Morgunblaðið - 11.01.1997, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 11.01.1997, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997 49 BRÉF TIL BLAÐSINS Myndlist úthýst á menningarári Frá Guðbjörgu Lind Jónsdóttur: FÉLAG íslenskra myndlistarmanna harmar þá óskiljanlegu ákvörðun borgarstjórnar að ætla að úthýsa Myndlistaskóla Reykjavíkur og grafíkverkstæðinu úr húsnæðinu að Tryggvagötu 15 fyrir árið 2000. Myndlistaskóli Reykjavíkur hefur um langan tíma gegnt veigamiklu hlutverki í myndlistarlegu uppeldi Reykjavíkur - ef ekki þjóðarinnar allrar. Bæði nemendur og kennarar skólans hafa á undanförnum árum sætt sig við nánast óviðunandi vinnuaðstæður vegna breytinga á fyrrnefndu húsi í þeirri trú að skól- inn yrði þar áfram. Með grafíkverkstæðinu rættist gamall draumur myndlistarmanna um að fá aðgang að verkstæði þar sem fulikominn tækjabúnaður væri fyrir hendi til ástundunar hinna ýmsu greina svartlista en fram að þessum tíma hafa listamenn þurft að sækja þessa aðstöðu til verk- stæða í útlöndum. Félagsmenn íslenska grafíkfé- lagsins hafa unnið mikið og fórn- fúst starf til þess að koma þessu sérhæfða verkstæði á laggirnar. Mikil áhersla hefur verið lögð á að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til loftræstingar og annars aðbún- aðar sem talist getur vistvænn á stað þar sem unnið er með hættuleg efni. Mikið af þeim búnaði sem fyr- ir hendi er á verkstæðinu er sér- smíðaður í þetta húsnæði og því flókið mál ef ekki ógerlegt að flytja hann brott. Það er sorglegt til þess að vita að nú - eftir tíu ára sleitulausa vinnu, þegar verkstæðið er loks fullbúið - að fyrrgreindar fréttir skuli berast. Það er talsverð kaldhæðni í því fólgin að það skuli einmitt vera árið 2000, sem bæði Myndlistaskól- inn í Reykjavík og grafík-verkstæð- ið eiga að vera komin út úr hús- næðinu við Tryggvagötu 15 en það ár hyggst Reykjavíkurborg gera menningunni hærra undir höfði en alla jafna, þar sem Reykjavíkurborg mun verða ein af menningarborgum Evrópu það árið! Þetta er mikið áfall fyrir mynd- listarmenn og aðra þá sem láta sig myndlistarlegt uppeldi einhveiju skipta. Félag íslenskra myndlistarmanna skorar á borgarstjóra að endur- skoða þessa ákvörðun sína og koma í veg fyrir menningarslys. GUÐBJÖRG LIND JÓNSDÓTTIR fyrir hönd Félags íslenskra myndlistarmanna. Tíðindi í íslensku tónlistarlífi Frá Pálma Gunnarssyni og Tryggva Htibner: HIÐ árlega jólaplötuflóð skellur á um jólin og flóran af íslenskum hljómplötum er fjölbreytt að vanda. Gagnrýnendur rýna sem mest þeir mega í skæðadrífuna, eru oftast í jólaskapi, jákvæðir og flestar plötur fá nokkuð jákvæðar umsagnir — sem þær standa auðvitað jafn mis- jafnlega undir eins og gengur — sitt sýnist hveijum. Hins vegar finnst okkur undirrituðum að þeir hafi nú ástæðu til að draga fram stríðsletrið og stóru orðin, því veru- leg tíðindi virðast hafa gerst í ís- iensku tónlistarlífi. Hér er átt við plötu Margrétar Kristínar: Fabula. Reyndar hefur eitthvað verið skrif- að um þessa plötu og hún fengið „góða“ dóma en þó ekki mjög mik- ið betri en gerist og gengur, sem er alls ekki sanngjarnt því hér er á ferð einstakur gæðagripur — sannkallað listaverk. Sérlega frum- leg en um leið aðgengileg tónlist sem varla er hægt að skilgreina. Maður nokkur sem um árabil stund- aði nám í skilgreiningarfræðum erlendis lét svo um mælt að þetta væri „Neo impressioniskt leikhús- djasspopp með technorómantísku ívafi“ og er varla ástæða til að ve- fengja það. Hinu má furðu sig á að þetta er frumverk (debut) Margrétar því augljóst er að þarna býr fjölbreytt kunnátta og þjálfun að baki. Hún semur lögin og text- ana, syngur og leikur á hljómborð. Aðstoðarmenn hennar eru nokkrir en óhjákvæmilegt er að geta þáttar Jóns Elvars Hafsteinssonar sem auk þess að leika af sinni alkunnu snilld á gítarinn og útsetja lögin sýnir á sér nýja hlið sem upptöku- stjóri en hljómun, „sánd“, á þessari plötu hlýtur að teljast með því besta sem gerist, sérstaklega er söng- hljóðritun vönduð. í sem stystu máli ætti ekki nokk- ur einasti maður að láta þessa hljómplötu framhjá sér fara, að því tilskildu þó að hann hafi meira gaman af góðri tónlist en vondri. PÁLMI GUNNARSSON, tónlistarmaður, TRYGGVI HÚBNER, tónlistarmaður. Uppgjör vegna áramóta parta, enda voru þetta fjarskalega „hjúman" náungar í heildina og mörg dæmi eru til um hjálpsemi þessara ágætismanna við þá sem bágt áttu tíma- bundið. Það voru hreint og beint búin til störf sem hæfðu þessu fólki, af æðstu mönnum þjóð- arinnar og oft af við- komandi ráðherrum sjálfum. Ég tel einmitt við hæfi nú um þessi áramót að geta þessa hér með og virða, að loknum starfsárum mínum í tollinum. PÁLL HANNESSON, Ægisíðu 86. Frá Páli Hannessyni: GAGNVART mér per- sónulega, sem hefi starfað í tollinum í 40 ár, verð ég að viður- kenna og segja eins og er að þeir stóðu sig af- bragðsvel, yfirmenn tollgæslunnar vegna veikinda minna, tíma- bundinna og kennderís hér áður fyrr, meðan ég starfaði við það embætti, enda skilaði framkoma þeirra og áfallahjálp við mig árangri. Þetta voru allt Páll Hannesson ágætismenn og eru það einnig víða annars staðar í embætt- isgeiranum í þjóðfélagi okkar. Ég er þeim því þakklátur fyrir mína Merking á fylgjum ALGENGT er að senda skjöl sem fylgjur (attachments) til Morg- unblaðsins með rafrænum pósti. Því miður er verulegur misbrestur á að upplýsingar séu látnar fylgja með um hvaða forrit hafi verið notað þegar skjalið var stofnað. Það eru því vinsamleg tilmæli að framvegis sé þess getið hvaða forrit var notað við gerð fylgjunnar og einnig véla- gerð PC, Macintosh eða aðrar vélar. Blab allra landsmanna! |Í0ir0iml>Itet«ib -kjarni málsins! UTSALA -herra- GARÐURINN Kringlunni í dag hefst... OPIÐ í DAG LAUGARDAG FRÁ KL. 11 Stórlækkað verð á öllum vörum! sgSÉÍIk DALBREKKU 16, KÓPAVOGI Slmi 554 6020 OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ 13:00 18:00
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.