Morgunblaðið - 01.12.1996, Síða 55
í
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1996 E 55
Kór á stærð við meðalkór
í venjulegri íslenskri sókn-
arkirkju stóð skammt frá
prestunum, en þær fjörutíu
mínútur sem ég staldraði
við í leit að jólaandanum
komst hann aldrei að fyrir
síbylju prestanna, svo á
endanum gafst ég upp. Ég
veit ekki hvort hátíðleiki jól-
anna fyrirfinnst í Róm, en
ég fann hann aldrei. Við
reikuðum um göturnar fram
undir kl. 2. Þar var fullt af
fólki og mörg kaffihús opin.
Aðfangadagskvöld í Róm
er líflegt eins og önnur
kvöld í Róm, en hátíðlegt
er það öldungis ekki. Fyrir
alvörugefinn og jólaþenkj-
andi íslending urðu þetta
jólin, sem aldrei komu . . .
Saltfiskur ó
italska visu
Napólíbúar borða salt-
fiskinn gjarnan djúpsteikt-
an, en einn uppáhalds salt-
fiskréttur minn er þó öðru-
vísi. Hvort einhver vill borða
hann á jólunum er önnur
saga, en hann bragðast Ijúf-
lega alla aðra daga. Upp-
skriftin dugir fjórum eða
fimm í forrétt.
400 g góður saltfiskur
2 dl góð ólífuolía
3 væn fínsöxuð hvítlauksrif
vænt knippi ný steinselja
agnarögn af
rauðum pipar ef vill
PASTA með skeldýrum ítómatsósu.
i
| Ohátíðleiki á
rómverska vísu
í þessu kaþólska landi er út-
varpsmessan auðvitað óþekkt fyr-
irbæri á aðfangadagskvöld og
sjónvarpið hefur ekki heldur á sér
sérlega trúarlegan blæ, þó messu
bregði þar fyrir. Eftir máltíðina á
aðfangadagskvöld langaði mig að
| koma við í kirkju, svo haldið var inn
^ í gamla bæinn og inn í Pantheon,
. þessa gríðarmiklu hvelfingu, sem
I nú hýsir kirkju, en var áður róm-
verskt hof. Þarna átti að vera mið-
næturmessa og tónleikar. Við
komum rétt eftir miðnætti. I einu
horninu sátu um 200 manns, en
þess utan stóðu sennilega heldur
fleiri. Þrátt fyrir fólksfjöldann virt-
ist kirkjan tóm, svo stór er hún.
Þarna stóð fjöldi presta fyrir altari
og skiptust á að fara með guðs-
orð sem sökum slæms hljómburð-
ar varð þvoglukennd síbylja.
Kirkjugestir stungu saman nefjum
og þeir sem stóðu gengu fram og
aftur, svo undir glymjandi guðs-
orðinu var stöðugur kliður og and-
rúmsloftið minnti fremur á lestar-
stöð en kirkju, hvað þá miðnætur-
messu á aðfangadag jóla.
1. Fiskurinn er útvatnað-
ur og settur í kalt vatn. Lát-
ið suðuna koma ofurhægt upp og
látið fiskinn síðan malla við þennan
lága hita í um 30 mín.
2. Takið fiskinn úr soðinu,
hreinsið roð og bein frá og setjið
í pott ásamt olíu, hvítlauk og pip-
ar. Hrærið í með gaffli svo fiskur-
inn fari í bita og dragi vel í sig ol-
íuna. Ef ykkur finnst hann of þurr
bætið þá olíu í fiskinn. Blandið
steinseljunni saman við og berið
fiskinn fram, gjarnan með góðu
brauði. Hér á hvítvín vel við, en
bjór er heldur ekki illa til fundinn,
þótt hinn ítalski blær hverfi þá
svolítið.
STUTT matreiðslubók fyrir
sveitaheimili hefur án efa þótt
nokkuð framúrstefnuleg á
sinni tíð en hún kom út árið
1906. Bókinni var ætlað að
gefa sveitakonum kost á ís-
lenskri matreiðslubók en efnið
var mestallt þýtt úr dönsku og
ýmislegt forvitnilegt kynnt til
sögunnar. Margt tengdistjól-
um, ekki síst baksturinn, og í
bókinni er m.a. að finna upp-
skrift að vínartertu sem var
þá að ná fótfestu hér á landi.
Vinarkaka
1 pd [450 g] smjör, sem legið
hefir stundarkorn í köldu
vatni, 1 pd af hveiti, 1 pd af
sykri, 10 sætar möndlur og nokkrar
beizkar og brytjaður sítrónubörk-
ur. Þetta er hrært vel saman, hnoð-
að, flatt út með kefli og kökurnar
kringdar undir diski. Þær eru hafð-
ar margar eða fáar eftir vild og
eftir því, hve stórar kökurnar eru.
Þær eru bakaðar við lítinn hita, þar
til þær eru ljósbrúnar. Þegar þær
eru orðnar kaldar eru þær lagðar
hver ofan á aðra og sultutau á milli
þeirra. Ef menn vilja, má hafa sitt
lagið með hveijum lit, t.d. fyrsta
lagið rautt, annað brúnt og þriðja
gult.
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
■
í -•
:■ -.
: s
s e
s s
s 2
s 2
í: 2
S 2
s 2
í 2
f 2
s 2
S 2
S 2
í 2
S 2
S 2
í 2
í 2
S 2
S 2
s 2
S 2
í 2
s 2
Teddy varmibjörn er mjög sérstakur bangsi.
Eftir 2 mínútna dúr í örbýlgjuofninum getur
þú vafið þig um hann og hann gefur frá sér
hita sem varir í margar klukkutíma. Teddy
er frábær gjöf fyrir smábörnin sem aðra.
.
■
:
■
»1
;2:: i
■22: i
222 1
2
222 I
-2:
:
:
2:íl
222
22
' :
2;: 2
:
: ■
22 2
S 2
22 '2
22-
Teddy varmibjörn kemur með svefnpoka og
ítarlegum leiðbeiningum. Teddy uppfyllir
evrópska öryggisstaðla og hafa barnaspítalar
um allan heim notað Teddy fyrir börn.
Komdu og skoðaðu þennan sérstaka bangsa!
Bíldshöföa 20-112 Reykjavfk - Sfmi 587 1410
S' í! íí' 51 5' ??■ íí‘ í?' íí' ÍÍ Í!‘ -í íí « í! •?: V. v! •?!'
2Í I
22 1
22 1
22 I
' KOMMOÐUR ^
SKATTHOL
VEGGBORÐ
með marmara
SÍMABORÐ
SÓFABORÐ
með marmara
SKARTGRIPABORÐ
TE OG KAFFIBORÐ
o.fl. o.fl.
' Faxafeni
m HÖFUM STÆKKAÐ
Kringlunni
STÓR 0G FALLEG
SPEGLAR OG HUSGOGN ■ OTRULEGA HAGSTÆTT VERÐ