Morgunblaðið - 11.01.1997, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997 39
að í lífinu kemur gjarnan í ljós að
uppskeran er heldur rýr miðað við
allan orðaflauminn. Hins vegar eru
menn sem vinna af elju og sam-
viskusemi sitt dagsverk. Björn var
í hópi þeirra. Hann lét verkin tala
og lét gott af sér leiða. Störf hans
byggðust einnig upp á kærleika
og ást. Þetta kemur skýrt fram í
bókinni þegar Björn fjallar um
baráttu bænda fyrir varðveislu
Laxár og baráttu gegn fyrirhuguð-
um virkjunarframkvæmdum. Þar
segir: „Við áttum sterkara afl, en
það var ástin. Við elskuðum þessa
á og þessi vötn, fólk hafði gengið
á þessum bökkum og þekkti þar
fugla og fiska. Ástin er sterkasta
afl í heimi.“
Annað sem segir okkur mikið
um raunverulega manngerð fólks
er hvernig það kemur fram við
aðra. Hvort það lifir fyrst og fremst
fyrir eigið skinn og eyðir mestri
orku í að raka að sér gæðum án
þess að leyfa öðrum að njóta þeirra,
eða hvort viðkomandi gefur af sér
og leggur orku í að vinna að því
að öðrum líði vel. Af ávöxtunum
skulum þér þekkja þá. Björn var
einn af þeim sem sannarlega gaf
af sjálfum sér til þerra sem þurftu
aðstoðar við. Þetta kom bæði fram
í smáu sem stóru. T.d. kom þetta
1 skýrt í ljós í samskiptum hans við
i börn sem hændust mjög að honum.
I Ég veit að ferðir Björns síðastliðið
sumar með Svövu Guðrúnu, dóttur
okkar Sveinbjargar, verða henni
ómetanlegur fjársjóður. Þá fóru
þau saman ásamt hundinum
Bangsa á pallbílnum til að skoða
fuglana og aðra fegurð náttúrunn-
ar. Enda hafði Björn einstakt lag
á að tala við börn á þeirra nótum
. og setja sig inn í hugsanagang
' þeirra. Flestir vita um ofangreinda
bók, „Rennt í hylinn“. Færri vita
| væntanlega að hann var langt kom-
inn með að skrifa barnabók þar sem
skilningur hans á börnum kemur
svo vel og fallega í ljós. Bókin fjall-
ar um fjögurra ára stúlku sem býr
í Reykjavík og á afa sem býr í
sveit norður í landi. Þarna talaði
Björn af eigin reynslu.
Já, af ávöxtunum skuluð þér
| þekkja þá. Björn hefur á ævi sinni
unnið þrekvirki sem glöggt kemur
fram í þeirri uppbyggingu sem
| blasir við á Laxamýri. Þar blasir
lífsstarf hans við sem hefur verið
byggt upp í samstarfi við Vigfús
bróður Björns, samstarfi sem hefur
byggst á gagnkvæmri virðingu,
vináttu og trausti. En lífsstarf
Björns er ekki bara sjáanlegt í
ræktun jarðar, ár og uppbyggingu
húsa. Lífsstarf hans var einnig
fólgið í gríðarmikilli reynslu, þekk-
■ ingu og hlýju sem hann miðlaði til
j okkar sem kynntumst honum.
Fyrir u.þ.b. 8 árum fékk Björn
fyrsta hjartaáfallið. Hann náði
ótrúlega góðri heilsu aftur þangað
til hann fékk annað hjartaáfall sem
skerti mjög vinnugetu hans. Hann
sló hins vegar ekki af og hélt
ótrauður áfram og vann eftir því
sem heilsan leyfði. Síðasta kvöldið
hans Björns reyndist vera síðasta
gamlárskvöld. Þá var hann óvenju
| hress miðað við það sem hann
hafði verið í nokkurn tíma á und-
* an. Þrátt fyrir að vera fársjúkur
var hann enn að skipuleggja fram-
tíðina og ýmislegt sem gera þurfti.
Þetta kvöld var okkur sem þekkt-
um hann og þótti vænt um hann
ógleymanlegt, því hann gat notið
þess að ræða við fólkið sitt og
borða síðustu kvöldmáltíð sína á
g Laxamýri meðal ástvina. Þannig
vildi Björn hafa það. Árinu var
lokið! Björn var sáttur við guð og
menn. Hann var sáttur við lífs-
starfið.
Elsku Jóna, Sveinbjörg, Jón
Helgi, Halla Bergþóra og Elín
Margrét, ég votta ykkur og öðrum
ástvinum Björns mína dýpstu sam-
úð og bið góðan Guð að blessa og
varðveita Björn Gunnar Jónsson.
Blessuð sé minning mikils manns.
Helgi Hróðmarsson.
Nýársdagur, fyrsti dagurinn á
árinu, færði ekki góðar fréttir,
hann Bjössi er dáinn. Bjössi var
búinn að vera mikið veikur undan-
farið, en samt var ég ekki tilbúin
að heyra þessa frétt. Mikill er sökn-
uður okkar er þekktum Bjössa. Ég
var 6 ára þegar Ninna frænka og
Bjössi giftu sig og fór ég til þeirra
það sumar og var það mitt fyrsta
sumar af mörgum, fannst aldrei
neitt sumar vera nema að komast
á Laxamýri strax eftir skólann.
Þessi ár mín á Laxamýri eru mér
mjög dýrmæt og tel ég það forrétt-
indi að hafa fengið að alast upp
að nokkru leyti hjá þeim.
Bjössi minn, hvernig er hægt að
kveðja þig, andlát þitt kom alltof
snemma en við Guð deilir enginn.
Trúin var stór hluti af þínu lífí og
er það huggun að vita að nú líður
þér vel. Aldrei get ég fullþakkað
þér og Jónu alla þá elsku og stuðn-
ing sem þig hafið veitt mér og
mínum börnum í gegnum árin.
Sárast er að vita að þú ert ekki
lengur á Laxamýri þegar við kom-
um í heimsókn en minning þín verð-
ur þar alltaf. Far í friði, elsku
Bjössi, með þökk fyrir allt.
Erla.
Yfir steina fyllir flóð
í fögru morgunskini.
Áin syngur sorgarljóð
sínum besta vini.
(Albert Ríkarðsson)
Um hádegisbilið 1. janúar barst
okkur sú sorgarfrétt að Björn
Gunnar Jónsson hefði látist um
morguninn eftir erfiða sjúkdóms-
legu, þar sem hann sýndi mikinn
kjark og æðruleysi fram til hinstu
stundar.
Björn var karlmenni sem sífellt
sótti á brattann og tókst á við mál
dagsins óbugaður og hafði guðstrú
að leiðarljósi sem birtist í auðmýkt
og gerir hvern mann hæfari til að
takast á við lífið. Einnig sá eigin-
leiki að sjá skoplegu hliðina á
mönnum og málefnum sem litaði
frásögn hans og gerði hana oft að
listaverki.
Okkur finnst sá þáttur í eðli
hans að laða að sér börn með mildu
brosi og nægum tíma svo stór og
lýsa honum best.
Að lokum viljum við þakka þér
hlýjuna og kærleikann í okkar garð.
Ellý og Albert.
„Hjá mér er komið haust,
frændi." Mér varð órótt við þessi
orð frænda míns þar sem við stóð-
um tveir og horfðum yfir Mjósund-
ið í kvöldroðanum. Áin ásamt
fuglunum kvað sinn dýrasta óð til
heiðurs sköpunarverkinu. Lónbúinn
rauf vatnsflötinn, silfurgljáandi og
stæltur. Fallegt sumarkvöld við
Laxá.
Þegar við Björn héldum heim á
leið í náttmyrkrinu var ég þungt
hugsi, umhverfið og orð Björns
höfðu áminnt mig um smæð
mannsins. Ég var alvarlegur á svip
en Björn leiftraði af gleði. Að mér
virtist sáttur bæði við guð og menn.
Slíkir menn kveðja með reisn og
þeirra ber að minnast með reisn.
Björn hafði yndi af börnum og
var félagi bæði í leik og starfi og
hafði þann góða kost að hæla börn-
um og unglingum þegar vel var
gert. Hann hafði leiftrandi frásagn-
argáfu og gat lýtalaust hermt eftir
mönnum og eru mér margir leik-
þættir hans minnistæðir, oft frum-
fluttir í miðju erfiðisverki. Það
gladdi þá og á minningin eftir að
gleðja.
Ég veit að lífsleið frænda míns
var oft brött og stórgrýtt. Það var
ekki fyrir meðalmann að komast
hana til enda. Hann var sá gæfu-
maður að öðlast trú, auðmjúkur
gagnvart sjálfum sér og aðstæðum
sínum, þakklátur og hógvær. Þessi
lífsviðhorf mótuðu daglega breytni
hans, rík samkennd bæði í hug og
verki.
Síðustu ár Björns voru erfíð
vegna heilsuleysis. Ég dáðist ætíð
að því hve viljinn til verks og at-
hafna var mikill þrátt fyrir bága
heilsu. Mér eru minnistæð orð hans
þegar hann tjáði mér að hann væri
auðmaður og vitnaði þá til fjöl-
skyldu sinnar. Hjartgott fólk sem
studdi hann af miklu hugrekki fram
á síðasta dag. Mér þykir vænt um
þá frændsemi.
Vinaskilnaður er ætíð viðkvæm
stund. Það er margs að minnast
og það er margt að þakka. Hið
mannlega líf endar skjótt, far vel
á braut.
Vigfús B. Albertsson.
Falla munu blöð þín
bleik til jarðar,
en víst mun stofn þinn standa.
Þetta orti Jóhann Siguijónsson
fyrir löngu, einn af mörgum kvist-
um af traustum stofni Laxamýrar-
fólks. Og nú er Björn G. Jónsson
allur. Öll verðum við bleik blöð um
síðir, öll hverfum við af vettvangi
daganna til annars heims. Björn
safnaðist til feðra sinna á nýárs-
dag, en einmitt þá syngja menn
sálm sr. Matthíasar:
Hvað boðar nýárs blessuð sól?
hún boðar náttúrunnar jól,
hún flytur líf og líknarráð,
hún ljómar heit af Drottins náð.
Með nýju ári verða tímamót, og
þau verða að þessu sinni skarpari
en ella, að Björn er af þessum
heimi. Nú eru náttúrunnar jól,
sagði sr. Matthías, nú hækkar sól
á lofti og vorið er skemmra undan
með hveijum degi sem líður, nátt-
úran vaknar smám saman til lífs,
og um síðir lifna blóm í haga, lömb
skoppa á túni og silfraður lónbúinn
leitar í strenginn og lognværan
hyl.
Bjöm G. Jónsson var góður
drengur, einlægur vinur og traust-
ur félagi. Andlát hans kom ekki á
óvart, því þungbær veikindi höfðu
þjakað hann lengi og stundin gat
runnið upp hvenær sem var. Og
hann kveið ekki vistaskiptunum,
hann var tilbúinn að ganga á vit
herra síns, sem hann hafði vegsam-
að í ræðu og riti og ekki sízt með
háttum sínum. Hann var einlægur
trúmaður og ég efa ekki, að hann
býr nú sæll að sínu.
Ég hygg raunar, að Birni hafi
þótt sem ætlunarverk sitt væri nú
í höfn. Hann gaf út bók á haustdög-
um, eins konar svanasöng sem er
lofgjörð hans um Aðaldal og perlu
hennar, Laxá, lífið sjálft í marg-
breytileika sínum, gott og gjöfult
þeim sem bera skynbragð á um-
hverfi sitt. „Rennt í hylinn" verður
óbrotgjarn minnisvarði um Björn á
Laxamýri. Hann var frumkvöðull
góðra verka og þurfti stundum að
ryðja grýtta braut eins og oft verð-
ur hlutskipti hugsjónamanna.
Björn átti ekki langt að sækja
áhuga sinn á móður náttúru. Ætt-
arfylgja Laxamýrarfólks hefur
lengi verið veiðigleði með fullri
virðingu fyrir móður náttúru, bú-
skaparhyggja í beztu merkingu
orðsins, góðar gáfur, útþrá, skáld-
skaparhneigð og lífsfjör. Laxamýri
er vildisjörð með veiðihlunnindum
og æðarvarpi, og bærinn stendur
á sérfögrum stað, ef svo má segja,
Skjálfandaflói mót norðri, Laxá í
túnfætinum, hraunið allt um kring
í margbreytilegum myndum. Björn
tók eðliskosti ættar sinnar í arf,
ekki sízt ræktunarþrá og kraft
föður síns, Jóns H. Þorbergssonar,
sem var á sínum tíma forystumað-
ur í sauðfjárrækt landsmanna.
Björn sinnti fiskirækt af lifandi
áhuga og einlægni, og störf hans
á þeim vettvangi hafa haft áhrif
um land allt, þótt kraftar hans
hafi einkum beinzt að því að auka
veg Laxár í Aðaldal. Hann gerði
sér ljósa grein fyrir því, að fiski-
rækt er ekki stundargaman, rækt-
unarmál eiga sér engin takmörk í
tíma og rúmi, allt slíkt starf er í
þágu framtíðar, aldrei sér fyrir
endann. Og Björn bjó svo um
hnúta, að starfi hans verður fram
haldið þótt nú sé hann farinn á
aðrar slóðir.
Ekki er ofmælt, að tengsl
Laxárfélagsmanna og heima-
manna í Aðaldal séu einstök.
Veiðimenn og Laxárbændur hafa
nú átt farsælt samstarf í um sex-
tíu ár, og hver kynslóð hefur byggt
á þeim grunni sem lagður var í
öndverðu. Björn G. Jónsson var
aðeins sex ára þegar þetta sam-
starf hófst, og hann átti ríkan
þátt í að viðhalda því, efla það og
glæða virðingu manna fyrir lífríki
árinnar og náttúrunnar yfirleitt,
hvort sem var fugl á bala eða blóm
í hlíð. Þeir Laxamýrarbræður hafa
átt sinn þátt í því að treysta tengsl
veiðimanna og veiðibænda, heima-
fólks yfirleitt. Þeir hafa verið
óþreytandi að liðsinna veiðimönn-
um og ævinlega tekið á móti þeim
með einstakri gestrisni og hlýhug.
Björn gaf sér ætíð tóm til þess að
ræða við veiðimenn, spjalla við þá
um ána sína á þann hátt sem er
einstakur fyrir veiðimenn: umræða
um veiðiskap og veiðihorfur er
ávallt endalaus og alltaf jafn
skemmtileg, ávallt bjartsýn. Hann
var ekki aðeins gestgjafi í þeim
veizlusal sem Aðaldalur er, heldur
sérstakur og sannur vinur sem
gott er að hafa kynnzt. Þeir sem
eiga minningar um Björn á Laxa-
mýri eiga þar gildan sjóð.
Ég kynntist Birni og Jónu konu
hans í fyrstu ferðum mínum norður
í Laxá fyrir meira en þijátíu árum,
sem og Vigfúsi bróður hans og
Sigríði konu hans, og samskipti
okkar hafa staðið síðan. Þau urðu
tíðari eftir að ég valdist til forsvars
í félagi okkar sem höfum Laxá á
leigu. Vikulega og oft daglega átt-
um við samræður, skiptumst á
skoðunum og sögðum fréttir. Björn
var í eðli sínu leiðtogi, náttúru-
greindur maður sem átti auðvelt
með að greina kjarna frá hismi í
því fréttaflóði sem einkennir nútím-
ann. Hann var einstaklega mót-
tækilegur fyrir öllu því sem horfði
til betri vegar í samskiptum manna,
viðræðugóður og fús að gefa mönn-
um hollráð, hugmyndaríkur og
hafði skarpa dómgreind. .
Björn á Laxamýri unni jörð sinni
eins og þeir fleiri Laxamýrarmenn,
ánni, dalnum. Hann var afburða-
snjall veiðimaður, hafði næma til-
finningu fyrir því hvernig standa
bæri að veiðunum, þekkti hvern
stein, hveija ólgu og hvert boðafall
í ánni fyrir jörð sinni. Því fór fjarri
að hann bæri þessa kunnáttu á
torg að óreyndu, en hann miðlaði
gestum sínum fúslega af reynslu-
brunni sínum, og margir veiðimenn
eiga honum að þakka snarpar og
eftirminnilegar glímur við lónbú-
ann fyrir neðan Æðarfossa þar sem
oft reynir bæði á þol og útsjónar-
semi við veiðarnar - þar sem foss-
niður og straumköst eru undirspil,
hljómkviðan endalausa. í bók sinni
fjallar Björn meðal annars af hrifn-
ingu og næmum skilningi um þetta
tónfall vatns og lands og líkir því
við hljóma stórkostlegustu tón-
verka. Sú lýsing hans er einstök
og óhætt er að taka undir það með
honum að þeir sem heyra þessa
hljóma og skynja þá í sálu sinni
eru í hrynjandi við sjálfa náttúruna.
Björn á Laxamýri er allur. í
norðurferðum munum við ekki
lengur taka í hönd hans hlýja og
þétta; orðalaust bauð hann okkur
velkomna með brosi sínu. En stund-
irnar með honum við Laxá eða
heima á Laxamýri geymum við
með okkur, og við minnumst hans
ætíð þegar Laxá ber á góma.
Ég, fjölskylda mín, Laxárfélagið,
veiðifélagarnir allir fyrr og síðar
kveðjum Björn með þakklæti og
virðingu. Fjölskylda hans öll tók
þátt í hugsjónastarfinu af lífi og
sál. Hún á nú um sárt að binda.
Ég sendi öllu hans fólki einlægar
samúðarkveðjur. Megi guð gefa því
öllu líf og líknarráð. Missir þeirra
er mestur og megi það nú minnast
góðs drengs og einlægs vinar. Guð
varðveiti minningu Björns á Laxa-
mýri. Víst mun stofn hans standa.
Orri Vigfússon.
Pétur sonur minn hringdi í mig
vestur um haf til að segja mér að
Björn á Laxamýri væri allur. Það
kom ekki á óvart. Ég hafði skropp-
ið til hans fyrir jólin upp á
Landspítala. Hann bar sig vel og
hafði skýrar skoðanir á mönnum
og málefnum eins og jafnan áður,
en þó leyndist mér ekki að þrek-
manninum var brugðið. Hann
hafði enda átt við löng og ströng
veikindi að stríða og var orðinn
vanur því að horfast í augu við
dauðann og hann gerði það með
jafnaðargeði. Það var kannski þess
vegna sem hann skrifaði bókina
sína, þar sem hann talar við ána
sína, sem kom út nú fyrir jólin.
Honum var mikill léttir að koma
henni frá sér af því honum lá mik-
ið á hjarta, trúmanninum og nátt-
úruunnandanum, sem hafði fæðst
og alist upp á bökkum Laxár, lifað
með henni og dáið inn í hana.
Skáldbóndinn á Sandi sagði um
ekkjuna á Knútsstöðum:
„Hún elskaði ekki landið en aðeins þennan
blett,
af ánni nokkra faðma og hraunið svart og
grett."
Þetta virðist kannski vera þröngt
sjónarhorn en ég er ekki viss um
að svo sé. Þeim hæfileika fylgir
mikill þroski að geta lifað sig inn
í landið og inn í náttúruna á þeim
stað þar sem maður er borinn og
barnfæddur, þekkja háttalag dýra
og fugla, laxa og silunga og geta
róið út í varphólmann og sest hjá
hreiðri gamallar kollu sem er að
byija að grána og strokið henni
fyrir vináttu sakir.
Björn á Laxamýri bar vel sæmd-
arheitið bóndi. Hann var ræktunar-
maður af lífi og sál og samvinna
þeirra bræðranna, Vigfúsar og
hans, við rekstur félagsbúsins á
Laxamýri var einstök. í rauninni
vann Björn þrekvirki við uppbygg-
ingu og rekstur eldisstöðvarinnar
á Laxamýri sem hann vann með
öðrum störfum. Þetta var einka-
framtak nokkurra manna sem urðu
að þreifa sig áfram og ganga í hinn
harða reynsluskóla brautryðjand-
ans vegna þess að grundvallar-
þekking í fiskeldi var ekki fyrir
hendi hér á landi á þeim tíma. En
Björn þráaðist við og honum tókst
það sem hann ætlaði sér þótt útlit-
ið hafi sannarlega verið svart um
tíma í blóðugri samkeppni við ríkis-
rekið fiskeldi á Hólum. Og ekki
bætti úr skák að nauðungasamn-
ingar og gjaldþrot hjá fiskeldisfyr-
irtækjum voru algeng á þessum
tíma svo að eldisstöðin á Laxamýri
hlaut að verða fyrir áföllum af
þeim sökum.
Björn hafði brennandi áhuga á
þjóðmálum og skilning á mikilvægi
vestrænnar samvinnu og varnar-
samstarfi vestrænna ríkja. Hann
fylgdi Sjálfstæðisflokknum fast að
málum og að leiðarlokum þakka
ég honum vináttu og stuðning.
Björn á Laxamýri var farsæll í
sínu einkalifi. Það var hamingju-
dagur hans þegar hann hitti Jónu
og sótti hana til Reykjavíkur. Það
var jafnræði með þeim og þau áttu
barnaláni að fagna. Þau voru höfð-
ingjar heim að sækja, ávallt ljúf
og drengir góðir en föst fyrir.
Þessar línur bera þér, Jóna og
fjölskyldunni samúðarkveðjur frá
okkur Kristrúnu. Söknuður ykkar
er sár og mikill en það er heið-
ríkja yfir skilnaðarstund Björns á
Laxamýri. Guð blessi minningu
hans.
Halldór Blöndal.
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavöröustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 909«