Morgunblaðið - 11.01.1997, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AMERÍSKI DRAUMURINN
RÆTTIST Á FÖÐUR HANS
Fluglækn-
Irinn laks
á íslandi
Kapteinn Ray Olafsson læknir í Banda-
ríska flotanum á Keflavíkurflugvelli skoðar
Menntun
ng fyrri störf
Herstöðin í Keflavík er
4.500 manna samfélag, tí-
undi stærsti bær í land-
inu. Hún er verndað sam-
félag og helmingurinn er
hermenn af karl- eða
kvenkyni, aðrir eru mak-
ar og börn. Lífsþægindin
eiga að vera sambærileg
við það sem annars staðar
þekkist.
Sjúkrahúsið á vellinum
er útbúið til að taka við
nú land og leitar ættingja, en afí hans og
amma fluttu um síðustu aldamót úr Eyja-
firði til Kanada. Gunnar Hersveinn heim-
sótti hann og fræddist meðal annars um af-
rek föður hans Josephs Olafsson.
SKUDRAUMUR Ray
Olafsson var að koma til
Islands. Hann lærði til
læknis og gekk í herinn, varð
kapteinn og fluglæknir, meðal ann-
ars í Japan og Indónesíu. Alltaf
sótti hann um að fá að starfa í
bandarísku herstöðinni í Keflavík
og loks í júní í fyrra rættist draum-
urinn um landið fyrirheitna.
Raymond Paul Olafsson á alís-
lenskan föður, Joseph Olafsson
sem les, skrifar og talar reiprenn-
andi íslensku án þess að hafa komið
til landsins. Joseph er fæddur 1912
og ólst upp í Kanada en talaði ein-
göngu íslensku til sex ára aldurs.
En margir fullorðnir Vestur-ís-
lendingar töluðu aðeins íslensku,
Joseph lærði enskuna í skóla.
Foreldrar Josephs voru Sveinn
Olafsson og Guðrún Guðmunds-
dóttur sem fluttu ung frá íslandi og
settust að í Sasketchwan í Kanada.
Sveinn var sonur Ólafs Jónssonar
bónda að Blómsturvöllum í Eyja-
firði. Guðrún var fædd að Kristnesi
í Eyjafirði 1875, dóttir Andrésar
Guðmundar Jóhannessonar.
Langamma Rays var Guðrún
ljósmóðir Stefánsdóttir, Jónsonar
bónda á Grund, Finnssonar.
FJÖLSKYLDA Rays í Keflavík, frá vinstri Amanda 16 ára, Amber 15 ára, fjölda manns og veita
Vicky 13 ára og eiginkonan Marcia. Ray hcldur á flughjálminum. þeim fyrstu aðhlynningu
til dæmis eftir flugslys
eða vegna stríðs, auk þess að veita
almenna læknisþjónustu í byggða-
laginu. Átta læknar starfa hjá því
og er Ray Olafsson næstráðandi við
spítalann, þó ekki nú sem eiginleg-
ur læknir heldur við stjórnun.
Hann er kapteinn að tign í flotan-
um, en heitið fluglæknir er haft um
lækni sem sérhæfður er í kvillum
sem hrjáð geta herflugmenn. Hér
er venjulega um unga hrausta flug-
menn að ræða, sem hafa tilhneig-
ingu til að gera lítið úr veikindum
sínum, en vegna þess hve dýrum
farkostum þeir stjórna verða þeir
alltaf að vera í toppformi og í um-
sjón sérþjálfaðs læknis. Ray hefur
líka flugréttindi á Orion kafbáta-
leitarvél og á 200 flugtíma að baki.
Ray Olafsson er 52 ára gamall,
konan hans heitir Marcia og eiga
þau sex börn, þrjú þeirra; Elisa-
beth 29 ára, Peter 27 ára og Alex 26
ára eru í Bandaríkjunum. Hin þrjú
ættleiddu þau í Japan og eru þau
Jón
Þveráí
Svarfaðardal
L
Ólafur Jónsson
Blómsturvöllum í Eyjafirðl
L
Sr. Magnús Elnarsson
Tjörn I Svarfaöardal
I
Björn Magnússon
Stærri-Skógum
I
Ragnheiður Björnsdóttir
Jarðbrú I Svarfaðardal
I
Jón Finnson
Grund
i
Stefán Jónsson
Grund
Guðrún Stefánsdóttir
Ágústína M. Jóhannesdóttir
Teigi í Eyjafirði
L
Andrés G. Jóhannesson
Naustum
Svein Ólafsson (1869-1952)
Leslie, Saskatchewan, Kanada
1
Guðrún Guðmundsdóttir
(f. 1875) Kristnesi í Eyjafirði
I
Joseph Olafsson
(f. 1912)
Alice Guthrie
I-------
Ray Olafsson
Á
leikandinn einn á ferð þarf hann að etja kappi við tölvuna,
sem getur orðið upp í fjórskipt, en nokkrir geta leikið
samtímis um mótaldstengingu eða á
tölvuneti, sex alls. Reyndar er hern-
aður ekki sterkasta hlið leiksins, allar
fara orrusturnar fram á ferhyrndu
svæði, en nokkru skiptir færni þess
sem leikur. Færni má auka með sér-
stakri þjálfun, en best reynist ævinlega
að hafa yfirburði liðs.
heimalandið og stofna sjálfstætt ríki, en það er ekki hlaupið
að því, að minnsta kosti ekki fyrr en meirihluti nýlendubúa
er samþykkur.
Öðru hvoru þarf að berjast við innfædda sem amast við
landvinningunum, en einnig þarf iðulega að takast á við
keppinaut sem einnig er að leggja landsvæðið undir sig. Sé
B
LCfffGI*
knnnuéMr
ag iand-
nmmar
Ekki ganga allir tölvuleikir út á að skjóta
og drepa, þeir eru líka til friðsælir og jafn-
vel lærdómsríkir. Árni Matthíasson
gerðist landnemi í nýjum heimi.
riii]
Ð FARA á milli landa var meirháttar ferðalag á
sextándu öld og ekki hægt að hlaupa eftir hjálp ef
Jlla fór eins og fram kemur í leiknum Conquest of
the New World sem Interplay gefúr út. í fyrstu for þess
sem leikur eru þrír landkönnuðir og her. Skömmu síðar
kemur til nýja landsins annað skip sem á er einn land-
nemi, annar her og landkönnuður. Ekki fást fleiri liðs-
menn og ef svo illa fer að landnemarnir falla áður en
fyrsta nýlendan er komin á koppinn verður ekkert úr
frekari landvinningum.
Þó útlit leiksins minni um margt á landvinninga
Spánverja í Mið- og Suður-Ameríku er leikurinn alls ekki
byggður á raunverulegum atburðum; nýr heimur er búinn
til í hverjum leik og aðstæður því síbreytilegar. Þegar kom-
ið er til nýja landsins eru þó innfæddir jafnan indíánaætt-
bálkar ýmsir, ýmist vinsamlegir eða heldur árásargjamir.
Ef illa fer gæti svo farið að nýlendan nýja yrði illvígum
indíánum að bráð, en einnig er gott að koma sér fyrir
skammt frá vinsamlegum ættbálki til að tryggja viðskiptí
og verslun. Einnig má versla við heimalandið, sem skiptir
sér ekki af nýlendunni nema að því leyti að krefja hana um
skatta sem hækka nokkuð reglulega líkt og í raunveruleik-
anum. Verði skattamir óbærilegir má slíta sambandinu við
í kjölfar landkönnuða koma land-
og eins gott að vera búinn að
tryggja nægt landflæmi með skógi ná-
lægt, á og helst hafnaraðstöðu. Þegar
búið er að koma á fót allra nauðsynlegustu
byggingum, til að mynda sögunarmyllu, bú-
garða, járn- og gullnámur og bryggju eða
verslunarmiðstöð, verður að huga að and-
legri vellíðan landnemanna og reisa kirkju og
líkamlegri vellíðan og reisa krá. Kirkjan er
nauðsynleg til að laða að fleiri landnema og
kráin er ekki síður nauðsynleg, ekki síst til að
ráða nýja landkönnuði til starfa, því þeirra ger-
ist fjótt þörf, ekki síst ef finna á land fyrir fleiri
byggðir. Landkönnuðir koma einnig í góðar
þarfir við að vinna sig í álit og græða stig um leið,
því ef þeir finna áður óþekkt fljót eða fjall sem
enginn hefur klifið gefst þeim sem leikur færi á að
nefna það að vild og fær fyrir virðingu mikla.
Hægt er að velja um hvort leikandinn er að iðja
fyrir eitt Evrópustórveldanna eða sem innfæddur.
Állmikill munur er á eftir því hvaða þjóðerni er val-
ið, mest ef leikið er sem innfæddur, og gerir að verk-
um að leikurinn lifir lengur en margir álíka, ekki síst
í ljósi þess að sífellt er ný lönd að kanna og leggja
undir krúnuna, en ógetið er einnig þess möguleika að
sníða leikinn eftir eigin höfði; velja fjölda andstæð-
inga, hve margar indíánabyggðir eru á landinu, hlutfall
lands og vatns og svo mætti lengi telja.
Myndvinnsla er öll með ágætum og þó ekki séu smá-
atriði að þvælast fyrir er allur frágangur til fyrirmynd-
ar og hægt er að fá gott yfirlit af landinu öllu með því að
færa sig fjær, en einnig má komast allnálægt.
Conquest of the New World krefst a.m.k. tölvu með 66
MHz 80486 örgjörva, 8 Mb innra minni, SVGA skjákorts
með a.m.k. 512 K skjáminni og tveggja hraða geisladrifi.
Hljóðkort er ekki nauðsynlegt en til bóta. Leikinn má leika
yfir tölvunet, með mótaldstengingu eða raðtengikapal.
Kirkjur ng krár