Morgunblaðið - 11.01.1997, Side 18
18 LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
4
ERLENT
Hebron
Viðræður
þrátt fyrir
tilræði
Jerúsalem, París. Reuter.
ÍSRAELAR, Palestínumenn og
Bandaríkjamenn reyndu í gær að
bjarga friðarviðræðunum við botn
Miðjarðarhafs frá því að stöðvast,
eftir að sprengjutilræði á strætis-
vagnastöðvum í Tel Aviv slösuðu 13
manns í fyrradag. Enginn hefur enn
lýst tilræðunum á hendur sér.
Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísraels, hét því að brugðizt
yrði við af „ýtrustu alvöru“ ef í ljós
kæmi, að Palestínumenn væru
ábyrgir fyrir sprengingunum. En
bæði ísraelskir og palestínskir emb-
ættismenn sögðust myndu halda
áfram viðræðum við sendifulltrúa
bandaríkjastjómar, Dennis Ross, um
tafir sem orðið hafa á því að ísrael-
ar standi við gerða samninga um
að skila hlutum hemumdu svæðanna
á Vesturbakkanum.
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, sagði í gær að sprengjutil-
ræðin á fimmtudagskvöld „snertu
aðeins innanríkismál í ísrael" og
fullyrti að Palestínumenn hefðu ekk-
ert með þau að gera.
Reuter
Skipun um handtöku verkalýðforingja í Suður-Kóreu
Segjast svara með
allsherj arverkfalli
il. Reuter.
DOMSTOLL í Suður-Kóreu hefur
skipað fyrir um handtöku sjö leið-
toga verkfallsmanna og virðast
stjórnvöld ætla að hafa hótanir um
allsheijarverkfall og áskoranir al-
þjóðlegra verkalýðssamtaka að
engu.
Verkalýðsleiðtogamir hafa leitað
hælis í Myongdong-dómkirkjunni í
Seoul og hóta allsheijarverkfalli í
landinu, einnig hjá opinbemm
starfsmönnum, verði reynt að hand-
taka þá. Skömmu eftir að hand-
tökutilskipunin var gefín út bar
verkamaður eld að klæðum sínum
í átökum milli verkfallsmanna og
óeirðalögreglu í borginni Ulsan.
Brenndist hann illa og var tvísýnt
um líf hans.
Verkalýðsleiðtogamir hafa skor-
að á fólk að efna til mesta verkfalls
í sögu landsins nk. þriðjudag og á
það að standa í tvo daga. Er ólgan
í landinu til komin vegna nýrrar
vinnulöggjafar, sem bindur enda á
eins konar æviráðningu launafólks
og auðveldar vinnuveitendum að
ráða til sín og segja upp fólki.
Frammámenn í Alþjóðasambandi
fijálsra verkalýðsfélaga koma til
Seoul í dag og ætla að reyna að
fá stjórnvöld til að afnema nýju
lögin og yfirmaður Alþjóðavinnu-
málastofnunarinnar hefur skorað á
þau að reyna ekki að handtaka
verkalýðsforingjana. Jin Nyum, at-
vinnumálaráðherra S-Kóreu, hefur
vísað þessum tilmælum á bug og
segir, að í engu öðru iðnríki hafi
laun hækkað um 15% árlega í mörg
ár þrátt fyrir sífellda ókyrrð á
vinnumarkaði.
Skáka
lögregl-
unnií
Belgrad
MÓTMÆLI námsmanna og
stjórnarandstöðunnar í Serbíu
héldu áfram í gær, 54. daginn
í röð. Hér stytta tveir náms-
menn sér stundir við tafl meðan
þeir bíða þess, að Iögreglan
gefist upp og leyfi þeim að kom-
ast leiðar sinnar. Fulltrúar
Fimm-ríkja-hópsins, Bandaríkj-
anna, Bretlands, Frakklands,
Rússlands og Þýskalands, koma
saman í Brussel í dag og er
búist við, að þeir reyni að sam-
ræma afstöðu sína til ástandsins
í Serbíu.
Flugslysið
í Detroit
*
Ovíst um
orsakir
Monroe, Michigan. Reuter.
RANNSÓKNARMENN í
Bandaríkjunum hófust í gær
handa við að grafa úr snjó
lík þeirra, sem fórust með
farþegavél frá flugfélaginu
Delta Comair á akri við bæ-
inn Monroe, skammt frá
borginni Detroit, þar sem
hún átti að lenda. 29 menn
voru um borð og fórust allir.
Ekki er vitað hvers vegna
vélin fórst.
Embættismenn þeirrar
stofnunar, sem fer með ör-
yggi í samgöngum í Banda-
ríkjunum, sögðu að lögð yrði
áhersla á að ná þeim sem
fórust, áður en farið yrði að
leita að braki.
Flugritar
ófundnir
Tilman Crutchfield, lög-
reglustjóri í Monroe, sagði að
starfsmenn stofnunarinnar
hefðu skoðað slysstaðinn á
fimmtudagskvöld, en ekki
fundið flugrita vélarinnar.
Mikil ofankoma var þegar
slysið átti sér stað. Brakið
úr vélinni dreifðist yfir lítið
svæði, sem talið var að væri
tæpir 200 m á lengd og 100
m á breidd.
Meðal þeirra, sem fórust
með vélinni, var kennari frá
Engelwood í Colorado, sem
var á leið til Detroit til að
vera við minningarathöfn um
bróður sinn, sem fórst í öðru
flugslysi 22. desember.
Ekkert
neyðarkall
Ekki er vitað hvers vegna
vélin fórst. Flugturninn í
Detroit hafði veitt flugstjóra
hennar leyfi til lendingar þeg-
ar hún hvarf skyndilega af
ratsjárskjám. Ekkert neyðar-
merki var sent frá vélinni.
Hún var af gerðinni Embraer
Brasilia 120.
1
f
L
L
t
t
L
f
L
L
f
t
f
L
I
f
f
f
c
c