Morgunblaðið - 12.02.1997, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Ferðaþjónusta
í fyrirrúmi
FERÐAMÁLARÁÐ íslands sam-
þykkti á fundi sínum á mánudag
að lýsa yfir fullum stuðningi við
ályktun um umhverfismál sem sam-
þykkt var af framkvæmdastjórn
Ferðamálaráðs 21. janúar.
í ályktuninni lýsti framkvæmda-
stjórnin áhyggjum sínum af afleið-
ingum áætlana um virkjanir og
stóriðjuuppbyggingu og hvatti
stjórnvöld til að samræma þessar
áætlanir öllum skilyrðum fyrir
áframhaldandi vexti íslenskrar
ferðaþjónustu.
Fundurinn samþykkti einnig að
fela stjórn Ferðamálaráðs að fylgj-
ast vel með og taka virkan þátt í
opinberri umfjöllun um skipulag
miðhálendisins, sem og almennri
umræðu um umhverfismál, stóriðju
og virkjanir á íslandi.
„Það er álit Ferðamálaráðs ís-
lands að mun meiri varfæmi þurfí
að gæta í allri ákvarðanatöku um
þessi mál en verið hefur til þessa
og tryggja verði eins og kostur er
að hagsmunir íslenskrar ferðaþjón-
ustu verði hafðir í fyrirrúmi þegar
íjallað er um framtíðarútlit fjöreggs
þjóðarinnar, íslands," segir í álykt-
uninni.
^Sími 555-1500
Höfum kaupanda
aö 200-250 fm einbhúsi á Stór-
Reykjavíkursvæöinu. Engin skipti.
Sumarbústaður
Til sölu góður ca 50 fm sumarbústaður
í landi Jarðlangsstaða í Borgarfirði.
Eignarland hálfur hektari. Verð: Tilboð.
Kópavoqur
Foldasmári
Glæsilegt ca 140 fm nýlegt raðhús á
einni hæð. Áhv. ca 5,5 millj. Verð 12,9
millj.
Garðabær
Hlíðarbyggð
Til sölu ca. 200 fm endaraðhús.
Verð 11,5.
Stórás
Gott ca 200 fm einbhús auk 30 fm
bilsk. Mögul. á tveimur íb. Ekkert áhv.
Skipti möguleg á 3ja herb. íb.
Skipholt
Góð ósamþ. einstaklíb. ca 48 fm í fjölb.
Verð 2,7 millj.
Hafnarfiörður
Gunnarssund
Til sölu er góð 3ja herb. ib. á jarðh.
Breiðvangur
Mjög góö 5 herb. ca 112 fm íb. á
2. hæð. Laus fljótl. Verð 8,4 millj.
Álfaskeið
Einbýiishús á tveimur hæðum með
hálfum kj., samtals 204 fm. Mikið
endurn. Ath. skipti á lítílli íb.
Reykjavíkurvegur
Glæsileg 2ja herb. íb. á 3. hæð. Lítið
áhv. Verð 4,3 millj.
Vantar eignir á skrá
ÍFasteignasala,
Strandgötu 25, Hfj.
Árni Grétar Finnsson, hrl.
Stefán Bj. Gunnlaugsson, hdl.
Umræður á Alþingí um arðgreiðslur og gjaldskrármarkmið Landsvirkjunar
Mismunandí túlkun
á sameiginlegri bókun
SAMEIGINLEG bókun eignaraðila
Landsvirkjunar um arðgreiðslur og
gjaldskrármarkmið fyrirtækisins,
sem gerð var í fyrradag, varð til-
efni mikillar umræðu á Alþingi í
gær, er atkvæði voru greidd eftir
aðra umræðu um frumvarp ríkis-
stjórnarinnar um Landsvirkjun, og
frumvarpið tekið til þriðju umræðu.
Þingmenn Alþýðubandalags börð-
ust gegn samþykkt frumvarpsins
og gagnrýndu harkalega meðferð
málsins af hendi stjórnarinnar,
einkum framsóknarmanna. Þeir
voru einu fulltrúar stjómarandstöð-
unnar sem beittu sér gegn frum-
varpinu.
Nokkur áhrif á umræðuna höfðu
ummæli borgarstjóra í sjónvarps-
fréttum í gærkvöldi, þar sem hún
sagðist ekki tilbúin að „víkja arð-
gjafarmarkmiðum til hliðar". Iðnað-
arráðherra sagði þetta mjög vel
skiljanlegt, því greinarmun verði
að gera á arðgjafar- og arðgreiðslu-
markmiðum. Benti hann á, að sam-
kvæmt frumvarpinu væri arðgjafar-
Alþýðubandalagsmenn einir um að
hafna frumvarpinu
krafan 5-6% af eigin fé á ári, en
eigendur ætla að greiða 5,5% arð
af uppreiknuðum stofnframlögum.
„Það sem eftir stendur er þetta, að
eignaraðilarnir eru sammála um,
að það sé forgangsverkefni að raun-
verð á raforku geti lækkað eftir
aldamót með þeim hætti sem sam-
komulagið gerir ráð fýrir,“ sagði
ráðherra. Ákvarðanir um arð-
greiðslur verði síðan teknar á árs-
fundi hveiju sinni.
Einar K. Guðfinnsson, þingmað-
ur Sjálstæðisflokks, sagði liggja
fyrir, að útborgun arðs yrði sam-
kvæmt sameiginlegu bókuninni og
orðum iðnaðarráðherra „klárlega
víkjandi atriði". Arðurinn verði
ekki greiddur út nema áður sé
búið að tryggja raunlækkun orku-
kostnaðar um 2-3% á ári á árinu
eftir 2000.
„Það er á hinn bóginn ljóst,“
sagði Einar, „að eiginfjármyndunin
hjá Landsvirkjun hefur gerzt í ljósi
óeðlilegra taxta. Gjaldskrá Lands-
virkjunar hefur legið langt fyrir
ofan langtímajaðarkostnað orku-
verðs frá nýjum virkjunum og er
nú talin liggja um 50% hærra en
eðlilegt væri að öðru leyti. Þetta
er hin raunverulega ástæða fyrir
hinni öru eiginfjármyndun fyrirtæk-
isins,“ sagði Einar.
Sturla Böðvarsson, Sjálfstæðis-
flokki, sagði meginverkefnið á sviði
orkumála vera lækkun raforkuverðs
til almennings og fyrirtækja í land-
inu. Með samkomulagi eigenda
Landsvirkjunar væri þeim ásetningi
lýst, að lækkun raforkuverðs verði
forgangsverkefni, það komi á und-
an arðgreiðslukröfunni. „í ljósi
þessa samkomulags, sem ég treysti,
er ég samþykkur þessu frumvarpi,"
sagði Sturla. Um hina sameiginlegu
bókun sagði Sturla annars, að hún
væri óheppilega orðuð; með henni
væri stjórnarandstöðunni „gefið
óþarflega mikið fóður fyrir umræð-
una um þetta mál“.
„Ótrúlegt blaður"
Svavar Gestsson sagði ummæli
stjórnarþingmanna vera „ótrúlegt
blaður". Rökstuddi hann þessa full-
yrðingu sína með því, að menn
höfðu fellt breytingartillögu Al-
þýðubandalagsmanna við frum-
varpið um að ákvæði um forgang
orkuverðslækkunar fram yfir arð-
greiðslur yrðu sett inn í lögin sjálf,
í stað þess að láta við sameiginlega
bókun eignaraðilanna sitja. Svavar
hélt fast við þá túlkun, að með sam-
þykkt frumvarpsins eins og það
lægi fyrir, væri verið að „leggja á
10% skatt á alla rafmagnssölu til
almennings á íslandi næstu 10 ár“.
Búist var við að þriðju umræðu
um frumvarpið lyki seint í gær-
kvöldi. Lokaatkvæðagreiðsla á að
fara fram í dag.
Morgunblaðið/Ásdís
Ók á ljós,
grindverk
og skilti
ÖLVAÐUR maður á bílaleigubíl
endaði ökuferð sína um götur
Reykjavíkur á öðrum tímanum í
fyrrinótt uppi á gangstétt í Aðal-
stræti og fékk að gista fanga-
geymslur lögreglu það sem eftir var
nætur.
Maðurinn hafði ekið bifreiðinni á
umferðarljós og grindverk á mótum
Hofsvallagötu og Hringbrautar og
á leið sinni niður í miðbæ hafði
hann ekið á tvö umferðarmerki í
Tryggvagötu. Bifreiðin fannst eins
og áður sagði á gangstétt í Aðal-
stræti, óökufær og mannlaus.
Ökumaðurinn fannst fljótlega í
Fischersundi þar sem hann var
handtekinn og færður á lögreglu-
stöðina.
Vetrarríki
ÞAÐ er sjálfsagt álitamál að
hversu miklu gagni regnhlíf
kemur í því rysjótta veður-
fari, sem hefur verið í höfuð-
borginni að undanförnu.
Afram er spáð svipuðu veðri;
smáéljum og björtu á milli.
Snjóinn, sem gerir vegfar-
endum erfitt fyrir, tekur
varla upp í bráð.
Deilt um markmið gjald-
skrár í borgarráði
r^fTTTT^lTI^TTW
SUÐURVE R I
SÍMAR581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
fyrirtæki
4.
Framleiðsfyrirtæki fyrir sjávarútveg og byggingariðnað. Hentugt út á land.
Blómaverslun í verslunarmiðstöð. Húsnæði og rekstur til sölu.
Matsölu- og vínveitingahús til sölu í miðborginni.
Staður sem allir kannast við.
Pizza ’67. Einn sá stærsti og vinsælasti.
Miklir möguleikar fyrir duglegt fólk.
5. Hverfispöbb á frábærum í stað í fjölbýli.
Glæsilegur staður með góðan orðstír.
6. Verslunarhúsnæði til leigu. Einnig tii sölu. Fyrir sjoppu, ísbúð, fiskbúð
eða pizzastað. Laust.
Mikið úrval af fyrirtækjum frá 1 millj. til 500 millj.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
SAMEIGINLEG bókun iðnaðarráð-
herra, borgarstjóra og bæjarstjóra
Akureyrar með yfirlýsingu um að
lögð verði áhersla á lækkun raforku-
verðs var samþykkt eftir nokkra
umræðu á fundi borgarráðs í gær.
Guðrún Ágústsdóttir, forseti borgar-
stjómar, lagði fram bókun þar sem
segir að ljóst sé að í frumvarpi um
breytingu á lögum um Landsvirkjun
sé ekki ákvæði um þau gjaldskrár-
markmið, sem koma fram í sameigin-
legri bókun ráðherra, borgarstjóra
og bæjarstjórans á Akureyri.
I fyrri bókun Guðrúnar í borgar-
ráði kemur fram að ekki sé nauðsyn
á afgreiðslu borgarráðs þar sem ekk-
ert nýtt komi fram í bókun ráðherra,
borgarstjóra og bæjarstjóra Akur-
eyrar. Aðalatriði samkomulagsins
séu arðgreiðsla til eignaraðila, sam-
anber samkomulag frá 28. október
sl. Sú niðurstaða sé til komin þar sem
ekki náðist samkomulag um óskir
borgarinnar um yfirtöku á hlut henn-
ar í Landsvirkjun.
Sammála
í bókun borgarráðsfulltrúa sjálf-
stæðismanna á fundinum segir að
þeir séu sammála því samkomulagi
um bókun sem liggi fyrir fundinum
enda sé það í fullu samræmi við sam-
komulag eigenda Landsvirkjunar um
eignarhald, rekstrarform og hlutverk
Landsvirkjunar. Það sé ennfremur í
samræmi við frumvarp til laga um
Landsvirkjun hvað arðgreiðslur varð-
ar. Vitnað er til 2. gr. frumvarpsins
þar sem segir að arðgreiðslu skuli
ákveða með hliðsjón af afkomu fyrir-
tækisins og yfirfærðum hagnaði frá
fyrri árum.
Fullyrðing Guðrúnar um að arð-
greiðslur séu til komnar vegna þess
að ekki hafi náðst samkomulag um
óskir borgarinnar séu rangar. I við-
ræðunefnd eignaraðila hafí ekki ver-
ið reynt að ná slíku samkomulagi
enda engar óskir komið fram þar um.
í síðari bókun Guðrúnar er vísað
til þess að vilji borgarinnar um hugs-
anlega yfirtöku ríkisins á hlut
Reykjavíkurborgar í Landsvirkjun
hafi komið skýrt fram í máli borgar-
stjóra og annarra áður en nefnd
eignaraðila tók til starfa. Niðurstað-
an hafí orðið að fengist hafi mat á
eigendaframlagi borgarinnar í
Landsvirkjun og arðgreiðslur af því
framlagi. Samningurinn hafi síðan
verið samþykktur samhljóða í borg-
arstjóm.
Ljóst sé að í frumvarpi um breyt-
ingu á lögum um Landsvirkjun sé
ekki ákvæði um þau gjaldskrár-
markmið, sem komi fram í sameigin-
legri bókun ráðherra, borgarstjóra
og bæjarstjórans á Akureyri en þar
segi meðal annars: „sammæli er um
að það sé forgangsverkefni að raun-
verð á raforku geti lækkað eftir alda-
mót með þeim hætti sem samkomu-
lagið gerir ráð fyrir.“
Óþarfa bókanir
Loks bókaði Pétur Jónsson, borg-
arráðsfulltrúi Reykjavíkurlista, að
hann teldi bókanir Guðrúnar og Vil-
hjálms Þ. Vilhjálmssonar óþarfar. í
sameiginlegri bókun eignaraðila
Landsvirkjunar frá 10. febrúar sl.,
sem borgarstjóri hafi undirritað með
fyrirvara um samþykki borgarráðs
og væri til umfjöllunar, komi ekkert
fram sem ekki hafi áður verið sam-
þykkt af hálfu borgaryfirvalda.