Morgunblaðið - 11.01.1997, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
ELISABET MARIA
JÓHANNSDÓTTIR
+ Elísabet María Jóhanns-
dóttir fæddist á Akureyri
10. janúar 1941. Hún lést á
heimili sínu í Keflavík 29. des-
ember síðastliðinn og fór útför
hennar fram frá Keflavíkur-
kirkju 4. janúar.
í fórum við öldu og áttar kast
margt orð mér leið í minni.
Draumarnir komu, ég lék og þú last
í lítilli stofu inni.
Hvort logn var á sæ eða bára brast
þú bjóst mér í hug og sinni.
(Einar Ben.)
Elsku frænka.
Þetta ljóðabrot Einars Ben hefur
allt frá því ég las það fyrst minnt
mig á þig og fjölskylduna þína. Líf
ykkar var svo lærdómsríkt fyrir
mig, þið kunnuð svo vel að meta
hvað var mikilvægt og hvað gat
beðið. Samstilltur hópur sem ötul-
lega vann að framförum og uppeldi
hvers einstaklings. Ég man hvernig
málefni voru rædd innan fjölskyld-
unnar, ekki var mokað undir mottur
eða geymt í pokum. Þið vissuð svo
vel að ef gott hráefni var ekki
meðhöndlað strax rétt og vel þá
gat afurðin skemmst. Elsku Elsa,
þú varst svo stolt af hópnum þínum
og þau af þér. Og núna þegar sorg-
in knýr á er tekið á móti henni af
einlægni og virðingu. Við kveðju-
stund er margs að minnast og
margs að sakna. Manstu er þú hélst
á mér nýfæddri ókunnugri bróður-
dóttur? Þú nýflutt frá æskuheimili
þínu á Hríseyjargötunni og alla leið
vestur á firði. Mamma þín vildi
hjálpa syni sínum og stóra bróður
þínum með þennan nýfædda unga.
Efalítið var þetta ekki ljúf breyting
í byijun. Seinna naut ég þess að
fara með á Hríseyjargötuna. Lágur
aldur minn kom ekki í veg fýrir að
ég drykki í mig allt sem þú sagðir
og gerðir. Rokkæfingar á stofugólf-
inu í rokkpilsi sem þú saumaðir.
Ég fékk pils úr mittisafklippunni,
náði aldrei þeirri leikni að láta pils-
ið standa beint út í snúningnum
eins og þú gast. Allt í einu varstu
farin í héraðsskóla, svo flott í svartri
rúllukragapeysu með merki skólans
ísaumuðu, komst í heimsókn með
bekkjarsystur, kynntir mig.
„Þetta er hún bróðurdóttir mín,
Dista.“
„Ég gaf henni Distu-nafnið
mitt.“
Distu-nafnið hef ég notað með
stolti, kæra frænka. Svo kom Ósk-
ar, skipstjórinn, með skegg, hatt
og í frakka, svo flottur, þið voruð
svo flott. Fjölskyldan stækkaði. í
hópinn bættust Ebba, Þórhallur,
Kalli og Kristinn. Samverustundirn-
ar voru kærkomnar. Ebba reyndi
að stjóma hópunum þegar saman
vom komin systkinabömin. Rakst
misvel, sérstaklega þegar klæða
átti strákana Gulla og Þórhall í kjóla
af mömmum, ömmum og frænkum
og ekki má gleyma Tótu skónum
sem vom með gati! Þetta var
Dimmukomputímabilið, Elsa að
pijóna, sauma, lesa þegar allir vom
sofnaðir, Dista að verða stór. Farin
að búa, ef eitthvað þurfti að gera,
laga ís, sauma selskapsfatnað eða
annað vandasamara spyija Elsu, fá
ráð hjá Elsu, skreppa til Elsu.
Svo er tíminn liðinn.
Elsku frænka, minningarnar em
ótalmargar, hvort sem þær eru frá
Patró, Húsavík, Akureyri, Stokks-
eyri eða Keflavík, þá er af nógu
að taka. Takk fýrir samveruna og
þinn hlut í uppeldi mínu sem er
mér kær.
Elsku Óskar, frændsystkini,
Anna Pála, Steina og allt litla
frændfólkið mitt. Megi góður Guð
gefa ykkur styrk til að halda sjó-
ferðinni áfram, hvort sem er í logni
eða áttar kasti.
Sveinbjörg Anna (Dista).
Handrit afmælis- og minningargreina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt,
að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld-
ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa,
öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu-
kerfin Word og Wordperfect eru einnig
auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til
blaðsins í bréfasíma 5691115, eða á netfang
þess þess Mbl@centrum.is en nánari upp-
lýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það
eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari
ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínu-
bil og hæfilega línuleng — eða 2.200 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
RAÐAUGÍ YSINGAR
Stangaveiðimenn ath.
Nýtt námskeið í fluguköstum hefst nk. sunnu-
dag í Laugardalshöllinni kl. 10.20 árdegis.
Nýjar SAGE II stangir.
Kennt verður 12. og 26. janúar og 2. febrúar.
Þetta verður aðeins þriggja daga námskeið.
K.K.R. og kastnefndirnar.
_
Kaupi gamla muni
s.s. skrautmuni, bækur, bókasöfn, myndir,
málverk, silfur, silfurborðbúnað, jólaskeiðar,
Ijósakrónur, bollastell, gömul póstkort,
íslensk spil og húsgögn, stór og smá.
Upplýsingar í síma 567 1989.
Geymið auglýsinguna.
Stjórn listamannalauna
Auglýsing um starfslaun
listamanna árið 1997
Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun
til handa listamönnum árið 1997, í samræmi
við ákvæði laga nr. 35/1991, með áorðnum
breytingum.
Starfslaunin eru veitt úrfjórum sjóðum, þ.e.:
1. Launasjóði rithöfunda.
2. Launasjóði myndlistarmanna.
3. Tónskáldasjóði.
4. Listasjóði.
Umsóknir skulu hafa borist Stjórn lista-
mannalauna, menntamálaráðuneytinu, Sölv-
hólsgötu 4, 150 Reykjavík, á þar til gerðum
eyðublöðum, fyrir kl. 16.00 miðvikudaginn
15. janúar 1997. Umsóknir skulu auðkenndar
„Starfslaun listamanna“ og tilgreina þann
sjóð, sem sótt er um laun til. Umsóknareyðu-
blöð fást hjá menntamálaráðuneytinu.
Ath.: Hafi umsækjandi áður hlotið starfslaun,
verður umsókn hans því aðeins tekin til
umfjöllunar að hann hafi skilað Stjórn lista-
mannalauna skýrslu um störf sín í samræmi
við ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun
nr. 35/1991 með áorðnum breytingum.
Vakin er athygli á nýsamþykktum laga-
breytingum, sem heimila veitingu starfs-
launa til stuðnings leikhópum, enda verði
þeim varið til greiðslu starfslauna til ein-
stakra leikhúslistamanna.
Reykjavík, 9.janúar 1997.
Stjórn listamannalauna.
JILSÖLU
Eldhúsinnrétting til sölu
Notuð eldhúsinnrétting vel með farin til sölu.
Einnig bakaraofn í vegg (stál), helluplata
(stál), vifta, uppþvottavél, stálvaskur og
blöndunartæki.
Upplýsingar í síma 565 6412.
Einingafrystigeymsla
Til sölu er einingafrystigeymsla 150 fm, 11
m breið, 13 m djúp og 5,6 m á hæð. Tilbúin
til flutnings. Laus strax. Tilboð óskast.
Upplýsingar í símum 568 3215/588 1888.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Bjólfsgötu 7, 710
Seyðisfirði, kl. 17. janúar 1997 kl. 14.00 á eftirfarandi eignum:
Austurvegur 18-21, e.h., Seyðisfirði, þingl. eig. Ársæll Ásgeirsson,
gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins, sýslumaðurinn á Seyðis-
firði, og Vátryggingafélag íslands.
Austurvegur 49, Seyðisfirði, þingl. eig. Jón Bergmann Ársælsson,
gerðarbeiðandi Islandsbanki.
Bláskógar 7, Egilsstöðum, þingl. eig. Dagur Kristmundsson, gerðar-
beiðandi Gúmmívinnslan hf.
Brattahlíð 2, Seyðisfirði, þingl. eig. Ársæll Ásgeirsson, gerðarbeið-
endur Lífeyrissjóður stm. ríkisins og Lífeyrissjóðurverslunarmanna.
Brekkubrún 3a, Fellabæ, þingl. eig. Steinbogi hf., gerðarbeiðendur
Fellahreppur og sýslumaðurinn á Seyðisfirði.
Deildarfell, Vopnafirði, þingl. eig. Anton Gunnarsson, gerðarbeiðend-
ur Búnaðarsamband Austurlands og Kraftur hf.
Hafnarbyggð 27, Vopnafirði, þingl. eig. Ólafur Rúnar Gunnarsson
og Steingerður Steingrímsdóttir, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður
ríkisins og Lífeyrissjóður Austurlands.
Hamrabakki 12, Seyðisfirði, þingl. eig. Seyðisfjarðarkaupstaður,
gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Lagarfell 2, 67,73%, Fellabæ, þingl. eig. Samkvæmispáfinn hf., gerð-
arbeiðandi Fellahreppur.
Leirubakki 4, Seyð'sfirði, þingl. eig. Jón Guðmundsson og Einar
Hólm Guðmundsson, gerðarbeiðendur Byggingarsjóöur ríkisins,
sýslumaðurinn á Seyðisfirði og Vátryggingafélag islands.
Miðfjarðarnes 1 og 3, Skeggjast., þingl. eig. Indriöi Þóroddsson,
gerðarbeiðandi Stofnlánadeild landbúnaðarins.
Ránargata 9-15 (hluti úr Haföldulóð) Seyðisfirði, þingl. eig. Árni Jón
Sigurðsson og Páll Ágústsson, gerðarbeiðandi sýslumaöurinn á
Seyðisfirði.
Steinholt 16, Vopnafiröi, þingl. eig. Vigfús Davíðsson og Sigurbjörg
Árný Björnsdóttir, gerðarbeiðandi Bygginarsjóður ríkisins.
Tjarnarbraut 17, e.h., Egilsstööum, þingl. eig. Guðrún Tryggvadótt-
ir, gerðarbeiðandi Byggðastofnun.
Túngata 11, e.h. og 1/2 kj., Seyðisfirði, þingl. eig. Baldur Sveinþjörns-
son, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar.
Árstígur 6, Seyðisfiröi, þingl. eig. Gunnar Haukur Sveinsson, gerðar-
beiðendur Byggingarsjóðgr rikisins og sýslumaðurinn á Seyðisfirði.
Árstígur 11, Seyðisfirði, þingl. eig. Jón Hilmar Jónsson, gerðarbeið-
andi sýslumaöurinn á Seyðisfirði.
Öldugata 13, e.h., Seyðisfirði, þingl. eig. GeirStefánsson, geröarbeiö-
andi Byggingarsjóður ríkisins.
10. janúar 1997.
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði.
£3\ Damstahl
R YÐFRÍTT STÁL FYRIR ÍSLENSKANIÐNAÐ
Lagerhúsnæði óskast
Innflutningsfyrirtæki óskar eftir 400-500 fm
lagerhúsnæði til leigu á höfuðborgarsvæð-
inu. Húsnæðið þarf að hafa yfir 4 m loft-
hæð, stórar innkeyrsludyr, rúmgóða aðkomu
og góða vegtengingu við aðalleiðir.
Upplýsingar gefur Steinn Eiríksson í síma
511 5400 eða 897 2765.
auglýsingar
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagsferð 11. janúar
Skíðagöngunámskeið fellur
niður.
Dagsferð 12. janúar kl. 10.30:
Raðganga Útivistar 1997,
1. áfangi. Gengið á reka suður
á Reykjanesskaga.
í þessum 1. áfanga verður geng-
ið frá Garöskagaflös suður að
Bæjarskerjum við Sandgerði.
Netslóð:
http://www.centrum.is/utivist
FERÐAFÉLAG
@ ÍSLANDS
MORKiNNt 6 - SlMI 568-2533
Sunnudagur12. janúar
kl. 11
a) Skíðaganga í Bláfjöllum.
Mætið vel í fyrstu skíöagöngu
ársins. Verð 1.000 kr. Brottför
frá BSÍ, austanmegin og Mörk-
inni 6.
b) Rauðavatn - Mörkin 6. Við
bjóðum einnig upp á þessa
þægilegu göngu um skógarstiga
við Rauöavatn og siðan niður
um Elliðaárdal i Mörkina. Um 2-3
klst. fjölskylduganga. Verð 500
kr., frítt fyrir börn m. fullorönum.
Brottför í þessa göngu er að-
eins frá Ferðafétagshúsinu,
Mörkinni 6.
Ferðafélag íslands.
Dalvegi 24, Kópavogi
Almenn samkoma í dag kl. 14.00.
Allir hjartanlega velkomnir.
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Samkoma i kvöld kl. 20.
Gestir frá Noregi.
... allir þér sem þyrstir eruð,
komið hingað til vatnsins.
Jes. 55.1.
Kripalujóga:
Byrjendanámskeið í jóga
13. -22. jan. á mán. og mið. kl.
20-22 og lau. 18. jan. kl. 13-17.
Leiðbeinandi:
Jón Ágúst Guðjónsson.
14. -30. jan. á þri. og fim. kl.
20-22. Leiðbeinandi: Áslaug
Höskuldsdóttir.
27. jan-12. feb. á mán. og mið.
kl. 20-22.
Kynning á jóga
í dag, laugardaginn 11. janúar,
kl. 13-15.
Allir hjartanlega velkomnir.
Einkatímar: Nudd, ölduvinna,
hómópatía.
Bækur um jóga og andleg efni,
tónlist og fræðsluefni.
IÓCASTÖDIN
HEIMSLJÓS
Jogastöðin Heimsljós,
Ármúla 15,
sími 588 4200 kl. 13-19
alla virka daga.