Morgunblaðið - 13.02.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.02.1997, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Olafur Ragnar Grímsson hvatti til lausnar Smugudeilunnar Yaranlegra lausna leitað sem fyrst HARALDUR Noregskonungur og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, hafa báðir gert fiskveiði- deilur íslands og Noregs að umtals- efni í opinberri heimsókn forsetans. Ólafur Ragnar sagði í gær að deil- an væri ekki stórvægileg og aðeins með lausn á henni yrði málflutning- ur íslendingar og Norðmanna á alþjóðlegum vettvangi fullkomlega trúverðugur. Haraldur Noregskonungur sagði m.a. í ræðu sinni í kvöldverðarboði í Akershus-kastala í fyrrakvöld, er hann ræddi samskipti íslands og Noregs: „Eins og á milli ættingja er einnig rúm fyrir ósætti, sem af og til vekur sterkar tilfínningar. Af eigin reynslu veit ég að hin vanalega hlýja og traust er áfram fyrir hendi. Þess vegna munum við líka finna lausn í sameiningu." Þurfum að sýna í verki að við getum leyst deilur Ólafur Ragnar Grímsson sagði í ræðu sinni í hádegisverðarboði hjá ríkisstjórn Noregs í gær að mikil- vægt væri að hvergi bæri skugga á tengsl íslands og Noregs. „Til að vera öðrum þjóðum fyrirmynd og nýta okkur báðum til hagsbóta þessi tækifæri til áhrifa og ávinn- ings þurfum við að sýna í verki að við getum leyst okkar eigin deilu- mál, deilumál sem ekki eru stór- vægileg í samanburði við það sem þorri annarra þjóða glímir við,“ sagði forseti. „Vissulega vilja allir sjómenn sækja fast á gjöful mið og sitja helzt einir að aflanum. Það er hins vegar biýnt að stjórnvöld landanna beggja, Islands og Noregs, leiti sem fyrst varanlegra lausna á þeim ágreiningi um nýtingu auðlinda hafsins sem enn er óleystur. Aðeins á þann hátt verður málflutningur íslendinga og Norðmanna fullkom- lega trúverðugur á alþjóðlegum vettvangi.“ Stj órnmálamanna að finna lausn Eftir fund utanríkisráðherra ís- lands og Noregs í Ósló síðdegis í gær voru þeir inntir viðbragða vegna ummæla Ólafs Ragnars og Haraldar konungs. Halldór Ásgrímsson sagði að það væri gott að fá hvatningu. „Við erum ánægðir með áhuga forseta og konungs á að tryggja nánari og betri samskipti landanna," sagði Halldór Ásgrímsson. „Það er hlut- verk konungsins og forsetans, en síðan er það stjórnmálamannanna að finna lausn og við munum halda þv! starfi áfram.“ Aðspurður hvort hann teldi að Norðmenn ættu erfitt með að skilja hve háðir sjávarútvegi íslendingar væru, eins og áður hefði komið fram hjá Ólafi Ragnari, svaraði Halldór að hann gæti ekki tjáð sig um skilning Norðmanna allra, en hann teldi ekki að utanríkisráð- herra þeirra ætti erfítt með að skilja það. Bjorn Tore Godal sagði að sam- skipti íslendinga og Norðmanna væru almennt það góð að þjóðimar ættu að geta náð samkomulagi og því væri aðeins gott að konungur- inn og forsetinn þrýstu á um lausn Smugudeilunnar. Fjölmennt á öskudag Vestmannaeyjum. Morgunblaðið. KRAKKÁR í Vestmannaeyjum fjölmenntu í bæinn fyrir hádegi á öskudag, gengu í fyrirtæki og sungu en fengu í staðinn góðgæti frá eigendum og starfsfólki fyrirtækjanna. Mik- ill fjöldi krakka var í bænum og voru flestir klæddir ýmiss konar furðubúningum. Klukkan ellefu var síðan kötturinn sleginn úr tunnunni og var það hápunktur ösku- dagsgleðinnar hjá krökkunum. Sjaldan hafa fleiri börn verið á ferð í bænum á öskudag og aldrei áður hafa búningar verið jafn fjölbreyttir og vandaðir og nú enda lék veðrið við börnin í Vestmannaeyjum á öskudag- inn. \ \ Gleði í hverju andliti ÞAÐ var gleði í hveiju andliti í KR-heimilinu í gær þegar þar var haldin mikil hátið í tilefni ösku- dagsins. Börnin voru máluð í framan og klædd furðubúning- um. Er öskudagurinn fyrir löngu orðinn einn helsti gleðidagur ís- lenskra barna. Bankastjóra- laun lækki FRAMKVÆMDASTJÓRN Sam- bands ungra framsóknarmanna hef- ur sent Finni Ingólfssyni viðskipta- ráðherra ályktun, þar sem skorað er á hann „að kanna hvort unnt er að draga til baka hækkun launa banka- stjóra ríkisbanka umfram almennar verðlagshækkanir í landinu á undan- fömum árum.“ SUF skorar einnig á ráðherra að sjá til þess að um leið og rekstrarformi ríkisbankanna verði breytt verði hætt að greiða stjóm- endum þeirra sérstaklega fyrir setu í stjórnum fyrirtækja og stofnana sem tengjast bönkunum. Morgunblaði^Kristinn Obreytt staðaí Smugudeilu UTANRÍKISRÁÐHERRAR fs- lands og Noregs, Halldór Ásgríms- son og Bjorn Tore Godal, funduðu í Ósló í gær. Þeir sögðu eftir fund- inn, að ekkert hefði þokast í sam- komulagsátt í deilu þjóðanna um rétt íslendinga til fiskveiða í Smug- unni. Bjorn Tore Godal sagði að við- ræðurnar I gær hefðu ekki fært ráðherrana nær lausn deilunnar. „Við munum að sjálfsögðu halda áfram að leita lausna, en í dag hnikaðist málið ekkert, hvorki til hins betra né verra. Það er afar óæskilegt að þjóðir, sem eru jafn nátengdar og Islendingar og Norð- menn, skuli eiga í deilum sem þess- um,“ sagði hann. Halldór kvaðst ítreka það sem hann hefði áður sagt, að hann sæi ekki ástæðu til bjartsýni um lausn deilunnar á næstu mánuðum. „Við munum hins vegar vinna að því áfram, enda báðum þjóðunum mikilvægt að leysa málið.“ .0; Stenst allt sem á Það Er Lagt Eftirlitsvélar á gatnamótum Verið að skoða fyrstu filmurnar VERIÐ er að skoða fyrstu filmurnar úr eftirlitsmyndavél sem staðsett er á gatnamótum í Reykjavík og tekur myndir af því þegar ekið er á móti rauðu umferðarljósi. Búnaðurinn var tekinn í notkun 31. janúar sl. Önnur filma er komin í vélina og er nú verið að reyna tölvubún^inn sem les af fílmunni. Hægt er að draga fram númer bifreiðar sem ekið hefur verið á móti rauðu ljósi en búnaður skráir stað og stund. Ómar Smári Ár- mannsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að næsta skref sé að senda þau gögn sem nú eru í vinnslu til lögfræðideildar Lögreglustjóraemb- ættisins til ákvörðunar um sektar- greiðslur. Sekt getur numið allt að 8 þúsund krónum. Markmiðið með starfrækslu eft- irlitsmyndavélanna er að draga úr líkum á akstri gegn rauðu ljósi og reyna þannig að fækka umferðar- slysum á gatnamótum. Á undanförn- um árum hafa árlega orðið á annað hundrað umferðaróhöpp þar sem ökumaður olli slysi eftir að hafa ekið inn á gatnamót á rauðu ljósi. Í u.þ.b. 40% tilvika urðu slys á fólki. í undirbúningi er að keyptur verði viðbótarbúnaður sem gefur mögu- LÖGGÆSLU- MYNDAVÉL MERKIÐ á að minna ökumenn á eftirlitsmyndavélabúnaðinn. Það verður sett upp á gatna- métum þar sem slíkur búnaður hefur verið settur upp. leika á ökuhraðaeftirliti á gatnamót- um og jafnvel að búnaður af því tagi verði settur upp sem sjálfstæðar einingar þar sem þörf er á slíku eftir- liti. ( I ( 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.