Morgunblaðið - 21.11.1996, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 21.11.1996, Blaðsíða 56
>6 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Egfrttti ab, )JZL, þeUa. Ctnn&r t>a nkö^ acrisb • k-c-yptA Ferdinand Smáfólk Það er hellingur af fugla- skoðurum á ferli í dag ... Þeir munu taka myndir. Þú ættir því að rísa upp og fara að fljúga um kring. Ég átti nú ekki beinlínis við þetta ... BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Okur Frá Gunnari Kr. Sigurðssyni: FIMMTUDAGINN 31. október síð- astliðinn voru tónleikar bresku rokk- sveitarinnar Super Furry Animals ásamt þremur íslenskum sveitum á skemmtistaðnum Tunglinu. Tón- leikarnir sem áttu að hefjast kl. 22 hófust þó ekki fyrr en um kl. 23 sökum rafmagnsleysis á staðnum fyrr um daginn, og þurftu því áhorf- endur að bíða í hrollkulda inná staðn- um meðan hljómsveitimar stilltu upp og prófuðu hljóðið. Tónleikamir vom hinir ánægjuleg- ustu og gáfu íslensku sveitimar þeirri bresku lítið eftir í gæðum og þá sér- staklega hljómsveitin Kolrassa krókríðandi sem að mínu mati átti þetta kvöld. Breska sveitin spilaði vel en þó skemmdi að mínu mati þó nokkuð fyrir hve hávaðinn var gífur- legur sem gerði það að verkum að erfítt var að greina bæði söng og einstök hlóðfæri, þar sem þau yfir- gnæfðu hvert annað. Svona vanda- mál eru þó venjulega fylgifískar tón- leika af þessu tagi og því ber að taka með jafnaðargeði. Það sem ég gat hins vegar ekki tekið með jafnað- argeði var álagning á drykki á barn- um þetta kvöld. Er ég ætlaði að væta kverkarnar og mýkja mig upp fyrir tónlist kvöldsins með 2-3 öl- krúsum komst ég að því að eini bjór- inn sem hægt var að fá var bjór í 33 cl fiöskum og það á 600 kr. stykk- íð!!! Þar sem ég var nú eiginlega búinn að kaupa bjórinn þegar ég heyrði þetta bijálæðislega verð lét ég mig hafa það að bölva í hljóði meðan afgreiðslumaðurinn tók 1.200 krónur út af debetkorti mínu fyrir tvo bjóra — ég hafði nefnilega slysast til að bjóða félaga mínum upp á bjór í til- efni kvöldsins. Ég hafði í einfeldni minni haldið að á þessum bar væri bara rukkað venjulegt okurverð fyrir flösku af bjór, eða 400-450 kr. stykk- ið, en ekki súper-okurverð. Það er skemmst frá því að segja að við félagarnir keyptum ekki meira á barnum þetta kvöld þó svo að upp- haflega hafí það verið hugmyndin að hlusta á góða tónlist og fá sér „nokkra kalda“ með. Það versta var að í för með bresku rokksveitinni voru erlendir blaðamenn og ljós- myndarar sem ætluðu að fylgjast með tónleikunum og stemmningunni og þeir hafa sjálfsagt ekki farið var- hluta af því að ein bjórflaska á barn- um kostaði um 6 ensk pund. Því þykir mér ekki ólíklegt að þessar upplýsingar fái að fjóta með í greina- skrifum þeirra eins og reyndar fjöþda annarra fyrirrennara þeirra. Við Is- lendingar verðum að fara að hugsa með hausnum áður en við fælum síð- asta ferðamanninn frá landinu hlæj- andi að okrinu á veitinga- og skemmtistöðum þessa lands. Falleg og sérstök náttúra er ekki það eina sem ferðamenn vilja sjá þegar þeir koma hingað, þeir vilja einnig borða á góðum veitingastöðum og skemmta sér án þess að þurfa í mörgum tilfell- um að borga 2-3 sinnum hærra verð en í heimalandi sínu. Meðan við bætum ekki úr þessu verðum við að athlægi hjá öðrum þjóðum og ferða- mönnum fjölgar ekki eins mikið og við viljum — svo mikið er víst. GUNNAR KR. SIGURÐSSON, Móaflöt 55, Garðabæ. Hvers vegna þarf endi- lega að staðla örnefni? Frá Ásmundi U. Guðmundssyni: LENGI hef ég ætlað að andmæla skrifum Þorkels Guðbrandssonar á Sauðárkróki og læt loks verða af því. Öll örnefnagjöf forfeðra okkar var rökrétt. Þeir voru ekki að burð- ast við að fínna upp nöfn á viðkom- andi kennileiti, vík, vog eða fjall, sem enginn skildi og átti ekki við, gagn- stætt núlifandi fólki sem smíðár hveija fáránlegu nafngiftina eftir aðra á staði sem hafa fram að þessu haft falleg og frambærileg nöfn sem allir skyldu sem á annað borð vildu skilja. En snobbræfilsháttur núlif- andi manna veldur því að nú skulu allir þéttbýliskjarnar enda á bær, þar með sveitirnar í kring, breytir í engu hvað hétu áður fallegu og auðskildu nafni. Greinilegt er að sama aðför skal höfð að gömlu nöfnunum sem prýða fjöll og firði, víkur og voga, einhæfa allt í örfá nöfn með svipuð- u.m formerkjum og þéttbýliskjarn- arnir eftir þvi sem hr. Þorkell Guð- brandsson, Grundarstíg 3, Sauðár- króki, skrifar um í Morgunblaðið fyrir nokkru og bar heitið „Stöðlun örnefna". Eftir þeim skrifum að dæma skulu öll ijöll heita til dæmis Mælifell, Tindastóll, Glóðafeykir, breytir engu hvað þessi flöll hétu áður, Hengill, Esja, Skjaldbreiður eða Herðubreið. Þessi nöfn þekkja allir og vita hvar þessi fjöll eru á landinu. Rökin fyrir stöðluðu nafn- giftinni eru að skjalaskáparnir í Bruxelles eigi að hýsa allt saman! Þvílíkur undirlægjuháttur! Nei, kæri hr. Þorkell, þangað í skjalaskápana í Bruxelles höfum við íslendingar ekkert að gera með okkar nafngiftir og örnefni. Við eigum að varðveita örnefnagjafir okkar óbrenglaðar á heimaslóðum þar sem örnefnin urðu til fyrr á öldum. Með því höldum við í heiðri séreinkenni hverrar sveitar og sýslu til yndis og ánægju fyrir óbornar kynslóðir. ÁSMUNDUR U. GUÐMUNDSSON, Suðurgötu 124, Akranesi. Hvad skal segja? 69 Væri rétt að segja: Hann ljáði mér þessa bók? Rétt væri: Hann léði mér þessa bók. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt tii að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.