Morgunblaðið - 11.01.1997, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 11.01.1997, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Miklar framkvæmdir við sundlaugma Unnið fyrir 180 milljónir MIKLAR framkvæmdir standa nú yfir við Sundlaug Akureyrar og er áætlað að þeim ljúki um mánaða- mótin júní/júlí næstkomandi. Kostn- aður við þessar framkvæmdir er áætlaður um 64 milljónir króna. „Það er mikið um að vera hér þessa daga og mörg spennandi verkefni framundan," segir Gísli Kristinn Lórenzson forstöðumaður Sund- laugar Akureyrar. Síðustu daga hefur verið unnið við að steypa upp kjallara nýs húss á milli sundlaugarhússins og íþrótta- hússins við Laugagötu. Þar verður sett upp æfingamiðstöð fyrir sund- laugargesti, en einnig verður þar þvottahús og geymslur og hreinsi- búnaði sundlaugarinnar verður komið þar fyrir. Gert er ráð fyrir að í framtíðinni verði aðalinngangur í laugina á hæðinni fyrir ofan kjallar- ann. í þessum verkáfanga verður einnig byggð ný sundlaug, 25x16 metrar að lengd og kemur hún sunnan og vestan við núverandi laug. Gísli Kristinn vonaði að næsti áfangi yrði boðinn út á komandi hausti, en þá er ætlunin að ljúka byggingu hússins, tengigangs milli sundlaugarbyggingarinnar og íþróttahússins og lagfæringar á eldra húsinu. Meðal annars verður baðað- staða lagfærð. Enn hefur að sögn forstöðumanns ekki verið tekin ákvörðun um hvað gert verður á efri hæð gamla hússins, þar sem nú er búningsaðstaða kvenna, en til greina kemur að leigja plássið eða setja þar upp ljósa- og eða nuddstofu. I seinni áfanga verksins er ætlun- in að breyta gamla sundlaugarker- inu, gera það grynnra og að meiri barnalaug. Áætlað er að kostnaður við framkvæmdir við Sundlaug Akureyrar á næstu þremur árum verði um 180 milljónir króna. Góð aðsókn „Aðsóknin að sundlauginni er mjög góð og ég fuliyrði að hún á stóran þátt í að laða að ferðafólk til bæjarins," sagði Gísli Kristinn. Hátt á þriðja hundrað þúsund manns sótti laugina á síðasta ári. Sundlaug- in hefur fengið neðra tjaldsvæðið við Þórunnarstræti til umráða og næsta sumar verður fjölskyldugarði komið þar fyrir. Morgunblaðið/Kristján Messur AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14 á morg- un, sunnudag. Æskulýðs- fundur kl. 17. í Kapellu. Sunnudagaskólinn hefst 19. janúar. Biblíulestur í Safnað- arheimili kl. 20.30 á mánu- dagskvöld. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagaskóli kl. 11 á morgun, sunnudag. Ungl- ingaklúbbur kl. 16 og almenn samkoma kl. 20. Heimila- sambandið kl. 16 á mánudag, krakkaklúbbur kl. 17 á mið- vikudag, 11+ á fimmtudag og hjálparflokkur kl. 20.30. HVÍTASUNNUKIRKJ- AN: Vakningasamkoma, ræðumaður Rúnar Guðna- son, á morgun, sunnudag, kl. 14. Vonarlínan, sími 462-1210, símsvari allan sól- arhringinn með orð úr ritn- ingunni sem gefa huggun og von. SJÓNARHÆÐ, Hafnar- stræti 63: Sunnudagaskóli á morgun, sunnudag, kl. 13.30. í Lundarskóla. Al- menn samkoma á Sjónarhæð kl. 17. Ástjarnarfundur kl. 18 á miðvikudag á Sjónar- hæð. Unglingafundur kl. 20.30. á föstudag á Sjónar- hæð. > Iþrótta- maður KA útnefndur ÍÞRÓTTAMAÐUR KA árið 1996 verður útnefndur í afmælishófi í KA-heimilinu nk. sunnudag kl. 15. Þrír efstu íþróttamennirnir í kjör- inu fá viðurkenningu en það er aðalstjórn KA sem annast valið. Útnefningin fer að venju fram í kringum afmæli KA en félagið var stofnað 8. janúar 1928 og fagnar því 70 ára afmæli að ári. ----» ♦ ♦---- Carmina Burana næsta verkefni ÆFINGAR eru að hefjast aftur hjá Kór Tónlistarskólans á Akur- eyri. Næstu verkefni verða Carmina Burana eftir Carl Oroff og Messe Solennelle eftir Rossini. Kórinn er opin öllu söngfólki. Sérstakur unglingakór verður stofnaður í tengslum við flutning þennan og er áhugasömu fólki bent á að hafa samband við skóla- stjóra. Samkeppni í steypusölu á Akureyri og nágrenni er á næstu grösum Arnarfell setur upp fullkomna steypustöð FYRIRTÆKIÐ Arnarfell hf. á Akureyri hefur sett upp fuilkomna steypustöð á athafnasvæði sínu við Óseyri og hyggst hefja steypu- sölu í bænum innan tíðar. Fyrir- tækið Möl og sandur hf. hefur verið alls ráðandi í steypusölu í bænum en nú hillir undir sam- keppni á þessum markaði. Arnarfell keypti nýja og full- komna færanlega steypustöð og tvo notaða steypubíla á síðasta ári. Tækin voru í notkun við Kvíslarveituframkvæmdir fram á haust, þar sem fyrirtækið var und- irverktaki hjá Suðurverki. Þór Konráðsson, einn eigenda Arnarfells, segir að steypustöðin hafí reynst mjög vel. Við Kvíslar- veitu var steypt samkvæmt sér- stökum ES-staðli en Þór segir að slíkt hafi ekki verið gert hingað til. „Við teljum okkur því vel sam- keppnishæfa á þessum markaði. Auk þess höfum við reynslu og þekkingu til að framleiða hráefni í góða steypu og góð framleiðsla er besta auglýsingin. Þá er líka jákvætt fyrir kaupendur steypu að samkeppni sé á markaðnum." Auðvelt að flytja stöðina milli staða Afkastageta steypustöðvarinn- ar er um 60 rúmmetrar á klst. og þykir hún stór miðað við afköst en lítil miðað við umfang. Fyrir- tækið stefnir að því að koma stöð- inni í vinnu vítt og breitt um land- ið en þess á milli verður hún stað- sett á Akureyri. Þór segir auðvelt að fiytja stöð- ina milli staða og tekur aðeins einn dag að pakka henni saman. Hún þykir því tilvalin til notkunar bæði við brúarsmíði og virkjunarfram- kvæmdir. Arnarfell hefur verið nokkuð fyrirferðamikð í verktakavinnu víðs vegar um landið en fyrirtækið á einnig fjöldann allan af gröfum, ýtum, grjótflutningabílum, vöru- Morgunblaðið/Kristján TVEIR af eigendum Arnarfells hf., bræðurnir Þór og Sigurberg- ur Konráðssynir, fyrir framan steypustöð fyrirtækisins. bílum og þijár malarasamstæður til steinefnavinnslu. Arnarfell er fjölskyldufyrirtæki, bræðurnir Sigurbergur, Þór, Björn og Þor- valdur eru hluthafar í fyrirtækinu ásamt föður sínum Konráði Vil- hjálmssyni og starfa þeir allir hjá fyrirtækinu. 30 tonna réttindanámskeið Kynferðisbrotamaðurinn verði áfram í haldi Sjófarendur athugið! 30 tonna réttindanámskeið verður haldið við Útvegssvið VMA á Dalvík. Þátttaka skráist í síma 4661083 fyrir föstudaginn 17. janúar nk. Þátttökugjald kr. 30.000. Allar almennar upplýsingar veittar á skrifstofu skólans alla virka daga frá kl. 8.00-12.00. Kennslustjóri. Rannsókninni lokið LÖGÐ verður fram krafa í Héraðs- dómi Norðurlands eystra næstkom- andi mánudag um að maður á sex- tugsaldri sem setið hefur í gæslu- varðhaldi frá því um miðjan nóvem- ber síðastlinn skuli vera í haldi þar til dómur gengur í máli hans. Rann- sókn á máli mannsins, sem viður- kennt hefur kynferðisbrot gagnvart ungum stúlkubörnum er lokið og verður sent ríkissaksóknara. Maðurinn var handtekinn 19. nóv- ember síðastliðinn grunaður um kyn- ferðislega misnotkun á stúlkuböm- um, hann var fyrst að kröfu sýslu- manns úrskurðaður í 10 daga gæslu- varðhald sem svo var framlengdur um 45 daga, eða til 13. janúar. Við húsrannsókn á heimili manns- ins fannst mikið magn af mynd- bandsspólum með klámefni, svo og yfir eitt þúsund tölvudisklingar með klámmyndum, þar á meðal barna- klámi. Maðurinn hefur játað að hafa miðl- að klámefni af bömum til annarra um alnetið. í þeim gögnum sem lög- regla lagði hald á fannst myndband þar sem maðurinn hefur kynferðis- mök við stúlkubörn en einnig hefur hann játað að hafa „gælt“ kynferðis- lega við stúlkur á aldrinum 7, 8 og 9 ára. Ábendingar um athæfí mannsins bárust frá fólki sem hafði haft sam- skipti við hann á spjallrás á alnetinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.