Morgunblaðið - 13.02.1997, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 13.02.1997, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNIIMGAR FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997 45 EINAR MA TTHÍAS KRISTJÁNSSON + Einar Matthías Kristjánsson var fæddur i Reykjavík 2. októ- ber 1926. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykjavikur (Borg- arsjúkrahúsinu) 4. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar Ein- ars voru Kristján Ebenezersson, f. í Þernuvík við ísa- fjarðardjúp 27. apríl 1893, d. 23. júlí 1972, og Sigríð- ur Einarsdóttir, f. 12. desember 1899 í Reykjavík, d. 10. júlí 1970. Einar var í miðið fimm systkina. Hin eru: Guðmundur Magnús, f. 22. mars 1918, d. 1. desember 1996; Valur, f. 25. janúar 1921; Ásta, f. 1. september 1931; og Val- gerður, f. 21. júní 1944. Einar kvæntist eftirlifandi konu sinni, Guðbjörgu Sigríði Kristjónsdóttur, 7. maí 1948 og eignuðust þau fjögur börn sem eru: Kristján, f. 15. júlí 1949, kvæntur Brynhildi Geirsdóttur og eiga þau þrjú börn og eitt barnabarn; Bryndís, f. 9. des- ember 1952, gift Guðmundi Ó. Hermannssyni og eiga þau tvo syni; Daði Þór, f. 7. september 1958, giftur Sigríði Björnsdótt- ur og eiga þau þrjú börn; Pét- ur, f. 3. maí 1967, kvæntur Björgu Kr. Björgvinsdóttur og eiga þau tvö börn. Einar var lærður garðyrkju- fræðingur frá Garðyrkjuskóla ríkisins í Hveragerði. Að loknu námi stofnuðu Ein- ar og Guðbjörg sitt fyrsta heimili í Reykjadal í Mos- fellssveit en þar ráku þau garðyrk- justöð í 17 ár sam- fleytt. Árið 1967 byggðu Einar og Guðbjörg sér nýtt hús í Markholti 13. Sama ár hóf Einar störf hjá Mosfells- hreppi og gegndi þar störfum til 31. október 1996. Áður hafði hann starfað um tíma þjá Véladeild Sam- bandsins. Samhliða starfi sínu hjá Mosfellshreppi var Einar í allmörg ár umboðsmaður Sam- vinnutrygginga í Mosfellssveit, Kjalarnesi og Kjós. Einnig var hann framkvæmdastjóri bygg- ingasamvinnufélagsins Búseta á sama svæði. Einar var virkur í félags- starfi sveitarinnar, m.a. var hann í stjórn UMFA. Einnig tók hann þátt í leikfélags- og kóra- starfi. Hann var fyrsti formað- ur starfsmannafélags Mosfells- hrepps (Mosfellsbæjar) og vann hann ötullega að ýmsum rétt- indamálum félaga sinna. Odd- fellow-reglan átti stóran þátt í lífi hans, allt frá inngöngu hans í regluna árið 1975 til dauða- dags. Utför Einars fer fram frá Digraneskirkju í Kópavogi í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Jarðsett verður í Lágafells- kirkjugarði. í dag er til moldar borinn Einar M. Kristjánsson, sem undir það síð- asta háði harða baráttu við vágest þann, sem lagði hann að velli. Hann lést umvafinn ást og umhyggju barna sinna og eiginkonu. Ekki er því lengur hægt að nefna þau hjón- in „Gígí og Einar“ í sömu and- ránni, eins samrýnd og þau voru í einu og öllu. Einar var glæsimaður á velli, bar sig vel með sitt hlýja viðmót og bros og ekki dró það úr glæsileikanum að hafa konu sína við hlið sér. Ég minnist yngri ár- anna, þegar Einar kom fyrst í heim- sókn þar sem fjölskyldan sat við spilamennsku. Það var hægur vandi að hliðra til fyrir þessum viðkunn- anlega pilti við spilaborðið og sat hann með okkur fram á nótt, en ég renndi þá grun í að hann yrði fljótlega eiginmaður Guðbjargar fóstursystur minnar. Einar lagði garðyrkju fyrir sig og gekk á Garðyrkjuskólann. Þegar komið var að því að hefja búskap var tekin á leigu gróðrastöð í Mos- fellsdalnum, þar sem hann ræktaði rósir. Þarna fæddust þrjú af börnum þeirra hjóna. Það kom að því að dalurinn var kvaddur og sléttan tók við, þar sem var að myndast bæjar- kjarni, sem nú nefnist Mosfellsbær. Einar gerðist umsjónarmaður í skól- anum og byrjað var að byggja yfir fjölskylduna, en hún hafði fengið húsaskjól í hálfbyggðum skólanum. Húsin sem byggð voru í helgar- og eftirvinnu, urðu tvö. Elsti sonurinn Kristján hafði lært trésmíði og ekki er að efa að hann hafi verið liðtæk- ur í að aðstoða föður sinn. Kristján er nú slökkviliðsstjóri fyrir Suður- landsumdæmi. Fjórða barnið, Pétur, fæddist á þessum árum. Hann legg- ur nú stund á „hljóðfræði" í Kaup- mannahöfn, en þangað var ferðinni heitið 20. desember sl. til þess að halda jói með Pétri og fjölskyldu. En enginn sér sína ævi fyrir. Éinar var lagður inn á sjúkrahús, þaðan sem hann átti vart afturkvæmt og Pétur kom því heim með sína fjöl- skyldu. Dóttirin Bryndís hafði fyrr á árinu flust til íslands, eftir sex ára búsetu í Gautaborg ásamt fjöl- skyldu sinni. Daði hefur haslað sér völl í tónlistinni og er nú skólastjóri í tónlistarskólanum í Stykkishólmi. Mig grunar, þótt lítið hafi borið á, að Einar hafi verið tónelskur mað- ur, því þar á heimilinu voru þau stærstu heyrnartól til hlustunar sem ég hafði séð. Einar tók þátt í félags- lífi staðarins á sínum yngri árum, bæði í söng og í leik. Á síðari árum gerðist hann félagi í Oddfellow- reglunni. En annirnar voru lika miklar heima fyrir. Einar hafði tek- ið að sér umboð fyrir tryggingafélag og átti því margur nágranni erindi til hans. Einar hélt húsi sínu mjög vel við og ræktaði sínar eigin rósir í litla gróðurhúsinu sínu. Hann lék sér að því að krossa saman tvær ólíkar tegundir rósa, svo út úr því komu mjög sérstakar rósir. Ég varð þess aðnjótandi að eignast slíkan rósavönd úr hendi hans. Eins mikill glæsimaður og Einar var, tók hann sig einnig vel út í auglýsingum sem birtust á sjónvarpsskjánum og það yljaði manni svo sannarlega þegar brosið hans barst þannig inn í stofu. Þau hjónin voru alltaf tilbúin að heimsækja mig þegar ég var á sjúkrahúsi og nú síðast rétt fyrir jólin, enda þótt Einar væri þá sjálf- ur fársjúkur. Gígi mín, við vitum að hann lifír þótt hann sé dáinn. í guðs friði. Margrét Gunnlaugsdóttir. Ánægjulegri samfylgd er lokið. í dag er kært kvaddur vinur okkar Einar Kristjánsson. Hann lést eftir þungbær veikindi og er skarð fyrir skildi hjá eiginkonu, fjölskyldu og vinum. Einar og Gigi voru góðir vinir okkar í fjölda ára og óx vináttan með hveiju ári. Margs er.að minn- ast frá fjölmörgum samverustund- um við hin ýmsu tækifæri. Við horf- um til baka og minnumst allra stundanna á heimili okkar beggja þar sem gleðin ríkti, enda var Einar mjög glaðsinna, hafði létta lund og var hvers manns hugljúfi. Við kynntumst því ekki síst í páskaferð- um okkar erlendis og útilegum hér innanlands hversu jákvæður Einar var og ákaflega þægilegur ferðafé- lagi. Einar var mjög myndarlegur mað- ur og þéttur á velli, traustur og drengur góður. Hann hafði mjög gaman af alls konar veiði og var það orðin viðtekin venja að fara saman út á sjó á handfæraveiðar á hveiju vori. Hann hlakkaði til þessara ferða sem veittu honum gleði og ánægju. Hann fór sjúkur í sína hinstu sjóferð á liðnu sumri. Ferðirnar verða ekki fleiri að sinni. Farsæl vegferð er á enda. Við erum þakklát fyrir samveruna. Megi blessun guðs fylgja honum á nýjum slóðum. Samt er í samfylgd sumra manna andblær friðar án yfirlætis, áhrif góðvildar, inntak hamingju, þeim sem njóta nær. (G.B.) Elsku Gigi og fjölskylda, hugur- inn er hjá ykkur. Samúðarkveðjur. Ingibjörg og Hafsteinn. Einari Kristjánssyni kynntist ég fyrst er hann gerðist húsvörður við skólana í Mosfellssveit haustið 1967. Skólabíllinn sótti okkur krakkana úr Mosfellsdalnum fyrst og var þá Einar húsvörður ávallt mættur á undan öllum öðrum. Þótt Einar hefði í mörgu að snúast gaf hann sér oft- ast tíma til að spjalia við okkur krakkana úr Dalnum. Einar hafði búið í Dalnum allmörg ár áður en hann gerðist húsvörður. Eftir því sem árin liðu urðu sam- töl okkar Einars tíðari og ekkert virtist honum óviðkomandi. Hann var óspar á heilræðin og lá ekki á skoðunum sínum. Alltaf var hann þó tilbúinn að hlusta á mínar skoð- anir og viðhorf þó aldursmunurinn væri allnokkur. Hámarki náðu þess- ar samræður okkar Einars veturinn sem ég var í landsprófi, en þá var landsprófsstofan í gamla Brúar- landsskólanum við hliðina á kenn- arastofunni. Á morgnana þegar ég mætti var Einar oftast að Iaga kaffi áður en kennararnir kæmu til vinnu. Nokkrum árum seinna þegar ég hóf að starfa sem sölumaður gáfust aftur kærkomin tækifæri til að heim- sækja Einar, þá í nýjan og stærri skóla sem hann hugsaði um af sömu regluseminni og myndarskapnum og gamla Brúarlandsskólann. Eftir að við hjónin stofnuðum fyr- irtækið Rekstrarvörur kom Einar oft við hjá okkur til að versla fyrir skól- ann sinn og ekki hvað síst til að gefa góð ráð og athuga hvort þetta gengi ekki þokkalega hjá stráknum. Hinn 4. janúar 1989 urðum við hjónin fyrir því áfalli að húsið að Réttarhálsi 2, þar sem fyrirtæki okkar er staðsett, brann í einum stærsta bruna sem orðið hefur í Reykjavík. Ýmsir vinir og vanda- menn voru þá snöggir tii að koma og hjálpa til við björgun verðmæta, hreinsun, flutning og annað sem þurfti að gera til að koma starfsemi fyrirtækisins sem fyrst af stað aft- ur. Að öllum öðrum ólöstuðum stóð Einar Kristjánsson þar fremstur í flokki og lagði óbeðinn harðast allra að sér við björgunina. Einar Kristjánsson var í mörg ár einn af virkustu meðlimum Odd- fellowstúkunnar Hallveigar. í einni af „eftirlitsferðum" sínum til okkar í Rekstrarvörur sagði Einar við mig að sér virtist reksturinn vera kom- inn á góðan rekspöl og að nú væri tími til kominn að ég gerði eitthvað fleira en að vinna. í stöðugri við- leitni sinni til að gera mann úr stráknum sagðist hann vilja fá að mæla með því að ég yrði tekinn inn í Hallveigu. í október 1987 var ég tekinn inn í Hallveigu fyrir tilmæli Einars. Hallveigarbræður tóku þessum nýja bróður einstaklega vel og hef ég þar eflaust notið þess að koma inn í stúkuna í skjóli vinar míns Einars Kristjánssonar, en margir okkar kæru bræðra héldu að ég væri sonur hans. Að lokum vil ég fyrir hönd okkar Siggu þakka þér, Einar Kristjáns- son, samfylgdina og votta eftirlif- andi eiginkonu þinni, börnum, barnabörnum og öðrum aðstandend- um samúð okkar. Kristján Einarsson. • Fleiri minningargreinar um Einar Matthías Kristjánsson bíða birtingar ogmunu birtast í blað- inu næstu daga. Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, SIGURGEIR ÓSKAR SIGMUNDSSON, , Grund, Flúðum, verður jarðsunginn frá Skálholtskirkju laugardaginn 15. febrúar kl. 13.00. Jarðsett verður í Hruna. Rútuferðir verða frá BSÍ kl. 11.00 með viðkomu á Selfossi. Sólveig Ólafsdóttir, Guðbjörg Sigurgeirsdóttir, Magnús Gestsson, Ólafur Ingi Sigurgeirsson, Sigrfður Björnsdóttir, Sigmundur Sigurgeirsson, Einar Logi Sigurgeirsson, Arnheiður Sigríður Þorvaldsdóttir og barnabörn. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÁRNÝ SVEINBJÖRG ÞORGILSDÓTTIR, Leifsgötu 24, Reykjavik, verður jarðsett frá Hallgrímskirkju föstu- daginn 14. febrúar kl. 13.30. Ósk Valdimarsdóttir, Sigurveig Valdimarsdóttir, Friðrik Andrésson, Guðbjörg Bjarnadóttir, Benedikt Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir og afi, STEFÁN SIGURSVEINN ÞORSTEINSSON frá Horni, Miðtúni 14, Hornafirði, lést 7. febrúar sl. Útförin fer fram frá Hafnarkirkju laugar- daginn 15. febrúar kl. 14. Nanna Jónsdóttir, Halldóra Stefánsdóttir, Jón Stefánsson, barnabörn og fjölskyldur þeirra. + Ástkær eiginmaður, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓSEFFRANSSON, Hjarðarholti 14, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju föstudaginn 14. febrúar kl. 14.00. Aldis Sigurjónsdóttir, Þóra Jósefsdóttir, Kristinn Steinarsson, Sigurjón Jósefsson, Aðalheiður Valdimarsdóttir, Róbert Jósefsson, Guðrún Björnsdóttir, Margrét Jósefsdóttir, Hermann Helgi Traustason og barnabörn. + Ástkær eigimaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, BENEDIKT SIGFÚSSON bóndi, Beinárgerði, Vallahreppi, verður jarðsunginn frá Egilsstaðakirkju laugardaginn 15. febrúar kl. 14.00. Fyrir mína hönd, barna okkar, tengdabarna, barnabarna, barna- barnabarna og systur hins látna, Heiga Bjarnadóttir. Móðir mín og tengdamóðir, KRISTÍN JAKOBSDÓTTIR frá Sogni íKjós, Merkjateigi 7, Mosfellsbæ, verður jarðsungin frá Reynivallakirkju í Kjós, laugardaginn 15. febrúar kl. 14.00. Sætaferð verður frá Umferðarmiðstöð- inni kl. 13.00. Fyrir hönd vandamanna, Hannes Ólafsson, Þórdfs Torfadóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.