Morgunblaðið - 11.01.1997, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997 45
MINNINGAR
MESSUR Á MORGUN
ÓLAFÍA Þ.
REIMARSDÓTTIR
+ ÓIafía Þ. Reim-
arsdóttir fædd-
ist í Vestmannaeyj-
um 18. janúar 1910.
Hún lést á hjúkrun-
arheimilinu Ljós-
heimum á Selfossi
2. janúar síðastlið-
inn. Foreldrar henn-
ar voru Reimar
Hjartarson, f. 10.1.
1891 á Álftahóli í
Austur-Landeyjum,
pípugerðarmaður í
Vestmannaeyjum, d.
7.6. 1955, og Anna
Magnea Einarsdótt-
ir, f. 5.2.1887 í Miðholti í Reykja-
vík, húsmóðir í Vestmannaeyj-
Almáttug hönd og ásjá þín
enn hefur náð og séð til mín.
Lof sé þér, Guð, fyrir lán og hag,
lífið, heilsu og vernd í dag.
Eg vil ganga til náða nú,
nú bið ég, Guð, mig geymir þú,
vertu minni hvílu hjá,
hjá mér vak þú og að mér gá.
Veittu mér, Drottinn, værð og ró,
vek mig í réttan tíma þó.
Líkaminn sofi sætt sem ber,
sálin og andinn vaki í þér.
(S. Jónsson frá Presthólum.)
Hún Lóa er dáin, farin á æðri
svið. Þegar líkaminn er orðinn slitinn
og sjúkur og aldurinn hár er dauðinn
líkn. Hún var tilbúin. Lóa var lítil
vexti, kvik í hreyfingum og broshýr.
Það var svo auðvelt að gleðja hana,
aðeins að líta inn til hennar var henni
gleðiefni. Lítill bíltúr var á við utan-
landsferð hjá öðrum, gat hún verið
að minnast hans í marga mánuði á
eftir. Aldrei komum við í heimsókn
öðruvísi en Lóa spyrði um börnin
okkar, en hún bar mikla umhyggju
fyrir öllum í fjölskyldunni og var
ákaflega barngóð. Lóa dvaldi á Ljós-
heimum, Hjúkrunarheimili aldraðra,
síðustu ár ævi sinnar, en þar leið
henni vel. Starfsfóikið og vistmenn-
um, d. 8.2.1964. Systk-
ini Ólafíu og hálfsystk-
ini eru: Guðmundur
Kristinsson, látinn,
Ragnar Einarsson, lát-
inn, Þórunn Reimars-
dóttir, látin, Hjörtrós
Alda Reimarsdóttir,
látin, Guðmundur
Lúðvík Rósinkrans
Reimarsson, búsettur
í Reykjavík, og Sig-
urður Reimarsson, bú-
settur í Vestmannaeyj-
um;
Útför Ólafíu fer
fram frá Selfosskirkju
í dag og hefst athöfnin klukkan
10.30.
irnir voru hennar vinir og félagar,
þar var hennar heimili.
Við viljum þakka Lóu fyrir sam-
fylgdina og hlýjuna í okkar garð.
Guð veri ávallt með þér.
Við kveðjum þig okkar litla ljúfa vina.
Við geymum ávallt umhyggjuna þína,
þitt bjarta bros, þinn létta fót.
Þína tryggð og vinahót,
þannig viljum við þig muna.
Starfsfólki Ljósheima eru færðar
hugheilar þakkir fyrir frábæra
umönnun.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Gróa K. Bjarnadóttir.
Með nokkrum orðum viljum við
kveðja elskulega Lóu okkar. Nú er
hún horfin yfir móðuna miklu og
hefur hlotið hvíldina og við vitum
að hún hefur hlotið góða heimkomu.
Lóu okkar þökkum allt það góða
sem frá henni stafaði.
Við, móðir okkar og amma biðjum
henni blessunar guðs. Minningin um
hlýlega persónu og það góða frá Lóu
mun lifa.
Jesús sagði: „Ég er ljós heimsins.
Hver sem fylgir mér mun ekki ganga
í myrkri heldur hafa ljós lífsins."
Ásdís Magnea og Aldís
Ósk Egilsdætur.
HÓLMFRÍÐUR
MEKKÍNÓSDÓTTIR
+ Hólmfríður Mekkínósdóttir
fæddist í Reykjavík 24. nóv-
ember 1923. Hún lést í Sjúkra-
húsi Reykjavíkur 3. janúar síð-
astliðinn og fór útför hennar
fram frá Dómkirkjunni 8.
janúar.
Þau vináttubönd sem lifa lengst
eru tengd á bernsku- og æskuárum.
Þá er hugurinn opinn og allt af ein-
lægni sagt. Þó lífsbrautin verði ólík
og áföll á leiðinni treystir það sanna
vináttu fremur en hitt.
Fríða var þessi trygglynda, góða
og umhyggjusama vinkona sem aldr-
ei brást. Hennar sterkasti eiginleiki
var þjónustulund. Hún vildi allt fyrir
aðra gera.
Hún var elst systkina, átti þrjá
yngri bræður. En nokkur systkina
hennar höfðu dáið við fæðingu. Fríða
var fyrsta barnið sem komst á legg
og því mikið yndi og eftirlæti foreldr-
anna, sérstaklega föður síns.
í upphafi stríðsáranna var ekki
við hæfí að ungar stúlkur væru mik-
ið á flandri að kvöldlagi. Hermenn
á hveiju strái, útgöngubann og tak-
mörkuð lýsing á götunum. Þá var
það að nokkrar stöllur stofnuðu
saumaklúbb. Allar bjuggum við þá
stutt hver frá annarri og þá þótti
sjálfsagt að allir ptjónuðu peysur og
saumuðu út. Eitt kvöld í viku hitt-
umst við og þegar einhver úr hópn-
um hvarf burt úr bænum til langdv-
alar í útlöndum eða annars staðar
héldu hinar samt hópinn. Sumar
gengu snemma í hjónaband og ein-
beittu sér að búi og börnum, en
aðrar voru á ferð og flugi á vinnu-
markaðinum. En ein af þeim var
Fríða. Börn fæddust, fjölskyldur
gerðu sínar kröfur, en alltaf héldum
við hópinn. Stunum fórum við í
ferðalög saman innan lands og utan,
skemmtum okkur með mökum og
börnum, en fyrst og fremst vorum
við þátttakendur í gleði og sorg hver
hjá annarri. í þessum hópi var Fríða
sú sem var hreyfanlegust, viljugust
að heimsækja hinar, fúsust til að-
stoðar á stórhátíðum, sú sem mundi
eftir afmælum mæðra okkar og
barna og gaf sér tíma til að spjalla
við krakkana okkar um þeirra
áhugamál.
Á gleðistundu var hún kátust allra
og manna skemmtilegust. Hún var
mikill fagurkeri, næm á fagmennsku
og gæði í húsbúnaði, vandlát og
kröfuhörð um val á öllu til híbýla-
prýði, á skrautmuni jafnt og mynd-
list. Hún sótti leikhús og sá flestar
málverkasýningar sem á boðstólum
voru þangað til á síðustu árum að
framboð á slíku fór yfir öll mörk.
Matargerð lék henni í höndum og
þar var ekkert skorið við neglur.
Framreiddar kræsingar veittar af
eðlislægum höfðingsskap og rausn.
í mörg ár voru sundlaugarferðir
fastur liður í daglegu lífi hennar
enda hún vön slíku frá ungum árum
þegar foreldrar hennar bjuggu í
nágrenni gömlu sundlauganna í
Laugardal. Henni leið vel eftir sund-
sprett og naut þess að eiga smá-
spjall við aðra fastagesti í laugunum.
Það var í slíkri ferð sem hún fékk
hvíldina. Hún er sú fyrsta úr hópnum
sem kveður og það verður tómlegt
án hennar. Að leiðarlokum er þökkuð
löng og góð samfylgd.
Valdís Pálsdóttir.
Guðspjall dagsins:
Þegar Jesús var 12 ára.
(Lúk. 2.)
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi eftir
messu. Árni Bergur Sigurbjörns-
son.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa
kl. 11. Foreldrar hvattirtil þátttöku
með börnunum. Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Guðni Þ. Guðmunds-
son. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Prestur sr. Hjalti Guðmundsson.
Dómkórinn syngur. Organleikari
Marteinn H. Friðriksson. Barna-
starf kl. 13. Bænaguðsþjónusta kl.
14. Prestur sr. Hjalti Guðmunds-
son.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 10.15. Organist' Kjart-
an Ólafsson. Sr. Pétur Þorsteins-
son.
GRENSÁSKIRKJA: Fjölskyldu-
messa kl. 11. Börnin taka þátt í
messunni ásamt Eirnýju Ásgeirs-
dóttur, Þuríði Guðnadóttur og
Sonju Berg. Prestur sr. Halldór S.
Gröndal. Organisti Árni Arinbjarn-
arson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Barnasam-
koma og messa kl. 11. Sr. Ragnar
Fjalar Lárusson.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Messa kl. 14. Organ-
isti Pavel Manasek. Sr. Helga Soff-
ía Konráðsdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11.
Prestur sr. Tómas Guðmundsson.
Organisti Jón Stefánsson. Kór
Langholtskirkju (hópur IV) syngur.
Einsöngur Valgerður Guðrún
Guðnadóttir. Hljóðfæraleikarar úr
Kór og Gradualekór leika. Kaffisopi
eftir messu. Barnastarf kl. 13 í
umsjá Lenu Rós Matthíasdóttur.
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl.
11. Félagar úr Kór Laugarneskirkju
syngja. Organisti Gunnar Gunn-
arsson. Barnastarf á sama tíma.
Guðsþjónusta kl. 14 í Sjálfsbjarg-
arhúsinu, Hátúni 12. Kvöldmessa
kl. 20.30. Kór Laugarneskirkju.
Gréta Matthíasdóttir og Þorvaldur
Halldórsson syngja. Undirleik ann-
ast Sigurður Flosason, saxófón-
leikari, Tómas R. Einarsson,
bassaleikari og Matthías
Hamstock, trommuleikari, ásamt
organistanum Gunnari Gunnars-
syni. Lifandi tónlist frá kl. 20. Ólaf-
ur Jóhannsson.
NESKIRKJA: Barnastarf kl. 11.
Opið hús frá kl. 10. Sr. Frank M.
Halldórsson. Frostaskjól: Barna-
starf kl. 11. Húsið opnar kl. 10.30.
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Halldór
Reynisson. Organisti Reynir Jón-
asson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11. Prestur sr. Hildur Sigurðar-
dóttir. Organisti Viera Manasek.
Barnastarf á sama tíma.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Guðs-
þjónusta kl. 14. Barnastarf á sama
tíma. Foreldrar skírnarbarna síð-
astliðins árs boðnir sérstaklega
velkomnir. Kaffi eftir messu.
ÁRBÆJARKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Kristín G. Jónsdóttir.
Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Hátíðarguðsþjón-
usta vegna 25 ára afmælis safnað-
arins kl. 14. Sigurþór Þorgilsson
fyrsti formaður sóknarnefndar
prédikar. Kaffiveitingar að guðs-
þjónustu lokinni. Samkoma Ungs
fólks með hlutverk kl. 20. Gísli Jón-
asson.
DIGRANESKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Magnús Guð-
jónsson. Barnaguðsþjónusta á
sama tíma. Léttur málsverður að
lokinni guðsþjónustu.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Umsjón
Ragnar Schram. Guðsþjónusta á
samatíma. Prestursr. Guðmundur
Karl Ágústsson. Organisti Lenka
Mátéová. Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Umsjón hafa
Hjörtur og Rúna. Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Kjartan Jónsson kristniboði
prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt sóknarpresti. Organisti
Hrönn Helgadóttir. Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Sr. íris Kristjáns-
dóttir þjónar. Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Organisti Oddný J. Þor-
steinsdóttir. Sóknarprestur.
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í
safnaðarheimilinu Borgum kl. 11.
Hátíðarmessa kl. 14. Biskup ís-
lands herra Ólafur Skúlason helgar
nýtt og vandað orgel sem sett
hefur verið upp í kirkjunni. Kór
Kópavogskirkju syngur undir stjórn
Arnar Falkner organista. Sigrún
Hjálmtýsdóttir syngur einsöng.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Ágúst Einarsson prédikar. Selj-
ur, kór kvenfélagsins, leiða söng.
Organisti Sólveig Einarsdóttir.
Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN, Rvík: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11.15. Guðsþjónusta
kl. 14. Organisti Pavel Smid. Cecil
Haraldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Laug-
ardag: Messa kl. 8 og kl. 14.
Sunnudag: Hámessa kl. 10.30,
messa kl. 14, messa á ensku kl.
20. Mánudaga til föstudaga: mess-
ur kl. 8 og kl. 18.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa
kl. 11 á sunnudögum.
MESSÍAS-FRÍKIRKJA: Rauðarár-
stíg 26, Reykjavík. Guðsþjónusta
sunnudag kl. 20 og fimmtudag kl.
20. Altarisganga öll sunnudags-
kvöld. Prestur sr. Guðmundur Örn
Ragnarsson.
ORÐ LÍFSINS: Grensásvegi 8. Al-
menn samkoma og sunnudaga-
skóli kl. 11. Ræðumaður Ásmund-
ur Magnússon. Allir hjartanlega
velkomnir.
(ýrir WINDOWS
Tökum Opus-Allt og
annan hugbúnað uppí
S\ kerfisþróun hf.
Fákafeni 11 -Sími 568 8055
Verslunar-
menn!
sjálfvirk skráning
Límmiðaprentari
RAFHÖNNUN VBH |||
Ármúla 17 - S(ml 538 3600
Fax 588 3611 - vbh@centrum
Inniskór frá 490
kuldaskór frá 1990
smáskór
í bláu húsi
v/Fákafen
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIM-
ILIÐ: Samkoma á morgun kl. 17.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Bænastund kl.
19.30. Hjálpræðissamkoma kl. 20.
Elsabet Daníelsdóttir talar.
VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Einsöngur Rannveig Fríða
Bragadóttir. Píanóleikur: Gerrit
Scuil. Sunnudagaskóli á sama tíma
í safnaðarheimilinu. Sunnudaga-
skóli í Hofstaðaskóla kl. 13. Bragi
Friðriksson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnamessa
kl. 11. Fjölskylduguðsþjónusta kl.
14. Barna- og unglingakór kirkj-
unnar og kór Víðistaðasóknar
syngja. Sigurður Helgi Guðmunds-
son.
GARÐAKIRKJA. Guðsþjónusta kl.
14. Bragi Friðriksson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Sunnudagaskóli í Hvaleyrarskóla
kl. 11. Sunnudagaskóli Hafnar-
fjarðarkirkju kl. 11. Guðsþjónusta
kl. 14. Organisti Natalía Chow.
Prestur sr. Gunnþór Ingason. Tón-
listarguðsþjónusta kl. 18. Örn Arn-
arson og Valdimar Másson syngja.
Organisti Natalía Chow. Halla
Jónsdóttir, leiðbeinandi á hjóna-
námskeiðum kirkjunnar, flytur hug-
leiðingu. Fyrirbænir fyrir hjónum
og fólki í sambúð. Prestur sr. Þór-
haljur Heimisson.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Kirkjukórinn leiðir söng ásamt
Erni Arnarsyni. Organisti Þóra
Guðmundsdóttir. Fundur með
fermingarbörnum og foreldrum að
lokinni guðsþjónustu. Einar Ey-
jólfsson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa
sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga kl.
8. Allir velkomnir.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 14.
HVERAGERÐISKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Jón Ragnarsson.
HEILSUSTOFNUN NLFÍ: Guðs-
þjónusta kl. 11. Jón Ragnarsson.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 14.
Sóknarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Úlfar Guð-
mundsson.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyj-
um: Almenn guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Bjarni Þór Bjarnason, héraðs-
prestur, þjónar. Messukaffi.
HVAMMSTANGAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Barnafræð-
arar eru Laura Ann-Howser og
Guðrún Helga Bjarnadóttir. Krist-
ján Björnsson.
AKRANESKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta í dag, laugardag kl. 11.
TTT-samvera í safnaðarheimilinu
kl. 13. Stjórnandi Sigurður Grétar
Sigurðsson. Messa kl. 14. Björn
Jónsson.
Fríkirkjusöfnuöurinn
i Reykjavík
Sunnudagur
12. janúar
1. sunnudagur eftir
þrettánda:
Barnaguðsþjónusta
kl. 11.15
Guðsþjónusta
kl. 14.00 +