Morgunblaðið - 13.02.1997, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1997 47
Nýjar undirlagsmottur á markaðinn
Spara spæni og
auðvelda þrifnað
HESTAR
Umsjön Valdimar
Kr isti nsson
Miklar framfarir hafa átt sér stað
í gerð hesthúsa á íslandi síðasta
áratuginn og er nú svo komið að
þegar byggð eru hesthús er í
mörgu fylgt svipuðum kröfum og
um íbúðarhús væri að ræða. Víða
má finna vönduð og góð hesthús
þar sem vel fer um bæði hesta og
menn. Ætlunin er að fjalla eilítið
um ýmsa þætti í hesthúsbygging-
um í næstu hestaþáttum. Fyrir
skömmu var skrifað um ástánd í
spónamálum og fer því vel á að
hefja þessa umfjöllun á nýjungum
í undirlagi undir hrossin.
Eftir að ásókn í spæni jókst hafa
margir lagt höfðuðið í bleyti og
velt fyrir sér hvernig megi minnka
spónanotkun án þess að slíkt komi
niður á hreinlæti. Um árabil hafa
verið framleiddar erlendis gúmmí-
mottur sem hleypa vatni í gegnum
sig. Þannig mottur hafa sést hér á
landi en ekki náð neinni útbreiðslu
enda spænir lengi vel verið ódýrari
og auðfengnari. Eftir að breyting
varð þar á hóf Viðar Halldórsson í
Gúmmístofunni á síðasta ári inn-
flutning á þessari gerð gúmmím-
otta. Þær eru framleiddar úr sam-
anpressuðum gúmmíflísum.
Rakadrægnin helsti
kosturinn
Mottumar eru 6 sentimetra
þykkar og er neðri hlutinn, sem að
gólfinu snýr, með hálfgerðu eggja-
bakkalagi þannig að þvag og og
vatn á greiða leið í niðurfallið. Best
er að hafa steypt undirlag undir
motturnar en einnig má hafa þær
á þéttriðinni trégrind. Lykilatriði
er að niðurfall sé undir mottunum
til að taka við þeirri bleytu sem í
gegn kemur. Einnig kemur vel út
að hafa gatað vatnsrör á hæsta
punkti stíunnar meðfram mottun-
um, þannig að hægt sé að sprauta
fersku vatni undir og koma með
því í veg fyrir að þar myndist
stækja. Með því móti er mögulegt
að sprauta undir mottumar þótt
hestar standi á þeim.
Mottur þessar sem hér um ræðir
eru hæfilega mjúkar og fer afar
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
NAUÐSYNLEGT er að hafa góða niðurfallsrás undir mottunum
sem tekur við öllum vökva sem sígur í gegnum þær.
GÓÐAR raufar eru á mottunum neðanverðum og kemur vel út
að hafa gatað vatnsrör á hæsta punkti stíunnar til vökvunar
undir motturnar. Kemur slíkt fyrirkomulag í veg fyrir alla stækju
og bætir loftið í húsinu.
vel um hross á þeim. Þær eru fáan-
legar í einum eða hálfum
fermetra. Þær eru þungar og sitja
því vel þótt best sé að hafa þær
skorðaðar í stíunum. Best er í
þeim efnum að steypa í kringum
þær, en þá þarf að gæta þess að
hafa ekki of þröngt að þeim skorið
því þær þenjast örlítið út þegar
farið er að bieyta þær. Tiltölulega
auðvelt er að saga þær eða skera
í sundur þannig að hægt sé að
sníða þær í stíurnar.
Helsti kostur við þessar mottur
er að sjálfsögðu sá að öll bleyta
sígur í gegn á einni til tveimur
mínútum. Smekksatriði er hvort
notaðir séu spænir þótt vissulega
sé það alltaf skemmtilegra og bæti
andrúmsloftið. Motturnar eru hag-
kvæmar að því leyti að þær spara
spæni verulega og um leið verður
þurrara í stíunum.
Góð lausn í safnstíum
Fyrir þá sem eru með safnstíur
má setja hér fram hugmynd sem
einn hestamaður í Víðidalnum
hefur verið að reyna. Þar er um
að ræða trégrind neðst í stíur undir
spóna og taðsafnið. Haft er um
sentimeters bil á trégrindinni
þannig að bleyta sígi vel niður.
Þegar mokað er út þarf að lyfta
grindinni og hreinsa undan henni,
því alltaf veðst eitthvað af taði og
spónum undir. Best er í þessu
tilviki að hafa steypt gólf með
niðurfalli undir grindunum. Að því
er best verður séð tryggir slík grind
að stíurnar haldist mun þurrari og
þar með sparast spænir.
$
RAÐ/\/ ir^l Y^IKir^AP
„Au pair“ - strax
í útjaðar London vantar barngóðan, dugleg-
an og jákvæðan einstakling í 6 mánuði.
Upplýsingar í síma 552 6605 (Matthildur).
Hreingerningar
Óskum eftir að ráða samviskusaman og
stundvísan starfskraft í alhliða hreingerning-
ar og bónvinnu.
Umsækjendur skulu vera 23ja ára eða eldri
og geta hafið störf sem allra fyrst.
Reynsla æskileg en ekki nauðsynleg.
Umsóknir leggist inn á afgreiðslu Mbl.,
merktar: „H - 200“, fyrir 20. febrúar.
Heilsugæslustöð
Eskifjarðar-
læknishéraðs
Tvær stöður heilsugæslulækna við heilsu-
gæslustöðina í Eskifjarðarlæknishéraði eru
lausar til umsóknar.
Einnig eru lausar til umsóknar:
Afleysingastaða hjúkrunarfræðings,
hálft starf,
staða rekstrarstjóra, hálft starf,
staða móttökuritara, 30% starf.
Nánari upplýsingar veita:
Stefán Óskarsson, formaður stjórnar, í síma
476 1426 eða Svava I. Sveinbjörnsdóttir,
rekstrarstjóri, í síma 476 1630.
Umsóknum skal skilað fyrir 28. febrúar 1997 til:
Stjórnar heilsugæslustöðvar
Eskifjarðarlæknishéraðs,
Strandgötu 31,
735 Eskifirði.
Skrifstofuhúsnæði
til leigu
Til leigu er húsnæði í Skipholti og Bæjar-
hrauni.
Upplýsingar í síma 515 5500.
Atvinnuhúsnæði
Óska eftir að taka á leigu til langs tíma 100
fm upphitað geymsluhúsnæði með inn-
keyrsludyrum á stór-Reykjavíkursvæðinu.
Tilboð sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir
20. febrúar, merkt: „Geymsla - 4372“.
Garðabær
Skfðalyfta
Garðabær auglýsir til sölu toglyftu af tegund
BORER, gerð STAR.
Upplýsingar gefur Gísli Valdimarsson, rekstr-
arstjóri hjá Garðabæ. Sími: 565 8600.
IMauðungarsölur
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Suðurgötu 1, Sauðár-
króki, f immtudaginn 20. febrúar 1997 kl. 10.00 á eftirtöldum eignum:
Bjarnargil, Fljótahreppi, þingl. eigandi Trausti Sveinsson, gerðarbeið-
endur Byggðastofnun, Byggingarsjóður ríkisins, Stofnlánadeild land-
búnaðarins, (slandsbanki hf. og Fljótahreppur.
Borgarmýri 5 og 5a, Sauðárkróki, þingl. eigandi Loðskinn hf., gerðar-
beiðandi Lífeyrissjóður verslunarmanna.
Brúarstigur 1, Brúarlundur, Hofsósi, þingl. eigandi Landís ehf., gerð-
arbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og sýslumaöurinn á Sauðár-
króki.
Litla-Gröf, Staðarheppi, þingl. eigendur Bjarki Sigurðsson og Elín
Haraldsdóttir, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Sauðárkróki.
Nautabú, Hólahreppi, þingl. eigandi Hafdís Gunnarsdóttir, gerðar-
beiðandi Landsbanki (slands.
Suðurgata 11b, Sauðárkróki, þingl. eigandi Jóhannes Jósefsson,
gerðarbeiðandi Samvinnulífeyrissjóðurinn.
Suðurgata 22, Sauðárkróki, þingl. eigandi Sigurður Kárason, gerðar-
beiðandi Gjaldheimtan í Reykjavík.
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki,
10. februar 1997.
KÓPAV OGSBÆR
Kynning
á miðbæjarskipulagi
í kvöld kl. 20.00 mun bæjarskipulag Kópa-
vogs efna ti! kynningar í Listasafni Kópa-
vogs, Gerðarsafni, á tillögu að endurskoðuðu
deiliskipulagi Vesturbakka miðbæjar Kópa-
vogs.
Landsst. 5997021319 VIII
I.O.O.F. 5 = 1782138 = II
I.O.O.F. 11 = 1782138'/2 =
Aðalfundur Verndar
verður haldinn í Skúlatúni 6
fimmtudaginn 20. febrúar nk.
Fundurinn hefst kl. 17.00.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Stjórnin.
\s---7/
KFUM
V
Aðaldeild KFUM,
Holtavegi
Inntökufundur hefst kl. 19.00
með borðhaldi.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustrsti 2
í kvöld kl. 20.30 Kvöldvaka.
Miriam Óskarsdóttir, Rannveig
Höskuldsdóttir og sr. Gunnþór
Ingason sjá um dagskrána.
Happdrætti og veitingar.
Allir hjartanlega velkomnir.
t# UTIVIST
nniaamg mm
Dagsferð 15. febrúar
kl. 8.00 Jeppaferð i Bása,
akstur í snjó.
Dagsferðir 16. febrúar
kl. 10.30 Óttarsstaðir, Lónkot.
Létt ganga með ströndinni.
Kl. 10.30 Skíðaganga, Bláfjöll,
heiðin há, Þrengsli.
netslóð:
http://www.centrum.is/utivist
FERÐAFÉLAG
<S> ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Þorraferð í Öræfasveit 15.-16.
febrúar.
Brottför kl. 8. Fyrir þá sem
misstu af stórgóðri ferð um síð-
ustu helgi er farið aftur. Góð
svefnpokagisting að Hótel
Skaftafelli í Freysnesi, þorra-
hlaðborð innifalið, farið að
Skeiðarárjökli. Skaftafell skoðað
í vetrarbúningi o.fl. Miðar á
skrifst.
Ferðafélag (slands.