Morgunblaðið - 11.01.1997, Page 4
4 LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
f
Verðlaun afhent fyrir lestur og veggspjöld í Stóru norrænu lestrarkeppninni
GUÐNÝ Birna Ólafsdóttir og Kristján Már Gunnarsson.
HRAFNHILDUR Hjartardóttir og Dagný Ágústsdóttir.
Bæjaryfirvöld í Garðabæ úrræðalaus gagnvart ólátaseggjum á Garðatorgi
VERÐLAUN fyrir lestur og bestu
veggspjöldin sem nemendur í
grunnskólum landsins unnu í
tengslum við Mími, Stóru nor-
rænu lestrarkeppnina, í nóvem-
ber sl. voru veitt við hátíðlega
athöfn í Norræna húsinu í gær.
Keppt var í þremur
aldurshópum og voru
veitt verðlaun fyrir
fyrsta, annað og þriðja
sætið innan hvers hóps.
Tveir fulltrúar frá
hveijum bekk tóku við
verðlaununum úr
hendi Ólafs Ragnars
Grímssonar, forseta ís-
lands, og hlutu að gjöf
viðurkenningarskjöl,
bækur og boli merkt
keppninni. Auk þess
fengu þeir bekkir sem
lentu í fyrsta sæti
90.000 krónur hver.
Þau veggspjöld sem
lentu í fyrsta sæti verða send
áfram til Stavangers I Noregi þar
sem þau munu keppa við sam-
bærileg veggspjöld hinna Norður-
landanna.
Fyrstu verðlaunin í yngsta ald-
urshópnum fóru til 3. bekkjar ID
íBrekkubæjarskóla á Akranesi.
Önnur verðlaun hlaut 2. bekkur
L í Laugarnesskóla i Reykjavík
og þriðju verðlaun hlaut 4. bekkur
SI Grandaskóla í Reykjavík. í
öðrum aldurshópnum fóru fyrstu
verðlaun til 7. bekkjar NM í Aust-
urbæjarskóla í Reykjavík, önnur
verðlaun hlaut 5. bekkur, Kirkju-
bæjarskóla á Síðu og þriðju verð-
laun hlaut 5. bekkur Æfingaskól-
ans í Reykjavík. í elsta aldurs-
hópnum fóru fyrstu verðlaunin til
10. bekkjar I í Snælandsskóla í
Kópavogi, önnur verðlaun hlaut
8. bekkur R í Breiðholtsskóla I
Reykjavík og þriðju verðlaun
hlaut hópur 9105-01 í Víðistaða-
skóla, Hafnarfirði.
Bækurnar fram
yfir sælgætið
í máli Garðars Gíslasonar verk-
efnissljóra lestrarkeppninnar
kom fram að ríflega þijátíu þús-
und börn hefðu tekið þátt í keppn-
inni eða um 70% allra grunnskóla-
nema. Útreikningar sýndu að
nemendur á landinu hefðu lesið
um 215 þúsund bækur eða rúm-
lega 21 milljón síðna.
Bókastaflinn hærri
en Öræfajökull
VERÐLAUN í Stóru norrænu lestrar-
keppninni voru veitt í gær.
ÓSKAR Sindri Gíslason og Ragnheiður
Júlía Ragnarsdóttir.
VIGNIR Orn
Morgunblaðið/Ásdís
yndís Björk Elíasdóttir ásamt
kennara sinum Svanfriði Franklínsdóttur.
„Ef öllum þessum bókum yrði
staflað upp myndi hæðin á þeim
vera um 2.319 metrar eða um 200
metrum hærri en Öræfajökull.
Yrðu allar bækurnar hins vegar
settar í 33 jafn háa bókastafla,
myndi hver og einn þessara stafla
verða á hæð við Hallgrímskirkju-
turn. Skal því engan undra þótt
bókasöfnin á landinu hafi ekki
haft undan að afgreiða bækur á
meðan á lestrarkepninni stóð,“
sagði Garðar og nefndi einnig
sem dæmi um áhugann á keppn-
inni að börnin hefðu hætt að leita
að sælgætisskálinni i heimsókn-
inni hjá ömmu og afa, heldur
hefðu þau farið í bókaskápana og
„hreinsað út allar norrænar bæk-
ur sem þar fundust".
Garðar sagði ennfremur að
mikil ánægja væri með árangur
keppninnar á hinum Norðurlönd-
unum, en þrátt fyrir mikinn metn-
að þar hefði þátttaka íslendinga
verið hlutfallslega raeiri.
Anægðir sigurvegarar
Yngst í hópi vinningshafanna
voru þau Vignir Örn og Bryndís
Björk, 7 ára nemendur úr Laugar-
nesskóla. „Við lásum mikið á
meðan á keppninni stóð, en einnig
lásu mamma og pabbi
fyrir okkur,“ sögðu
þau, að vonum ánægð
með verðlaunin.
„Nú er ég að lesa
bókina Kuggur, Mosi
og mæður þeirra sem
ég fékk í jólagjöf og
finnst hún mjög
skemmtileg og fynd-
in,“ sagði Bryndís, en
Vignir sagði að
mamma sín væri að
lesa fyrir hann Pabbi,
mamma, börn og bíll.
Guðný Birna og
Kristján Már, 8 ára
nemendur í Brekkubæjarskóla,
sögðu að bekkurinn þeirra hefði
lesið samtals 9.100 blaðsíður. „Við
lásum aðallega bækur eftir H.C.
Andersen," sögðu þau. Guðný
sagði að uppáhaldssagan hennar
eftir hann væri Næturgalinn, en
Kristján sagði að uppáhaldssagan
sín væri Pabbi veit hvað hann
syngur.
Oskar Sindri og Ragnheiður
Júlía eru 12 ára nemendur úr
Austurbæjarskóla. Þau sögðust
hafa verið iðin við lesturinn, en
einnig lagt mikinn metnað í vegg-
spjaldið. „Óskar átti hugmyndina
að veggspjaldinu og síðan vann
bekkurinn saman að því að útfæra
hana,“ sagði Ragnheiður. „Mynd-
in sýnir vængjaða hestinn Pegas-
us lesa bók með fullt af krökkum
í kring, sem einnig eru að lesa,“
sagði Óskar.
Bekkjarsysturnar úr Snælands-
skóla, þær Hrafnhildur og Dagný,
voru sammála um að lestrar-
keppnin væri mjög sniðug og
hvetti krakka örugglega til að
lesa meira. „Ég hef til að mynda
aldrei lesið mikið, en þegar
keppnin hófst byijaði ég á því,“
sagði Hrafnhildur. „Málfræðin
verður kannski aðeins betri fyrir
vikið,“ sagði hún. Dagný var á
því að krakkar læsu mest á aldrin-
um tólf til þrettán ára, en eftir
því sem þau yrðu eldri minnkaði
áhuginn, auk þess sem tíminn
yrði minni.
Aukin löggæsla
eina ráðið
BÆJARYFIRVÖLD í Garðabæ hafa
ekki úrræði til að stemma stigu við
skrílslátum unglinga í grennd við
verslunarmiðstöðina á Garðatorgi,
að sögn Ingimundar Sigurpálssonar
bæjarstjóra.
Hann segir bæjaryfirvöld hafa
fundað með lögreglu seinasta haust
til að leita leiða til úrbóta og hafi
verið gripið til samræmdra aðgerða
barnavemdaryfirvalda og lögreglu í
kjölfarið sem hafi gefið góða raun.
Lýstu yfir áhyggjum
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem hann hafi fengið, hafi ekki ver-
ið um erfiðleika að ræða frá byijun
nóvember og til þess tíma sem ólæti
urðu á nýársnótt. Því komi honum
á óvart vitnisburður verslunareig-
enda, þess efnis að ástandið hafi
verið óviðunandi í allan vetur.
„Atburðirnir á nýársnótt staðfesta
að þarna er um að ræða þrjá til fjóra
einstakinga sem halda öllu í spennu.
Bæjarstjórnir hafa hins vegar ekki
löggæsluvald og geta ekki gripið til
aðgerða gagnvart þeim sem hafa sig
í frammi með þessum hætti.
Hins vegar höfum við átt í viðræð-
um við sýslumann og yfirmann lög-
reglunnnar um þessi mál og lýst
yfir áhyggjum okkur með að lög-
gæslan væri ekki nægjanlega öflug
til að taka á þessum vanda. Auk
þess getum við tekið það upp við
okkar þingmenn að þeir beiti sér
fyrir auknum fjárveitingum til lög-
gæslu,“ segir Ingimundur.
Eftirlit verður hert
Eðvar Ólafsson, rannsóknarlög-
reglumaður í Hafnarfirði, segir að
þess misskilnings hafi gætt í Morg-
unblaðinu í gær að ekki væri búið
að kæra forsprakka þeirra spjalla
sem unnin hafa verið á Garðatorgi
og bifreiðum íbúa í nágrenninu.
Verslunareigendur hafi nú þegar
lagt fram formlega kæru vegna
rúðubrota og nokkrir bifreiðaeigend-
ur. Hann reikni með að lögreglan
Ijúki frágangi málsins í næstu viku.
„Við höfum yfirheyrt um 15-20
unglinga og bíðum nú eftir að þeir
sem urðu fyrir tjóni af völdum
skemmdarvarga leggi fram kröfur,
en að því loknum leggjum við málið
fyrir sýslumann sem sendir það
eflaust til ríkissaksóknara. Embætti
ríkissaksóknara tekur síðan ákvörð-
un um ákærur vegna þessa, en þeir
krakkar sem við höfum meðhöndlað
eru flestir sakhæfir," segir Eðvar.
Eðvar segir að eftirlit með Garða-
torgi verði hert næstu helgar og reynt
að sporna við þeirri óheillaþróun sem
þar hefur orðið. „Hópmyndun af
þessu tagi biýtur í bága við lögreglu-
samþykkt, en það getur hins verið
erfitt að reka heim mikinn mann-
flölda eins og við þekkjum úr miðbæ
Reykjavíkur. Við munum hins vegar
fylgjast grannt með,“ segir hann.
Meiðyrðamál gegn
ritstjóra Alþýðublaðs >
Leggja
skal efnis-
legan dóm |
á málið *
HÆSTIRÉTTUR hefur vísað máli
ákæruvaldsins gegn Hrafni Jökuls-
syni aftur til héraðsdóms til efnis-
legrar meðferðar. Héraðsdómur
hafði vísað málinu frá, þar sem dóm-
urinn taldi að ákvæði í almennum
hegningarlögum, sem kveður á um |
að opinberir starfsmenn geti krafist _
þess að ærumeiðandi móðgun eða
aðdróttun gegn þeim sæti opinberri £
ákæru, samrýmdist ekki jafnræðis-
reglu stjórnarskrárinnar, því mönn-
um væri mismunað eftir starfsstétt.
Þessum skilningi hafnar Hæstiréttur.
Ákæruvaldið stefndi Hrafni Jök-
ulssyni, þáverandi ritstjóra Alþýðu-
blaðsins, vegna ummæla um Harald
Johannessen, forstjóra _ Fangelsis-
málastofnunar ríkisins. Ákæruvaldið
kærði úrskurð héraðsdóms til Hæsta-
réttar og krafðist þess að hann yrði Q
felldur úr gildi og héraðsdómi yrði a
gert að taka málið til efnismeðferðar.
Ekki andstætt stjórnarskrá
í niðurstöðu Hæstaréttar í g*r
segir, að í almennum hegningarlög-
um sé kveðið á um leið til málsóknar
vegna meiðyrða gagnvart opinberum
starfsmönnum, en ekki sérstaka efn-
islega vernd æru þeirra. „Laga- L
ákvæði, sem á þennan hátt veita
opinberum starfsmönnum réttindi |
eða leggja á þá skyldur umfram aðra, a
verða ekki talin andstæð 65. grein ”
stjórnarskrárinnar, sbr. 3. gr. stjórn-
skipunarlaga nr. 97/1995. Eru þvj
ekki efni til að vísa málinu frá dómi
af þeim sökum. Samkvæmt þessu
verður hinn kærði úrskurður felldur
úr gildi.“
Hæstaréttardómaramir Garðar
Gíslason, Arnljótur Björnsson og
Markús Sigurbjörnsson felldu hinn
kærða úrskurð úr gildi og lögðu fyr;
ir héraðsdómara að taka málið til 1
efnismeðferðar. ™
------♦ ♦ ♦-----
Járnblendiverksmiðj-
an á Grundartanga
Breytt eign-
araðild til |<
skoðunar *
FINNUR Ingólfsson iðnaðarráðherra
segir að í tengslum við stækkun Járn-
blendiverksmiðjunnar á Grundar-
tanga hafi eigendur hennar skoðað
þann möguleika að breyta eignar-
aðild að verksmiðjunni. Umræður um
þetta séu ekki það langt komnar að
Ijóst sé til hvaða niðurstöðu þær leiði. 11
Eigendur íslenska járnblendifé- ,(jj
lagsins em þrír, íslenska ríkið með ' .
55% eignarhlut, Elkem í Noregi með "
30% hlut og Sumitomo í Japan með
15% hlut.
„í tengslum við hugsanlega
stækkun Járnblendiverksmiðjunnar
hefur verið kannaður sá möguleiki
að stækka um tvo ofna en ekki einn
og í tengslum við það hefur komið
upp umræða um hugsanlega breyt- j
ingu á eignarhaldi á fyrirtækinu.
Þetta er allt á umræðustigi og engar i 4
ákvarðanir verið teknar," sagði iðn-
aðarráðherra. *
Finnur sagði stefnt að því að taka
ákvörðun um stækkun verksmiðj-
unnar um einn ofn í lok þessa mánað-
ar, en ólíklegt sé að fyrir þann tíma
verði lokið umræðu um hugsanlegar
breytingar á eignaraðild. Aðspurður
sagðist Finnur ekki útiloka að ís-
lenska ríkið muni selja eitthvað af j
hlutafé sínu í verksmiðjunni til inn- e
lendra fjárfesta í framtíðinni, en slíkt ■«
yrði ekki skoðað fyrr en öllum samn- |s
ingum um hugsanlega stækkun verk- (
smiðjunnar væri lokið.