Morgunblaðið - 11.01.1997, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 11.01.1997, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997 29 ______AÐSEMPAR GREiMAR_ Er menningin auð- lind eða ómagi? Hvað á að gera árið 2000? Margir velta því eflaust fyrir sér hvernig best megi minnast þúsund ára afmælis kristni í landinu, og án efa margar hugmyndir á lofti. Hér verður bætt í safnið nokkrum hugmyndum að sýn- ingum sem efna mætti til á þessum tímamótum. Við- fangsefnið er hins vegar svo margþætt og stórt, að því yrðu ekki gerð nein viðhlítandi skil í einni sýningu á einum stað, held- ur mætti skipta því í nokkra þætti. Ritun kristnisögu er vel á veg komin og þar er sá grunnur sem byggja má á og útfæra síðan hina myndrænu og sýningartæknilegu hlið á mörgum stöðum og af mörgum aðilum. Landsfeður ættu að varast vítin og dreifa atburðum og sýningum á allt árið 2000 í stað þess að leggja allt upp úr einni dagstund á Þingvöllum, með víðkunnum, hugsanlegum afleið- ingum. Kirkjulist Erfitt er að koma auga á annan og merkari atburð í náinni fram- tíð, sem betur væri til þess fallinn að opna nýjar sýningar í endur- bættum húsakynnum Þjóðminja- safnsins, en veglega sýningu á íslenskri kirkjulist árið 2000. Væntanlega fer viðgerðum á hús- næði safnsins að ljúka og að því kemur að hinar upprunalegu sýn- ingar þess verða tekn- ar niður. Hér er kjörið tækifæri að sýna ijöl- marga dýrgripi ís- lenskrar kirkjulistar sem safnið og kirkjur landsins geyma. Kristnisaga Efna mætti til sum- arsýningar á biskups- stólunum t.d. í skóla- húsnæði, og tengja dómkirkjunum þrem- ur, í Reykjavík, í Skál- holti og á Hólum. Á hverjum stað yrði tek- ið fyrir efni tengt við- komandi biskupsdæmi, dagskrár yrðu í dómkirkjunum með tónlist, erindum og kynningum um sumar- ið, fyrir innlenda og erlenda gesti. Kirkjur Islands Kirkjur landsins gætu myndað eina stóra sýningu. Gefin yrði út handbók um allar kirkjur á ís- landi með ljósmynd af hverri kirkju, upplýsingum um staðsetn- ingu, höfund, byggingarár og vígsludag, húsagerð, kirkjugripi og listaverk, skrá yfir presta sem setið hafa staðinn, upplýsingar um kirkjugarð, legstaði o.fl. í kirkjunum lægju frammi ítarlegri upplýsingar. Kjörið verkefni fyrir sóknarnefndir. í hverri sókn er eidra fólk sem þekkir sögu við- komandi staðar og hefur tíma til að sýna kirkju sína gestum og gangandi. Gera má Islandskort þar sem allar kirkjur landsins, prestsetur, prestaköll og prófast- dæmi, klausturstaðir og aðrir Hvernig minnumst við best, spyr Björn G. Björnsson, í þessari síðustu grein af þremur, þúsund ára afmælis kristnitöku í landinu? sögustaðir kristninnar eru til- greindir. Kristnin og ritlistin Hér er að lokum lögð fram sú hugmynd, að aðalatriði hátíða- halda kirkju og þjóðar árið 2000 verði vegleg sýning um þátt kristnj og kirkju í ritlist og bóka- gerð íslendinga. Með kristninni kom ritlistin í landið og hið lat- neska stafróf. Kirkjan er móðir bóklegra mennta og undir hennar væng, í klaustrum og fræðasetr- um, voru ritaðar margar perlur íslenskra fornbókmennta, skráð- ar sögur konunga og biskupa og samin dýr helgikvæði. Prent- verkið á Hólum, sálmar síra Hall- gríms, húslestrar Vídalíns, allt er þetta efni í sýningu um stóran þátt kirkjunnar í menningarar- finum, bókmenntum íslendinga. Vonandi berum við gæfu til að skilja aðalatriði frá aukaatriðum og halda þannig upp á árið 2000 að sómi verði að fyrir land og þjóð. Höfundur er leikmyndasmiður. Björn G. Björnsson Kramhúsið fer á flug Gód leikfimi eykur orku þrek og þol. - Öndunaræfingar. vaxtarmótun, dans-kinesis, teygiur og slökun. - Sérstakir tímar fyrir bakveika. . Kvennatímar og karlatímar. - Morguntímar með barnapössun. lAuft þe&s/ fyófJu/fi ui&afra, sulsu/, kriþahýóya, fai-c/ii({(/ /eiksmiA/U’ Innritun í síma 5515103 fvv'v V.rakWar\a \ Kramhúsvnu-. Tónmennt (3-6 ára) • MyndWst (7-9 ára) le'\W\sUA-A5 árá) h&H'2 W5I0 Á afmælisárinu verða einungis frumsýnd íslensk leikrit dómínó eftirjökuljakobsson 1897-1997 Fersk, íslensk klassík! Dularfullt leikrit, í senn flókið og einfalt, sem sýnir okkur ráðvillt fólk í þjóðfélagi allsnægta. Leiksýningin hefur nú þegar fengið stórkostlegar viðtökur. eftir Karl Ágúst Úlfsson og Gunnar Reyni Sveinsson. Finnst þér gaman að hlæja? Trúðaskólinn er eitt fyndnasta bamaleikrit sem skrifað hefttr verið! Söngleikur byggður á ljóðum Tómasar Guðmundssonar, borgarskáldsins sem gerði Reykjavík spennandi, rómantíska og gáskafulla. | Láttu þig ekki vanta á afmælissýningar I Leikfélags Reykjavíkur!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.