Morgunblaðið - 04.01.1997, Blaðsíða 23
I
MORGUNBLAÐIÐ ||TTTT|| LAUGARDAGUR 4. JANÚAR1997 23
m
.
Morgunblaðið/Kristinn
hv'&áá
awÍB
gRs
birtingar sem við sjáum allt í kringum okkur
og í okkur sjálfum. Hinar mörgu og fjöl-
breyttu jógaleiðú- hafa allar sameiginlegt
markmið, sem er að hjálpa okkur að verða
meira og meira meðvituð um hver við erum,
að læra að þekkja þennan lífgefandi kraf't
sem viðheldur okkur og að finna frumkjam-
ann eða uppsprettuna sem býr hið innra með
okkur.
Þess vegna leitast jóginn alltaf við að
verða meira og meira meðvitaður um það
sem býr hið innra með honum þ.e. meðvitað-
ur um alla spennu eða opnun hvort sem hún
er tilfinningalegs eðlis, hugræns eða í líkam-
anum. Það eru fyrstu skrefin á brautinni.
Það getur tekið langan tíma að komast í
gegnum þann frumskóg því við geymum öll
áföll, alla innrætingu og öll óbeinu skilaboðin
sem við náðum ekki að vinna úr í fortíðinni
innra með okkur. Þau virka eins og stíflur í
orkuflæðinu sem veikir líkamann og við
verðum spennt og bæld.
Daglega erum við yfirleitt ekki meðvituð
um gamlar geymdar tilfinningar eins og t.d.
reiði. Svo þegar einhver „gerir eitthvað á
okkar hlut“ verðum við fjúkandi reið, mun
reiðari en efni standa raunverulega til, því
upp gusast öll gamla bælda reiðin. Hin
jógiska leið kennir okkur m.a. að leitast við
að hvorki bæla tilfinningar eða að láta þær
taka stjómina yfir okkur, en allan tímann
meðan tilfinningin varir er jóginn meðvitað-
ur um hana og finnur hana án þess að gera
1 BRUIN - Þessi
stada örvar
meltingu og opnar
framhliö likamans.
2 LOTUS i herda-
stööu. Styrkir
hjartaö og örvar
bióöstreymi til
hálsins og
höfuösins.
3 BATURINN í
lótusstöðu. Opnar
mjaömir og
brjostkassa,
dýpkar
öndun.
4 BARNIÐ - Gott
er aö láta teygja a
sér bakið í
jógastööunni
„Barnið'1 í lok
hvers tíma.
Attfalda leiðin
SAMADHI - Hugljómun
DHYANA - Hugleiðsla
DHARANA - Einbeiting
PRATYAHARA
Draga athygli innávið frá skynfærum
PRANAYAMA - Öndunartækni
ASANAS - Líkamsteygjur, -stöður. Sjálfsagi
NIYAMAS
Hreinleiki, nægjusemi, sjálfsagi, hugleiðing, forsjá Cuðs, þjóna, treysta
YAMAS
Friðsemi, frómleiki, óeigingirni, nægjusemi, hófsemi, hreinlífi, heiðarleiki, sannleikur
Hin áttfalda leið Ashtanga yoga,
sem spekingurinn Patanjali setti í form og skilgreindi.
neitt með hana. Það er frábær leið til að
„hreinsa út“ og öðlast innri frið. Það sama
gildir um hugsanir, samskipti og líkamlegan
sársauka til dæmis. Jóginn er eins og áhorf-
andi að sjálfum sér og hættir þá að taka alla
hluti bókstaflega og alvarlega og fer að sjá
lífið og sjálfan sig í nýju og fyndnara ljósi.
Húmor og kærleikur eru lykilorð hér, því
með kærleika og húmor kemur nýtt flæði í
okkur og við bregðumst við á nýjan og skap-
andi hátt. Þegar við losnum úr viðjum van-
ans og fortíðarinnar, losnar úr læðingi geysi-
lega mikil orka og við fórum að blómstra á
nýjan áður óþekktan máta.“
Knrktappi á öldutappi
Við byrjum á æfingu sem Kristbjörg kall-
ar Lampann eða Dipakasana á sanskrít. Hún
felst í því að hryggur er beinn, hendur á
hnjám, höndum lyft út og upp til hliðar á inn-
öndun, loftinu haldið inni með lófa saman og
hendur látnar síga sömu leið til baka á út-
öndun. Kristbjörg segir að þessi æfing opni
brjóstkassann og axlir, lagi meltinguna, auki
öndunargetu lungna og styrki öndunarkerf-
ið. Rói hugann og tilfinningar og auki
„Sattva guna“, það er hreinleika persónu-
leikans.
Guðni leikur undir á hljóðfæri sem hann
kallar „Didjerídu" en það er mannhæðarhár
trjábolur sem mun vera uppruninn meðal
frumbyggja Ástralíu. Undir æfingunum leik-
ur hann ýmist á þetta hljóðfæri eða klar-
ínettuna og óneitanlega eykur hin sérstæða
tónlist hans á áhrifin, sem verka á greinar-
höfund eins og endurfæðing. Hann finnur í
hjarta sínu að þetta á miklu betur við hann
en hamagangur og átök í líkamsrætarstöð.
Ekki eru tök á að lýsa hér í smáatriðum
öllum jógaæfingum Kristbjargar, en áður en
yfir lauk höfðum við farið í gegnum: Fjallið,
Hálfmánann, Köttinn, Hryggvinduna,
Bakteygjuna, Slönguna, Brúna og sitthvað
fleira og undir lokin kom það sem Kristbjörg
kallaði „rúsínuna" (í pylsuendanum), þar
sem lærimeistarinn vafði okkur inn í teppi til
fulkominnar slökunar. Hún líkti okkur við
öldur á haffleti og svei mér þá ef maður var
ekki farinn að vagga eins og korktappi á
öldutoppi undir þulunni. Upp í hugann kom
gamalt lag frá hippatímanum, sem hefst á
orðunum: „I“m a Covk on the Ocean ..og
vellíðanartilfinning streymdi um allan líkam-
ann.
Þessari kvöldstund var vissulega vel varið
og greinarhöfundur ekki frá því að það eigi
fyrir honum að liggja að stunda joga að stað-
aldri í framtíðinni. Sú var að minnsta kosti
ákvörðun hans þegar hann kvaddi lærimeist-
arann með hinni hefðbundnu kveðju jogaiðk-
enda: Jai Bhagwn, eða „Ég heiðra ljósið í
hjarta þínu.“
Tilgangurinn með notkun nikótínlyfja
er að draga úr fráhvarfseinkennum
þegar reykingum er hætt. Lyfið má því
aðeins nota að reykingum sé algjörlega
hætt. Nicorette® tyggigúmmí inni-
heldur nikótín sein losnar smám saman
úr tyggigúmmíinu þegar tuggið er.
Tygg)a skal hægt og með hléum.
Nicorette® tyggigúmmí er til í 2 mg
og 4 mg styrkleika og í þremur mis-
munandi bragðtegimdum. Styrkleiki og
meðferðarlengd cr einstaklingsbundin.
Algengur dagskammtur er 8-16 stk.
Nikótínið í tyggigúmmíinu getur valdið
aukaverkunum eins og t.d. svima, höfuðverk, hiksta, ertingu í munni,
koki, vélinda og meltingaróþægindum. Ekki er ráðlegt að nota
tyggigúmmíið lengur en 1 ár.
Nicorette® forðaplástur inniheldur nikótín sem frásogast með
jöfnum hraða úr forðaplástrinum í a.m.k. 16 klst. Algengustu
aukaverkanir Nicorette® forðaplásturs eru svimi, höfúðverkur,
verkir í liðum og vöðvum, einkenni sem líkjast inflúensu, kláði og
útbrot undan plástrinum, aukin svitamyndun, svefntruflanir, óróleiki
og depurð. Æskilegt er að hefja meðferð með Nicorette®
forðaplástri með sterkasta plástrinum. Einn plástur er settur á að
morgni og tekinn af fyrir svefii. Setja skal plásturinn á heila, hreina,
hárlausa og þurra húð, á brjósti, hrygg, upphandlegg eða mjöðm og
skipta um plástursstað á hverjum degi. Styrkleikinn á plástrinum er
síðan ininnkaður smám saman og fer það eftir nikótínþörf við-
komandi á hverjum tíma. Nikótín getur valdið bráðum eitrunum hjá
bömum og er efnið því alls ekki
ætlað bömum. Gæta skal varúðar
hjá þeim sem hafa hjarta- og
æðasjúkdóma. Ofrískar konur og
konur með barn á brjósti eiga
ekki að nota lyfið. Lesið vandlega
leiðbeiningar á fylgiseðli sem
fylgir hverri pakkningu lyfsins.
Framleiðandi:
Phamiacia & Upjohn, Svíþjóð.
Innflytjandi:
Pharmaco hf., Hörgatúni 2,
Garðabæ.
NICORETTE
i