Morgunblaðið - 13.02.1997, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 13.02.1997, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ MENIMTUN Nám fyr- ir raun- greina- kennara VIÐBÓTARNÁM fyrir raun- greinakennara í grunnskóla er í undirbúningi í Kennarahá- skóla íslands (KHÍ). Er um að ræða samstarfsverkefni KHÍ, Háskóla íslands og Reykjavíkurborgar, en auk þeirra leggur menntamála- ráðuneytið fé til verkefnisins. Verkefnastjóm hefur hafið undirbúning og segir Guðrún Kristinsdóttir endurmenntun- arstjóri KHÍ að stefnt sé að því að námið hefjist næsta sumar og því ljúki sumar- ið/haustið 1998. Er um að ræða 15 eininga nám, enda er það mun viðameira en hefð- bundin endurmenntunamá- mskeið hafa verið innan KHÍ. Gert er ráð fyrir að kennarar geti stundað kennslu með námi. Síðustu dagar útsölunnar! Komið og gerið góð kaup á frábærum fatnaði Nýtt kortatímabil Opið kl. 10-18 mánud.-föstud., laugardag kl. 10-16. JOSS Laugavegi 20, sími 562 6062 BÓKHALDSHUGBÚNAÐUR fyrir WINDOWS Sjáðu nýjan frábæran hugbúnað: gn KERFISÞRÓUN HF. “ Fákafeni 11 - Sími 568 8055 www.treknet.is/throun Aðsókn eykst í fjarnám JÓLAPRÓFIN í fjarkennslu Verk- menntaskólans á Akureyri (VMA) vom tekin á 44 stöðum innanlands sem erlendis. 165-170 nemendur stunda fjarnám við skólann, þar af tíu sjómenn á frystitogaranum Sig- urbjörgu ÓLl frá Ólafsfirði. „Það var draumur okkar strax í upphafi að sjómenn tengdust beint frá skipi, því hægt er að tengja mótald í gegn- um farsíma. Úr þessu varð þó ekki fyrr en í janúar sl. og þá að frum- kvæði Björgvins Árnasonar vél- stjóra,“ segir Haukur Ágústsson, umsjónarmaður fjarnámsins og öld- ungadeildar VMÁ. Sjómenn í námi Skipshöfnin er með eina móttöku- tölvu og þar að auki nokkrar tölvur um borð. Með því móti er hægt að vinna og senda verkefnin beint frá borði. „Sem betur fer virðist þetta ganga, þó að sjómennimir lendi utan símasambands öðm hvora. Þeir ná furðugóðu sambandi og við höfum nú þegar fengið nokkur verkefni frá þeim,“ segir Haukur. Nokkrir sjómenn á úthafsskipum era í ijamámi í VMA, hafa þeir þá tölvur um borð án þess að vera með mótald. í þeim tilvikum er reynt að senda nemendum fleiri verkefni í einu, sem duga þeim lengra fram í tímann. Afrita þeir verkefnalausnir yfír á diskettur, sem síðan era sendar í skólann þegar næst er komið í land. „Við notum ekkert annað en tölvu- samband og eram mjög andvíg papp- írsviðskiptum," segir Haukur og út- listar kosti þess að leiðrétta í tölvu. Hann tekur fram að dæmi séu um að skjal nemenda hafí tvöfaldast að lengd vegna leiðbeininga um ítar- efni, hvar hægt sé að fínna reglur um viðkomandi málfræðiatriði o.fl. 2-7 daga að læra á tölvu Fjarkennslan byggir á því að námsefnið sé sem allra hliðstæðast því sem er í framhaldskólanum. Er það gert til þess að sem minnst hætta sé á því að spurningar vakni um námsefnisyfírferð, kröfur og slíkt. Þannig hafa nemendur í fjarná- mi í langflestum tilfellum sömu kennslubækur við höndina og dag- skólanemendur og síðan er vísað í bókina í leiðbeininga- og kennslu- ÖKUUOS Eigum mikið úrval af fram,- aftur- og stefnuljósum í margar gerðir bif- reiða. Fáið nánari upplýsingar hjá sölumönnum okkar í síma 588 2550 Bílavörubúðin FJÖDRIN ífararbroddi SKEIFUNNI2,108 REYKJAVÍK SÍMI 588 2550 "2T Efni í fermingarfötin Snið frá Burda, Þiew Look og Kwivk Sew, auk sníðablaða frá Burda, Knip o.fl. Allt til sauma. FT V/RHA Mörkinni 3, sími 568 7477 Verkmenntaskólinn á Akureyri er kominn einna lengst í fjarkennslu á íslandi. Hildur Fríðriksdóttir heimsótti skólann og komst að því að það nýjasta í náminu er að tölva fer yfír verkefnin og gefnr nemendum ein- kunn. Þetta sparar kennurum tíma og nem- endur taka hraðari framförum en áður. Morgunblaðið/Golli HAUKUR Ágústsson, umsjónarmaður fjarnáms og öldungadeild- ar VMA, átti hugmyndina að fjarnáminu. bréfi. „Kennari veit hvað jafnan vefst fyrir nemendum í námsefninu og útskýrir það sérstaklega í leið- beiningabréfinu,“ segir Haukur. Hann hefur eftir nemendum að það taki þá gjaman aðeins 2-7 daga að komast upp á lag með að vinna í tölvunni, jafnvel þótt þeir hafi ekki unnið áður við tölvu. í flestum tilvikum fá nemendur viku til að vinna verk- efni og leggur Haukur áherslu á að tímamörk séu nauðsynleg. Samkvæmt könnun meðal nemenda era þeir á sama máli. „Innan þessa ramma hafa þeir frjálsar hendur um hvenær þeir vinna, sækja gögnin eða senda þau.“ Hann segir dæmi þess að þar sem tímamörk hafí ekki verið notuð í fjar- kennslu hafí hún dottið upp fyrir. Brottfall í fjarkennslu í VMÁ hefur hins vegar verið lítið, að sögn Hauks. Nemendum hefur fjölgað hratt frá því náminu var komið á laggirnar vorið 1994 en þá vora þeir sautján. Flestir stunda nám í ensku eða um 50 manns en rúmlega 60 áfangar era kenndir í fjarnáminu að þessu sinni. „Grandvallarforsenda fjar- námsins er að nemendur fái kennslu í þeim áföngum sem þeir þurfa, þó svo að aðeins einn sé í áfanganum. Fjarnámið er frábrugðið náminu í öldungadeildinni að þessu leyti.“ Á yfírstandandi önn kostar einn áfangi 10.000, tveir áfangar 18.000 kr. og hver áfangi umfram þá kost- ar 6.000 kr. Inn í þessu er ekki próf- tökugjald, sem nemendur geta þurft að greiða í þeim skóla þar sem próf- ið fer fram. Haukur semur við skól- ann um próftöku en nemendur semja um próftökugjaldið. Haukur Ágústsson segir að ein helsta nýjungin í fjarkennslunni sé gagnvirkar vefæfíngar á veraldar- vefnum. Þær fara þannig fram að nemandi fer inn á vefsíðu, vinnur æfínguna og þegar hann sendir hana frá sér aftur fer tölva sjálfvirkt yfir hana og gefur einkunn. Adam Osk- arsson, kennari við VMA, hefur þró- að kerfíð og er kominn vel á veg með innsetningu efnis í ensku og þýsku. Aðrar greinar eru einnig í vinnslu. „Kosturinn er sá að nem- andinn vinnur mjög sjálfstætt, hann fær boð um hvar villan er. Hann getur því farið aftur yfír æfinguna og iagfært. Þetta sparar kennurum tíma, en það sem skiptir mestu máli er að nemendur taka hraðari fram- förum því þekkingin festist betur með þessari aðferð. Út frá kennslu- fræðilegu sjónarmiði er mjög æski- legt að nemandi leiti sjálfur skýringa á því hvaða villu hann hefur gert,“ segir Haukur. Sífelld þróun á sér stað í fjarnám- inu. Þannig var tekið upp á haustönn fjarnám í tveimur fögum í meistara- námi í iðngreinum, þ.e. kennslufræði meistara og stjórnun meistara. „Við erum í raun komnir með fjölmargar bóklegar greinar sem meistarar þurfa að taka,“ segir Haukur. „í framhaldi af þessu hef ég mikinn hug á að taka fleiri starfsgreina- tengda áfanga á næstu önnum. Jafn- framt langar mig stórlega til að koma upp námskeiðahaldi í fjar- kennslunni. Við höfum verið með námskeið fyrir sjúkraliða í öldunga- deildinni og mig langar til að koma á slíkum námskeiðum fyrir aðra slíka hópa, s.s. innan fískvinnslunnar, heilbrigðiskerfisins og fleiri. Get ekki yfirgefið hugmynd Haukur segir að eftir að fjar- kennslan kom til sögunnar hafí hann unnið meira en nokkru sinni áður á ævinni. „Þó að ég hafí verið á síld var vinnudagurinn aldrei eins lang- ur,“ segir hann. Hann nýtur þessa þó greinilega, enda er hér um fóstur hans að ræða. „Maður fær hugmynd og þegar hún er komin á koppinn getur maður ekki hlaupið frá henni, þrátt fyrir að launin séu lítil. Ég fæ greidda sex yfírvinnutíma á viku fyrir umsjón með fjarkennslunni." Opið mánud.-föstud. kl. 10-18. Laugard. kl. 10-14. til l.júní. Kennslumiðstöð KHÍ Hugmynda- banki um neyt- endafræðslu STOFNAÐUR hefur verið hug- myndabanki um neytendafræðslu fyrir grunn- og framhaldsskóla, sem hefur aðsetur í Kennslumjðstöð Kennaraháskóla íslands (KHÍ). Að sögn Brynhildar Briem lektors við KHÍ er þetta fyrsti vísir að því að koma neytendafræðslu inn í skól- ana. Dæmi um verkefni sem kenn- arar gerðu var að flokka sorp, búa til pappír, verkefni um heimilisbók- hald auk nokkurra veggspjalda. Hugmyndabankinn er afrakstur þriggja daga námskeiðs sem um 30 kennarar - flestir af grunn- skólastigi en einhveijir af fram- haldsskólastigi - sóttu í neytenda- fræðslu. Tijdrög námskeiðsins vora þau að KHÍ fékk 200 þús. kr. styrk frá Norrænu ráðherranefndinni til að efla neytendafræðslu í skólum. Hugmyndin er að neytenda- fræðslan tengist öllum námsgrein- um. „Námskeiðið var viðleitni til að koma neytendafræðslunni af stað og ég tel að peningunum hafí verið vel varið á þennan hátt,“ sagði Brynhildur. Hún taldi að þátttaka á námskeiðinu hefði örvað kennar- ana til að gera verkefni, sem þeir hefðu ella ekki látið vinna. Hugmyndabankinn er opinn fyrir alla sem áhuga hafa á neytendamál- um. Morgunblaðið/Golli KENNARAR við skólann eru Soffía Vagnsdóttir og Jóhann Boga- son auk Odds Albertssonar skólastjóra. Lýðskólinn í nýtt húsnæði endum hveiju sinni en samþætting og þemavinna er ráðandi vinnu- form. Lýðskólinn vill skapa lýð- ræðislegt samfélag þar sem þegn- arnir bera ábyrgð á umhverfi sínu og afla sér þekkingár á tilverunni svo stór sem hún er hverju siimi. Með nýju húsnæði skapast möguleiki á nýju námsefni, þ.e. matargerð. Mun skólinn starf- rækja „grænt eldhús“ og ein þemavikan af tólf fer í verkefni tengt því umhverfisátaki. Þeir sem standa að Lýðskólan- um eru Reykjavíkurborg (Náms- flokkar Reykjavíkur), mennta- málaráðuneytið, Rauði krossinn og Norræna húsið. LÝÐSKÓLINN, „skóli án veggja“ hóf starfsemi sina nú í vikunni í húsnæði við Bústaðaveginn, þar sem áður var Bústaðaskólinn. Er skólinn ætlaður ungu fólki sem ekki hefur náð að fóta sig í hefð- bundnu framhaldsskólakerfi. Enn- fremur eiga einstæðar mæður greiða leið inn í skólann. Skólinn hefur aðstöðu til að taka við 24 nemendum á aldrinum 17-23 ára og enn eru nokkur laus pláss fyrir stúlkur. Að sögn Odds Albertssonar skólastjóra hefur skólinn að þessu sinni fengið fjármagn til að starfa í fjóra mánuði eða fram til 15. maí. Verkefni eru sniðin að nem-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.