Morgunblaðið - 21.11.1996, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1996 45
_________AÐSENDAR GREIMAR____
Stuttar starfsmenntabrautir
við Borgarholtsskóla
TVÆR nýjar starfs-
menntabrautir standa
nemendum á fram-
haldsskólastigi nú til
boða við Borgarholts-
skóla í Grafarvogi, ann-
ars vegar á sviði versl-
unar og hins vegar í
félagsþjónustu. Nám á
þessum brautum tekur
tvö ár og eru þær nokk-
urs konar millistig á
bók- og iðnnámi. Á
þeim er ekki lögð eins
mikil áhersla á almenn-
ar greinar og í hefð-
bundnu bóknámi og
jafnframt fer hluti
námsins fram sem
starfsþjálfun eins og í iðnnámi, en í
minna mæli. Brautimar eru því kær-
komið tækifæri fyrir þá íjölmörgu
sem ekki eru tilbúnir til að fara í
langt og strangt bóknám og iðnnám.
Starfsmenntabrautum Borgar-
holtsskóla er einkum ætlað að höfða
til þeirra sem vilja komast sem fyrst
í ákveðin störf á vinnumarkaði, ann-
aðhvort til frambúðar eða til að prófa
sig áfram. Þær eru því bæði fyrir
þá sem ekki hafa gert upp hug sinn
um nám og störf og þá sem þegar
hafa ákveðið sig. Vegna þess að
námið er tiltölulega stutt standa
þeir sem útskrifast af brautunum
ekki uppi með mjög margar ónot-
hæfar einingar að því loknu ef þeir
vilja halda áfram. Fyrir þá sem vilja
leggja fyrir sig störf í þessum grein-
um í framtíðinni eru starfsmennta-
brautimar mjög góður kostur. Tæki-
færum til að bæta við
þekkingu síðar meir á
eftir að fjölga í framtíð-
inni með endurmennt-
un af ýmsu tagi, t.d.
íjarnámi.
Við skipulagningu
brautanna var mikil
áhersla lögð á nána
samvinnu við atvinnu-
lífið bæði hvað snertir
innihald og skipulag.
Tilgangurinn var að
tryggja starfsþjálfun-
arpláss og að mark
yrði tekið á náminu.
Það er skemmst frá því
að segja að atvinnu-
rekendur hafa sýnt
þessum brautum mikinn áhuga sem
ætti að tryggja þeim sem útskrifast
af þeim forskot á vinnumarkaði.
Hvers vegna stutta
starfsmenntun?
Að fara út á vinnumarkaðinn án
þess að hafa menntun til ákveðinna
starfa er svipað því að fara að veiða
án þss að hafa beitu. Tilviljun ræð-
ur því fyrst og fremst hvernig afla-
brögðin eru. í nýlegri rannsókn kom
í ljós að íslenskt skólakerfi hefur
staðið sig vel í að búa til sérfræð-
inga og iðnaðar- og tæknimenn en
vanrækt að búa 60-70% nemenda
undir ákveðin störf. Það er því ekki
að undra að af þeim allt að 700 til
800 ungmennum á aldrinum 16-25
ára, sem verið hafa atvinnulaus í
Reykjavík á síðustu misserum, eru
um 80%o einungis með grunnskóla-
Langskólanám, segir
Óttar Ólafsson, er ekki
alltaf trygging fyrír
góðu starfi.
próf sem síðasta aðalpróf. Þegar
þessi ungmenni voru spurð að því
hvers konar úrræðum þau óskuðu
eftir vildu um 70% nám eða sam-
bland af námi og vinnu. Rúmlega
80% óskuðu eftir starfsnámi.
Hvers vegna langskólanám?
Fólki er sífellt að verða betur ljóst
að langskólanám er ekki alltaf
trygging fyrir góðu starfi og kemur
þar margt til: í fyrsta lagi hefur
víða dregið úr eftirspurn eftir fólki
með ýmiss konar háskólamenntun,
m.a. vegna þess að millistjórnend-
um í fyrirtækjum og stofnunum
hefur fækkað verulega á undan-
förnum árum. í öðru lagi er lang-
skólanám ekki endilega ávísun á
vel launuð störf. Margir hópar með
styttra nám að baki hafa hærri
meðallaun en fjöldi fólks með há-
skólapróf. í þriðja lagi hefur það
sýnt sig að margir þeirra sem völdu
stúdentsprófsleiðina hefðu kannski
betur átt heima í sérskólum sem
buðu starfsmenntun. Það sem bend-
ir til þess eru þeir fjölmörgu sérskól-
ar á framhaldsskólastigi sem smám
saman eru að færast upp á háskóla-
stigið, meðal annars vegna þess að
aðgöngumiðinn að þeim hefur þró-
ast yfír í að vera stúdentspróf.
Framtíðin
Tíminn verður að skera úr um
hvort stuttum starfsmenntabraut-
um Borgarholtsskóla tekst að
keppa við stúdentsprófið og iðn-
nám um hylli nemenda. Ef litið er
til menntakerfis og reynslu ann-
arra landa er ekkert sem bendir
til annars en bæði verslunar- og
félagsþjónustubrautin eigi bjarta
framtíð fyrir sér. Á Norðurlöndum
er til sambærilegt nám og hefur
verið lengi. í Bandaríkjunum er því
spáð að fram til ársins 2005 verði
hlutfallslega langmest fjölgun
starfa í félagsþjónustu og fólki í
verslun fjölgi mest í einstaklingum
talið.
Þeir sem velja stuta starfsmennt-
un eru síður en svo að brenna brýr
að baki sér. Þeir eru einfaldlega
að byggja sér styttri og hagkvæm-
ari brú út á vinnumarkaðinn. í nú-
tíma samfélagi úreldist þekking
mjög fljótt og því er starfsfólki í
framtíðinni nauðsynlegt að bæta
stuðugt við sig menntun og þjálfun.
Þetta gerir þeim kleift sem velja
stuta starfsmenntun í dag að bæta
við sig þekkingu síðar meir eftir
því sem þörf krefur og henta þykir.
Þá hefur fólk í flestum tilvikum
fengið betri yfirsýn yfir vinnumark-
aðinn, gerir sér betur grein fyrir
hvað það vill læra og getur valið
það nám sem er eftirsóttast af at-
vinnulífinu á hvetjum tíma.
Höfundur er kennslustjóri við
Borgarholtsskóla.
Óttar
Ólafsson.
# LOWARA
JARBVATNS
DÆLUR
Gæðavara,
mikið úrval,
hagstætt verð,
örugg þjónusta.
= HÉÐINN =
VERSLUN
SEUAVEGI 2 SÍMI 562 4260
- kjarni málsins!
LAUGAVEGI 18 B - REYKJAVIK