Morgunblaðið - 13.02.1997, Blaðsíða 33
32 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997 33
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
JAFNRÆÐII
ATVINNULÍFI
AVEGUM Verzlunarráðs hefur verið tekin saman afar athygl-
isverð skýrsla um jafnræði í atvinnulífi á milli opinberra
aðila og einkaaðila, sem lögð verður fram og rædd á Viðskipta-
þingi í dag. í skýrslu þessari er gerð ítarleg grein fyrir hlut
hins opinbera í efnahags- og atvinnulífi landsmanna. Þar kemur
fram, að útgjöld hins opinbera eru um 38% af vergri landsfram-
leiðslu, að áætluð velta opinberra og hálfopinberra fyrirtækja
sé um 30% af heildarveltu atvinnufyrirtækja í iandinu, að 13
af 50 stærstu fyrirtækjum landsins eru í opinberri eigu og loks
að um þriðjungur af íslenzkri efnahagsstarfsemi er í lokuðu
umhverfi, þar sem ríkið hefur yfirburðastöðu og samkeppni er
lítil. Þar eru m.a. nefnd fjarskipti, póstdreifing, fjármálaþjón-
usta o.fl.
í skýrslu starfshóps Verzlunarráðsins er bent á, að samkeppn-
isstaða einkarekstrar og ríkisrekstrar sé yfirleitt mismunandi.
Þar er nefnt sem dæmi, að opinber fyrirtæki eru oft undanþeg-
in opinberum gjöldum. Stofnfé þeirra hefur verið lagt fram af
skattborgurum. Sumir opinberir aðilar hafi trygga tekjustofna
á fjárlögum. Mismunandi reglur gildi um reikningsskil o.sv.frv.
I skýrslunni segir m.a.: „Með því að viðhalda mismunandi
samkeppnisstöðu er farið gegn hinni svokölluðu jafnræðisreglu
með því að meðhöndla sams konar aðstöðu á mismunandi hátt.
Einstökum fyrirtækjum er veitt óeðlilegt forskot, sem ekki bygg-
ir á gæðum vöru eða þjónustu heldur á þeim hlunnindum, sem
þeim eru veitt, af hinu opinbera, umfram keppinautana. Á þenn-
an hátt er samkeppni skekkt og markmið samkeppnisreglna
gert að engu.
Af þessu leiðir, að kostir frjálsrar samkeppni fá ekki notið
sín. Vegna skorts á fullnægjandi samkeppni mun innbyggt óhag-
ræði verða á viðkomandi atvinnusviði. Hvati til þróunar og nýj-
unga verður minni en ella og minna svigrúm til samkeppni í
verði og gæðum, neytendum til tjóns. Að síðustu má nefna, að
samkeppnisforskot vegna ójafnræðis á milli opinberra aðila og
einkaaðila verður ekki til af sjálfu sér. Skattgreiðendur borga
fyrir forskot viðkomandi fyrirtækja. Sú greiðsla er annaðhvort
í formi minni tekna eða aukinna útgjalda fyrir hið opinbera.
Að auki fellur á þá kostnaður, sem neytendur, vegna hins inn-
byggða óhagræðis sem minni samkeppni veldur.“
Starfshópur Verzlunarráðsins bendir á ýmsar leiðir til úrbóta
og nefnir fyrst einkavæðingu en jafnframt segir í skýrslunni:
„Einkavæðing er hins vegar engin trygging fyrir því, að sam-
keppni blómstri, einkum ef hið einkavædda fyrirtæki hefur einok-
un eða er markaðsráðandi á viðkomandi markaði. í slíkum tilvik-
um þarf að grípa til hliðaraðgerða samhliða einkavæðingunni,
s.s. að opna fyrir samkeppni þar sem einokun hefur ríkt.“ Að
öðru leyti er bent á útboð, hlutafélagavæðingu ríkisfyrirtækja
o.fl.
Það er fagnaðarefni, að Verzlunarráðið hefur tekið þetta mál
upp með þessum hætti og að Viðskiptaþing er helgað þessu
málefni. Það er óþolandi í hve ríkum mæli lítil einkafyrirtæki
hafa átt undir högg að sækja í samkeppni við opinber fyrir-
tæki, sem í sumum tilvikum hafa beitt afli í samkeppni við einka-
fyrirtækin. Vonandi verða þær umræður, sem leiða af skýrslu
Verzlunarráðs og viðskiptaþingi til þess, að aukin áherzla verði
lögð á að jafna samkeppnisskilyrðin í íslenzku atvinnulífi.
VÍSINDALEGAR
RANNSÓKNIR RLR
RANNSÓKNUM á meðferð sakamála hefur fleygt mjög fram
á síðustu árum. Lögregluyfirvöld hafa æ oftar tekið nýj-
ustu vísindarannsóknir í sína þágu og er nú svo komið að hvers
konar líkamsvessar, sem afbrotamenn skilja eftir sig, eru eins
og fingraför voru áður. Með svokölluðum DNA-rannsóknum er
hægt að heimfæra gögn að ákveðnum einstaklingi og þannig
getur lögreglan annaðhvort sannað að hinn grunaði hafi verið
að verki, eða þá sýnt fram á sakleysi grunaðs manns.
í Morgunblaðinu í gær var frá því skýrt að lokið væri viðamik-
illi og nákvæmri rannsókn á voveiflegu dauðsfalli manns í Hafn-
arfirði í lok síðastliðins árs. Grunur beindist að ákveðnum ein-
staklingi og nú hafa DNA-rannsóknir styrkt grun lögreglunn-
ar, þar sem rannsókn á munnvatni, sem fannst í vindlingastubbi
á vettvangi hefur leitt í ljós að munnvatnið er frá hinum grun-
aða. Ennfremur rannsakaði lögreglan forhlað í skoti, sem hæfði
hinn látna, en forhlað er plata sem aðskilur púður og högl í
haglaskotum. Tæknideild Rannsóknarlögreglunnar sýndi fram
á að för í forhlaðinu á skotinu, sem hæfði hinn látna, voru sams
konar og för, sem haglabyssa hins grunaða myndar, þegar hleypt
er af skoti.
Þessar lýsingar á rannsóknaaðferðum Rannsóknalögreglunn-
ar sýna að hún hefur tileinkað sér nýjustu tækni og tæknileg
rannsóknavinna þar er á háu stigi. Lögreglan á lof skilið fyrir
slík vinnubrögð.
Harðar deilur borgarfulltrúa Reykjavíkur um nýjatillögu að skipulagi Geldinganess
REYKJAVÍK: Aðalskipulag 1990-2010 I REYKJAVÍK: Aðalskipulag 1996-2016
Ibúðabyggð eða athafna
svæði framtíðarinnar?
Tillögnr Reykjavíkurlistans um skipulag Geld-
inganess í endurskoðuðu Aðalskipulagi
Reykjavíkur 1996-2016 hafa verið gagnrýnd-
ar af borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokks. Krist-
ín Gunnarsdóttir kynnti sér nýjar og gamlar
hugmyndir að skipulagi nessins og leitaði
umsagna meiri- og minnihluta í borgarstjórn.
VMSÍ vill færa þriðj-
ung af bónusgreiðslum
yfir í dagvinnutaxta
Morgunblaðið/Halldór
FORYSTUMENN Verkamannasambandsins, Vinnuveltendasam-
bandsins og Vinnumálasambandsins komu saman til fundar hjá
ríkissáttasemjara eftir hádegi í gær.
Landssamband verslunar-
manna ræðir kröfugerð VR
Hentar ekki vel félög-
um á landsbyggðinni
AMKVÆMT tillögu að end-
urskoðuðu Aðalskipulagi
Reykjavíkur 1996-2016, er
gert ráð fyrir allt að 200
hektara iðnaðarsvæði, 50 hektara
hafnarsvæði á Geldinganesi og í
Eiðsvík, og íbúðabyggð á austur-
hluta nessins. í gildandi Aðalskipu-
lagi 1990-2010, er gert ráð fyrir
íbúðabyggð á Geldinganesi, hafnar-
svæði við Eiðsvík og athafnasvæði á
austurhluta nessins. Ekki eru allir
borgarfulltrúar sáttir við þessa
breytingu og segir Gunnar Jóhann
Birgisson, borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokks í skipulagsnefnd, að ljóst sé
að aldrei verði íbúðabyggð á nesinu
þrátt fyrir að í tillögunni sé tekið frá
svæði, þar sem valið standi um
íbúðabyggð eða athafnasvæði í fram-
tíðinni. Segir hann að í raun miðist
tillagan við að hægt sé að nálgast
malarnámur á nesinu. Guðrún Ág-
ústsdóttir, formaður skipulagsnefnd-
ar, segir að ásókn í athafnalóðir í
borginni hafi aukist stórlega og að
Geldinganes sé í raun eina stóra at-
hafnasvæðið, sem eftir er innan
borgarmarkanna. Vísa hafi þurft frá
fyrirtækjum sem sótt hafa um lóðir.
Framtíðarbyggingarland
í tíð sjálfstæðismanna í borgar-
stjóm var efnt til hugmyndasam-
keppni árið 1990 um framtíðarskipu-
lag á Geldinganesi og var nesið kynnt
sem framtíðarbyggingar-
svæði fyrir 7-8.000 manna
byggð. í verðlaunatillög-
unni var gert ráð fyrir
þjónustu-, verslunar- og
félagskjarna á hábungu
nessins, þar sem reisa átti þriggja
til sex hæða íbúðarhús. Neðan við
hábunguna var gert ráð fyrir hverfi
rað- og einbýlishúsa innan við hring-
veg, sem leggja átti um nesið en
með ströndinni og utan hringveg-
arins var breitt ósnert strandbelti til
útivistar og göngustígur ofan sjávar-
hamranna. Samkvæmt Aðalskipu-
lagi 1990-2010, sem nú hefur verið
endurskoðað, var lagt til að Geld-
inganes tæki við af Hamrahlíðar-
löndum og kæmi til úthlutunar eftir
5—7 ár eða upp úr aldamótum.
í skýrslu verkefnisstjórnar, sem
skipuð var fulltrúum Aflvaka
Reykjavíkur hf. og Reykjavíkurborg-
ar, frá miðju ári 1995, um forkönnun
á sérsvæði fyrir orkuiðnað í Reykja-
vík er fjallað um Geldinganes og þar
er komist að þeirri niðurstöðu að
vænlegasti staðurinn fyrir uppbygg-
ingu á sérstöku iðnaðarsvæði, allt
að 200 hektarar að stærð, sé á Geld-
inganesi og í Eiðsvík. I áætluninni
er gert ráð fyrir að reist verði sæ-
strengsverksmiðja í fyrsta áfanga
en vafasamt er talið að ráðast í
umfangsmiklar framkvæmdir og
setja þar á stofn atvinnurekstur fyrr
en komin sé vegtenging yfir í Klepps-
vík. Verkefnisstjórnin lagði meðal
annars til að tryggt yrði við endur-
skoðun aðalskipulags Reykjavíkur,
að gert yrði ráð fyrir að Geldinganes-
ið yrði nýtt sem iðnaðar-
svæði og íbúðabyggð í ná-
grenninu yrði takmörkuð.
Jafnframt var lagt til að
fram færi könnun á lík-
legri þróun vinnumarkaðar
og iðnaðarstarfsemi næstu 10-15
árin og að gert yrði hermilíkan af
nesinu með færanlegri staðsetningu
mismunandi stóriðjuvera auk ann-
arrar iðnaðarstarfsemi.
Stórt samfellt athafnahverfi
og erlendir fjárfestar
í greinargerð með tillögu að end-
urskoðuðu Aðalskipulagi Reykjavík-
ur 1996-2016 segir að til lengri tíma
sé Geldinganes-Eiðsvík besti kostur-
inn í borginni til að byggja upp stórt
samfellt athafnahverfi og þjónustu í
tengslum við flutninga- og iðnaðar-
höfn og þjóðbraut til og frá borg-
inni. í öðrum athafnahverfum sé
ekki að finna 10 hektara eða stærri
lóðir í tengslum við höfn, sem hentað
gæti stærri atvinnurekstri, til dæmis
fyrir erlenda fjárfesta. Bent er á að
í Eiðsvík sé mikið dýpi og skýlt fyr-
ir úthafsöldu, þannig að víkin sé kjör-
in til hafnargerðar frá náttúrunnar
hendi. Á Geldinganesi mætti sjá fyr-
ir sér mjög fjölbreyttan rekstur og
þjónustustarfsemi auk íbúðabyggð-
ar, sem nýtti sér aðgang að orku,
svo sem rafmagni, heitu og köldu
vatni og gufu. A austanverðu nesinu
gæti verið ýmiss konar þjónusta sem
tengdist íbúðabyggðinni þar og á
Borgarholti eins og til dæmis smá-
bátahöfn og veiðibryggja.
Aðalgrjótnámssvæðið
Fram kemur að dýrmæt jarðefni
eru á nesinu, grjót og möl, sem þyrfti
að nýta við hafnargerð í Eiðsvík og
við fleiri framkvæmdir. í undirbún-
ingi sé gijótnám á vegum Reykjavík-
urhafnar vegna uppbyggingar Eyja-
garðs við Orfirisey. Er því haldið
fram að Geldinganes gæti orðið aðal-
gijótnámssvæðið 'fyrir Reykjavík og
nágrannasveitarfélögin næstu ára-
tugina. Eiðsvíkurhöfn þurfi uppland
á láréttum fleti inn á Geldinganesi
og yrði gijótnámið því á miðhluta
nessins, innan marka hafnar- og
athafnasvæða. Jafnframt segir að í
samvinnu við Aflvaka hf. hafi verið
unnar frumtillögur um hvernig nýta
megi námurnar í áföngum fyrir at-
vinnustarfsemi, þannig að mannvirk-
in sjáist sem minnst frá byggð auk
þess sem skýlt verður fyrir veðrum
og vindum.
Getum ekki vísað
fyrirtækjum frá
Guðrún Ágústsdóttir, formaður
skipulagsnefndar, segir að Geldinga-
nes sé í raun eina stóra athafnasvæð-
ið, sem eftir er í borginni og að besti
hluti nessins, suðurhlutinn, hafi allt-
af átt að fara undir höfn. „Ásókn í
athafnalóðir hefur stóraukist," sagði
hún. „Við höfum þurft að vísa frá
fyrirtæki eins og Marel, þar sem við
áttum ekki nægilega góða lóð til að
bjóða þeim innan borgarmarkanna.
Borgin verður að geta byggt upp
atvinnustarfsemi innan sinna vé-
banda og getur ekki vísað þeim sem
sækja um atvinnulóðir í nágranna-
sveitarfélögin. Þess vegna er ákveðið
að taka hluta af Geldinganesinu frá.“
Benti hún á að tillagan gerði ráð
fyrir að fresta ákvörðun um hvort
stærsti hluti nessins ofan hafnar-
svæðisins yrði athafnasvæði í fram-
tíðinni eða íbúðasvæði. „Ég vil taka
það skýrt fram að þarna er átt við
athafnasvæði en ekki iðnaðarsvæði,“
sagði hún og benti til samanburðar
á Ármúla og Skeifuna sem dæmi um
athafnasvæði.
íbúðabyggð austast
Tillagan gerir ráð fyrir að stofn-
braut og tengingin frá Kleppsvík
yfir á nesið verði flutt inn-
ar á nesið miðað við nú-
gildandi skipulag og frá
íbúðabyggðinni í Borgar-
holti og við Leirvog og er
gert ráð fyrir 5-700
manna íbúðabyggð austast á nesinu.
„Með þessu móti er hægt að friða
Leirvoginn og hafa íbúðabyggð
umhverfis hann allan," sagði Guð-
rún. „Það þýðir að aðstæður fólks
í Borgarholti og þeirra sem vilja
njóta útivistar á svæðinu munu gjör-
breytast. Ég tel að þessi ákvörðun
okkar ásamt því að leggja niður
Hlíðarfótinn sé mesta umhverfisbót
aðalskipulagsins.“
Guðrún sagðist efast um að Geld-
inganesið væri besta byggingar-
landið innan borgarmarkanna eins
og haldið hafi verið fram. Sagði hún
að mjög vindasamt væri á nesinu
og að náttúrufar væri mun meira
aðlaðandi í Hamrahlíðarlöndum
austan við Vesturlandsveg við Úlf-
arsfell og í Grafarholti, þar sem
áður var gert ráð fyrir iðnaðarsvæði
en hefur nú verið breytt í íbúðar-
húsabyggð samkvæmt nýju tillög-
unum.
Ósáttir við breytingarnar
Gunnar Jóhann Birgisson sagði
að hafa bæri í huga að aðalskipulag
væri endurskoðað á fjögurra ára
fresti þannig að í megindráttum
gætu allir verið sáttir við endurskoð-
að Aðalskipulag 1996-2016 að und-
anskildum þeim þáttum, sem stæði
til að breyta. „Við erum ósáttir við
þær lausnir, sem menn eru með í
dag í þeim málum, þar sem virkilega
þurfti að taka á hlutunum," sagði
hann. „Það er ákveðin þróun á þessu
20 ára aðalskipulagstímabili og það
þarf alltaf á fjögurra ára fresti að
bregðast við breyttum aðstæðum.
Og við teljum að R-listinn sé að
bregðast ranglega við í þeim málum
sem mestu máli skipta.“
Sagði hann að sjálfstæðismenn
væru mjög ósáttir við breytingarnar
á Geldinganesi, þar sem lagt er til
að í stað 6 þús. manna íbúðabyggðar
kæmi iðnaðar- og athafnahverfi. „í
upphafi skipulagsvinnunnar lagði
R-listinn til að þessu yrði breytt í
iðnaðar- og athafnasvæði en þegar
við fórum að gagnrýna það, þorðu
þeir ekki að standa við sín eigin orð
og lögðu til að þetta yrði valkvætt
á skipulagstímabilinu, það er að
segja annaðhvort iðnaðar- og at-
hafnasvæði eða íbúðabyggð," sagði
hann. „Ef hinsvegar er lesið í skipu-
lagið kemur berlega í ljós að þarna
verður engin íbúðabyggð. Eftir að í
ljós kom að þarna er mjög gott fyll-
ingarefni á að breyta Geldinganesi
í námur og mér finnst eins og tillög-
ur R-listans snúist fyrst og fremst
um hvernig hægt er að ná fyllingar-
efninu úr Geldinganesi."
Falin umhverfisspjöll
Gunnar Jóhann vitnaði í greinar-
gerð með skipulagstillögunum, en
þar kemur fram hugmynd um að
grafa inn í nesið stór „Ásbyrgi" til
að fela umhverfisspjöll sem yrðu á
nesinu. „í stað þess að námurnar
séu sýnilegar eiga þær að hverfa inn
í nesið og síðan á að byggja athafna-
hverfin inni í þessum Asbyrgjum,"
sagði hann. „Ég tel þetta algerlega
óviðunandi tillögur og í raun ekki
skipulagstillögur sem maður getur
ímyndað sér að séu uppi á Islandi
árið 1997 heldur frekar á tímum
iðnbyltingarinnar á Bretlandi."
Gunnar Jóhann telur að færsla
stofnbrautarinnar innar á nesið sýni
einnig og sanni að íbúðabyggð verði
ekki á nesinu. Með því að færa
brautina grafi hún nesið í sundur
en eftir standi bútur austast á nes-
inu sem ætlaður sé fyrir íbúða-
byggð. „Þeir sérfræðingar, sem
tóku þátt í hugmyndasamkeppninni
á sínum tíma um Geldinganesið sem
íbúðabyggingasvæði, voru flestallir
sammála um að þessi hluti nessins
væri langverst fallinn til íbúða-
byggðar," sagði hann. „Þetta er því
tillaga, sem menn eru að bræða
saman á síðustu stundu til að reyna
að fela hvað þarna er virkilega á
ferðinni. Við höfum líka gagnrýnt
að með því að færa stofn-
brautina færist þetta 125
hektara hafnarsvæði inn-
ar á nesið og yfir allan
suðurhlutann. Það er því
ljóst að á Geldinganesi
verður einungis iðnaðar- og at-
hafnasvæði. Af hverju ætlum við
ekki að fylgja þeirri stefnu, sem við
höfum fylgt undanfarin ár, að
byggja með ströndinni? Þetta er síð-
asta svæðið, sem Reykjavíkurborg
á sem liggur að sjó og því var lýst
í samkeppninni árið 1990 sem ein-
stöku byggingarsvæði hvað varðaði
legu, náttúru, umhverfi og útsýni
en nú ætla menn að færa alla byggð-
ina upp á heiði og byggja athafna-
starfsemina með sjónum. Ég tel það
séu engin rök fyrir því að gera þessa
breytingu.“
ATVINNUREKENDUR hafa nú til
skoðunar nýjar hugmyndir sem full-
trúar Verkamannasambandsins
lögðu fram í gær um launabreyting-
ar í fiskvinnslunni. Tillögur VMSÍ
ganga út á að færa um þriðjung
kaupaauka fiskvinnslufólks inn í
dagvinnulaunin með tilfærslu 60
króna úr bónusnum á hveija vinnu-
stund yfir í tímakaupið, sem myndi
leiða til umtalsverðrar hækkunar á
yfirvinnu og hugsanlega á öðrum
álagsgreiðslum fiskvinnslufólks,
sem reiknaðar eru út frá dagvinnu-
kaupi.
Viðræður héldu áfram í gærdag
í undirnefndum og á milli samn-
inganefnda VMSI og samtaka
vinnuveitenda um launabreytingar
í fiskvinnslufyrirtækjum. Fulltrúar
samningsaðila hittust af og til yfir
daginn við útfærslu hugmynda sem
vinnuveitendur kynntu í fýrradag.
Eftir hádegi komu samninganefnd-
irnar svo saman hjá ríkissáttasemj:
ara en þar lögðu fulltrúar VMSÍ
fram nýju tillögurnar um að færa
kaupauka í fiskvinnslunni að stór-
um hluta inn í tímakaup.
Þýðingarmikill þáttur
kjaraviðræðnanna
Síðdegis í gær fóru vinnuveitend-
ur yfir tillögurnar til að reikna út
kostnaðarauka fyrirtækjanna af til-
færslu bónusgreiðslna í tímakaupið
og hvaða áhrif það hefði á ýmsar
álagsgreiðslur í fyrirækjunum.
Vinnuveitendur höfðu lagt til að
samið yrði um mismunandi útfærsl-
ur þessa í einstökum fyrirtækjum
en munu þó ekki vera andvígir því
að leið VMSÍ verði farin með þeim
fyrirvara að þær leiði ekki til launa-
kostnaðarhækkana í fiskvinnslunni.
Einnig eru vinnuveitendur með fyr-
irvara um hversu langt sé skynsam-
legt að ganga við að draga úr vægi
afkastahvetjandi launakerfa á borð
við bónusgreiðslur.
Niðurstaðan þýðingarmikil
fyrir framhald kjaraviðræðna
Ssamkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er litið svo á að niður-
staða þessara viðræðna sé mjög
þýðingarmikil fyrir framhald kjara-
viðræðna á almenna vinnumarkað-
inum.
VIÐRÆÐUR samninganefndar
Sambands íslenskra bankamanna og
samninganefndar bankanna um
launalið væntanlegra kjarasamninga
eru komnar í gang af töluverðri al-
vöru, að sögn Friðberts Traustason-
ar, formanns SÍB. Steingrímur Her-
mannsson seðlabankastjóri, sem sæti
á í samninganefnd bankanna, segir
að enn sé mikill hægagangur á við-
ræðunum og töluvert beri í milli
samningsaðila, „en ég hef oft séð
verri dæmi,“ segir hann.
Samninganefndimar komu saman
í gær og að sögn Friðberts lagði
samninganefnd bankanna fram hug-
myndir um að reynt verði að ná samn-
ingum sem hefðu að markmiði
3%-4% kaupmáttaraukningu á ári.
„Hins vegar vilja þeir ekki festa sig
í prósentuhækkunum á þessu stigi.
Við höfum hins vegar sagt þeim að
í okkar kröfugerð um 14% launa-
Ekki var tekin formleg afstaða til
kröfugerðar Verslunarmannafélags
Reykjavíkur á fundi samninga-
nefndar Landssambands verslunar-
manna í fyrrakvöld. Ingibjörg R.
Guðmundsdóttir, formaður sam-
bandsins, sagði að nefndin hefði
ekki lokið umfjöllun um kröfugerð-
ina. Hún myndi bíða og sjá hver
þróunin yrði í kjaraumræðu næstu
daga.
70% í sumum félögum eingöngu
á taxtakaupi
Ingibjörg sagði að samsetning
margra verslunarmannafélaga á
landsbyggðinni væri mjög ólík VR.
Dæmi væru um félög þar sem 70%
félagsmanna væru á taxtakaupi, en
hjá VR væri staðan önnur. Hjá þess-
„Menn verða að taka
sig á og hækka lægri
launin,“ segir Stein-
grímur Hermannsson
hækkun sé reiknað með 2 1/2% til
3% verðbólgu og að kaupmáttaraukn-
ingin yrði nær 5% á ári,“ segir hann.
Friðbert segir enn óleyst hvernig
þessar hugmyndir aðila verði útfærð-
ar. „Við viljum ekki koma upp nefnd-
afargani til að skoða stöðuna á hálfs
árs fresti, heldur frekar koma því
þannig fyrir að við hveija kauphækk-
un verði miðað við neysluverðvísi-
töluna. Ef forsendur standist ekki
verði það bætt. Það er í umræðunni
okkar í milli að reyna að fínna ein-
hveija slíka leið. Við höldum hins
vegar stíft við þá kröfu að þeir sem
eru undir 100 þúsund kr. hækki
um félögum hentaði sú aðferð sem
VR vildi beita ekki mjög vel. Samn-
inganefndin hefði ekki hafnað leið
VR, en það væri þó ljóst að það
þyrfti fleira að koma til ef menn
vildu feta sig eftir henni.
Jóhann Geirdal, formaður Versl-
unarmannafélags Suðurnesja, tók
undir með Ingibjörgu og sagði að
staða verslunarmannafélaganna á
landsbyggðinni og VR væri um
margt ólík og þess vegna væri ekki
víst að félögin gætu farið eins að
við gerð kjarasamninga. í því fælist
enginn áfellisdómur yfir kröfugerð
VR. Kröfurnar tækju mið af sam-
setningu félagsins og það þyrfti
samninganefnd landssambandsins
einnig að gera.
aukalega um 7%, hvernig sem því
verður við komið,“ segir hann.
Bankarnir taka undir sjónarmið
forsætisráðherra
„Af okkar hálfu hefur verið rætt
um þau sjónarmið sem forsætisráð-
herra hefur sett fram um ákveðna
kaupmáttaraukningu á næstu árum.
Auk þess hafa undirnefndir verið að
skoða sérstök mál sem varða lagfær-
ingar á samningum og tillögur um
sameiningu launaflokka," segir Stein-
grímur. Hann segir markmiðið um
3-4% aukningu kaupmáttar árlega á
næstu tveimur til þremur árum nokk-
uð rausnarlegt en það væri mjög
ánægjulegt ef það markmið næðist.
„Ég er þeirrar skoðunar að menn
verði að taka sig á og reyna að hækka
lægri launin. Ég fagnaði fýrir mitt
leyti útspili Davíðs Oddssonar," segir
Steingrímur.
Athafnasvæði
ekki iðnaðar-
svæði
Síðasta
svæðið
við sjó
Viðræður bankamanna og viðsemjenda um launalið hafnar af alvöru
Bankarnir vilja auka
kaupmátt um 3-4% á ári