Morgunblaðið - 21.11.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1996 11
FRÉTTIR
Félagsmálastofnun
stækkar við sig
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
kaup á um 260 fermetra viðbótar-
húsnæði fyrir Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar að Suðurlands-
braut 32. Áætlað kaupverð eru
rúmar 15,6 milljónir.
í erindi félagsmálastjóra til
borgarráðs er bent á að í maí sl.
hafi hverfaskrifstofa II, flutt úr
húsnæði aðalskrifstofu í Síðumúla
39 í nýkeypt 408 fermetra hús-
næði á 2. hæð við Suðurlands-
braut 32. í kaupsamningi var gert
ráð fyrir forkaupsrétti að viðbótar-
húsnæði á sömu hæð.
Húsnæði Útideildar i
Tryggvagötu auglýst til sölu
Fram kemur að endurskipu-
lagning fjölskyldudeildar hafi ver-
ið í undirbúningi í vor og óljóst
um staðsetningu deilda hvað varð-
aði húsnæði. Akörðun lægi nú fyr-
ir og felur breytingin í sér flutning
á starfsemi Útideildar úr Tryggva-
götu 12 og þar með sé ekki lengur
þörf fyrir það húsnæði. Er lagt til
að húsnæði deildarinnar verði aug-
lýst til sölu strax og til afhending-
ar 1. mars næstkomandi.
Jólanáttföt
100% silki
frá kr. 3.690
Nouveau
ásama
tímaog
aðrir
SALA á Beaujolais Nouveau,
fyrsta víni uppskeruársins frá
Frakklandi, hófst á miðnætti í
nótt á Kaffi Reykjavík og var
um að ræða vín frá Georges
Blanc, er rekur þriggja stjörnu
veitingastað í Frakklandi. Sam-
kvæmt frönskum lögum er sala
á víninu leyfíleg þriðja fimmtu-
dag í nóvember ár hvert og
má opna flöskurnar á miðnætti.
Vín þessi hafa notið mikilla
vinsælda um heim allan og jafn-
an mikið kapphlaup að koma
víninu, sem enn var þrúgur á
vínviði fyrir tveimur mánuðum,
í hús á réttum tíma.
Vegna breyttra reglna gafst
nú tækifæri í fyrsta skipti til
að selja vínið á íslandi á réttum
tíma. Til þessa hefur franska
ríkisstjórnin veitt leyfi til að
flytja vínið til ákveðinna ríkja
þannig að það verði afhent 17.
nóvember. Nú hefur þessum
reglum verið breytt þannig að
afhenda má vín til allra ríkja
þann 15. nóvember, með því
skilyrði að sala heflist ekki fyr-
ir 21. nóvember.
Er innflytjendum gert að rita
undir yfirlýsingu þar sem þeir
heita að selja vínið ekki fyrir
miðnætti aðfaranótt fímmtu-
dagsins. Bijóti þeir þá reglu
verða þeir að greiða þúsund
franka sekt (um þrettán þúsund
krónur) fyrir hveija flösku, sem
seld var á röngum tíma.
Guðrún Guðlaugsdóttir, hjá
víndeild Austurbakka, sem
flutti inn vín frá Georges Blanc
í flugi, segir að fyrsta sending-
in sé þegar uppseld og að mörg
veitinga- og kaffihús hyggi á
sölu þegar á fimmtudagsmorg-
un. Má gera ráð fyrir að Beau-
jolais Nouveau komi í verslanir
einhvern tímann í næstu viku.
gera?“
Á köldum vetrardögum, þegar
hestar standa í höm í hvössum
vindinum virðast þeir láta sér
fátt um allar gestakomur finnast.
Þessir tveir, sem voru í hópi
annarra hrossa í Hvalfirði, gátu
þó ekki stillt sig um snúa sér að
ljósmyndaranum.
Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir
Hörð gagnrýni á íslenska bankakerfið í utandagskrárumræðu á alþingi
JÓ
„Hvað er
hún að
NÝJAR
Kjólar
frá kr. 2.690
Brýnt að breyta ríkis-
bönkunum í hlutafélög
FINNUR Ingólfsson, viðskiptaráð-
herra, segist vonast til þess að hægt
verði að samþykkja formbreytingu
ríkisviðskiptabankanna í hlutafélög
á yfirstandandi þingi. Hins vegar sé
það ekki forgangsverkefni að selja
eignarhlut ríkisins í ríkisviðskipta-
bönkunum heldur þurfí að auka eig-
ið fé bankanna með því að gefa nýj-
um aðiium kost á að kaupa hlutafé
í þeim. Þetta kom fram í utandag-
skrárumræðu á Alþingi í gær sem
efnt var til í tilefni af nýrri skýrslu
OECD um rekstur bankakerfísins.
Ágúst Einarsson, alþingismaður,
hóf umræðuna og spurði meðal ann-
ars tii hvaða aðgerða viðskiptaráð-
herra hygðist grípa til að Islending-
ar, einstaklingar og fyrirtæki, byggju
við sambærilegan mun á inn- og
útlánsvöxtum og þjónustugjöld og
tíðkuðust erlendis.
„Umfangsmikið starfsmannahald
og miklar afskriftir benda til þess
að stjórnun íslenska bankakerfisins
sé ábótavant. Afskriftir eru mun
hærri hér og mikið hefur tapast
vegna óvarkárni í útlánum og enginn
er látinn bera ábyrgð á því. Starfs-
mannakostnaður er einnig hæstur
hér sem er ekki vegna hárra launa
bankastarfsmanna, heldur vegna
mikils fjölda starfsmanna."
Ein milljón á mánuði i laun
„Það er altalað í viðskiptalífínu að
ýmsir íslenskir bankar séu slakir í
rekstri," sagði Ágúst ennfremur.
„Stjómun bankakerfísins og hæfni
bankastjóra kemur landsmönnum við.
Almenningur á stærstan hluta banka-
kerfísins og greiðir þessum mönnum
laun. Það hefur ekki vafíst fyrir ýms-
um í bankakerfínu að hafa eina millj-
ón króna í laun á mánuði og þá get-
ur sá sem greiðir gert kröfur um
hæfni og árangur. Það virðist ekki
vera fyrir hendi og því spyr ég: Hver
ber ábyrgð á þessum afleita rekstri
og hyggst ráðherra grípa til aðgerða
til að bæta stjómun í ríkisviðskipta-
bönkunum, t.d. með því að stuðla að
uppsögnum bankastjóra?"
Ágúst sagði að samkeppni erlendis
frá væri engin. „Erlendir bankar vilja
ekki koma hingað vegna smæðar
markaðar. Fyrirtæki og einkum þau
stærri reyna að hafa helstu bankavið-
skipti sín í útlöndum hjá ódýrari og
betur reknum bönkum. Almenningur
verður hins vegar að skipta við þetta
innlenda staðnaða og óhagkvæma
kerfí sem hann á sjálfur."
Þingmaðurinn vakti einnig athygli
á því að íslandsbanki hf. væri með
þriðja hæsta rekstrarkostnaðinn og
vandamálið væri því fyrst og fremst
fákeppni.
Tvöfaldur rekstrarkostnaður
Finnur Ingólfsson, viðskiptaráð-
herra, benti á í svari að hér á landi
væru litlir bankar með stórt útibúa-
net sem veittu víðtæka þjónustu á
litlum markaði í stóm landi. „En ís-
lenska bankakerfið er hins vegar of
dýrt. Á síðasta ári var rekstrarkostn-
aður íslenska bankakerfisins um 13
milljarðar króna. Það er alltof mikill
kostnaður miðað við það að miðla
fjármagni í okkar fámenna landi.
Rekstrarkostnaður banka og spari-
sjóða í Danmörku og Noregi er um
2,5% af eignum en hér á landi er
rekstrarkostnaðurinn nálægt 5% eða
tvöfalt hærri en í nágrannaríkjum
okkar. Nauðsynlegt er að draga úr
rekstrarkostnaði til að bankakerfið
geti varist ásókn erlendra keppinauta
í sífellt harðnandi samkeppni á al-
þjóðlegum vettvangi. Stefna ríkis-
stjórnarinnar hefur einmitt markast
af nauðsyn þess að gera nauðsynleg-
ar skipulagsbreytingar á fjármagns-
markaði til að markaðurinn sé betur
í stakk búinn til að mæta erlendri
samkeppni.“
Viðskiptaráðherra sagði að brýn
þörf væri á hagræðingu í íslenska
bankakerfínu. „Hlutverk ríkisvalds-
ins er fyrst og fremst að móta um-
gjörðina í kringum þessa starfsemi.
Brýnt er því að breyta ríkisviðskipta-
bönkunum í hlutafélög. Umgjörðin
sem stjórnvöld búa markaðnum á að
vera með þeim hætti að samkeppni
sé sem virkust því samkeppni leitar
til hagræðingar."