Morgunblaðið - 21.11.1996, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1996 51
HELGA
JÓNS-
DÓTTIR
+ Helga Jónsdóttir fæddist á
Görðum 30. júlí 1905. Hún
lést á Sjúkrahúsi Akraness 7.
nóvember síðastliðinn og fór
útför hennar fram frá Akranes-
kirkju 15. nóvember.
Við fráfall ömmu minnar, Helgu
Jónsdóttur, leitar hugurinn til baka.
Aðstæður sköpuðust þannig að ég
ólst upp hjá ömmu minni og afa
að stærstum hluta. Velvilji og um-
hyggja var ofarlega í huga þeirra
í minn garð. Afi minn, Pétur Sigur-
björnsson, lést um aldur fram árið
1966.
Afi og amma voru af þeirri kyn-
slóð er lifði tvenna tíma. Aldrei
heyrði ég þau kvarta. Amma stóð
sem klettur við hlið afa. Hún sá
um heimilið er hann var á sjónum.
Mér er í fersku minni að fólk er
stóð höllum fæti í samfélaginu átti
stuðning hennar allan. Ég man eft-
ir einum aðila sem átti erfitt með
að tjá sig á talmáli og þurfti að
leita læknis og fór hún og túlkaði
fyrir hann.
Minnisstæðar eru ferðirnar vest-
ur í Dali, þegar rennt var fyrir lax,
en amma var áhugasöm um slíka
veiði.
Margar ferðirnar fórum við sam-
an á bílnum hans Sigga til Reykja-
víkur er þú leitaðir læknis vegna
glákunnar.
Ég veit að þú værir ekki ánægð
að ég væri að fara með einhveija
langloku um þig og læt ég hér stað-
ar numið. Fjölskyldan þakkar
starfsfólki öldrunardeildar Sjúkra-
húss Akraness góða umönnun þér
til handa á liðnum árum.
Ég vil þakka þér fyrir allt sem
þú gerðir fyrir mig og mína fjöl-
skyldu. Hafðu hugheilar þakkir.
Upp, upp mín sál og allt mitt geð,
upp mitt hjarta og rómur með,
hugur og tunga hjálpi til,
Herrans pínu ég minnast vil.
(Hallgr. Pét.)
Sigurbjörn Trausti
Vilhjálmsson.
GUÐNY
FRIÐRIKS-
DÓTTIR
+ Guðný Friðriksdóttir fædd-
ist 19. september 1911. Hún
lést í Kópavogi 9. nóvember
síðastliðinn og fór útför hennar
fram frá Fossvogskapellu 15.
nóvember.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og ailt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Hvíl þú í friði, elsku amma, og
við vitum að elsku afi Halli tekur
vel á móti þér. Minning um yndis-
lega ömmu lifir um alla tíð.
Haraldur, Jóhanna,
Sigurður og Sirrý.
HANNIBAL
GUÐMUNDSSON
+ Hannibal Guð-
mundsson fædd-
ist í Súðavík 16. febr-
úar 1916. Hann Iést
á hjúkrunarheimil-
inu Eir 21. október
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
kapellu Fossvogs-
kirkju 1. nóvember.
Verkamannsins hendur
hijúfar
harðar báru vinnu vott.
Minningamar mætar ljúfar
mat ég hjartalagið gott.
Styrkur hans var hugarfarið
Hannibal safnaði ekki auði.
Andlitið var veðurbarið.
Vinnan að eiga fyrir brauði.
Hljóður gekkst og hægur varst
hugljúfur allur ferill þinn.
Alþýðu fyrir bijósti barst.
Blessaður vertu vinur minn.
Guð þér gefi frið og ró
svo góða heimvon hljótir.
Hvíld er þreyttum hugarfró.
Handleiðslu Guðs þú njótir.
Guðmundur
Hermannsson.
GUÐMUNDUR
MAGNÚSSON
+ Guðmundur Magnússon
kennari fæddist í Reykjavík
10. september 1950. Hann lést
á sjúkrahúsi á Peorto Vallarta
í Mexíkó 2. október síðastliðinn
og fór útför hans fram frá
Fossvogskirkju 4. nóvember.
Þó þú langfömll legðir
sérhvert land undir fót,
bera hugur og hjarta
samt þíns heimalands mót,
frænka eldfjalls og íshafs!
siQi árfoss og hvers!
dóttir langholts og lyngmós!
sonur landvers og skers!
Yfir heim eða himin
hvort sem hugar þín önd,
skreyta fossar og fjallshlíð
öll þín framtíðar lönd!
Fjarst í eilífðar útsæ
vakir eylendan þín:
Nóttlaus voraldar veröld
þar sem víðsýnið skín.
Það er óskaland íslenskt,
sem að yfir þú býr -
aðeins blómgróin björgin,
sérhver baldjökull hlýr,
frænka eldQalls og íshafs!
sifji árfoss og hvers!
dóttir langholts og lyngmós!
sonur landvers og skers!
(Stephan G. Stephansson)
Kæri Hrólfur og Halla, Gurra og
Maddi, Bogi og fjölskylda, Reynir
og fjölskylda. Innilegar samúðar-
kveðjur til ykkar. Megi minningin
um góðan dreng lifa.
Bíbí.
t
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför
BJARNA R. JÓNSSONAR
forstjóra,
Drápuhlíð 40.
Valgerður B. Gröndal,
Halla Bjarnadóttir, Bragi Þorsteinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför vinar míns,
FRANCISCOS GARCIA JIMENEZ
(Pacó),
Calle Casa Blanca 5,
Torremolinos,
Spáni.
Guðmundur Jónsson (Gussi).
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
VIKTOR G.A. GUÐMUNDSSON
veggfóðrarameistari,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu
föstudaginn 22. nóvember kl. 10.30.
Alma Guðmundsson.
Hörður Viktorsson, Ragnheiður Friðriksdóttir,
Egill Viktorsson,
Heinz Steinmann, Erla ísaksen,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
SOFFÍA ELSEIE JÓNSDÓTTIR
WAGNER,
Gebr. Grimmsweg 34,
Buxtehude,
áður Hafnarfirði,
lést i sjúkrahúsi í Þýskalandi 9. nóvem-
ber síðastliðinn.
Jarðarförin hefur farið fram í Buxtehude.
Fyrir hönd eiginmanns, barna, barna-
barna og systkina,
Gfslína Jónsdóttir.
Útför t KRISTINS SIGURÐSSONAR,
Grettisgötu 57B,
verður gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn 22. nóvember
kl. 15.00. Torfhildur Þorkelsdóttir, Lilja Kristin Kristinsdóttir.
t
Þökkum samúð og vinarhug við fráfall
GUÐNA GUÐMUNDSSONAR,
Hellatúni,
Ásahreppi,
Rangárvallasýslu.
Fyrir hönd aðstandenda,
Valgerður H. Guðmundsdóttir,
Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Valgerður H. Magnúsdóttir.
t
Hjartans þakkir til allra, sem auðsýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát og
útför hjartkærs bróður og föðurbróður,
ÓLAFS G. GÍSLASONAR
verslunarmanns,
Ölduslóð 36,
Hafnarfirði.
Guðfinna Gísladóttir,
Gísli Ingi Sigurgeirsson.
t
Innilegar þakkir færum við þeim fjöl-
mörgu, sem sýndu okkur samúð og vin-
arhug við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, fósturmóður, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
ÓLÍNU EYBJARGAR PÁLSDÓTTUR
fyrrum húsfreyju,
Hámundarstöðum,
Hrísey.
Guð blessi ykkur öll.
Snjólaug Þorsteinsdóttir, Jón Helgason,
Þorsteinn G. Þorsteinsson, Sesselja Stefánsdóttir,
Þorsteinn J. Jónsson, Áshildur Emilsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim,
sem sýndu okkur hlýhug og vináttu við
andlát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, bróður, afa og lang-
afa,
EINARS PÁLSSONAR,
Sólvallagötu 28.
Sérstakar þakkir sendum við öllum
þeim, sem hjúkruðu honum í veikindum
hans.
Birgitte Laxdal,
Páll Einarsson, Steinunn Maria Einarsdóttir,
Þorsteinn Gunnar Einarsson,
Þuríður Pálsdóttir, Anna S. Pálsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og aðrir aðstandendur.