Morgunblaðið - 01.12.1996, Side 32
32 E SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
3 msk ólífu- eða
vínberiakjgmaolía________
_______2 laukar, sneiddir_____
_______í þunnar sneiðar_______
safi af 2 appelsínum og fínrifinn
börkurinn með
2 dl rauðvínsedik
3 msk hungng, hrósykur eða
_______hvítur sykur_______
5 negulnaglgr og I msk
heil allrahandaber
SUMIR borða alltaf rjúpur á
jólum, aðrir alltaf ham-
borgarhrygg og enn aðrir
alltaf eitthvað allt annað,
en flestir borða það sama ár eftir
ár. Þó að hefðum og venjum sé
haldið í höfuðréttum er hægt að
bregða út af föstum venjum þegar
kemur að meðlætinu og reyna þar
nýjar leiðir. Ekki af því að jólin
þurfi endilega að vera tími nýjunga
og tilrauna, heldur af því að það
er til svo margt gott og spennandi
meðlæti, sem er þess virði að það
sé reynt á hátíðlegum stundum.
Hér á eftir fara nokkur vel valin
dæmi um slíkt ... og uppskriftirnar
eru lauslega miðaðar við að vera
hæfilegur skammtur handa fjórum.
Góða skemmtun og gleðilega
hátíð!
Appelsinurauökál
Soðið rauðkál á við margvíslega
jólarétti. Hvort sem fólk kýs fugla
eins og rjúpur og endur eða reykt
kjöt eins og hamborgarhrygg þá
er rauðkálið tilvalið meðlæti. Eitt-
hvað súrt og eitthvað sætt er gott
með rauðkálinu, sem batnar við
langa og hæga suðu og verður
betra ef það er lagað daginn áður
og síðan hitað upp. Rauðkál geym-
ist vel í kæliskáp og það er einnig
hægt að frysta það ef nauðsyn
krefur. Rauðkál er matur, sem ekki
borgar sig að búa til nema í vænum
skömmtum og eiga og sumir eru
ekki síður hrifnir af því köldu en
heitu, ekki köldu úr kæliskápnum,
en við stofuhita.
1 vænt og þétt rouðkólshöfuð
Flestir eru bundnir heföum og venjum
þegar þeir vel ja jólamatinn. Þó aó haldió
sé fast i þœr mó bregóa ó leik i meólætinu
eins og SIGRÚN DAVÍDSDÓTTIR bendir ó
hér ó eftir.
1. Salatgerðin fer fram á hefð-
bundinn hátt: Rauðkálið er fín-
sneitt eins og áður er lýst og gul-
ræturnar rifnar saman við, ásamt
piparrótinni. Svo er að blanda sós-
unni og hella yfir grænmetið. Nú
má salatið gjarnan standa áður en
það er borið fram.
Rauórófu- eg
gulrótarsalat
Svo við höldum okkur enn við
rauð salöt þá tökum við rauðrófu-
salat fyrir næst. Rauðrófur eru
ekki aðeins góðar soðnar í súrsæt-
um legi á norræna vísu, heldur
einnig hráar og þá í eftirfarandi
salati. Jafnvel minnstir aðdáendur
rauðrófunnar, þessa vanmetna
rótarávaxtar, geta varla annað en
viðurkennt að salatið er frábær
matur. Það er hægt að bera fram
eins og salatið hér að ofan, batnar
1. Kúnstin er að skera kálið i þunn-
ar sneiðar og það getið þið gert í
vél, ef þið hafið slíkt tæki við hönd-
ina, en annars er bara að beita
hnífnum fimlega.
2. Hitið olíuna og setjið kálið og
laukinn í pottinn. Flestir eru
kannski vanir að nota smjör en
olían sest ekki eins utan á kálið
ef það er snætt kalt og rennur vel
saman við hin hráefnin.
3. Nú er að bæta öllu öðru saman
við kálið og láta það malla við
vægan hita í 1 'A klst. Hugið að því
að ekki verði of þurrt í pottinum
og bætið þá appelsínusafa í eða
svolitlu af vatni. Það er smekks-
atriði hversu mikið soðið kálið á
að vera, svo hver hefur sína henti-
semi í þeim efnum. Bragðið og
sætið eða sýrið eftir smekk. Þeir
sem kjósa skarpt bragð bæta vís-
ast við ediki eða appelsínusafa og
þeir sem vilja bragðið vel sætt
bæta í hunangi eða annarri sætu.
Rauókálssalat
Rauðkál er ekki aðeins gott soð-
ið, heldur einnig hrátt í salat og
hér kemur dæmi um jólalegt
rauðkálssalat, sem er fjarska gott
með köldum hamborgarhrygg,
hangikjöti eða öðru bragðmiklu
kjötmeti. Svo er auðvitað ekkert
að því að gæða sér á því án kjöts-
ins, kannski þegar komið er fram
á annan eða þriðja dag jóla og
þörfin fyrir eitthvert ferskmeti er
farin að gera vart við sig. Salatið
geymist vel, er reyndar best þegar
það hefur staðið í nokkrar klukku-
stundir eða yfir nótt, svo þið getið
átt það í kæliskápnum yfir jóladag-
ana og borið fram þegar þörf er
á. Þeir sem ekki eru gefnir fyrir
piparrót geta sleppt henni, en hún
gefur salatinu óneitanlega sér-
stætt bragð.
__________1 rauðkólshöfuð_______
_____________3 gulrætur_________
3 sm af piparrót, fínrifinni
Oliuedikssósa
6 msk vínberjakjarna-
__________eðg ólífuolía_________
__________2 msk rauðvínsedik____
1 mskgott, ósætt frgnskt sinnep
1 tsk hrásykur eða
einnig við geymsluna, en er auk
þess léttur og góður forréttur ef
því er að skipta.
__________5 vænar rauðrófur______
__________5 vænar gulrætur_______
__________V* hluti sellerírót____
_____edikssósan hér að ofan að
________sykrinum slepptum________
1. Hér er ekkert annað en að
hreinsa og þerra grænmetið og
rífa það fínt. Hrærið sósuna svo
hún verði létt og freyðandi og hell-
ið henni yfir grænmetið.
venjulegur sykur
Epla- og sellerisalat
Þetta salat er algjör uppáhalds-
uppskrift og ómissandi um jólin,
því salatið fer jafn vel með síldar-
réttum og þeim kjötréttum, þar
sem svokallað Waldorfsalat er við
hæfi. Með skinku er það frábært
og einnig með öðru reyktu köldu
kjötmeti. Eins og annað með
hráum eplum er það best nýlagað,
en ef það hefur staðið bætið þá í
svolítilli súrmjólk og/eða sýrðum
rjóma saman við það til að gera
það svolítið ferskara.
Galdurinn við salatið er að bæði
er notaður sýrður rjómi og súr-
mjólk, svo útkoman verður léttari
en ef eingöngu er notaður sýrður
rjómi að ekki sé nú minnst á
majónes.
5 græn og hörð epli
1 sellerírót
lítil dós af sýrðum rjóma
2 dl súrmjólk
1. Afhýðið eplin, skerið þau í báta
og fjarlægið úr þeim kjarnana áður
en þið skerið þau í litla bita. Hreins-
ið selleríið, afhýðið og skerið það
sömuleiðis í litla bita.
2. Hrærið saman sýrða rjómann
og súrmjólkina og hellið yfir eplin
og selleríið.
Sellerí meó
vinberjum
Hér kemur svo heitt meðlæti,
sem hentar sérstaklega vel með
villibráð, hvort sem er rjúpur eða
hreindýr og einnig með kalkún.
Hér gildir að sjóða selleríið ekki í
mauk og bæta vínberjunum ekki í
fyrr en rétt áður en meðlætið er
borið fram. Ef ykkur hentar getið
þið soðið selleríið daginn áður og
bætt svo vínberjunum bara út í
þegar meðlætið er hitað upp og
borið fram. Vínberin eiga að vera
sæt og góð til að falla sem best
að selleríinu.
_______1 stöngulselleríknippi_
um 30 g smjör
300 g græn vínber
1. Hreinsið selleríið og flettið ef til
vill grófu trefjunum af með afhýð-
ara. Ristið stönglana í mjóar ræmur
og skerið þær í um 3 sm bita. Sker-
ið vínberin í tvennt og takið kjarn-
ana úr. Það hljómar kannski eins
og mikil vinna, en er fyllilega þess
virði og ekki eins seinlegt og það
lítur út fyrir að vera.
2. Hitið smjörið og bætið selleríinu
út í. Látið það malla á vægum hita
í um 20 mín. eða þar til stönglarn-
ir hafa mýkst, en eru þó enn fastir
fyrir. Bætið vínberjunum í, látið
þau hitna í gegn og berið meðlæt-
ið fram.
mmmmmmmmmmmmmm
Sœtsúrl rósakál
meó heslihnetum
Rósakál er einstaklega gott
meðlæti með dökku kjöti og villi-
LEIKHÚSFERÐ ■é*..
er kærkomin Sjof jT
/Ti 7 ■ \ J ' i Gjafakort í Þjóðleikhúsið Skemmtileg og sígild gjöf
l i ' i *J 1 % % £ ifHL Æ1' 515 ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
_ " w w* 551 1200
.STEFNUMÓT V© ÍSLAND*
IJÓLAPAKKANN!
Dvöl á Hótel Eddu er skemmtileg jólagjöf fyrir þá sem vilja
fara I gott frí á Islandi. Gjafakortin, sem eru útbúin eftir
óskum hvers og eins, gleðja náttúruunnendurna, útivistar-
fólkið og alla hina sem vilja láta sér liða vel á notalegu
hóteli. Hægt er að velja á milli fimmtán sumarhótela og
tveggja heilsárshótela; á Kirkjubæjarklaustri og Flúðum.
Ailar nánari upplýsingar eru veittar á Ferðaskrifstofu Islands.
FERÐASKRIFSTXm
ÍSLANDS
ICELAND TOURIST
BUREAU
Skógarhlíð 18 101 Reykjavík Sími 562 3300
Bréfasími 562 5895