Morgunblaðið - 21.11.1996, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 21.11.1996, Blaðsíða 53
r 4 i i i 3 i i i i í < ( < < i < MORGUNBLAÐIÐ AFMÆLI ASGEIR O. EINARSSON Ásgeir Ólafsson, svo heitinn eftir ung- um frænda sínum, er fæddur í Reykjavík hinn 21. nóvember 1906, Borgfirðingur í föðurætt, að móður- kyni Sunnmýlingur. Voru foreldrar hans Einar Ólafsson skips- kokkur frá Stóru- Fellsöxl og kona hans Þórstína Gunnarsdótt- ir frá Fögruhlíð á Djúpavogi. Bjuggu þau lengst á Lindar- götu 18, þar sem for- eldrar Einars og fjölskylda byggðu hús á aldamótum, síðast í Borgar- nesi. Börn þeirra voru sjö og eru enn á lífi Gunnar og Sigurbjörg. Eftir menntaskólanám, sem Sig- urjón föðurbróðir Ásgeirs styrkti hann til, vann hann um hríð að ýmsu verki, harðduglegur, ungur íþróttamaður og kappsfullur félagi í Ármanni, unz hann sigldi til Þýzkalands 1929 og hóf nám við dýralæknaskólann í Hannover. Því lauk hann 1934, en hafði gert eins vetrar hlé til að vera aðstoðarlækn- ir Hannesar Jónssonar, sem þá var héraðsdýralæknir í Gullbringu- og Kjósarsýslu, héraði, sem Ásgeir var skipaður til löngu síðar, 1950, og gegndi nær 18 ár. Þegar Ás- geiri hafði verið veitt Austurland, er hann var fullnuma, voru dýra- læknar á landinu orðnir sex. Annir hans voru miklar eystra í þau sex ár, sem hann gegndi þar embætti, enda vann hann mjög að rannsókn- um búfjársjúkdóma - og svo að athygli vakti, m.a. annars prófess- ors Níelsar Dungals, sem fékk hann til veturlangra starfa 1935-36 á Rannsóknarstofnun háskólans. Gekk hann ötullega fram í greiningu Deildartunguveik- innar og annarra illvígra sjúk- dóma, sem bárust til landsins með hinu alræmda karakúlfé frá Þýzka- landi 1933, þó að enn meira væri vert að hans eigin mati og annarra vísindamanna í greiningu búfjár- sjúkdóma, er hann uppgötvaði gamaveikina austur á Héraði. Fyr- ir það, klums- og doðalækningar með kalkgjöf í æð, hlaut hann síð- ar viðurkenningu hinnar íslenzku fálkaorðu. Eystra kynntist hann konu sinni, PCI lím og fuguefni -f i * 4 Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 567 4844 Láru Sigurbjömsdótt- ur í Ási í Reykjavík, en hún var einn vetur handavinnukennari á Hallormsstað, aðsetur hans í sömu sókn, Ket- ilsstöðum á Völlum. Vegna hörmulegs slyss í fjölskyldu henn- ar, er móðir hennar Guðrún Lárusdóttir rithöfundur og alþing- ismaður og tvær dæt- ur hennar fórust í bíl- slysi, fluttu hin ungu dýralæknishjón að austan og settust að í Ási. Bjuggu þeir þar í 30 ár saman síra Sigurbjörn Á. Gíslason og Ásgeir Ó. Einarsson, en dóttir prestsins og eiginkona dýralæknis- ins stýrði annasömu og gestkvæmu heimili tveggja embættismanna, sem vægt sagt var mikið til leitað. Síra Sigurbjörn mat kapp og for- sjá Ásgeirs mikils, áhuga hans og árangur í háskólagrein hans, auk íþróttamennsku, sönghæfni og fá- gætrar tungumálakimnáttu og málfræðiþekkingar. Á sama hátt virti Ásgeir tengdaföður sinn vel og var reiðubúinn til söngs og að- stoðar í starfi hans, hvenær sem færi gafst. Dýralæknis- og rannsóknar- störf Ásgeirs verða rakin annars staðar í tilefni af 90 ára afmæli hans, sem hann og fjölskylda hans bjóða til gestum í safnaðarheimili Lágafellssóknar í Mosfellsbæ nk. laugardag, 23. þ.m., kl. 15.30, en þar í sókn búa fjögur barna þeirra hjóna, en hið elzta norðan heiðar. í dag samgleðjast nánustu vinir og mágafólk afmælisbarninu á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, en þar hefur Ásgeir verið bókavörður lengst af, síðan hann lét af opinberum störfum sjötug- ur, og er ennþá. En lokakaflinn voru sex ár fulltrúa og ráðunautar hjá Heilbrigðiseftirliti ríkisins, auk kjötskoðunar á afskekktum stöðum í dreifbýlinu haust eftir haust, m.a. á Ströndum og á Norð- austurlandi. Ásgeir dýralæknir er glaðsihna maður, reifur og félagslyndur. Hjálpsemi hans í starfi, viðbragðs- flýti og uppörvun samfara læknis- heill lofuðu bændur og búendur. Hann er einarður og vandur að virðingu sinni, og drenglyndi hans og vináttu þakka gamlir kunningj- ar og vinir - og við tengdabörn hans og barnabörnin. Því að enn er afi í Ási. Síra Sigurbjörn lézt á tíræðisaldri fyrir 27 árum. Mað- ur kemur í manns stað. Og Ás- geir dýralæknir og húsbóndi í Ási fyllir hinn níunda tug aldurs síns í dag. Ágúst Sigurðsson, Prestbakka. Reykvíkingan! Reglulegum fundi Borgarstjórnar Reykjavíkur sem haldinn verður í dag, fimmtudag kl. 17:00, verður útvarpað á Aðalstöðinni FM 90.9. Skpilstola borgarstjóra FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1996 53 FRÁ ungiingameistaramóti íslands um síðustu helgi. Fremst tefla þeir Jón Viktor Gunnarsson, t.v., og Björn Þorfinnsson. Islandsmót á alnetínu SKAK A1 n e t i ð ÍSLANDSMÓT í „NETSKÁK" Nútímatækni gerir keppendum kleift að sitja heima hjá sér við einkatölvuna og tefla. Sunnudag- inn 24. nóvember kl. 20. SKÁKMÖNNUM, sem eiga tölvu og eru tengdir alnetinu, gefst nú kostur á að tefla um íslands- meistaratitilinn í nýrri grein: „net- skák“ eins og aðstandendur móts- ins kalla það. Eftirfarandi fréttatil- kynningu má lesa á alnetinu: „Taflfélagið Hellir heldur ís- landsmót í netskák sunnudaginn 24. nóvember næstkomandi sem hefst kl. 20. Tefldar verða 9 um- ferðir eftir Monradkerfi, 4 mínútna skákir með 2 sekúndu viðbót fyrir hvern leik. Veitt verða þrenn verðlaun í þremur flokkum, íslandsmeistari, Islandsmeistari áhugamanna (1.800 stig eða minna) og besti byrjandinn (skákmenn án íslenskra Elo-stiga). Gefandi verðlaunanna er EJS hf. Þetta er að athyglis- vert skákmót fyrir margra hluta sakir. Þetta er fyrsta skipulagða skákmótið á íslandi sem er teflt yfir alnetið og það sem meira er, Island er þar með fyrsta landið til að halda meistaramót í netskák! Teflt verður undir dulnefnum svo að aðilar vita ekki hvort þeir eru að tefla við stórmeistara eða byijendur! Þeir sem ætla að vera með skrái sig í gegnum tölvupóst til Halldórs Grétars Einarssonar (hge@ejs.is) fyrir 22. nóvember. í póstinum þarf að koma fram það dulnefni sem menn vilja nota í mótinu. Mótið er í boði Taflfélagsins Hellis og Einars J. Skúlasonar hf. og þátttaka er ókeypis." Þessar og frekari upplýsingar um mótið er að finna á heimasíð- unni: http://www.vks.is/skak/hell- ii7isnet96.html. Áhugasamir ættu að hafa samband við Hall- dór fyrr en seinna til að vera öruggir um að hafa réttan hug- búnað. Frá Skákfélagi Akureyrar Keppni í efsta flokki á Haust- móti Skákfélags Akureyrar er lokið. Keppendur voru aðeins sex og tefldu tvöfalda umferð. Að sögn Þórs Val- týssonar, formanns SA, hefur félag- ið misst 20 öfluga skákmenn suður til Reykjavíkur, til náms og starfa, undanfarin fimm ár. Sigurvegari á haustmótinu var Jón Björgvinsson, fékk 7'/2 vinn- ing af 10. Jón er í Skákfélagi UMSE og aukafélagi í Skákfélagi Akureyrar, hann getur því ekki orðið Haustmeistari SA. I 2.— 3. sæti urðu Smári Ólafsson og Þór Valtýsson með 6,5 vinn. Þeir tefldu einvígi um titilinn og sigraði Þór. Þór Valtýsson er því Haustmeist- ari Skákfélags Akureyrar 1996. Skákstjórar voru Albert Sigurðs- son og Ari Friðfinnsson. Atskákmót Akureyrar Mótið fór fram dagana 14. og 17. nóvember. Þátttakendur voru 10 og lauk mótinu með glæsilegum sigri Jóns Björgvinssonar, sem fékk fullt hús vinninga. Hann er því atskákmeistari Akureyrar 1996. .1. Jón Björgvinsson 9 v. 2. Rúnar Berg 8 v. 3. Smári Ólafsson 6'A v. Kiwanisskákmótið Kiwanisskákmótið, hið sjöunda í röðinni, var haldið laugardaginn 16. nóvember (á degi íslenskrar tungu). Mótið er fyrir grunnskóla- nemendur á Akureyri og hefur ávallt verið vel sótt. Teflt var í 9 aldursflokkum og gaf Kiwanis- klúbburinn Kaldbakur öll verðlaun og viðurkenningar og sá um veit- ingar á skákstað. Félagar í Skák- félagi Akureyrar sáu um skák- stjórn. Keppendur voru 107. Sig- urvegarar urðu: 9.-10. bekkur: Sverrir Arnars- son, Gagnfræðaskóla Akureyrar. 8. bekkur: Egill Örn Jónsson, Gagnfræðaskóla Akureyrar. 7. bekkur: Stefán Bergsson, Lundarskóla. 6. bekkur: Gunnar Ingi Valdi- marsson, Oddeyrarskóla. 5. bekkur: Júlíus Arason, Síðu- skóla. 4. bekkur: Ragnar Heiðar Sig- tryggsson, Lundarskóla. 1.-3. bekkur: Almarr Ormsson, Barnaskóla Akureyrar. Stúlknaflokkur eldri: Li(ja Sig- urðardóttir, Gagnfræðaskóla Akur- eyrar. Stúlknaflokkur yngri: Valdis Ösp Jónsdóttir, Barnaskóla Akureyrar. Mótaáætlun SA til áramóta: 10 mínútnamót með skylduleikjum (ítalski leikurinn) fimmtudaginn 21. nóvember kl. 20. 15 mínútnamót sunnudaginn 24. nóvember kl. 14. Skákmót fyrir 45 ára og eldri fimmtudaginn 28. nóvember kl. 20. Fischer/Fide klukkur. Hraðskák. Hraðskákmót sunnudaginn 1. des- ember kl. 14. Bikarmótið hefst fimmtudaginn 5. desember kl. 20. Sveitakeppni grunnskóla á Akureyri og nágr. lau. 7. og su. 8 des. kl 13.30. 10 mínútnamót fyrir 45 ára og eldri fimmtudaginn 12. desember kl. 20. 15 mínútnamót sunnudaginn 15. desember kl. 14. Keppni eldri og yngri skákmanna fimmtudaginn 19. desember kl. 20. 10.7 mínútnamót sunnudaginn 22. desember kl. 14. Hverfakeppnin föstudaginn 27. des- ember kl. 19.30. Jólahraðskákmótið sunnudaginn 29. desember kl. 14. HM öldunga Ingvar Ásmundsson er í 13. sæti ásamt rússneska stórmeist- aranum Mark Taimanov og mörg- um öðrum skákmeisturum á heimsmeistaramóti öldunga í Bad Liebenzell í Þýskalandi, sem lýkur um næstu helgi. Ingvar hefur fimm og hálfan vinning eftir átta umferðir og er taplaus. Eftir er að tefla þijár umferðir. Efstir með sex og hálfan vinning eru þrír gamalkunnir stórmeistarar, Wolf- gang Uhlmann, Þýskalandi, Evg- ení Vasjukov, Rússlandi og dr. Krogius, auk Rússans Shesto- perovs sem er titillaus. Margeir Pétursson TONLEIKAR Vi v j Sérstakur gestur: Maggi"mandolín"Einarsson y§f ROSENBERGKJALLARINN i KVÖLD 21. NÓV. K L. 21:00 Diskurinn er koftíiri JAPISS i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.