Morgunblaðið - 11.01.1997, Side 2

Morgunblaðið - 11.01.1997, Side 2
2 LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hundrað ára afmæli Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu Efnt til hátíðar- dagskrár á morgun EFNT verður til sérstakrar há- tíðardagskrár í Borgarleikhús- inu á morgun, sunnudag, í tilefni af aldarafmæli Leikfélags Reylgavíkur. Yigdís Finnboga- dóttir, formaður afmælisnefnd- arinnar, stýrir dagskránni en fjölmargir munu koma fram. Tvær viðurkenningar verða veittar á dagskránni; Geir Borg afhendir styrk úr sjóði Stefaníu Guðmundsdóttur, leikkonu, og Þórhildur Þorleifsdóttir, leikhús- stjóri Borgarleikhússins, afhend- ir verðlaun í leikverkasamkeppni Leikfélags Reykjavíkur sem efnt var til í tilefni af afmælinu. Á dagskránni munu fjölmarg- ir taka til máls; Sigurður Karls- son, formaður Leikfélags Reykjavíkur, Davíð Oddsson, forsætisráðherra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, Sveinn Einarsson, fyrsti leikhús- stjóri leikfélagsins, Edda Þórar- insdóttir, formaður Félags ís- lenskra leikara, Pétur Einars- son, formaður Félags leikstjóra á íslandi, Árni Ibsen, ritari Leik- skáldafélags íslands, Stefán Baldursson, Þjóðleikhússtjóri, Trausti Ólafsson, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, Katrín Hall, listdansstjóri íslenska dansflokksins, Valur Valsson, bankastjóri íslandsbanka, María Kristjánsdóttir, leiklistarstjóri Ríkisútvarpsins, og Garðar Cortes, óperustjóri ísiensku óperunnar. Listamenn Þjóðleikhússins, Leikfélags Akureyrar, íslenska dansflokksins, Utvarpsleikhúss- ins og íslensku óperunnar koma fram. Að loknum dagskráratriðum verður slegið upp veislu í Borg- arleikhúsinu. Afmælisnefnd Leikfélags Reykjavíkur skipa leikhúsráð og heiðursfélagar. Auk Vigdísar Finnbogadóttur, sem er formað- ur eins og áður sagði, sitja i nefndinni Baldvin Tryggvason, Jón Sigurbjörnsson, Páll Baldvin Baldvinsson, Sigurður Karlsson, Steindór Hjörleifsson, Sveinn Einarsson, Þorleikur Karlsson, Þórhildur Þorleifsdóttir, Örnólf- ur Thorsson og fyrir hönd Hall- dórs Laxness situr Auður Lax- ness. Fagra veröld frumsýnd í kvöld verður söngleikurinn Fagra veröld eftir Karl Ágúst Úlfsson og Gunnar Reyni Sveins- son frumsýndur í Borgarleik- húsinu, hann er byggður á Ijóð- um úr samnefndri bók borgar- skáldsins, Tómasar Guðmunds- sonar. Fjallað er um verkið og rætt við aðstandendur sýningar- innar í Lesbók Morgunblaðsins í dag, en hún er tileinkuð aldar- afmæli Leikfélags Reykjavíkur. Morgunblaðið/Kristinn SÉRSTÖK sögusýning verður í Borgarleikhúsinu í tilefni af af- mælinu. Þar verða til sýnis munir og minjar úr sögu Leikfélags Reykjavíkur. Á myndinni er Ögmundur Jóhannesson, ljósahönn- uður, að ganga frá leikmunum til sýningar í kjallara leikhússins. Með stolin ávísana- blöð og fíkniefni TVEIR menn voru handtekn- ir í Kópavogi í fyrrinótt með lítilræði af hassi í fórum sín- um. Annar þeirra viðurkenndi við yfirheyrslur að vera eig- andi efnisins og hefur báðum verið sleppt, samkvæmt upp- lýsingum frá lögreglunni í Kópavogi. Þrír menn á aldrinum 16 til 29 ára voru handteknir í gærmorgun á gangi skammt frá alkunnum viðverustað ut- angarðsfólks í Kópavogi og reyndust þeir hafa í fórum sínum stolin blöð úr ávísana- hefti og sprautu sem innihélt efnisleifar, auk annarra tækja til neyslu. Ekki var hægt að yfirheyra þá strax, þar sem þeir voru undir áhrif- um vímuefna. Hýrnaði yfir eiganda Eigandi ávísanablaðanna, sem stolið var úr fyrirtæki í bænum, hafði eingöngu til- kynnt hvarf þeirra til við- skiptabanka síns og varð því í senn undrandi og feginn þegar lögreglumenn úr Kópa- voginum greindi honum frá því að þau hefðu komið í leit- irnar með fyrrgreindum hætti. Brýnt að Jám- blendifélagið taki ákvörðun Samið um skuldir Vestfirsks skelfisks Vinnsla hefst í apríl með stærra skipi íslenskt við- skiptaspil til kynning- ar á evró NEFND sem sinnir kynningu á nýju Evrópumyntinni fyrir Evr- ópusambandið hefur ákveðið að breytt útgáfa íslenska viðskipta- spilsins Neworld verði notuð í að- ildarlöndunum til að kynna böm- um og unglingum myntina. Spilið verður þýtt á tungumál allra Evr- ópusambandsríkja og gefið út í tugum og jafnvel hundruðum þús- unda eintaka sem dreift verður í skóla og aðrar stofnanir. Evrópukort í stað heimskorts íslenskir eigendur spilsins hafa staðið í viðræðum við embættis- menn sambandsins í rúmt ár en á fimmtudag var gefið endanlegt vilyrði fyrir því að spilið yrði not- að. Að sögn Tómasar Gunnarsson- ar, eins eigendanna, notuðu nefnd- armenn jólin til að spila það með fjölskyldunum og tóku ákvörðun- ina í framhaldi af því. Tómas segir að næstu vikurnar verði unnið að því að aðlaga spilið þörfum Evrópusambandsins. „Nefndin mun koma að efni sem tengist myntinni og sennilega verður spilaborðinu breytt úr heimskorti í Evrópukort og ein- hveijar fleiri útlitsbreytingar verða gerðar. Við munum ekki heimta neinar stórar upphæðir fyrir spilið í sjálfu sér en aðalatrið- ið er að þeir muni greiða götu þess og kaupa af okkur mikinn fjölda sjálfir. Þetta gjörbreytir okkar samningsaðstöðu við útgef- endur og dreifingaraðila.“ Góð sala fyrir jólin Tómas segir að sala spilsins hér á landi hafi gengið vel. Alls seldust fyrir jól tæp 5.500 eintök af sex þúsund sem voru sett á markað. HALLDÓR Jónatansson, forstjóri Landsvirkjunar, segir mikilvægt fyr- ir Landsvirkjun að fá að vita sem fyrst hvort íslenska járnblendifélag- ið hf. ætlar að stækka verksmiðjuna á Grundartanga. Ef vel ætti að vera þyrfti að bjóða út framkvæmdir við byggingu Sultartangavirkjunar og Hágöngumiðlun á næstu vikum. Aðspurður sagði Halldór að vissr- ar óþolinmæði væri farið að gæta hjá Landsvirkjun varðandi stækkun járnblendiverksmiðjunnar, en stjórn fyrirtækisins frestaði í fyrradag að taka endanlega ákvörðun um stækk- un. Hann sagði að unnið væri að undirbúningi virkjana í samræmi við áætlanir um aukna orkusölu til verk- smiðjunnar og komið væri að því að taka ákvarðanir um útboð. Miklar fjárskuldbindingar „Ef vel á að vera þurfum við að bjóða út framkvæmdir við Sultar- tangavirkjun fljótlega. Þegar ákvörðun verður tekin um útboð verða líkur á stækkun jámblendi- verksmiðjunnar og byggingu hins fyrirhugaða álvers Columbia að vera meirí en minni. Hér er um stóra virkjun að ræða sem kallar á miklar fjárskuldbindingar. Við vildum því helst að ákvörðun lægi fyrir um stækkun verksmiðjunnar á næstu vikum. Allar áætlanir okkar gera ráð fyrir að Sultartangavirkjun verði komin í gagnið i október 1999. Til þess að svo megi verða má ekki dragast mikið lengur að fyrstu út- boðin við framkvæmdir fari fram. Um er að ræða gröft fyrir stöðvar- húsi og jöfnunarþró, auk Há- göngumiðlunar," sagði Halldór. Halldór sagði að útboðsgögn væru að verða tilbúin og biðu þess að verða send út. „Við hefðum helst viljað hafa sem fastast undir fótun- um áður en við tökum þetta skref. Stjóm Landsvirkjunar mun koma saman á næstu vikum og fjalla um hvort líkindin á því að af þessari stækkun verði og á því að Columbia- álverið verði byggt séu nægileg mik- il til að réttlæta að fara í útboð.“ VESTFIRSKUR skelfiskur á Flat- eyri hefur náð nauðasamningum við langflesta kröfuhafa og er gert ráð fyrir að samningamir fari fyrir dóm- ara í næsta mánuði. Fyrirtækið er að festa kaup á skelfiskveiðiskipi í Bandaríkjunum sem hefur helmingi meiri burðargetu en Æsa ÍS, sem fórst í Arnarfirði í júlí á síðasta ári. Guðlaugur Pálsson, framkvæmda- stjóri Vestfirsks skelfisks, áætlar að vinnsla hefjist á ný í apríl. Nauðasamningarnir fela í sér að fyrirtækið greiðir 20% af öllum kröf- um og fellir niður hlutaféð um 80%. Stefnt er að hlutafjáraukningu síðar með þátttöku þeirra eigenda sem það kjósa. Guðlaugur segir að 85% hluthafa hyggist taka þátt í upp- byggingu fyrirtækisins. Skuldir Vestfirsks skelfisks voru um 250 milljónir. „Ef við kaupum þetta skip sem við höfum verið að skoða ættu skuld- ir fyrirtækisins að standa í um 200 milljónum króna. Það er mjög góð skuldastaða sem ætti ekki að standa í vegi fyrir starfseminni," sagði Guðlaugur. Auka þarf vinnsluna Samningur um kaupin á skipinu verður líklega undirritaður í lok þessa mánaðar en það er keypt af útgerð í Tampa í Flórída. Skipið er sérstaklega hannað til skelfískveiða en var síðan breytt til að veiða hörpuskel og krabba. Það hefur leg- ið bundið við bryggju í nokkum tíma vegna kvótaleysis. Guðlaugur segir að það taki um einn mánuð að gera nauðsynlegar breytingar á skipinu fyrir skelfiskveiðar hérlendis. Hing- að komið mun kostnaðurinn af kaupunum og breytingunum verða um 90-100 milljónir króna. Skipið hefur rúmlega helmingi meiri burð- ar- og veiðigetu en Æsa. „Skipið tekur meira en við þurf- um daglega í vinnsluna. Við erum því að auka verulega veiðigetuna og getum sótt á mið á Breiðafirði, Faxaflóa eða hvar sem er. Það þarf að auka vinnsluna í landi miðað við það hver hún var þegar gamla skip- ið var í notkun. Vinnslan réð mjög vel við það sem skipið aflaði og það þarf aðeins að lengja vinnutímann í landi. Það verða á milli 25-30 manns við vinnsluna en við vorum með 23 menn þegar mest var áður. Við stefnum að því að hefja vinnslu um miðjan eða endaðan apríl. Mark- aðurinn er góður. Kvótinn hefur minnkað mikið hjá Bandaríkja- mönnum og það virðist vanta mikið inn á markaðinn. Verðið hefur að- eins stigið en reyndar höfðum við nýlega fengið hækkun þegar Æsa fórst. Yfir vetrarmánuðina stígur verðið en það fellur yfir sumarmán- uðina,“ sagði Guðlaugur. Hann sagði að menn hefðu engar áhyggjur af markaðnum og verði. Nú einbeittu menn sér að því að koma fyrirtækinu af stað og fjár- magna kaupin á skipinu. Einar Oddur Kristjánsson hefur látið af stjómarformennsku í fyrir- tækinu. Hann situr nú í stjóm þess en stjórnarformaður er Stefán Jóns- son. Landsvlrkjun þarf að bjóða út virkjanir h i \ i ,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.