Morgunblaðið - 21.11.1996, Qupperneq 30
hið Opinberal
30 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1996
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Nýjar bækur
Ohultar spurningar
UOÐABOKIN úr hnefa
eftir Arna Ibsen er komin
út. Bókin geymir þijátíu
og eitt ljóð þar sem leitað
er athvarfs í spurningum
sem „eru óhultar fyrir
deyðandi svörum", eins og
segir á einum stað í bók-
inni.
„Höfundurinn hikar ekki
við að spyrja stórt og leita
Árni
svara í óræðum myndum góðrar
ljóðlistar," segir í kynningu.
Úr hnefa er íjórða ljóða-
bók Árna Ibsens, en hann
er einnig afkastamikið leik-
skáld og er skemmst að
minnast leikrita hans eins
og Elín Helena, Himnaríki
- geðklofinn gamanleikur
og Ef væri ég gullfiskur?
Útgefandi er Mál og
menning. Bókin er 79 bls.
Ibsen unnin í Prentsmiðjunni
Grafík hf. Messíana Tómasdóttir
hannaði kápuna. Verð 1.680 kr.
Fyrstu ljóðabækur
Sigurðar í einni bók
UOÐVEGASAFN eftir
Sigurð Pálsson er komið
út. Hér er um að ræða
endurútgáfu á fyrstu
þremur bókum skáldsins:
Ljóð vega salt (1975), Ljóð
vega menn (1980) og Ljóð
vega gerð (1982).
I kynningu segir: „Þeg-
ar Sigurður Pálsson sendi
frá sér sína fyrstu bók,
Ljóð vega salt, árið 1975,
leyndist engum að þar var ort af Eyfjörð
mikilli list og kunnáttu. „Ansans kápu.
Sigurður
Pálsson
ári er Sigurður gott ljóð-
skáld!“ ritaði Ólafur Jóns-
son, gagnrýnandi um ljóða-
gerð hans á þessum árum
og æ síðan hefur útgáfa
hverrar nýrrar bókar eftir
Sigurð þótt tíðindum sæta
í íslenskum bókmennta-
heimi.“
Útgefandi er Forlagið.
Bókin er 291 bls., prentuð
í Grafík hf. Steingrímur
Kristmundsson gerði
Hafnarstúdentar
Laser Expression Penthim
Laser tölvurnar hafa verið á íslenskum markaði lengur en
nokkur önnur PC - samhæfð tölvutegund, eða frá árinu 1986.
II//LASER
computer
16mb vinnsluminni • 1,2 gb
harður diskur • 8 hraða geisladrif
16 bita hljóðkort»80whátalarar
14" litaskjár•Windows95•
Windows 95 lyklaborð •
Microsoft mús.
100 mhz. 123.900 stgr.
133 mhz. 134.900 slgn
Heimilistölvan er nýjasta heimilistækið og býður upp á ótal möguleika til gagns og
gamans fyrir alla fjölskylduna. 10 ára traust reynsla af Laser heimilistölvum hér á landi
ertrygging fyrir góðri endingu - og verðið er mjög gott!
Heimilistæki hf
TÆKNl-OG TÖLVUDEILD
SÆTÚNI 8 • SÍMI 569 1500 • http://www.ht.is
Kynnið ykkur málið betur og lítið inn til okkar!
BOKMENNTIR
Fræði rit
í BABÝLON
VIÐ EYRARSUND
eftir Margréti Jónasdóttur.
I félagsskap íslenskra stúdenta í
Kaupmannahöfn 1893-1970.
Hið íslenska fræðafélag í Kaup-
mannahöfn. Reykjavik 1996, 318 bls.
ÁRIÐ 1893 var íslenska stúd-
entafélagið í Kaupmannahöfn stofn-
að. Síðar hét það raunar Félag ís-
lenskra stúdenta í Kaupmannahöfn.
Það starfaði oft af krafti, ærslum
og miklum hugsjónum
til ársins 1970. Þá var
það illu heilli leyst upp
og við tók Félag ís-
lenskra námsmanna í
Kaupmannahöfn.
Þá bók sem hér birt-
ist skoða ég sem eins
konar eftirmæli og les
hana með vissum sökn-
uði líkt og um náinn
aðstandenda væri að
ræða (sem er að vissu
leyti rétt).
Höfundur rekur
sögu þessa látna félags
að mestu eftir fundar-
gerðarbókum félags-
ins. Þær fundargerðir
voru að vísu með nokk-
uð sérstæðum hætti, rækilegar,
margorðar, stórorðar og hlutdræg-
ar. Fyrir því var gróin hefð. Fundar-
gerðir þessar voru margar hveijar
hinn mesti skemmtilestur og sumar
stórvel skrifaðar, en ekki ætíð áreið-
anleg sagnfræðiheimild eins og höf-
undurinn bendir réttilega á. Höfund-
ur tekur margar góðar glefsur úr
þessum merku fundargerðum. Sá
er galli á gjöf Njarðar að fundar-
gerðarbókin fyrir 1907-1914 glat-
aðist með undarlegum hætti og hef-
ur ekki fundist síðan.
Höfundur hefur þann hátt á að
reifa þau málefni sem stúdentar létu
sig skipta og víkja síðan að félags-
starfseminni og umræðum þar. En
málefni stúdentanna voru oftast
nátengd þjóðmálum heima á Fróni
eins og þau voru á hveijum tíma,
allt frá valtýsku til herverndar. Oft-
ast var rætt um pólitík en stundum
vikið að skáldskap, öðrum fögrum
listum og fræðum. Það var ekki
fyrr en seint og síðar meir sem
hagsmunamál stúdenta fóru að
koma við sögu. Til að gera frásögn-
ina skiljanlegri nútíma lesendum
gerir höfundur jafnan nokkra grein
fyrir þjóðmálum almennt og stefn-
um í bókmenntum. Er því vel farið
og raunar nauðsynlegt.
Af lestri þessarar bókar mætti
ætla að íslenskir Hafnarstúdentar
hafí verið hinir mestu drykkjusvolar
og ribbaldar. Þeirri
skoðun, ef einhver
skyldi hafa hana, ber
að taka með miklum
fyrirvara. Víst fengu
þeir sér oft rösklega
neðan í því, þegar þeir
komu saman. Gekk þá
stundum mikið á. En
þeir gerðu líka sist
minna úr þvi þegar þeir
sögðu frá t.a.m. í fund-
argerðum. Þessa á milli
stunduðu þeir nám sitt
vel og lifðu hófsemdar-
lífi. Æviferill flestra
bendir líka til alls ann-
ars en óreiðulífernis.
Félag íslenskra stúd-
enta í Kaupmannahöfn
var alla tíð karlmiðað félag — sum-
ir myndu segja karlrembufélag. Lík-
lega hefur það meðal annars orðið
því að aldurtila. Þar féll eitt hið síð-
asta vígið! Kannski er það þá í takt
við tímann að nú er það kona sem
kastar rekunum og syngur líksöng-
inn. Og ekki verður annað sagt en
að hún géri það vel og snyrtilega.
Bókin er prýðilega úr garði gerð
og skreytt mörgum myndum. Á
stöku stað sá ég þó smámisfellur.
T.a.m. er á bls. 9 ekki alveg rétt
farið með texta (sbr. Söngbók Hafn-
arstúdenta, 2. útg.). í stað „kúrðum
vér fullir sorga“ á að vera „vér kúr-
um ..." og „Loks við í húsið hjástoð-
ar“ á að vera „Loksins í húsið ..."
Sigurjón Björnsson.
Margrét
Jónasdóttir
Windows. Word 02 Excel
Tölvu-1
og verkfræðiþjc
uraðgjöf • námskeið • úti
lustan
Tölvuraðgjöf • námskeið’-utgáfa
Grensásvegi 16 • ® 568 80 90