Morgunblaðið - 21.11.1996, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1996 55
FRÉTTIR
MARTEINSTUNGUKIRKJA í Holtum
Marteinstungukirkj a
í Holtum aldargömul
Bindindis-
dagur fjöl-
skyldunnar
á morgun
BINDINDISDAGUR fjölskyldunn-
ar er á morgun, föstudaginn 22.
nóvember.
„Á liðnum árum hefur þessi
dagur vakið eftirtekt, haft áhrif
og markað spor í baráttunni gegn
vímuefnaneyslu. Við vonum að svo
verði einnig nú og heitum á alla
góða íslendinga að þeir láti áfengi
og hvers konar önnur vímuefni
lönd og leið þennan dag og geri
hann að áfengislausum degi með
það í huga,“ segir í frétt frá að-
standendum.
Tilgangur þessa sérstaka bind-
indisdags felst m.a. í því að: Vekja
foreldra og aðra uppalendur til
umhugsunar um ábyrgt uppeldi
barna sinna, vekja athygli á raun-
hæfu forvarnarstarfi og hvetja til
virkrar þátttöku í því, styrkja
vímulausa ímynd fjölskyldunnar
°g leggja áherslu á þá staðreynd,
að áfengi er mest notaði vímugjaf-
inn og lang oftast forsenda notkun-
ar annarra (sterkari) fíkniefna.
Rætt um starf
Rauða krossins
í þágu barna og
ungmenna í
vanda
STARFSEMI Rauða kross-hússins
og starf Rauða krossins í þágu
barna og ungmenna í vanda verður
til umfjöllunar á málþingi á Hótel
Loftleiðum föstudaginn 22. nóvem-
ber kl. 14-17.30.
Rauða kross-húsið var sett á fót
í árslok 1985. Síðan hafa ríflega
eitt þúsund ungmenni notfært sér
þjónustu neyðarathvarfsins. Þá
hafa meira en 30 þúsund ung-
menni hvaðanæva af landinu
hringt í trúnaðarsímann sem opinn
er allan sólarhringinn. Rauða
kross-félögin í Noregi og Finnlandi
hafa fetað svipaða braut í starfi
sínu í þágu ungmenna í vanda og
verður einnig íjallað um starf
þeirra á málþinginu.
Aðsókn að neyðarathvarfinu
hefur verið meiri það sem af er
þessu ári en áður eru dæmi um.
Nú þegar hafa 144 komur verið
skráðar en áður hafa mest verið
skráðar 133 komur á heilu ári.
Jafnframt hefur starfsfólk Rauða
kross-hússins átt mjög annríkt við
trúnaðarsímann og í ráðgjöf.
Málþing um
hagnýtt gildi
rannsókna í
ferðaþjónustu
PÉLAG háskólamenntaðra ferða-
málafræðinga heldur málþing
föstudaginn 22. nóvember í Mörk-
inni 6, húsi Ferðafélags íslands,
kl. 14-19. Yfirskrift málþingsins
er: Hagnýtt gildi rannsókna í
ferðaþjónustu.
Framsögumenn eru: prófessor
John E. Fletcher, forstöðumaður
The International Centre for Tour-
ism and Hospitality Research við
háskólann í Bournemouth í Eng-
landi, Helga Þóra Eiðsdóttir, deild-
arstjóri markaðsrannsókna hjá
Plugleiðum, Rögnvaldur Guð-
mundsson ferðamálafræðingur,
Rut Jónsdóttir, hagfræðingur hjá
Hagstofu Islands, og prófessor
Þórólfur Þórlindsson, varaformað-
ur Rannsóknarráðs Islands.
EFNT verður til hátíðarguðsþjón-
ustu í Marteinstungukirkju í Holt-
um sunnudaginn 24. nóvember kl.
14 í tilefni þess að kirkjan er 100
ára gömul um þessar mundir.
Við guðsþjónustuna mun biskup
íslands, hr. Olafur Skúlason, pred-
ika. Vígslubiskup sr. Sigurður Sig-
urðarson mun annast ritningar-
lestra en sóknarprestur þjónar fyrir
altari. Kirkjukór Marteinstungu- og
Hagakirkju syngur undir stjórn
Hönnu Einarsdóttur, organista og
Guðríður Júlíusdóttir syngur ein-
söng.
Kirkjan hefur staðið í Marteins-
tungu um aldaraðir og líklegt er
að kirkja hafi risið þar fljótlega
eftir kristnitöku árið 1000. Sú
kirkja sem nú stendur var byggð
jarðskjálftasumarið 1896 og vígð
sama haust. Var hún bændakirkja
FYRIRTÆKIÐ Ástund í Austur-
veri er 20 ára um þessar mund-
ir. Ástund hóf starfsemi sína 19.
nóvember 1976 í Austurveri við
Háaleitisbraut 68 í Reykjavík og
hefur verið þar til húsa alla tíð.
Ástund er heildsölu- og smásölu-
fyrirtæki og hjá fyrirtækinu
starfa nú fimmtán manns.
Ástund hefur sérhæft sig í
vörum fyrir hestamennsku og
rekur eigið söðlaverkstæði sem
framleiðir hina geysivinsælu
Ástundarhnakka. Þar eru einnig
framleidd beisli, múlar, taumar
og margvísleg önnur reiðtygi.
Ástund flytur út umtalsvert
magn af reiðtygjum til annara
landa og er með umboðsmenn í
um tíu löndúm. Ástund rekur
einnig sportvöruverslun í Aust-
urveri og eru umboðsaðilar fyrir
íþróttavörumerki eins og
UMBRO International og DIAD-
ORA frá Ítalíu. Sérstök áhersla
allt til ársins 1917 að hún var tekin
í umsjá og fjárhald safnaðarins.
Kirkjan var í góðu ásigkomulagi
því miklar endurbætur hafa verið
gerðar á henni sl. ár. Stendur hún
nú á nýjum grunni, auk þess sem
hún hefur verið klædd nýrri járn-
klæðningu að utan og einangruð
vel. Turninn hefur verið endur-
byggður og skipt um þak. Þá hefur
kirkjugarðurinn verið lagfærður
verulega og smíðuð ný trégirðing
utan um hana að hluta.
Að lokinni guðsþjónustu er
kirkjugestum boðið að þiggja kaffi-
veitingar að Laugalendi í Holtum í
boði sóknarnefndar og safnaðar.
Sætaferð verður frá Umferðar-
miðstöðinni í Reykjavík ki. 11.30
þennan dag og til baka að afloknum
kaffiveitingum.
er lögð á vörur frá Manchester
United og Liverpool ásamt sund-
fatnaði frá Speedo. Þá rekur
Ástund einnig bókaverslun í
Austurveri með bækur, ritföng
ogleikföng.
í tilefni af 20 ára afmælinu
hefur Ástund nú stækkað og end-
urnýjað sportvörudeild sína og
ákveðið að veita öllum viðskipta-
vinum sínum 20% afmælisafslátt
af öllum vörum í verslunum sín-
um dagana 21. og 22. nóvember.
Þessa sömu daga kynnir Ástund
nýjan hnakk sem Eyjólfur ísólfs-
son tamningameistari útskýrir
og Jónas Kristjánsson ritstjóri
kemur og áritar bók sína Fáka-
lönd. Þá efnir Ástund til getraun-
ar fyrir viðskiptavini sína þar
sem dregið verður úr réttum
iausnum 21. desember nk. í verð-
laun er nýji Ástundarhnakkurinn
Ástund Classic að verðmæti
77.000 kr.
Námskeið
í almennri
skyndihjálp
REYKJAVÍKURDEILD RKÍ gengst
fyrir tveimur námskeiðum í al-
mennri skyndihjáip 23.-24. nóv-
ember. Kennt verður frá kl. 10-16
báða dagana. Það síðara hefst 5.
desember nk. kl. 19-23. Kennslu-
dagar verða 5., 9. og 10 desember.
Öllum 15 ára og eldri er heimil
þátttaka.
Sérstaklega er vænst þátttöku
ungra ökumanna sem hafa í höndum
ávísun á námskeið í skyndihjálp
gefna út af Rauða krossi íslands.
Námskeiðsgjaid er 4.000 kr. en
skuldlausir félagar í RKÍ fá 50%
afslátt. Hægt verður að ganga í
félagið á staðnum. Einnig fá nem-
endur í frmahaldsskólum og háskól-
um sama afslátt gegn framvísun
skólaskírteinis.
Meðal þess sem kennt verður á
námskeiðinu er blástursmeðferðin,
endurlífgun með hjartahnoði, hjálp
við bruna, blæðingum úr sárum.
Einnig verður íjallað um helstu
heimaslys, þ.m.t. slys á börnum og
forvarnir almennt. Áð námskeiðun-
um loknum fá nemendur skírteini
sem hægt er að fá metið í ýmsum
skólum.
Sjúkraliðafé-
lagið 30 ára
SJÚKRALIÐAFÉLAG íslands verð-
ur þrítugt 23. nóvember nk. Af því
tilefni stendur félagið fyrir opinni
ráðstefnu á Scandic Hótel Loftleið-
um fyrir félagsmenn og annað
áhugafólk um heilbrigðisþjón-
ustuna. Fyrirlesarar innlendir sem
erlendir eru allir sérfróðir hver á
sínu sviði um efni dagskrárinnar.
Sjúkraliðar sem hlotið hafa' leyfi
heilbrigðisráðherra til að starfa við
hjúkrun og bera starfsheiti sjúkra-
liða eru í dag u.þ.b. 3.000. Félags-
menn Sjúkraliðafélags íslands eru
2.400 sem starfa við heilsugæslu
og þjónustu við sjúka, aldraða og
öryrkja um land allt. Formaður fé-
lagsins er Kristín Á. Guðmundsdótt-
ir, sjúkraliði.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá Ágústi Björnssyni,
sveitarstjóra Súðavíkurhrepps:
„Að gefnu tilefni vegna fréttar í
DV föstudaginn 15. nóvember sl.
um málefni Hraðfrystihússins Frosta
hf. er nauðsynlegt að gera grein
fyrir eftirfarandi:
Hlutafélagið Tog hf. keypti árið
1986 hlutabréf í Frosta hf. Þessi
hlutabréf voru áður í eigu Barkar
Ákasonar og fleiri aðila en þeir höfðu
áður innleyst bréfin til Frosta hf.
Tog hf. keypti því hlutabréfin af
hlutafélaginu Frosta hf. en ekki af
Súðavíkurhreppi eins og haldið er
fram í blaðinu. Súðavíkurhreppur
hefur um langan tíma verið hluthafi
í Frosta hf. og á um 42% hlutafjár.
Það er rangt sem fram kemur í
frétt blaðsins að Tog hf. standi í
skuld við Súðavíkurhrepp vegna
kaupanna. Hitt er rétt að Tog hf.
hefur einungis greitt hluta bréfanna
og er ógreiddur hluti þeirra gjaldfall-
inn. Skuld Togs er þess vegna við
Frosta hf. en ekki Súðavíkurhrepp.
Hreppsnefnd Súðavikurhrepps hefur
beint þeim tilmælum til stjórnar fyr-
irtækisins að hraðað verði innheimtu
á ógreiddu hlutafé í félaginu.
I blaðinu er staðhæft að sveitar-
stjórnin í Súðavík hafi miklar
áhyggjur af rekstri Frosta hf., blikur
séu á lofti og aðgerða þörf til að
bjarga því sem bjargað verði, eins
og sagt er í blaðinu.
Yfirlýsing blaðsins á þennan hátt
er röng því sveitarstjórnin í Súðavík
hefur aldrei fært slíka bókun til
bókar í gerðabók Súðavíkurhrepps.
Hitt er rétt að það er hlutverk kjör-
FRÁ Hársnyrtingu Villa Þórs.
Eigendaskipti á
Hársnyrtingu
Villa Þórs
EIGENDASKIPTI hafa orðið á
Hársnyrtingu Villa Þórs, Ármúla 26,
Reykjavík. Nýr eigandi er Díana
Vera Jónsdóttir sem rekið hefur
Hársport Díönu í Grafarvogi síðast-
liðin sex ár.
Á hárgreiðslustofunni munu þær
Inga og Lára starfa áfram og einnig
hefur verið komið fyrir aðstöðu fyrir
gervinaglaásetningu.
Hárgreiðsiustofan er opin frá kl.
9-18 mánudaga til miðvikudags og
frá kl. 8-18 fimmtudaga og föstu-
daga. Á laugardögum er opið frá
kl. 12-16.
Fyrirlestur um
nýmæli í mann-
réttindastarfi
DR. GUÐMUNDUR Alfreðsson,
prófessor SÞ og forstöðumaður Rao-
ul Wallenbergstofnunarinnar í Lundi
flytur fyrirlestur á vegum Mannrétt-
indastofnunar Háskóla íslands
föstudaginn 22. nóvember kl. 12.15
í stofu 103 í Lögbergi.
Fyrirlesturinn nefnist Nýmæli í
mannréttindastarfi Sameinuðu þjóð-
anna. Guðmundur starfaði í um 15
ár hjá mannréttindadeild Sameinuðu
þjóðanna í Genf og hefur haldið
ljölda námskeiða um mannréttindi.
inna fulltrúa að vaka yfir rekstri
fyrirtækja sem hreppurinn er aðili
að, með það að markmiði að tryggja
stoðir þeirra og hámarka afkomu.
Það er leitt að umfjöllun um fyrir-
tækið skuli vera með slíkum hætti.
Hraðfrystihúsið Frosti hf. hefur
skipað sér í röð allra fremstu fyrir-
tækja í rækjuvinnslu á íslandi. Slíkt
er ekki gert nema með áræðni, dugn-
aði og ómældri fórnfýsi allra sem
hjá fyrirtækinu hafa starfað."
♦ ♦ ♦------
LEIÐRÉTTIN G AR
Resetov
í GREIN í Morgunblaðinu á sunnu-
dag, þar sem birtir voru valdir kafl-
ar úr minningabók Júrís Resetov
sendiherra Rússlands á íslandi varð
sú meinlega prentvilla í grein og
myndatexta að hann var sagður
heita Resetovp. Sama villa birtisf
svo í Víkvetja í gær. Beðist er vel-
virðingar á þessum mistökum og
áréttað að nafn sendiherrans er
Júrí Resetov.
Emilíana stýrði upptökum
í DÓMI um plötu Emilíönu Torrini,
Merman, í blaðinu á miðvikudag
var þess ógetið að Emilíana stýrði
upptökum á plötunni með Jóni Ól-
afssyni. Einnig er mátti skilja orða-
lag sem svo að lögin Premiere Lo-
vin’ og The Boy Who Giggled So
Sweet séu eftir Jón Ólafsson eina,
en hið rétta er að þau Emilíana
sömdu þau saman.
HANNES Halldórsson, söðlasmiður, Guðmundur Arnarson og
Gunnar Ragnarsson með nýja Ástundarhnakkinn.
Ástund býður 20%
afmælisafslátt
Athug’asemd frá
sveitarstjóra Súðavíkur