Hæstiréttur íslands staðfesti áminningu þá sem Sigurði var veitt. „Ég fagna þessari niðurstöðu og er ákaflega ánægður með hana,“ sagði Sigurð- ur í samtali við Morgunblaðið í gær. Frestur til að leita sátta í bréfí Mannréttindanefndar- innar með rökstuðningi fyrir þeirri ákvörðun að taka málið til með- ferðar segir að hafí aðilar málsins, þ.e. íslenska ríkið og Sigurður Georgsson, en lögmaður hans er Magnús Thoroddsen, ekki náð sáttum fyrir 6. desember næstkomandi verði mál- ið tekið til efnislegrar meðferðar hjá nefndinni, án frekari gagnaöflunar. Mannréttindanefnd Evrópu fékk mál Sigurð- ar til meðferðar árið 1993 og hef- ur m.a. leitað skýringa íslenskra stjómvalda. Gagnaöflun lauk á síðasta ári en fyrrgreint álit er frá 25. október sl. Sigurður sneri sér til Mannrétt- indanefndarinnar í Strassborg árið 1993, eftir að Hæstiréttur hafði staðfest þá niðurstöðu stjórnar Lögmannafélags íslands að áminna bæri Sigurð vegna um- Brotið gegn tjáning- arfrelsi lögmanns? Jaf ngildir að komast gegn- um fyrstu síu hjá nefndinni mæla sem voru eftir honum höfð í grein í Pressunni. Skipti í dánarbúi Pressan hafði fjallað í maí 1992 um skipi í dánarbúi sem tekið var til opinberra skipta hjá Má Péturs- syni þáverandi bæjarfógeta og skiptaráðanda í Hafnarfirði árið 1984. Erfðaskrá var lögð fram í málinu þar sem arfleifandinn af- salaði sér þriðjungi eigna sinna til systursonar síns en honum hafði hann einnig selt íbúð sína, sam- kvæmt samningi. Hinn látni lét eftir sig dóttur og fyrir hennar hönd mótmælti Sigurður Ge- orgsson því að erfða- skráin yrði tekin gild. Eftir framburð tveggna vitna, sem sögðust hafa staðfest erfðaskrána að arfleifand- anum viðstöddum, var kröfu lög- mannsins hafnað. Kröfu Sigurðar til RLR um lögreglurannsókn á tilurð erfðaskrárinnar var hafnað. Síðar á árinu 1984 gerðist það að annað vitnanna tveggja dró fyrri framburð sinn til baka og sagðist hafa staðfest erfðaskrána eftir andlát arfleifandans. í framhaldi af því kom í ljós að erfðaskráin var fölsuð og árið 1986 fékk dótt- ir hins látna afhentar eignir föður síns. Systursonurinn og vottarnir tveir voru saksóttir og dæmdir fyrir sinn hlut í málinu árið 1990. Pressan skrifaði um þetta mál árið 1992 og hafði efnislega eftir Sigurði Georgssyni að hann hefði haft alvarlegar efasemdir um áreiðanleika þeirra skjala sem systursonurinn hefði lagt fram og að hann hefði ítrekað að meðferð dánarbúsins yrði frestað. Hann hafi einnig kært málið til RLR, sem síðar hefði sýnt fram á að erfðaskráin var fölsuð, en þá hefði verið búið að afhenda falsaranum allar eignirnar. Aminntur fyrir brot á siðareglum Már Pétursson brást við grein Pressunnar, sem birtst með mynd af Má yfír forsíðu blaðsins og fyr- irsögn þar sem sagði að erfingi hefði orðið arflaus vegna afglapa hans, með því að senda bréf til Lögmannafélags íslands með beiðni um að stjórnin áminnti lög- manninn fyrir ummælin sem stönguðust á við lög um lögmenn og tilteknar siðareglur félagsins. Ritstjóri blaðsins var síðar einnig dæmdur til að greiða Má skaða- bætur vegna greinarinnar og mörg ummæli í henni dæmd ómerk. Stjóm Lögmannafélagsins ákvað að veita Sigurði Georgssyni áminningu fyrir að hafa ekki virt skyldur sínar samkvæmt 18. grein siðareglna lögmannastéttarinnar. Sú grein kveður á um að lögmenn skuli sýna dómstólum fulla tillits- semi og virðingu í ræðu, riti og framkomu. Gagnrýni á störf og starfshætti dómstóla skuli vera málefnaleg og fagleg. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu stjómarinnar þegar málinu var skotið • þangað eins og lög gera ráð fyrir, en þau veita stjórn lög- mannafélagsins ákveðið dómsvald í innri málum stéttarinnar. Nauðsyn í lýðræðisríki? Sigurður Georgsson skaut mál- inu til Mannréttindanefndarinnar eftir dóm Hæstaréttar og taldi brotið gegn því tjáningarfrelsi sem 10. grein Mannréttindasáttmála Evrópu er ætlað að vernda. Sig- Hæstiréttur staðfesti áminningu LMFÍ urður taldi fyrrgreind ummæli sín ekki hafa verið meiðandi og að þau hafi verið sett fram í góðri trú. Hann vefengdi að hægt væri að gera sig ábyrgan fyrir því hvaða ályktun blaðamaður hefði dregið af ummælum hans í samtali þeirra. Þá hélt hann því fram að þessi takmörkun á tjáningarfrelsi hans hefði ekki verið réttlætt og að hún uppfyllti ekki t.a.m. það skilyrði sem sett er í fyrrgreindri 10. grein Mannréttindasáttmálans, að tak- mörkun tjáningarfrelsis manns fái því aðeins staðist að telja megi hana nauðsynlega í lýðræðisríki. í rökstuðningi Mannréttinda- nefndarinnar fyrir því að taka málið til meðferðar kemur fram að íslenska ríkið telji takmörkun- ina hafa verið brýna frá þjóðfé- lagslegu sjónarmið þegar haft sé í huga að ummæli Sigurðar hafi verið ósannar fullyrðingar sem að óþörfu hafi varpað rýrð á störf dómara og hafí þannig verið til þess fallin að draga úr áliti almenn- ings á dómstólum. Sú ákvörðun Mann- réttindanefndarinnar að telja málið tækt til frek- ari meðferðar jafngildir að það komist í gegnum fyrstu síu hjá nefndinni. Aðeins lítill hluti þeirra mála sem skotið er til Strassborg- ar kemst í gegnum þá síu. Komist nefndin að þeirri niðurstöðu við umfjöllun um málið að brotið hafi verið gegn tjáningarfrelsisákvæði Mannréttindasáttmálans leggur hún málið fyrir Mannréttindadóm- stól Evrópu. I i í i i I I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.