Morgunblaðið - 08.11.1996, Síða 30
30 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996 31
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDl: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
VINNUTIMINN OG
F J ÖLSKYLD AN
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA, Páll Pétursson, mælti í vik-
unni fyrir þingsályktunartillögu um fjölskyldustefnu
stjórnvalda. Að sögn ráðherra á markmið fjölskyldustefnu
að vera að skapa skilyrði til þess að ná jafnvægi milli fjöl-
skyldulífs og atvinnu foreldra.
Ráðherra leggur áherzlu á að þetta jafnvægi náist ekki
nema með því að stytta meðalvinnudag Islendinga. Fjöl-
skyldan líði fyrir hinn óhóflega langa vinnudag, sem hér
tíðkist. Hann skorar því á aðila vinnumarkaðarins að semja
í komandi kjarasamningum um aðgerðir til að stytta vinnu-
daginn.
Margt bendir til að bæði vinnuveitendur og verkalýðs-
hreyfing hafi nú þegar áttað sig á mikilvægi þess að stytta
vinnudaginn. Miklu skiptir að árangur náist í því efni. Stytt-
ing vinnutímans snýst ekki einvörðungu um efnalega af-
komu, heldur stuðlar hún líka, eins og félagsmálaráðherra
bendir á, að því að styrkja fjölskylduna.
Undirrót langs vinnutíma hér á landi er óhagkvæmt
skipulag vinnunnar, léleg afköst og lítil framleiðni. Einnig
eimir eftir af úreltri yfirvinnudýrkun. íslendingar eyða því
löngum tíma í vinnunni að óþörfu. Ekki fer á milli mála
að með breyttum vinnubrögðum má stytta vinnutímann.
Þannig er hægt að lengja þann tíma, sem fólk á með fjöl-
skyldu sinni.
Stytting vinnutímans er hins vegar einnig framlag til
jafnréttisbaráttunnar. Karlar vinna meginþorra þeirrar yfir-
vinnu, sem er unnin á íslandi og aðrar kröfur eru gerðar
til þeirra en kvenna í þeim efnum. Stytting vinnutímans
hlýtur að miða að því að jafna vinnudag kynjanna, þannig
að karlmenn hafi sömu tækifæri til að vera með fjölskyldu
sinni og konur og axli sömu ábyrgð á heimilishaldi og barna-
uppeldi.
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambandsins, benti á í viðtali hér í blaðinu síðastliðinn
sunnudag að stærsti munurinn á launum karla og kvenna
lægi í mismunandi vinnutíma. Stytting vinnudagsins og
hækkun dagvinnulauna væri því leið til að draga úr launa-
mun kynjanna. Þetta má til sanns vegar færa, en þó eru
áhrifin einnig í hina áttina - vegna þess að konur fá al-
mennt lægri laun en karlar, jafnvel fyrir sömu vinnu, hafa
hjón tilhneigingu til að ákveða að karlinn taki frekar að
sér yfirvinnu en konan til að auka tekjur heimilisins. Jafn-
framt styttingu vinnutíma þarf því að grípa til sérstakra
aðgerða til að jafna launamuninn.
ATVINNULEYSIS-
TRYGGINGAR
ENDURSKOÐUN á lögum um atvinnuleysistryggingar
þarf að tryggja tvö meginmarkmið, annars vegar að
atvinnulausum, sem þurfa á opinberri aðstoð að halda,
verði tryggð lífvænleg afkoma og hins vegar að koma í
veg fyrir misnotkun á atvinnuleysisbótum.
Páll Pétursson, félagsmálaráðherra, hefur kynnt í ríkis-
stjórn frumvarpsdrög að breytingum. Þar er m.a. gert ráð
fyrir, að rétt til atvinnuleysisbóta eigi fólk á aldrinum 18-70
ára, en nú geta unglingar frá 16 ára aldri fengið bætur.
Þessi breyting er eðlileg, þar sem yfirgnæfandi hluti ung-
menna er við nám á þessum aldri. Einhver hópur unglinga
hættir þó námi fyrr af ýmsum ástæðum. Nær væri að verja
fé tii að veita þessum unglingum starfsþjálfun í samvinnu
við atvinnulífið.
Frumvarpsdrögin taka einnig á þeirri alvarlegu meinsemd
í atvinnuleysistryggingarkerfinu, að ýmsir hópar launþega,
sem komast snemma á eftirlaun, fá greiddar atvinnuieysis-
bætur. Þarna er um tiltölulega hátt launaða ríkisstarfsmenn
að ræða, t.d. flugumferðarstjóra, og launþega á almennum
vinnumarkaði, t.d. flugmenn. Bótagreiðslur til slíkra hópa
ganga þvert á tilgang atvinnuleysistrygginga. Er með ólík-
indum að þetta hafi viðgengizt og fé skattgreiðenda streymt
þannig út um gat í löggjöfinni. Ætlunin er, að framvegis
verði lífeyrisgreiðslur dregnar frá atvinnuleysisbótum.
ítrekað hefur verið haldið fram á opinberum vettvangi,
að atvinnuleysiskerfið sé misnotað í stórum stíl, m.a. er
þar nefnt til sögunnar, að atvinnuleysisbætur úr ríkissjóði
séu greiddar til fólks, sem í raun eigi heima í félagslega
kerfinu, sem er kostað af sveitarfélögunum. Þetta atriði
er aðeins eitt af þeim, sem þingmenn þurfa að grand-
skoða, þegar frumvarpið kemur tii kasta Alþingis.
Eldgos og
Skeiðarár-
hlaup 1996
Fjórða stærsta eldgos á Islandi á þessari öld
stóð aðeins í 17 daga. Frá fyrsta degi þess
streymgi bræðsluvatn í Grímsvötn, en
síðastliðið vor hafði hlaupið úr þeim.
Á 37 dögum yfirfylitust vötnin og hlupu
á nýjan leik. Afleiðingin varð mesta og hraðasta hlaup
aldarinnar. Tjón á mannvirkjum varð gífurlegt en þrátt
fyrir allt minna óttast var í fyrstu.
r.r'VV', ,
tu
NORÐUR
Jarðskjálftar
Við jarðskjálftann kl. 10.48 varð samgengi til norðvesturs í Bárðarbungu.
Land fyrir suðaustan upptök hans gekk lítillega til norðvesturs. Sunnar og
austar varð spennulækkun og hliðarþrýstingur á hina verðandi gossprungu
lækkar. Við lækkandi hliðarþrýsting á sprunguna fer kvika smám saman
að streyma upp um hana. Daginn eftir hafa skjálftarnir hafa flust sunnar.
Kvikan er að þrýsta sér upp gossprunguna niðri í jarðskorpunni. Margir
jarðskjálftar verða þar í nágrenninu sem kvikan er að brjóta sér leið upp.
29. SEPT. Hrina jarð-
skjálfta hefst í Bárðar-
bungu kl. 10.48. Hrinan
boðar komu eldgoss.
30. SEPT. Stuttu fyrir miðnætti
hefst gos á um 6 km langri
sprungu undir ísnum. Bræðslu-
vatn rennur til Grímsvatna.
2. OKT. Um kl. 5 um morguninn brýst
eldurinn upp úr 400 metra þykkum
ísnum. Sprengingar þeyta ösku
í 300-500 metra hæð.
^ V * ;
Eldgosinu er lokið, eða liggur nú niðri. Eldgígurinn sem lengst var virkur hefur náð að hlaðast upp úr
vatni og gjáin er nánast full af gosefnum.
7. OKT. Gosi iokið. Eldgígurinn hefur
náð upp úr vatninu. Vatnshæð
Grímsvatna er komin
í 1.505 metra.
5. nóv. Skeiðarárhlaup hefst kl.
morguninn. Hlaupið nær hámarki um
kl. 23 með 45 þús. rúmm. á sek. Tvei
dögum seinna er hlaupið hjaðnað.
Rennsli, SíðaSta
njmmetrar ,7
á sekúndu hlaUP
45.000
Nokkur
Fjögur stærstu
eldgos á öldinni
Aætlað
rúmmál
gosefna
Katla 1918
Hekla 1947
Surtsey 1963-67
Vatnajökull 1996
(Heimaey 1973
(Vatnajökull 1938
Meira en 1,0 rúmkm
1,0 rúmkm
1,0 rúmkm
0,6-0,7 rúmkm
■ MMHMHMMMMMMMMHHMMMMMMMMM
0,4 rúmkm)
0,3 rúmkm)
2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9.10.11.12.13,14.15.16.17,18. 19. dagur
Morgunbladið/GÓI