Morgunblaðið - 12.02.1997, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1997 21
AÐSENDAR GREIIMAR
Ljós yfir Hellisheiði
AÐ GEFNU tilefni
langar mig að rifja upp
sögu varðandi tillögu
um Ijós yfir Hellisheiði.
Á þinginu 1987-88
flutti ég ásamt nokkr-
um þingmönnum, þeim
Guðna Ágústssyni,
Margréti Frímanns-
dóttur, Guðmundi Á.
Garðarssyni, Unni Stef-
ánsdóttur, Maríu E.
Ingvadóttur og Aðal-
heiði Bjarnfreðsdóttur,
tillögu til þingsályktun-
ar um að setja upp lýs-
ingu á Suðurlandsvegi
á Hellisheiði. Tillagan
hljóðaði þannig: Alþingi
ályktar að fela ríkisstjórninni að láta
gera könnun á kostnaði við að lýsa
upp Suðurlandsveg frá Reykjavík
um Hellisheiði að Hveragerði. Jafn-
framt verði leitað leiða til fram-
kvæmda við verkið. í greinargerð
sagði:
Svo sem kunnugt er er Suður-
landsvegur um Hellis-
heiði aðalsamgönguæð
frá Reykjavík til hinna
fjölförnu og blómlegu
byggða Suðurlandsund-
irlendisins, auk þess að
vera kafli af hringveg-
inum með miklum um-
ferðarþunga. Síaukin
samskipti Stór-Reykja-
víkursvæðisins og Suð-
urlands eykur nauðsyn
þess að vegurinn sé allt-
af opinn. Með tækni og
framförum nútímans er
vegurinn orðinn hár,
beinn og breiður með
bundnu slitlagi. En
vegna hæðar yfir sjó og
náttúrufars eru gjarnan, sérstaklega
í skammdeginu, mörg veðrabelti á
leiðinni. Fyrirvaralaust skapast oft
hættuástand enda hafa orðið mörg
alvarleg umferðarslys, sérstaklega á
leiðinni úr Hveradölum og niður í
Kamba. Því væri æskilegt að fyrsti
áfangi í lýsingu vegarins yrði á þess-
Stöðug ferða- og flutn-
ingaþörf til og frá Suð-
urlandi í hvaða veðri
sem er, segir Eggert
Haukdal, knýr á um
framkvæmdina.
um kafla. Nýta ber þá reynslu sem
fyrir liggur um gerð Ijósa sem sjást
vel í lélegu skyggni.
Hin geysilega fjölgun ferðamanna
á leið um Suðurland og lenging
ferðamannatímans ýtir á þessa
framkvæmd. En fyrst og fremst er
það hin stöðuga ferða- og flutninga-
þörf til og frá Suðurlandi í hvaða
veðri sem er sem knýr á um að þetta
verði framkvæmt sem allra fyrst.
Tillagan hlaut byr
Tillagan hlaut strax góðar undir-
tektir og fram kom sameiginlegt
Eggert
Haukdal
Gjaldheimta fyrir
ríkið skýrir hækkunina
REYKVÍKINGAR fengu í janúar
síðastliðnum í hendur álagningar-
seðla fasteignagjalda og bruna-
tengdra gjalda fyrir
árið 1997. Flestum er
gert að greiða meira
samanlagt en í fyrra en
hækkunina má í flest-
um tilvikum rekja til
gjalda sem innheimt
eru fyrir ríkissjóð.
Nauðsynlegt er að
vekja sérstaklega at-
hygli á þessu enda hafa
misvísandi upplýsingar
birst á opinberum vett-
vangi um fasteigna-
tengd gjöld í höfuð-
borginni.
Sjálft álagningar-
hlutfall gjalda á íbúðar-
húsnæði í Reykjavík
hefur ekki breyst frá
því í fyrra. Hins vegar er vatnsgjald-
ið nú innheimt í samræmi við nýleg-
ar reglur sem ýmist geta leitt til
hækkunar eða lækkunar. Sama á
við um atvinnuhúsnæði. Vatnsgjald
var áður miðað við rúmmál húsa en
nú er innheimt fast gjald, 2.000
krónur fyrir íbúð, auk 78 króna á
hvern fermetra. Þá hefur álagning-
arhlutfall fasteignaskatts á atvinnu-
húsnæði hækkað í samræmi við
breytt lög um tekjustofna sveitarfé-
laga. Sérstakur fasteignaskattur á
atvinnuhúsnæði lækkar hins vegar
í áföngum og fellur niður árið 1999.
Borgarsjóður innheimtir fast-
eignaskatt, lóðarleigu, tunnuleigu,
vatnsgjald og holræsagjald, sem
nefnd eru í einu lagi fasteignagjöld
á álagningarseðlinum. Þetta eru
tekjur borgarinnar sem notaðar eru
til að greiða fyrir margvíslega þjón-
ustu við íbúana. Brunabótaiðgjald
rennur til tryggingafélagsins Húsa-
trygginga Reykjavíkur hf., sem
vegna brunatrygginga. Eftir standa
þá viðlagatryggingargjald, bruna-
varnagjald, umsýslu-
gjald og forvarnágjald,
sem öll eru innheimt
fyrir ríkissjóð. Forvar-
nagjaldið, 0,2 af vá-
tryggingarverðmæti
eignar, er nú innheimt
í fyrsta sinn, sam-
kvæmt lögum sem sam-
þykkt voru á vorþingi
1996. Það rennur í Of-
anflóðasjóð til að greiða
kostnað við rekstur
sjóðsins og kostnað við
varnir gegn ofanflóð-
um. Þetta skýrir
stærstan hluta hækk-
unar á heildargjöldum
sem lögð eru á borg-
arbúa í ár.
Taka má tiltekna eign sem dæmi.
Húsmat hennar er 8 milljónir króna,
lóðarmat 2 milljónir króna og bruna-
bótamat 10 milljónir króna:
SJÁ TÖFLU
Rétt er að ítreka í lokin að tekju-
lágir elli- og örorkulífeyrisþegar,
sem greiddu lægri fasteignaskatt
og holræsagjald árið 1996, greiða
líka lægri fasteignaskatt og hol-
ræsagjald í ár í samræmi við sér-
stakar viðmiðunarreglur um tekjur
einstaklinga eða hjóna. Framtals-
nefnd úrskurðar síðar í vetur hve
mikið gjöld skuli lækka og viðkom-
Flestum er gert að
greiða meira samanlagt
en í fyrra, segir Ingi-
björg Sólrún Gísla-
dóttir, en hækkunina
má í flestum tilvikum
rekja til gjalda sem inn-
heimt eru fyrir ríkissjóð.
andi fær tilkynningu um breytta
álagningu eftir að farið hefur verið
yfir framtöl gjaldenda.
Viðmiðunarreglur vegna lækk-
unar fasteignaskatts og holræsa-
gjalds 1997: 100% lækkun. Ein-
staklingar með tekjur (í peningum)
innan við 670.000 kr.
Hjón með samanlagðar tekjur
innan við 940.000 kr.
80% lækkun. Einstaklingar með
tekjur á bilinu 670.000 til 740.000
kr.
Hjón með samanlagðar tekjur á
bilinu 940.000 til 1.025.000 kr.
50% hækkun. Einstaklingar með
tekjur á bilinu 740.000 til 830.000 kr.
Hjón með samanlagðar tekjur á
bilinu 1.025.000 til 1.170.000 kr.
Höfundur er borgnrstjóri í
Reykjavík.
Álagningarár 1996 1997
Borgarsjóður/fasteignagjöld 71.766 kr. 71.377 kr.
Húsatryggingar Reykjavíkur hf. 1.445 kr. 1.533 kr.
Innheimt gjöld fyrir ríkissjóð 3.560 kr. 5.968 kr.
Samtals 76.771 kr. 78.838 kr.
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
nefndarálit frá atvinnumálanefnd
þar sem mælt var með henni. Þegar
nefnd stendur sameiginlega að máli
er vanalegt að tilagan hljóti brautar-
gengi.
Við afgreiðslu tillögunnar kom
hins vegar fram smátaugatitringur
hjá einstökum þingmönnum gegn
henni. Eftir að sú umræða hafði
gengið fram nokkra stund kvaddi
Albert Guðmundsson sér hljóðs og
mælti með henni. Lokaorð hans voru:
Ég skil ekki hvers vegna menn
mæla á móti þessari tillögu, nema
að það sé af öfund, af því þeir hafa
ekki verið beðnir að gerast meðflutn-
ingsmenn. Já, vissulega er öfundin
oft með í för í pólitíkinni. Tillagan
var síðan samþykkt.
Fyrir löngu hefði Suðurland átt
að vera búið að fá fjármagn til vega-
mála utan skipta (áður en skipt er
á milli kjördæma) til að framkvæma
þessa tillögu. Hún er ekki lengur
bara mál Suðurlands. Framkvæmdin
er einnig þýðingarmikil fyrir Austur-
land, hringveginn, og ekki síst íbúa
Stór-Reykjavíkursvæðisins.
Útgöngumenn
En það voru aðeins fleiri með
taugatitring gegn þessari tillögu en
sýnt höfðu sig í ræðustól. Meðan á
umræðunni stóð viku báðir félagar
mínir, Johnsen og Steini, úr þingsal
og komu ekki aftur fyrr en að lokn-
um atkvæðum. Þeir léðu tillögunni
ekki fylgi, hvorki í umræðum né
atkvæðum. Af því að tillagan var
frá mér var ekki hægt að sam-
þykkja hana.
Já, hvers vegna þurfti gott mál
að gjalda öfundar og heiftar. Þannig
var staðan á því herrans ári 1988.
En hvernig er hún í dag og þá sé
einungis litið á þetta eina mál: Ljós
yfir Hellisheiði.
Fundir í Hveragerði
og á Selfossi
Síðastliðið haust hélt Sjálfstæðis-
félag Hveragerðis allfjölmennan
fund. Einum fundargesta varð á að
spyija hvað liði framgöngu nokkurra
ára gamallar tillögu um ljós yfir
Hellisheiði sem samþykkt hefði ver-
ið. Fundarmanni varð og á að nefna
nafn mitt í sambandi við tillöguna.
Samkvæmt frásögn fundarmanns
hvesstu þeir Árni og Þorsteinn sig
mjög. Gerðu lítið úr málinu og fyrsta
flutningsmanni. Þetta mál hefði ekki
forgang. Á öðrum verkefnum lægi
meira. Já, venjulegir menn eiga að
þegja og bugta sig og beygja í ná-
vist guðanna.
Fyrir skömmu var haldinn fundur
á Selfossi um málefnið Suðurland
2000. Nú brá svo við að sögn fund-
armanns að Árni Johnsen ræddi um
ljós yfir Hellisheiði og taldi að þeim
þyrfti að hraða. Batnandi manni er
best að lifa.
Ekki kom Árni fyrir sig nafni
fyrsta flutningsmanns tillögunnar
og er sannariega ekki um að_ sak-
ast. Það skiptir ekki máli. Ýmsir
fara hins vegar að gieyma eftir að
þeir komast á sextugsaldurinn og
sýnist Árni vera gott dæmi um það.
Fyrirspurn til
samgönguráðherra
Nú hafa Guðni Ágústsson og
Guðmundur Hallvarðsson beint fyr-
irspurn til samgönguráðherra um
hvað líði framkvæmd þingsályktun-
artillögu um lýsingu Hellisheiðar,
þegar átta ár eru liðin frá samþykkt
hennar. Frá upphaflegri samþykkt
tillögunnar hefur lausnin verið að-
eins ein í málinu fyrir þingmenn
Suðurlands: Að víkja heift og öfund
til hliðar. Taka á. Minnast orða Tóm-
asar úr kvæðinu Að Áshildarmýri:
En gæt þess að sagan oss dæmir
til feigðar þá fyrst, er frelsi og rétti
vors lands stendur ógn af oss sjálf-
um.
Það hefur lengi vantað aukinn
metnað og kraft fyrir Suðurland í
sunnlenska þingmenn. Eitt dæmi er
lýsing Hellisheiðar. Henni hefur
staðið ógn af oss sjálfum.
Höfundur er fyrrv. alþingismaður
Squash
öklaskór
Ath: Vandað leður, gúmmísóli, hlýfóður.
Verð: 1.995,-
Áðurj_3-4957-
Tegund: 2614
Stærðir: 30-41
Litur: Svartir
Póstsendum samdæffurs
\oppskórinn
Veltusundi við Ingólfstorg
sími: 552 1227
J
FIUGIÉLAG AKUREYRAR
1937 1997
FLUGLEIÐIR J083?
I tilefni 60 ára fiugafmælis bjóða Flugleiðir
6.000 kr. afslátt af verði allra pakkaferðat
í 6 daga til laugardagsins 16. febrúar.
Söluskrifstofur Flugleiða eru opnar
laugardaginn 16. febrúar tii kl. 16.
'Afslátturinn bætist ekki við afsláttartilboö í ferðabæklinguin Flugleiða.
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskur ferðafélagi