Morgunblaðið - 13.02.1997, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 13.02.1997, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Bernhard Jóhannesson TÓMAT- og agúrkuplöntur í uppeldi. Annatími garðyrkju- bænda genginn í garð Borgarfirði - Þegar sól hækkar á lofti á þorra fara garðyrkjubænd- ur að koma tómat-, agúrku- og paprikuplöntum sínum út i gróð- urhúsin en þá hafa plöntumar verið í uppeldi undir ljósum síðan í desember. Það er nokkur vinna að koma öilum þessum plöntum fyrir á sinn stað og binda þær upp. Flestir sem rækta í moldaijarðvegi hafa notað tímann í vetur til að sjóða jarðveg- inn og búa hann undir ræktunar- tímabilið en það er mikilvægt að vanda vel undirbúning vinnunnar því lengi býr að fyrstu gerð. Morgunblaðið/Silli ARNGRÍMUR Amarson, íþróttamaður Húsavíkur 1996. íþrótta- maður Húsavíkur 1996 Það þykir misgott rauðvínið, það ræðst af jarðvegi og sólfari hvernig mjöðurinn bragðast. Eins er það með grænmetið, ekki er sama hvort það er ræktað í jarðvegi sem búið er að með- höndla eftir kúnstarinnar regl- um eða hvort ræktað er í stein- ullarmottum eða í fötum með vikri í. Grænmetisneysla íslendinga er 44,4 kg á mann á ári. Til að ís- lendinga verði jafn duglegir öðr- um Evrópubúum í grænmetisáti þurfa þeir að auka neysluna um 20 kg á hvern íbúa. Skipulagð- ar ferðir á Skeiðarár- sand Selfossi - Ferðaskrifstofan Grænn-ís á Selfossi hefur haldið uppi skipulögðum ferðum á Skeiðarársand að undanförnu. Ferðirnar eru á laugardögum og sunnudögum og getur ferðaskrif- stofan tekið á móti 9-42 manna hópum. Ferðirnar eru farnar undir leiðsögn manna sem þekkja vel til staðhátta á sandinum. Grænn-ís hefur til taks bíla sem feija fólkið á sandinn og nú hefur verið ákveðið að hefja einnig ferðir frá Reykjavík, þegar viðr- ar til þess. Að sögn Svans Þorkelssonar framkvæmdastjóra hafa ferðirnar fengið mjög góðar viðtökur. „Það er alveg magnað hversu stórbrot- ið landslagið er á þessu svæði, fólk stendur í andakt þegar það ber sjónarspil náttúruhamfaranna augum,“ segir Svanur. Hann vildi einnig benda fólki á það, sem hefur áhuga að kynna sér aðstæður á sandinum, að fara meðan ennþá er frost i jörðu og svæðið hættulaust. Það er hætta á að loka verði svæðinu þegar fer að hlána í vor. Ferðaskrifstofan Grænn-ís er fyrsta ferðaskrifstofan á Selfossi sem skipuleggur útsýnisferðir af þessu tagi og miðað við viðtök- urnar virðist vera markaður fyrir slíkar ferðum. Morgunblaðið/Sig. Fannar. STÓRBROTIÐ landslagið gerir manneskjuna smáa í samanburði við ísbrotin úr hlaupinu. Morgunblaðið/Silli NÚVERANDI stjórn kvennadeildar Slysavarnafélags Húsa- víkur. Aftari röð frá vinstri: Lilja Sigurðardóttir, Halla Berg- steinsdóttir og Vilborg Sverrisdóttir. Fyrir framan eru Hrönn Káradóttir og Asgerður Þorsteinsdóttir. Kvennadeild Slysa- varnafélagsins á Húsavík 60 ára Húsavík - Kvennadeild Slysa- varnafélagsins á Húsavík minnist nú 60 ára afmælis síns en félagið var stofnað 7. febrúar 1937. „Það er okkur ekki vansalaust, hér í næststærsta þorpi landsins, að hafa allt að þessu staðið utan hjá og ekkert hafist að til styrkt- ar starfsemi slysavarna“, sagði í ávarpi þriggja húsvískra kvenna til kynsystra sinna um stofnun deildar slysavarnafélagsins. Þess- ar konur voru Gertrud Friðriks- son, Auður Aðalsteinsdóttir og Lára Árnadóttir og skipuð þær fyrstu stjórn félagsins auk Mar- grétar Ásmundsdóttur og Guðnýj- ar Pálsdóttir. Fyrstu árin var starfsemi deild- arinnar aða'lega að afla fjár til slysavarna > g voru þá farnar hefðbundar lt:ðir, haldnar kvöld- samkomur, sýnd leikrit, haldin böll og basar og margt fleira gert sem þá skapaði peninga en nú hafa ljáröflunarleiðirnar breyst vegna breyttra tíma og verið að mörgu leyti erfiðar þó árangur kvennanna hafi ekki minnkað. Björgunarsveit stofnuð 1959 Ein mikilvægasta framkvæmd deildarinnar var að koma í fram- kvæmd stofnun björgunarsveitar- innar Garðars árið 1959 og fékk deildin Vilhjálm Pálsson og fleiri áhugamenn með sér til þeirra hluta. Sveitina skipuðu fyrst 18 menn sem störfuðu undir forystu Vilhjálms sem lengi var formaður og er enn starfandi félagi. Mikið og gott samstarf hefur ávallt ver- ið með kvennadeildinni og björg- unarsveitinni „sem þið konurnar hafið fóstrað svo vel og stutt á allan hátt af alhug“, sagði Hann- es Þ. Hafstein eitt sinn í ávarpi til kvennanna. í tilefni þessara tímamóta í sögu kvennadeildarinnar hefur bæjarstjórn Húsavíkur fært henni að gjöf 300 þúsund krónur sem viðurkenningu og þakklætisvott. Núverandi stjórn skipa: Hrönn Káradóttir, formaður, Ásgerður Þorsteinsdóttir, Halla Bergsteins- dóttir, Lilja Sigurðardóttir og Vil- borg Sverrisdóttir. Sveitarstjórnir í Borgarfj ar ðarsýslu álykta um Borgarfjarðarbraut Ósáttir við frest- un framkvæmda Húsavík - Kjörinn hefur verið íþróttamaður Húsavíkur 1996 og þann titil hlaut Arngrímur Arnar- son knattspyrnumaður en næst honum í tilnefningu voru Sigur- björg Hjartardóttir og Jóna Björg Pálmadóttir. Arngrímur hefur æft með Völsungi frá upphafi ferils síns. Hann hóf að leika með meistara- flokki aðeins 15 ára og stóð sig vel og er nú einn af lykilmönnum í liði meistaraflokks. Hann var leikmaður í unglingalandsliðinu 18 ára og yngri og á síðasta ári lék hann með því sex leiki. Auk þess hefur hann leikið níu lands- leiki með 16 ára landsliði. Arn- grímur hefur yfír að ráða mikilli tækni samfara miklum hraða sem er forsenda fyrir góðum árangri í knattspymu. Arngrímur fékk viðurkenningu fyrir að vera góður félagi innan sem utan vallar. Grund - Sveitarstjórnir í Borgar- fjarðarsýslu norðan Skarðsheiðar auk fulltrúa Hvítársíðuhrepps funduðu í Brún 6. febrúar sl. Und- ir liðnum „önnur mál“ var aðalum- ræðuefnið vegalagning Borgar- fjarðarbrautar og framtíð Reyk- holtsskóla. Fundarmenn voru mjög ósáttir við samgönguyfirvöld að fresta framkvæmdum við brúargerð og vegalagningu á Borgarfjarðar- brautinni. Þótt ekki sé sátt um vegstæði í Reykholtsdalshreppi, þá nær Borgarfjarðarbrautin lengra en suður að Flókadalsá. Borgarfjarðarbraut frá Ferstiklu að Kleppjámsreykjum er um 40 km að lengd og tenging Hvanneyr- ar við Borgarfjarðarbraut við Götuás er um 15 km. Vegalengd um hið umdeiida vegstæði Borgar- fjarðarbrautar frá Flókadalsá að Kleppjárnsreykjum er aðeins tæpir 6 km. Eftirfarandi tillaga var sam- þykkt samhljóða: „Sameiginlegur fundur sveitarstjórna í Borgar- fjarðarsýslu norðan Skarðsheiðar, haldin í Brún 6. febrúar 1997, skorar á samgönguyfirvöld að hefjast handa við lagningu Borg- arfjarðarbrautar á vori komanda fyrir það fjármagn sem fyrir hendi er. Liggi ekki fyrir ákvörðun um vegstæði frá Flókadalsá að Klepp- járnsreykjum verði byrjað þar sem fyrir liggur ákvörðun um veg- stæði, sunnan Flókadalsár." Óvissa um framhald skólahalds í Reykholti Eftirfarandi tillaga var sam- þykkt um skólahald í Reykholti: „Sameiginlegur fundur sveitar- stjórna í Borgarfjarðarsýslu norð- an Skarðsheiðar, haldinn í Brún 6. febrúar 1997, lýsir þungum á-hyggjum yfir þeirri óvissu sem ríkir um framtíð skólahalds í Reykholti. Fundurinn bendir á þá miklu þýðingu sem Reykholtsskóli hefur fyrir atvinnu og menningar- mál í öllum Borgarfirði og skorar á alla hlutaðeigendur að vinna að áframhaldandi menntastarfi í Reykholti, héraði og þjóð til heilla." > i i I i í ! i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.