Morgunblaðið - 21.11.1996, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 21.11.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1996 23 Fjárdráttur í Norrænu ráðherra- nefndinni SÆNSKUR maður, sem var hátt- settur starfsmaður Norrænu ráð- herranefndarinnar, er grunaður um að hafa svikið um sex milljónir króna út úr ráðinu, að því er sagði í dag- blaðinu Svenska Dagbladet á þriðju- dag. Ráðið lagði fram kæru á hendur manninum til saksóknaraembættis- ins í Stokkhólmi á föstudag. Maður- inn var yfirmaður upplýsingamála í þijú ár hjá ráðherranefndinni í Kaup- mannahöfn. Hann sagði starfinu upp í sumar og flutti til Svíþjóðar, nokkr- um mánuðum áður en starfstími hans rann út. Samþykkti reikninga eigin fyrirtækis Grunsemdir vöknuðu um að mað- urinn hefði dregið sér fé fyrir tveim- ur vikum og er talið að misferlið hafi staðið frá árinu 1994 til síðasta sumars. Við endurskoðun kom í ljós að Svíinn hafði samþykkt háa reikn- inga frá ráðgjafarfyrirtæki, sem hann á sjálfur. Ástæðan fyrir því að þetta mál uppgötvaðist ekki fyrr var sú að maðurinn hafði miklar upphæð- ir tii ráðstöfunar í embætti sínu. Berth Sundström, eftirmaður mannsins, segir ekki rétt að norrænu samstarfsráðherrarnir fjórir hafí ætl- að að þegja yfir málinu. Ráðherrarn- ir komu saman á föstudag til að ræða meintan fjárdrátt mannsins. Hinn grunaði hefur ekkert viljað láta hafa eftir sér um málið. Samkomu- lag um evró- skatt á Ítalíu Róm. Reuter. ÍTALSKA ríkisstjórnin hefur náð samkomulagi við verkalýðshreyf- inguna um svokallaðan evró- skatt, sem á að fleyta Ítalíu inn í Efnahags- og myntbandaiag Evr- ópu (EMU) með því að fjárlaga- hallinn fari niður fyrir tilskilin mörk. ítalir hyggjast nú ganga að nýju inn í Gengissamstarf Evr- ópu (ERM). Verkalýðshreyfingin hafði hót- að allsheijarverkfalli, yrði skatt- urinn lagður á. Eftir erfiðar samningaviðræður hefur hún hins vegar sætt sig við tillögur Roman- os Prodi forsætisráðherra. Evró-skatturinn er margþætt- ur. í fyrsta lagi verður aukatekju- skattur lagður á til takmarkaðs tíma og á hann að skila tæplega helmingi þeirrar upphæðar, sem á vantar til að halli ríkissjóðs verði innan við 3% af landsfram- leiðslu. Afganginum á að ná með skatti á starfslokagreiðslur laun- þega og innheimtu gjaldfallinna skatta. Auk þess á að reyna að skuldbreyta einhverju af erlend- um lánum ítaliu. Skattafrádráttur eða forkaupsréttur við einka væðingu Prodi segir að almenningi verði bætt skattheimtan, annað hvort með skattafrádrætti frá og með árinu 1999 eða með því að veita skattgreiðendum forkaupsrétt að hlutabréfum í rikisfyrirtíekjum, sem á að einkavæða. Þótt tekizt hafi að friða verka- lýðshreyfinguna eru atvinnurek- endur óánægðir með evró-skatt- heimtuna og stjórnarandstaðan hefur sett sig upp á móti tillögum Prodis. „Þetta mun ekki verða timabundin skattheimta og senni- lega verða engar endurgreiðslur heldur,“ segir Giulio Tremonti, fyrrverandi fjármálaráðherra, sem nú er í stjórnarandstöðu. Drengir skáka stúlk- um í vísindum Boston. Reuter. ÞRETTÁN ára gamlar stúlkur eru eftirbátar drengja i ýmsum vísindagreinum. Kemur það fram í rannsókn, sem gerð var á menntunarástandi í 45 ríkjum víða um heim og birt var í gær. Nemendur í ýmsum Asíu- rilqum stóðu sig almennt best. Þriðja alþjóðlega stærð- fræði- og vísindarannsóknin náði til hálfrar miiyónar nem- enda og er niðurstaða hennar meðal annars sú, að þótt lítill munur sé á kynjunum í stærð- fræði er annað uppi á teningn- um í vísindum. Þar standa 13 ára gamlir drengir sig veru- lega betur, sérstaklega í eðlis- fræði, efnafræði og jarðvísind- um. Sagði dr. Albert Beaton, sem stjórnaði rannsókninni, að á þessum tímum æ meiri tækni- væðingar boðaði það ekkert gott fyrir atvinnumöguleika kvenna. Nemendur í Singapore stóðu sig best, jafnt í stærð- fræði sem vísindum, og nem- endur í Suður-Kóreu, Japan og Tékklandi stóðu sig líka vel. Bandaríkin, England og Nýja Sjáland voru fyrir neðan miðju í stærðfræði en árangur bandarískra og enskra nem- enda í vísindagreinum var nokkru betri. Alls staðar þar sem nemendur fengu að nota vasatölvur var árangurinn góður eða sæmilegur en þess ber þó að geta, að nemendur í Suður-Kóreu nota þær ekki en voru samt í öðru sæti. Ætla má, að bekkjarstærð hafi sín áhrif á kennslu og frammi- stöðu nemenda og í flestum rikjum eru færri en 30 í bekk. í S-Kóreu eru þeir þó yfirleitt rúmlega 40. Það vakti athygli í könnun- inni, að alls staðar þar sem nemendur höfðu aðgang að sjónvarpi horfðu þeir á það í um það bil tvær stundir á dag. .ff JUNCKERS Gegnheilt og varanlegt íþróttahús Verslanir og skrifstofur Heimili Kceror þakkirl Junckers í Damörku þakkar þann heiður sem íslensku forsetahjónin sýndu fyrirtækinu með því að heimsækja verksmiðjur þess í Koge. Um leið færum við öllum íslendingum þakkir fyrir gott samstarf og frábærar viðtökur á gegnheila Junckers parketinu okkar sem landsmenn hafa notað á þúsundir heimila, fyrirtækja og stofnana í meira en 60 ár. Egill Arnason hf Samstarfsaðili Junckers á Islandifrá 1934 Allir þekkja Blitsa parketlökk, viðarolíur og hreinsiefni frá Junckers.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.