Morgunblaðið - 19.02.1997, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR B/C/D
41.TBL. 85.ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
Kossar í Kreml
FAGNAÐARFUNDIR urðu með
þeim Yasser Arafat, leiðtoga
Palestínumanna, og Borís Jelts-
ín, Rússlandsforseta, í Kreml í
gær. Kyssti Arafat forsetann á
báðar kinnar og enni og sagði
heimsbyggðina fagna batnandi
heilsu Jeltsíns. Talið er að með
fundinum viþ'i Rússar freista
þess að ná aukinni aðild að
friðarumleitunum í Miðaustur-
löndum. Hafa áhrif Rússa dvínað
í þessum heimshluta eftir að Sov-
étríkin liðu undir lok en nú eru
þeir áfram um að snúa þeirri
þróun við. Von er á Benjamin
Netanyahu, forsætisráðherra
ísraels, til Moskvu í næsta mán-
uði. Á fundinum í gær þáði Jelts-
ín boð Arafats um að vera við-
staddur hátiðahöld í Betlehem
árið 2000, þegar þess verður
minnst að tvö þúsund ár eru lið-
in frá fæðingu Jesú Krists.
Heitir undan-
þágu frá skatti
Lusnje í S-Albaníu. Reuter.
I TILRAUN til að sefa reiði fólks í
Suður-Albaníu, sem er fullt gremju
út í stjórnvöld eftir gjaldþrot svokall-
aðra pýramída-sjóða, hefur Sali Ber-
isha, forseti Albaníu, heitið íbúum
svæðisins að þeir verði undanþegnir
skattheimtu í tvö ár. Gaf hann þetta
fyrirheit í ávarpi í borginni Lusnje,
85 km suður af höfuðborginni Tir-
ana, í gær.
„Ég gaf fjármálaráðherranum
fyrirmæli um að aflétta skattheimtu
í Lusnje í tvö ár til þess að hjálpa
bændum og borgurum út úr þessu
neyðarástandi,“ sagði Berisha.
Mikil öryggisvarzla
Öryggisvarzla var mikil við heim-
sókn forsetans til borgarinnar. Óein-
kennisklæddir lögreglumenn voru
dreifðir um svæðið sem hann fór um,
og vopnuð lögregla fylgdist náið með
af húsþökum.
í síðasta mánuði, þegar æsingur
vegna gjaldþrotanna stóð sem hæst,
fór varaforsætis-
ráðherra lands-
ins, Tritan
Shehu, til að
ræða vandann
við íbúa Lusnje,
en tókst ekki bet-
ur upp en svo að
hann var tekinn
í karphúsið og
komst aðeins
undan við illan leik.
Nú hefur ekkert lát verið á mót-
mælaaðgerðum íbúanna í meira en
mánuð. Berisha brýndi landsmenn
sína að minnast þess, undir hvaða
kringumstæðum þeir hefðu þurft að
lifa fyrir aðeins fimm árum, þegar
landið hafði verið undir stjórn
kommúnista í 45 ár.
„Ég skil að þið hafið orðið fyrir
miklu tjóni. En gleymið ekki hvemig
líf ykkar var fyrir aðeins fimm árum.
Nú hafíð þið það fjórum sinnum
betra en þá,“ sagði forsetinn.
Bretland og gróð-
urhúsaáhrifin
Meiri nið-
urskurður
útblásturs
Lundúnum. Reuter.
BREZKA ríkisstjómin greindi
frá því í gær, að hún myndi
skera útblástur ósoneyðandi
lofttegunda meira niður fram
að aldamótum en hún hafði
skuldbundið sig til að gera á
Ríó-ráðstefnunni árið 1992.
John Gummer umhverfis-
ráðherra sagðist búast við að
útblástur koltvísýrings, CO2,
sem er helzta „gróðurhúsaloft-
tegundin", yrði á árinu 2000
milli 4 og 8% minni en hann
var árið 1990.
Á Ríó-ráðstefnunni skuld-
bundu þróuðu löndin í heimin-
um, þar á meðal ísland, sig
tii að minnka losun gróður-
húsalofttegunda út í andrúms-
loftið niður að því marki sem
hún var á 1990.
Sali Berisha
Bæli
skrímslis-
ins fundið?
Inverness. Reuter.
SKOZKUR strandvörður sagði í gær
frá því, að hann hefði fundið það sem
hann telur vera leynilegt bæli Loch
Ness-skrímslisins víðfræga. Segist
strandvörðurinn, George Edwards,
hafa uppgötvað með sónartækinu í
báti sínum níu metra breitt hellisop
á botni vatnsins. Segir hann fundinn
marka þáttaskil í leitinni að skrímsl-
inu leyndardómsfulla. „Loksins höf-
um við vísbendingu um hvar „Nessie"
heldur sig, og getum því takmarkað
leitarsvæðið og aukið líkurnar á að
koma auga á hana eða einhvem úr
fjölskyldunni," segir Edwards.
Reuter
Madeleine Albright fundar með utanríkisráðherrum Atlantshafsbandalagsins
Vill sameiginlegt fríðar-
gæslulið NATO og Rússa
Morgunblaðið.Brussel.
MADELEINE Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, setti fram
hugmyndir um sameiginlegt friðar-
gæslulið Atlantshafsbandalagsins
0g Rússlands á fundi utanríkisráð-
herra NATO í Brussel í gær. Þá
viðraði hún einnig hugmyndir um
samráðsvettvang allra aðildarríkj-
anna 16 og Rússlands, auk þeirra
ríkja í Mið- og Austur-Evrópu, sem
óskað hafa eftir aðild að NATO.
Síðari tillagan er talin vera mót-
leikur gegn tillögu sem Frakkar
höfðu áður sett fram um samráðs-
fund fimm stærstu aðildarríkja
bandalagsins og Rússlands, en
henni hefur verið illa tekið af nokkr-
um aðildarríkjum NATO sem finnst
sér vera mismunað. Báðum þessum
hugmyndum Albright var vel tekið
af Javier Solana, framkvæmda-
stjóra Atlantshafsbandalagsins.
Albright varði miklum hluta
ræðu sinnar á fundinum í að reyna
að sannfæra Rússa um að þeim
stæði ekki ógn af stækkun NATO
og um leið reyna að draga úr and-
stöðu þeirra við hana. Hugmynd
hennar um sameiginlegt friðar-
gæslulið NATO og Rússlands er
hluti af tillögu hennar um aukið
samstarf NATO við Rússland.
Sagðist hún sjá fyrir sér sérstakt
samstarfsráð NATO og Rússlands,
sem gripið gæti til sameiginlegra
aðgerða, ef nauðsyn krefði.
Albright greindi einnig frá því
að unnið væri að gerð samnings
milli Rússa og Atlantshafsbanda-
lagsins, sem veitti þeim fyrmefndu
fulla aðild að nýju öryggiskerfi
Evrópu eftir stækkun NATO, ef frá
væri talið neitunarvald.
Albright ítrekaði hins vegar að í
engu yrði hvikað frá áformum Atl-
antshafsbandalagsins um stækkun
til austurs, þrátt fyrir andstöðu
Rússlands. Öll aðildarríki banda-
lagsins væru samstíga á leið sinni
að endanlegri ákvörðun um stækk-
un, sem ráðgert er að taka á leið-
togafundi NATO í Madríd í júlí á
þessu ári.
Halldór Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra, sem sat fundinn fyrir
hönd íslands, sagði að hann hefði
reynst mjög gagnlegur. Hann sagði
jafnframt vera ánægjulegt til þess
að vita að Albright hefði lagt
áherslu á samskiptin yfir hafið og
samvinnu Evrópu og Bandaríkj-
anna, sem og að hún væri staðföst
í því að halda áfram stækkunarferl-
inu og koma samskiptum Atlants-
hafsbandalagsins við Rússland í
gott horf.
■ Aukið samstarf/18
Mandela
með unn-
ustu sér
við hlið
NELSON Mandela forseti
Suður-Afríku kynnir ástkonu
sína, Graca Machel, fyrir
sænsku konungshjónunum í
Höfðaborg í gær. Er það í
fyrsta sinn sem Machel, 51
árs ekkja Samora Machels
fyrrverandi forseta Mósam-
bík, kemur fram með Mand-
ela við opinbert tækifæri.
Varð það suður-afrískum fjöl-
miðlum tilefni vangaveltna
um hvort þau myndu láta
pússa sig saman. Karl Gústaf
Svíakonungur og Sylvía
drottning eru í þriggja daga
opinberri heimsókn í Suður-
Afríku.