Morgunblaðið - 08.11.1996, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996 49
BREF TIL BLAÐSINS
Fjöldi fólks undir
framfærslumörkum
Frá Guðvarði Jónssyni:
EFNAHAGSLÍFIÐ er nú óðum að
rétta úr kútnum eftir langvinna
erfiðleika. Verðbólga er mjög lítil
og gengi íslensku krónunnar stöð-
ugt. Vextir hafa lækkað verulega
frá því sem áður var en það hefur
stuðlað að aukinni fjárfestingu fyr-
irtækja og léttari vaxtabyrði
heimilanna. Skapaðar hafa verið
forsendur fyrir fjölgun starfa,
auknu atvinnuöryggi og bættum
hag heimilanna í landinu.
Þetta er boðskapur fjármálaráð-
herra til landsmanna, í upphafi
þings.
En íjármálaráðherra er með sér
boðskap til öryrkja og ellilífeyris-
þega. Örorku- og ellilífeyrir hefur
verið tekinn úr sambandi við kjara-
samninga stéttarfélaga og Ríkis-
endurskoðun gert að ákvarða ör-
orku- og ellilífeyri, þá sennilega í
samræmi við vilja fjármálaráðherra.
Einnig hefur örorku- og ellilífeyrir
verið lækkaður vegna slæmrar stöðu
ríkissjóðs, að sögn ráðherrans.
Ellilífeyrisþegi, sem var með
50.000 kr. á mánuði í heildartekjur,
og hafði þar af frá Tryggingastofn-
un 28.250 kr., en sú upphæð lækk-
uð niður í 22.827 kr. eða um 6.448
kr., sem mun vera tæplega 23%
iækkun, hefur því nú ekki nema
43.560 kr. í heildartekjur á mán-
uði. Þetta verður að teljast allfurðu-
Ieg aðför að réttindum, sem menn
eru búnir að borga inn á alia sína
starfsævi. Hér er því ekki um að
ræða neina gjöf frá ríkinu til ellilíf-
eyrisþega, heldur er verið að standa
við skuldbindingu og gera skil á
áður innborguðum fjármunum.
Annað atriði í lögum um ellilífeyr-
ir er allfurðulegt. Þegar þannig hátt-
ar til hjá hjónum að annar aðilinn
hefur misst vinnu vegna aldurs, en
hinn heldur áfram á vinnumarkaði,
þá ákveður ríkið að nota tekjur laun-
þegans, sem eru fram yfir hámarks
ellilífeyri, tii lækkunar á tekjutrygg-
ingu ellilífeyrisþegans. Með þessum
hætti sækir ríkið hluta af þeim
greiðslum, sem það er ábyrgt fyrir,
í launaumslag launþegans. Ekki
minnist ég þess að hafa séð það í
félagslögum, eða heyrt að til væru
landslög, er skylda þá launþega,
sem eru giftir ellilífeyrisþega til að
greiða hærri skatta til ríkisins, en
aðrir launþegar, en það að ríkið
geri launþegann ábyrgan fyrir hluta
af ábyrgð ríkisins á ellilífeyri, er
ekkert annað en skattlagning. Rétt
er líka að hafa það í huga að laun
eru greidd fyrir framlagða vinnu
einstaklings og eftir að greidd hafa
verið lögboðin gjöld af laununum,
eru þau eign launþegans og hann
einn hefur ráðstöfunarrétt á þeim.
Ætli launþeginn að vera svo
ósvífinn að reyna að bæta fjárhags-
stöðuna með því að vinna þá nætur-
vinnu, sem hann ætti kost á, er
honum hreinlega sýnt í tvo heim-
ana. 50% af næturvinnunni eru tek-
in til frekari lækkunar á tekju-
tryggingu lífeyrisþegans. 42% í
skatta og afgangurinn til að greiða
félagsgjald og í lífeyrissjóð. Þessi
lög hafa aðeins áhrif á lægstlaun-
aða fólkið, því það hefur einskisnýt-
an lífeyrissjóð, en þeir sem fá úr
lífeyrissjóði jafn háar eða hærri
greiðslur en full tekjutrygging er,
verða ekki fyrir skerðingu á launum
þess maka sem vinnur. Ef þessi lög
hefðu áhrif til lækkunar á tekjum
hálaunafólks, er líklegt að þau
væru strax numin úr gildi.
Allt er þetta gert vegna þess að
fjárhagsstaða ríkissjóðs er svo
slæm. En er hún í rauninni svona
slæm, ekki virðist yfirlýsing fjár-
málaráðherra, sem ég vitnaði til í
upphafi þessa bréf, benda til þess,
enda virðist stór hópur manna nán-
ast vaða í peningum.
Ekki kvartar ríkið undan því að
borga mönnum í hálaunahópum
jafnvel milljón á mánuði eða meira,
þó sú upphæð sé langt fram yfir
það, sem þarf til að standa undir
eðlilegum heimiliskostnaði. Ekki er
heldur kvartað undan því að greiða
þeim 50-100 þúsund kr. í launa-
hækkun á mánuði og greiða launa-
uppbót, þijú ár aftur í tímann, upp
á margar milljónir.
Svo stendur ríkisvaldið fyrir stór-
felldum austri á fjármunum upp á
milljarða, úr auðlind þjóðarinnar, í
vasa vissra manna fyrir ekki neitt.
Hvernig menn geta selt annarra
eign, án þess að hafa keypt hana,
er óskiljanlegt. Og sagt er að sölu-
hagnaðurinn sé skattfijáls.
Aðstöðu til að kvótasölumenn
geti stundað þessi viðskipti, skapa
ráðherrarnir. Þetta eru kannski bara
nokkrir milljarðar á milli vina.
Mig minnir að íslendingar séu
taldir með tekjuhærri þjóðum í Evr-
ópu, miðað við tekjur á mann, og
ættum því að geta rekið þjóðfélagið,
án þess að vera með stóran hóp af
fólki langt undir framfærslumörk-
um. Það hvarflar því að manni að
við veljum ekki rétt þegar við kjós-
um til Alþingis, séum því með stór-
an hóp manna á þingi, sem ekki sé
starfi sínu vaxinn.
Kannski erum við kjósendur ekki
nógu kröfuharðir við flokkana um
val á frambjóðendum. Það mætti
kannski velta því fyrir sér, fram að
næstu kosningum.
GUÐVARÐURJÓNSSON,
Hamrabergi 5, Reykjavík.
færðu sængurverasett
og ptfulak í kaupbæti
Tilboðið gildir frá Z5. október til 16. nóvembor.
BreicUir: 120, 140, 1Ó0 ogf 180
Leng’dir: 190, 200 ogf 210
EFTIRTALDAR VERSLANIR SELJA SPRINGDÝNURÚM:
Suðurland: Húsgagfnaverslunin Reynistaáur,
Vestmannaeyjum
Austuríandi: Hólmar lif., Húsgagnaverslun
Reyáarfirái
Vestfirðir: Húsgagnaloftiá,
Isafirái
Norðurland:
Vöruliær kf., Akureyri
Vestu rland : Versluniu
Bjarg kf., Ak ranesi
Suðumes: HK kúsgfögfn,
Keflavík
Reykjavík og nágrenni:
Lystaclún- Snælancl
Mikið úrvaí áklceða
— klœðskerasaumað
eftir óskum.
DUNLUX-SVAMPDYNUR15% AFSLÁTTUR
Dúnlúx -svampclýnur eru tii í margs konar fjéttleika,
allt frá útilegudý num til Jjykkra og vandaári dýna sem
u ppfylla k röfur vandlátra um mýkt ogf stuðningf.
Þær fást sérsniðnar í livaáa rumstærð sem er.
Sjúkrafjjálfari aástoáar viö val á clýmim á morgun
á milli U. 12.00 og’ 16.00
/
Skútuvog’i 11* Sími 568 5588 ogf 581 4655
Opiá: VirLa dagfa 9-18, laugfardag 10-16