Morgunblaðið - 01.12.1996, Qupperneq 28
28 E SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FAST er haldið í jólasiðina á
heimili Einars Odds Krist-
jánssonar alþingismanns
og konu hans Sigrúnar
Gerðu Gísladóttur hjúkrunarfræð-
ings. Farið er í gönguferð til að örva
matarlystina á aðfangadag, en á
borðum er hátíðamatur sem ekki
er matreiddur eftir uppskriftum
heldur tilfinningu húsmóðurinnar.
Jóhanna, systir Einars Odds, lumar
hins vegar á nokkrum góðum upp-
skriftum sem hafa verið notaðar
mann fram af manni í fjölskyldu
þeirra fram á þennan dag. Jó-
hanna segir að jólahaldið hafi allt
verið frekar í föstum skorðum, þau
hafi hlustað á messu og síðan hafi
jólamaturinn verið snæddur um sex-
leytið á aðfangadag. Sér sé enn
minnisstæður ilmurinn af jólaávöxt-
unum, og þá aðallega lyktin af epl-
unum. Á jólaborðinu var steik og (
eftirrétt smjördeigs-sveskjuterta
með þeyttum rjóma. Kvöldinu var
síðan eytt við að opna pakka og
spila á spil frameftir kvöldi. Einar
Oddur hafði ærna ástæðu til að
hlakka til jólanna, því afmælisdag
hans ber upp á annan dag jóla,
þannig að væntanlega hafa pakk-
arnir verið aðeins fleiri á þeim bæ.
Ekki var slegið slöku við smá-
kökubakstur, hafist var handa í byrj-
un nóvember og bakað alveg fram
á síðasta dag.
Jólasagan á aðfangadag
Einn er sá jólasiður sem haldist
hefur í fjölskyldunni og það er jóla-
sagan. Hún var ætíð sögð á að-
fangadag af föður þeirra og enn í
dag er það faðir sem segir söguna
börnum sínum, og það er Einar
Oddur sjálfur. Jólasagan er ekki til
í bók, heldur eru þetta sögur sem
Einar Oddur semur sjálfur og um
leið taka gestir og aðrir fjölskyldu-
meðlimir þátt í þeim. Oft eru þessar
sögur hið mesta bull, en allir hafa
gaman af.
Óttaðist skötuát
Sigrún Gerða er alin upp í vest-
urbænum í Reykjavík og segist
koma fjölskyldu sem einnig hafði
fastmótaða jólasiði. í húsinu sem
hún ólst upp í bjuggu saman tvær
fjölskyldur, föðursystur hennar og
svo hennar eigin fjölskylda. Sigrún
segist hafa alist upp við að foreldrar
hennar skreyttu jólatréð og engum
var hleypt inn í stofuna fyrr en klukk-
an sex um kvöldið.
Þegar hún flutti vestur, eftir að
hafa kynnst Einari Oddi, var ekki
laust við að hún kviði því að þurfa
að borða skötu á Þorláksmessu. Til
allrar hamingju fyrir Sigrúnu Gerðu
reyndist það ekki til siðs á heimili
frú Maríu, móður Einars Odds. Sig-
rún Gerða segist ekki fara í bæinn
á Þorláksmessu fyrr en eftir fjögur
á daginn, því þá hafi menn lokið við
að snæða skötuna. Eina skatan sem
hún hefur smakkað er lóðskata.
Einar Oddur segist ekkert vera á
móti skötu, hann hafi aldrei vanist
því að snæða hana og þar að auki
hafi sér fundist lyktin af henni vond.
Morgunblaðið/Egill Egilsson
SIGRÚN Gerða og Einar Oddur á Sólbakka. Þar er engin skata á borðum á Þorláksmessu
en jólasiðirnir að öðru leyti hefðbundnir.
Skarf ur og
Þó hann sé Vestfirðingur finnst hon-
um sér ekki bera skylda til að þykja
skata góð, þar sem hún hafi aldrei
verið á boðstólum á Þorláksmessu
á heimili hans þegar hann var að
alast upp.
Dansað í kringum jólatréð
Þau hjónin, Einar Oddur og Sig-
rún, hafa haldið þeim sið að hafa
margt um manninn hjá sér um jólin.
Allir hjálpast að við jólaverkin og fjöl-
skyldan er öll samankomin um jólin,
spilað er og spjallað og að sjálf-
sögðu mikið borðað. Einnig sungið
og dansað í kringum jólatréð. Þetta
hefur ekki breyst mikið þrátt fyrir
alla aðra dægrastyttingu sem boðið
er upp á.
Einn er sá siður sem Einar Oddur
og Sigrún Gerða halda í og það er
jólagöngutúr um fjögurleytið á að-
fangadag, sem þau tvö bregða sér
í. Jólagöngutúr þessi er hugsaður í
þeim tilgangi að örva matarlystina
fyrir jólamatinn. Síðan sameinast
fjölskyldan og fer í messu.
Sigrún Gerða segist ætíð hafa
lagt mikið upp úr því að skreyta allt
húsið um jólin og hafa börnin ætíð
tekið þátt í því. Skreytingarnar eru
handunnar og oftast gerðar af fjöl-
skyldumeðlimunum sjálfum. Hún
býr til jólakörfur og fyllir þær af
Jólahaldióá Sól-
bakka vió Önund-
arffjöró er heffó-
bundió aó mestu,
þó aó þar sé ekki
boróuó skata
ýmsu góðgæti. Síðan er farið í heim-
sókn á Þorláksmessu og körfurnar
gefnar vinum og kunningjum. Þessi
siður er ennþá við lýði, börn fara
með pakka og jólakort hvert til ann-
ars á Flateyri.
Hún hefur einnig viðhaldið hefð-
inni, sem hún var alin upp við, í
uppeldi barna sinna, en nú sé
skemmtilegri hefð að skreyta jóla-
tréð með börnunum. Jafnframt því
er húsið þrifið í krók og kring, engin
yfirborðshreinsun eigi sér stað.
Á hádegi á aðfangadag er borð-
aður möndlugrautur. Er þetta
skemmtileg samverustund og af-
slöpþun mitt í öllum önnunum á
aðfangadag jóla. Eins og áður hefur
komið fram hefur fjölskyldan stækk-
að og því var þess krafist að möndl-
unum yrði fjölgað. Þær eru orðnar
þrjár og mikil spenna hefur skapast
á þessum degi.
Jólaskarfur
Jólamaturinn hjá þeim hjónum
hefur oftast nær verið fuglakjöt, og
þá gæs eða kalkúnn. Ein jólin var
hins vegar matreiddur skarfur hjá
móður Einars Odds, þótt ekki hafi
það verið ætlunin. Skarfurinn var
tekinn í misgripum fyrir kalkún sem
átti að liggja í frystihólfinu í frysti-
húsinu. Fuglinn var matreiddur sem
kalkúnn en þegar átti að skera hann
gekk mikið á við skurðinn og mönn-
um brá heldur betur í brún þegar
kjötið reyndist vera svart en ekki
hvítt. Sigrún Gerða segist oft hafa
hlegið að þessu atviki og þetta sé
oft rifjað upp á aðfangadag.
Á jóladag er hangikjöt á boðstól-
um með öllu tilheyrandi. Hangikjöt-
ið, sem kemur frá Sæbóli á Ingj-
aldssandi, á engan sinn líka hvað
varðar bragð og útlit. Þegar menn
borði þetta hangikjöt, komist þeir
að því hvað hangikjöt er í raun og
veru, segir Sigrún Gerða. Hangikjöt-
ið er heimareykt og dökkbrúnt. í
eftirrétt er dönsk eplakaka með
rjóma, og er þetta samkvæmt pönt-
un frá nokkrum fjölskyldumeðlim-
um.
Jólasmákökur Mar-
iu Össurardóttur
500 g smjár
2egg
% stöng vanilla
500 g kartöflumjöl
500 g sykur
1 tsk hjartarsalt
500 g hveiti
Smjörið skal bræða, kæla og
hræra þangað til það er orðið Ijóst.
Þá á að hræra saman við það syk-
urinn, síðan eggin, vanilluna og
hjartarsaltið sem hefur áður verið
leyst upp í vatni. Að lokum er hveit-
inu og kartöflumjölinu blandað
saman við.
Deigið sett á plötu í smákúlur
og þær bakaðar Ijósbrúnar. Nægir
í um 200 kökur.
Smjördeigs-
sveskjuterta
250 g smjör
250 g hveiti
%dl vatn
'A tsk edik
Hveitið er sigtað. 'h af smjörinu
mulinn saman við. Vatni og ediki
bætt út í. Hnoðað þangað til deig-
ið er orðið dálítið seigt. Látið bíða
á köldum stað í a.m.k. 10 mínút-
ur. Þá er hnoðað þangað til deigið
verður mjúkt á tréplötu sem vætt
er með köldu vatni. Nú er deigið
flatt út þangað til það er u.þ.b. ’A
sm á þykkt. Smyrjið útflatt deigið
með helmingnum af smjörinu og
látið bíða í 10 mínútur. Þá er deig-
ið flatt út á ný og því sem eftir er
af smjörinu er smurt eins og í fyrra
skiptið yfir deigið. Rúllað saman
og látið bíða í 10 mín.
Nú er deigið flatt út eins þunnt
og mögulegt er (á þykkt við sver-
ari enda hnífsblaðs). Tvö hring-
laga form skorin út, t.d. eftir pott-
loki.
Annar hlutinn verður botn.
Hann er pikkaður með gaffli og
ytri kanturinn (u.þ.b. 3 sm) smurð-
ur með eggjahvítu. Á þennan
smurða kant er settur deigrenn-
ingur svo þetta verði eins og skál
eða djúpur diskur. Þetta er sett á
plötu og bakað Ijósbrúnt í heitum
ofni. Hinn hlutinn verður lok á
tertunni. Deigið er sett á plötu.
Þá eru skornar rendur u.þ.b. 2 sm
frá kantinum. Þær eiga að vera
um 2 sm breiðar. Annarri hverri
rönd er lyft í burtu, en hinar flétt-
aðar þannig að efri hluti tertunnar
verði eins og girðingarnet. Þetta
er nú penslað með eggjahvítu og
bakað eins og botninn. Þegar
smjördeigsbotnarnir eru orðnir
kaldir er neðri hlutinn fylltur með
sveskjum sem eru soðnar með
dálitlum sykri þangað til þær eru
mjúkar. Það má auðvitað nota
aðra soðna ávexti. Ofan á ávaxta-
maukið er látinn þeyttur rjómi. Þar
ofan á er „rimlalokið" sett og þrýst
á þannig að rjóminn sprautist í
gegn.
„Aðalatriðið fyrir stjórnmálamenn er að menn taki eftir
verkum þeirra og myndi sér skoðanir á þeim. Það er síðan
eðli lýðræðisins að menn séu ýmist með þeim eða á móti.
Stjómmálamenn semfólk lætur sér fátt umfinnast eru ekki
að vinna verk sem einhverju máli skipta. “
Ólafur Ragnar Grímsson í febrúar 1990
BÓKIN ER RITUÐ AF PÁLMA JÓNASSYNI SAGNFRÆÐINGI
I
>
BÓKAFORLAG
SÍMI 588 2225 - FAX 588 72\S