Morgunblaðið - 11.01.1997, Side 16

Morgunblaðið - 11.01.1997, Side 16
16 LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Reuter PERÚSKIR lögreglumenn voru við öllu búnir eftir að skothvell- ir rufu næturkyrrðina í fyrrinótt. Gífurlegt fannfergi truflar samgöngur í Norður-Noregi Byrjað að rýma hús vegna snjóflóðahættu Nordlys/Ole Ásheim ÍBÚAR Tromso hafa ekki við að moka snjó frá húsum sínum vegua fannfergis og skafrennings. GÍFURLEGT fannfergi í Norður- Noregi hefur valdið miklum sam- göngutruflunum og víða er talin hætta á snjóflóðum. Hafa 27 hús í Vannoya fyrir norðan Tromso verið rýmd vegna snjóflóðahættu en fimmtán ár eru liðin frá því að fannfergi var svo mikið í N-Nor- egi. Engin slys hafa orðið á mönn- um í óveðrinu. Óveðrið skall á aðfararnótt fimmtudags og geisaði stormur við ströndina í Norðlandi, Troms og Finnmörku. Vindur hefur gengið mikið niður, sérstaklega inn til landsins er þar snjóar hins vegar gífurlega. Snjóhæðin í Tromso var farin að nálgast tvo metra í gær en fyrra metið er frá 1981, 1,92 metrar. Sér ekki úr augum Að sögn Láru Konráðsdóttur, sem býr í Tromso, er mikill skaf- renningur svo að sér vart úr augum og flestir vegir ófærir. „Snjórinn náði manni vel í mitti þegar við komum út í gærmorgun og við sjáum ekki út um glugga. Þetta er ekki venjulegt veður miðað við árstíma og ekki laust við að fóik velti því fyrir sér hvernig veðrið og snjóþyngslin verði þegar líður á veturinn, fyrst ástandið er svona núna. En það er ekki aftakaveður hér, ég var á íslandi þegar snjóflóð- ið féll á Súðavík og þetta er ekki eins slæmt og þá, nema ef til við út við ströndina," segir Lára. Vegasamband við Tromso rofn- aði í fyrrinótt er snjóflóð féllu á veginn þangað og er meirihluti vega í bænum og nágrenni hans ófær. Flugsamgöngur hafa verið stopular en ekki legið niðri. Fjölmargir vinnustaðir voru lokaðir í gær þar sem fólk komst ekki til vinnu og skólar voru hálf- tómir. Um 70 manns hafa orðið að yfirgefa hús sína á Vannoya en ekki er talin ástæða til að rýma fleiri hús þótt víða sé talin snjó- flóðahætta. Þá hafa bæjarstarfsm- en, félagar í björgunarsveitum og fleiri verið kvaddir út til að aðstoða eldra fólk og veikt, sem kemst ekki út úr húsum. í í I ( < ( ( !< i i Sandinistar óánægðir og ganara af binsi Manasrua. Reuter. ^ J ^ ^ ^ ^ ^ Minntu á sig með skothríð SKÆRULIÐARNIR, sem hafa japanska sendiráðið í Lima, höf- uðborg Perús, á valdi sínu ásamt 74 gíslum, skutu í fyrri- nótt fjórum skotum upp í loftið. Var mikil viðbúnaður hjá lög- reglunni á eftir en talið er, að skæruliðarnir hafi fyrst og fremst verið að minna á sig og kröfur sínar. Alberto Pandolfi, forsætisráðherra Perús, sagði í fyrradag, að skæruliðunum yrði hugsanlega leyft að fara úr landi ef þeir slepptu gíslunum og yrði skýrt frá því síðar hvaða ríki vildu taka við þeim. HÆGRIMAÐURINN Arnolodo Ale- mán tók við embætti forseta Nic- aragua í gær eftir að þingmenn Þjóð- frelsisfylkingar sandinista höfðu gengið af þingi og hótað að efna til götumótmæli gegn stjórn hans. 36 þingmenn af 93 gengu af fyrsta fundi nýja þingsins til að mótmæla þeirri ákvörðun yfirkjör- stjórnar að hafna tillögu sandinista um leynilega atkvæðagreiðslu vegna kjörs forseta þingsins og sex manna forsætisnefndar. Þeir sögðu að ann- ars myndu þingmenn annarra flokka ekki þora að kjósa þá sem sandinist- ar styddu af ótta við reiði nýrrar hægristjórnar Alemáns. Þrátt fyrir fjarveru sandinistanna var flokksbróðir Alemáns kjörinn forseti þingsins. Sex stuðningsmenn Alemáns voru einnig kjörnir í for- sætisnefndina. Varað við einræði Þingmenn sandinista sögðust ætla að heyja baráttuna gegn stjórni.nni á götunum þar sem Alemán hefði náð tangarhaldi á löggjafar-, fram- kvæmda- og dómsvaldinu. „Litlar líkur eru á að frumvörp, sem Alemán er á móti, verði sam- þykkt hér á þinginu," sagði Victor Hugo Tinoco, hægri hönd Daniels Ortega, leiðtoga sandinista. Alemán sór embættiseið við hátíðlega athöfn í gær að viðstödd- um forsetum sjö ríkja í Rómönsku Ameríku og full- trúum frá 61 landi. Sandinistar sniðgengu at- höfnina og hafa neitað að viður- kenna stjórn Ale- máns. Þeir saka yfirvöld um kosn- ingasvik í forsetakosningunum 20. október, þegar Ortega beið ósigur fyrir Aiemán. Sinatra fékk hjartaáfall Los Angeles. Reuter. FRANK Sinatra fékk hjartaáfall síð- degis í fyrradag og var fluttur í skyndingu a Cedars-Sinai sjúkra- húsið í Beverly Hills-hverfi Los Ang- eles. Líðan hans var sögð góð í gær og lá hann þá á almennri deild en ekki gjörgæslu. Þetta var í þriðja sinn á tveimur mánuðum sem Sinatra, sem er 81 árs, er fluttur í spítala. Hann hafði verið aðeins tvo daga heima er hann fékk síðasta áfallið, hafði af ókunnum ástæðum dvalist rúman sólarhring á sama sjúkrahúsi í byrjun vikunnar. Var hann lagður þar inn einnig í nóvember og lá þá átta daga vegna klemmdrar taugar og lungnabólgu. Sinatra hefur hrakað mjög á síð- ustu árum til heilsunnar og þjáðst af margvíslegum kvillum. Haldið upp á fertugsafmæli Rómarsáttmála Brussel. Reuter. ÍTALIR hafa boðað til sér- staks fundar utanríkisráð- herra Evrópusambandsins í Róm hinn 25. marz næstkom- andi til að halda upp á 40 ára afmæli Rómarsáttmálans, sem er kjarninn í núverandi stofn- sáttmála sambandsins. Með Rómarsáttmálanum varð Efnahagsbandalag Evr- ópu (EBE) til árið 1957. Ásamt Kola- og stálbandalagi Evrópu og Kjarnorkubandalagi Evr- ópu myndaði EB Evrópu- bandalagið (EB), sem breyttist í Evrópusamband er Rómar- sáttmálanum var breytt, en hinn nýi stofnsáttmáli ESB er kenndur við Maastricht. EVROPA^ Ráðherrarnir munu nota tækifærið í Róm og ræða breytingar á stofnunum ESB, sem eru til umfjöllunar á ríkj- aráðstefnu sambandsins. Fiestir eru sammála um að stofnanirnar, sem komið var á fót með Rómarsáttmálanum fyrir sex ríki, dugi ekki Evr- ópusambandi tuttugu eða fleiri ríkja á næstu öld. Skoðanakönnun í fjórum fjölmennustu ríkjum ESB Meirihluti vill þjóðar- atkvæðagreiðslu um EMU MEIRIHLUTI kjósenda í fjórum fjöl- mennustu aðildarríkjum Evrópu- sambandsins vill að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild að Efnahags- og myntbandalagi Evr- ópu, sem á að taka gildi í ársbyrjun 1999. Þetta kemur fram í skoðana- könnun, sem gerð var á vegum fjög- urra blaða, The Daily Telegraph í Bretlandi, L’Espresso á Ítalíu, Le Figaro í Frakkiandi og Handelsblatt í Þýzkalandi. I öllum aðildarríkjunum nema It- alíu vildi yfírgnæfandi meirihluti að haldin yrði þjóðaratkvæðagreiðsla um EMU. Þannig vildu hátt í 80% Breta og Þjóðverja fá að greiða at- kvæði um myndbandalagið, en 52% ítala. Þegar spurt var hvernig menn myndu greiða atkvæði í slíkri þjóðar- Frakkar og ítalir hlynntir EMU, Bretar á móti og Þjóðverjar á báð- um áttum atkvæðagreiðslu sagðist meirihluti Frakka (61%) og ítala (71%) myndu styðja EMU-aðild. í Bretlandi sögð- ust 56% myndu greiða atkvæði gegn EMU-aðild, en 26% sögðust henni meðmæltir. I Þýzkalandi var ekki marktækur munur á já- og neimönn- um. Þar sögðust 43% myndu styðja EMU, en 44% sögðust andvígir myntbandalaginu. Telja að Þýzkaland yrði ráðandi í EMU Spurt var hvort menn teldu að eitthvert eitt ríki yrði ráðandi í nýju Efnahags- og myntbandalagi. Meiri- hluti svarenda í Bretlandi, Frakk- landi og á Ítalíu svaraði því til að það yrði Þýzkaland. Af þeim Þjóð- veijum, sem nefndu eitthvert ríki, nefndu flestir sjálft Þýzkaland, en þó ekki meirihluti. Yfir þrír fjórðuhlutar kjósenda í Frakklandi, Þýzkalandi og á Ítalíu sögðust vilja að lönd þeirra yrðu áfram í ESB. Naumur meirihluti Breta vill vera áfram í Evrópusam- bandinu. Sömu spurninga var spurt í öllum ríkjunum og var úrtakið í hveiju landi 950 manns. i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.