Morgunblaðið - 13.02.1997, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
BREF
TEL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Tommi og Jenni
Erfitt að fá þorramat
til Danmerkur
Frá stjórn íslendingafélagsins í
Óðinsvéum:
í BRÉFI dags. 20.12. 1996 (barst
okkur 4.1. 1997) frá Sendiráði ís-
lands í Kaupmannahöfn, var okkur
tilkynnt að ekki væri hægt að fá
þorramat fluttan til Danmerkur þar
sem engir samningar væru fyrir
hendi um innflutning á unnum kjöt-
vörum milli íslands og Danmerkur.
Við höfðum samband símleiðis
mánudaginn 6.1. 1997 til að fá nán-
ari upplýsingar. Okkur var þá til-
kynnt að við gætum gleymt öllum
þorramat að minnsta kosti þetta
árið. Það væru engir samningar og
ekkert útlit fyrir að samkomulag
yrði gert og þar af leiðandi ekki
hægt að flytja matinn inn löglega.
Þetta var meðal annars rökstutt
með því að verslanakeðjan Super
Brugsen hefði reynt að flytja inn
hangikjöt og skyr sem dörisk tolla-
yfirvöld eyðilögðu. Einnig hafði Vi-
gerslev kodforsyning (kjötverslun
sem boðið hefur upp á íslenskt
lambakjöt) lent í því rétt fyrir jól
að dönsk toilayfirvöld eyðilögðu vör-
ur úr heilum gám, þar á meðal svið,
hangikjöt, lifrarpylsu og blóðmör.
Eftir að hafa fengið þessar upp-
lýsingar þótti okkur ljóst að ekki
væri nokkur leið fyrir Islendingafé-
lagið að fá einhverja undanþágu
með hjálp sendiráðsins, þannig að
ættmenni á íslandi voru sett í að
tala við ráðherra. Það varð til þess
að Guðmundur Bjarnason landbún-
aðarráðherra ætlaði að beita sér í
þessum málum og nota tækifærið
til að ítreka bréf sem hann hafði
sent til utanríkisráðuneytisins.
Við pöntuðum húsnæði og mat
og til stóð að bjóða upp á „danskt
hlaðborð" svona til að hafa upp á
eitthvað að bjóða. (Það var að sjálf-
sögðu búið að panta hljómsveit frá
íslandi.) Miðvikudagskvöldið 15.
janúar fréttum við svo af því að
búið væri að útvega undanþágu fyr-
ir að minnsta kosti eitt íslendingafé-
lag í Danmörku (fengum afrit af
matseðlinum) og það hefði verið
gert með hjálp Sendiráðsins „okk-
ar“. Þetta voru að sjálfsögðu „góð-
ar“ fréttir nema hvað við vorum
nýbúin að borga staðfestingargjald
fyrir áðurnefndan mat.
Nú standa málin þannig að búið
er að aflýsa „Þorrahátíð" sökum
lélegrar þátttöku og kemur íslend-
ingafélagið til með að taka á sig
þó nokkurn kostnað. Þorrablót er
annars það sem hefur risið hæst á
dagskrá íslendingafélagsins í Od-
ense.
Þetta er því miður ekki það eina
sem við höfum út á sendiráðið að
setja. Við höfum ekki fengið nýjan
konsúl þrátt fyrir að Harald heitinn
Hansen hafi verið jarðsettur í bytjun
janúar 1996. Til stóð að ekkja hans
tæki við og hún var látin skrifa
undir pappíra þar að lútandi. Síðan
leið og beið og loksins kom tilkynn-
ing: því miður hún er of gömul. Síð-
an hefur ekkert gerst í því máli.
íslendingar búsettir á Fjóni gátu þar
af leiðandi ekki kosið til forsetakosn-
inga nema með því að keyra til Jót-
lands (nánar tiltekið Fredericia) og
það eiga alls ekki allir bíl.
Nú er eflaust einhver sem hugsar
að það séu nú bæði tii lestir og rút-
ur, en því skyldum við eiga að gjalda
fyrir sofandahátt annarra?
Opinber heimsókn forseta íslands
til Danmerkur var heldur ekki aug-
lýst nógu tímanlega. Við fengum
upplýsingar um komu hans mánu-
dagskvöldið 6. janúar sl. (við þurft-
um að koma upplýsingum til félags-
manna ÍFO) og opið hús var í Kaup-
mannahöfn mánudaginn 13. janúar
milli kl. 17 og 19, sem er ofan í
kaupið ekki góð tímasetning fyrir
aðra en þá sem búsettir eru í Kaup-
mannahöfn.
Við erum full bjartsýni og ætlum
okkur að sækja strax um undanþágu
fyrir innflutningi á þorramat fyrir
árið 1998. Við höfum sem sagt lært
það að treysta ekki á aðstoð sendi-
ráðs „okkar“ í Danmörku því það
virðist eingöngu starfa fyrir Kaup-
mannahöfn.
Ofan á allt þetta bætist svo að
erfitt hefur verið að fá prestinn út
á landsbyggðina. Þó skal það viður-
kennt að hann messar alltaf hjá
qkkur um jólin, þ.e. 26. des. er frá-
tekinn fyrir Óðinsvé.
Odense í febrúar 1997,
fyrir hönd stjórnar íslendingafé-
lagsins í Odense:
GUÐRÚN ÞÓRÐARDÓTTIR,
INGA LÁRA SIGURJÓNSDÓTTIR,
REYNIR KRISTJÁN SSON,
A. KOLBRÚN ÁRNADÓTTIR,
EYRÚN BALDVIN SDÓTTIR,
KRISTINN HELGISNORRASON,
AGNAR BENT BRYNJÓLFSSON.
Fylkjum liði gegn
fíkniefnum
Frá Ómari Smára Ármannssyni:
REYNSLA okkar íslendinga og
flestra annarra þjóða af ávana- og
fíkniefnum er slæm. Afleiðingarnar
eru stórkostlegt samfélagsvanda-
mál með öllum þeim hörmungum
sem því fylgir. Mikið og lengi hefur
verið rætt um aðgerðir gegn ávana-
og fíkniefnum hér á landi. Nú virð-
ast ráðamenn og margir aðrir loks
vera að átta sig á því að fé almenn-
ings hljóti að vera betur varið til
að spyma við fótum, samhæfa og
sameina krafta opinberra aðila, fá
fólk til að draga úr neyslu, hafa
jákvæð áhrif á viðhorf almennings
og reyna að breyta ástandinu til
hins betra í stað þess að sætta sig
við að sífellt meiri þörf á fjölgun
meðferðarúrræða, byggja stofnanir
og þurfa síðan í framtíðinni að
standa straum af rekstri þeirra með
óheyrilegum kostnaði.
Ástæða er til að fólk um land
allt taki þessa viðleitni ráðamanna
alvarlega og fylki liði um þá sem
vilja vinna að fíkniefnalausu samfé-
lagi.
ÓMAR SMÁRIÁRMANNSSON
aðstoðaryfírlögregluþjónn.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.