Morgunblaðið - 21.11.1996, Síða 42
42 FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREIIMAR
Askorun í tilefni af kom-
andi kjarasamningum
FORELDRAR bama með lang-
vinna sjúkdóma hafa á undanföm-
um áram Iagt á sig mikla vinnu í
þeim tilgangi að vekja athygli
stjómvalda og annarra á veikleik-
um í þeim aðbúnaði sem þjóðfélag:
ið býr viðkomandi fjölskyldum. í
kjölfarið hafa ýmis skref verið stig-
in til að mæta þörfum fjölskyldna
langveikra barna en þó er enn lang-
ur vegur frá því að nægjanlega vel
sé gert í þeim efnum.
Aðstandendur langveikra barna
eiga rétt á greiðslum úr almanna-
tryggingakerfmu sem einungis er
ætlað að mæta auknum kostnaði
sem hlýst af umönnun hinna sjúku
barna. Ekki er með neinum hætti
tekið tillit til tekjutaps. Þetta er
staðreynd þótt algengt sé að for-
eldri þurfi að vera frá vinnu í vik-
ur og stundum mánuði og ár til
að sinna sjúku bami sínu. Með það
í huga liggur beint við að skoða
hver réttur launþegans er á veik-
indafríi skv. kjarasamningum þeg-
ar barn innan fjölskyldu hans veik-
ist.
Sem kunnugt er
vinnur starfsmaður
sér inn rétt á veikinda-
dögum sem verða því
fleiri sem hann starfar
lengur. Þetta á þó ekki
við þegar sjúkt barn
viðkomandi starfs-
manns er annars veg-
ar. í því tilfelli á hann
rétt á 7 dögum að
hámarki hvert ár til
að sinna veiku bami
sínu og það án tillits
til þess hversu mörg
bömin eru í ijölskyld-
unni og um hversu
alvarlega sjúkdóma er
að ræða. Þetta er smánarlega lít-
ill tími og undirstrikast þegar sam-
anburður er gerður við frændur
okkar á Norðurlöndum (sjá töflu).
Enda má fullyrða að hvergi á
Norðurlöndum sé jafn mikið um
fjársafnanir á almennum vett-
vangi og hér til að bjarga fjölskyld-
um langveikra bama frá fjárhags-
legu skipbroti. Þess má og til fróð-
leiks geta í þessu sam-
bandi að systurfélag
SKB í Svíþjóð, Barn-
cancerfonden, sem er
mjög öflugt fjárhags-
lega, leggur allan
kraft sinn í að styrkja
rannsóknir á krabba-
meini í börnum og af-
leiðingum þess.
Góðar fyrirmyndir
Forráðamenn ör-
fárra launþegasam-
taka eða sjúkrasjóða
þeirra hafa áttað sig
á því óréttlæti sem hér
er til umræðu og gert
breytingar í samræmi við það.
Eftirfarandi aðilar era dæmi um
góðar fyrirmyndir.
Sjúkrasjóður VR greiðir dag-
peninga vegna veikinda bama fé-
lagsmanna yngri en 16 ára í 30
daga á hveiju 12 mánaða tímabili
eftir að 7 daga samningsbundinn
veikindaréttur hefur verið fullnýtt-
ur.
Þorsteinn
Ólafsson
- \.v - j
Staupastaur {
/nijfasti þjónninn
Uppstiífiy
matsveinn
•meatíL
danskt
ólahlaðboi
1 7. áriö I röb! / Óðinsvéum við Óðinslorg ríkir alltaf sérstakur andi
þegar aðventan náígast. í ktýjum stofum veitmgastaðarins svicjnar jólaíilaðborðið
undan dansk-œttuðum krásum, sem fyrir gestina eru bornar. Ótal kefðbundnir og
cjómsaiir réttir sem tilíieyra jólakaldinu og aðventunni svo sem:
Jólaskinka, hamborgarlœri, saltað flesk, grísatœr, sykursaltað grísalœri, grísasulta,
svínasíða, hamborgarhryggur, marinerað flesk, birkisaltað lamb, reykt kalkúnabringa,
smalaskinka, grafin gœsabringa, graflax, hreindýraterrine, dansk leverpostej,
Glassmaester síld, vínsíld, steikt síld, karrýsíld, marineruð síld, reyktur áll, reykt bleikja,
Jörgens klipfisk, saltað uxabrjóst, grísasteik, eplaflesk, steikt flesk, danske frigadeller,
medisterpólser, ris a l’allemande, jólakaka, brúnkál, rauðkál, kartöflusalat, sinnep,
rauðbeður, steiktur laukur, síldarbrauð, rúgbrauð, grísafita, agúrkusalat, hindberjasafi,
rauð epli, grísasósa, kartöflur, eplasalat, laukur, hvítkálsjajhingur.
Sama fólfáð kcmur ár eftir ár og er jafnan þétt setið
og því vissara að fiafa fyrirvara á með borðapantanir.
Verð: í ftádegi i.ggo kr.,
á kvóldin 2.980 fr.
BorSapantanir í símum 552 5090 og 552 8470
ÓÐINSVÉ
Bætur vegna launataps aðstandenda sjúkra
barna á Norðurlöndum
Skv. erlendum gögnum og niöurstöðu nefndar á vegum heilbrigðis- og trygginga-
máiaráðuneytis sem kannaði réttindi langsjúkra barna og skilaði áliti í mars
1995. Nefndin á rætur að rekja til þingsályktunar um réttarstöðu barna með
krabbamein og annarra sjúkra barna sem samþykkt var á Alþingi 7. maí 1993.
Svíþjóð 90% af launum starfsmanns í 120 daga á ári fyrir
hvert barn á aldrinum 0-16 ára.
Noregur: Allt að 780 dagar (100% af launum fyrstu 260 dagana
og síðan 65% af launum í 520 daga) fyrir hvert barn
0-16 ára.
Danmörk: 90% af launum annars foreldris barns á meðan sjúk-
dómsmeðferó stendur yfír.
Finnland: 66% af launum í 60-90 daga og lengur ef nauðsyn
krefur t.d þegar um lífshættulega sjúkdóma er að ræða.
Heimilt að greiða báðum foreldrum á vissum tímabil-
ísland: 100% laun í 7 daga á ári fyrir börn á aldrinum 0-14 ára.
Sum starfsmannafélög,
segir Þorsteinn
Olafsson, eiga enga
sjúkrasjóði.
Iðja, félag verksmiðjufólks gerir
eins og VR með þeirri undantekn-
ingu að miðað er við 14 ára aldur
í stað 16.
Auk ofangreindra er vitað um
nokkur launþegasamtök sem ráða
yfir sjúkrasjóðum er starfsmenn
geta sótt um fjárstuðning úr. Sem
dæmi má nefna sjúkrasjóð Starfs-
mannafélagsins Sóknar en úr
honum eru greiddar bætur eftir
að 4 dagar eru liðnir frá því að
7 daga rétturinn hefur verið nýtt-
ur.
Sum starfsmannafélög eiga
enga sjúkrasjóði. Má þar nefna
BSRB sem dæmi. í þeim tilfellum
vaknar sú spuming hvort ekki
ætti að gefa starfsmönnum kost
á að nýta uppsafnaða veikinda-
daga þegar fyrir liggur að sinna
þarf langveiku barni. I fram-
kvæmd hlýtur sú leið að vera afar
einföld. Kostnaðurinn ætti ekki að
hræða neinn því gróft reiknað
hefur verið áætlað að 30 daga
veikindafrí að meðaltali þeim til
handa sem annast þurfa alvarlega
sjúk börn mundi kosta alls um 15
milljónir króna á ári. Það samsvar-
ar nálægt 100 krónum á ári þegar
búið er að deila þeirri upphæð á
alla starfsmenn í landinu.
Áskorun
Hér með er skorað á fulltrúa
launþega og vinnuveitenda sem
sigla nú inn í kjaraviðræður að
taka það sem hér hefur verið vak-
in athygli á til umræðu. Enn frem-
ur er þess vænst að viðeigandi
ráðstafanir verði gerðar svo að
aðilar vinnumarkaðarins leggi sitt
af mörkum án ijársafnana til að
gera foreldrum langveikra barna
kleift að annast þau án þess að
þurfa að burðast með fjárhags-
áhyggjur ofan á allt annað.
Þetta tækifæri skal enn fremur
notað til að vekja athygli á að svo
virðist sem réttindi líffæragjafa til
veikindadaga eða sjúkradagpen-
inga séu ekki alveg ljós. Erfitt er
að skilja hvers vegna líffæragjafi
er ekki flokkaður sem sjúklingur
í tengslum við líffæraflutning með
tilliti til nefndra réttinda og er því
hvatt til að svo verði gert með
skýrum hætti framvegis.
Síðustu fregnir herma að
Reykjavíkurborg gefí nú starfs-
mönnum sínum sem jafnframt eru
áfengissjúklingar kost á að nýta
uppsafnaða veikindadaga til að
fara í meðferð. M.ö.o. er starfs-
mönnum boðin áfengismeðferð á
launum. Þetta framtak Borgarinn-
ar er athyglivert og kallar fram
ýmsar spurningar. Ein þeirra er:
Skyldu langveik börn eiga minna
skilið en að foreldrar þeirra geti
annast þau á launum?
Höfundur er framkvstj. SKB og
formaður Umhyggju.
fíhurðir
luggar
Smíðum útihurðir,
bílskúrshurðir,
svalahurðir, glugga,
figogfleira. |
Vélavinnum efni. s
BJLDSHOFÐA 18 • 112 REYKJAVIK
SIMI 567 8100 • FAX 567 9080
Fær ■ flestan sjó með
OSIItl\
„Síþreyca og depurð eru
erfiðir fylgikvillar sveppa-
sýkingar. OSTRIN
hjálpar mér, því það
gefur aukna orku, úthald
og vellíðan.“
Unnur Þorsteinsdóttir,
skrifstofumaður.
rí>SST&»>'
Sendum í póstkröfu
c^Heilsu
ikhornið
Skípagötu 6, Akureyri,
sími/fax 462 1889.
„65 ára, síungur og vinn
10 tíma á dag, en ég
byrja líka hvern dag á
OSTRIN."
Árni Valur Viggósson,
símaverkstjóri.
Upplýsingar um útsölustaði gefur Gula línan í síma 562 6262