Morgunblaðið - 19.02.1997, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 19.02.1997, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HARALDUR Noregskonungur og ólafur Ragnar Grlmsson, foreeti’ íalands, hafa báðir gert fiskveiði- deilur Islands og Noregs að umtals- efni í opinberri heimsókn foreetans. s?Q^íui^> ÞÚ skalt ekki halda að ég láti einhvern kóng segja mér fyrir verkum, hr. Godal. Það segir mér heldur enginn forseti fyrir verkum, hr. Ásgrímsson. Almannavarnaæfingin Samvörður ’97 Þátttaka SÞ og samtaka bj örgnnar s veita rædd FULLTRÚAR hjálparstarfs Sam- einuðu þjóðanna og alþjóðlegra samtaka björgunarsveita (INSRAG) áttu viðræður við Al- mannavarnir ríkisins og fleiri aðila hér á landi um möguleika á að taka þátt í almannavamaæfíng- unni Samverði ’97, sem haldin verður hér á landi í sumar. Á Samverði ’97, sem haldin verður á vegum Friðarsamstarfs Atlantshafsbandalagsins, verða æfð viðbrögð við hörðum jarð- skjálfta á Suðvesturlandi. „Við hjá Almannavörnum leggjum mikla áherzlu á að þessi æfíng verði gerð eins raunveruleg og hægt er. Til þess að það geti gerzt þurfa þeir alþjóðlegu aðilar, sem sinna björgunarstörfum í kjölfar nátt- úruhamfara, að vera með í æfíng- unni,“ segir Sólveig Þorvaldsdótt- ir, forstjóri Almannavama. Sólveig segir að hlutverk starfs- fólks Sameinuðu þjóðanna í björg- unarstarfí vegna náttúruhamfara sé einkum samræming aðgerða. „Stundum þegar náttúrahamfarir verða era margir, sem vilja hjálpa, oft meira af áhuga en getu. Eins býðst oft nóg af björgunarliði, sem hefur getu til að hjálpa, en ekki er þörf á því öllu. SÞ sjá því um að aðstoða heimamenn við að flokka úr og halda svo utan um aðgerðir björgunarliðsins þegar það er komið inn í landið.“ INSRAG era alþjóðleg samtök björgunarsveita, sem stofnuð voru árið 1991 og starfa í tengslum við Sameinuðu þjóðirnar. A þeirra vegum myndi koma björgunarlið hingað til lands. Sólveig segir að sumar þeirra sveita, sem þegar hafa tilkynnt þátttöku í æfíngunni á vegum samstarfsríkja NATO, til dæmis austurrískar og rússneskar björgunarsveitir, séu í INSRAG. Ekki sé því víst að þátttaka í æf- ingunni breytist mikið frá því, sem þegar hafí verið ákveðið. Landsbjörg á einnig aðild að samtökunum, en hefur ekki haft bolmagn til að leggja til björgun- arlið í alþjóðleg verkefni, að sögn Sólveigar. NATO vill fleiri með Sólveig segir að leitað hafí ver- ið álits Atlantshafsbandalagsins á þátttöku SÞ og INSRAG í æfíng- unni. „Við fengum þau svör á fyrsta fundi um æfinguna að eitt af markmiðum æfingarinnar væri að íslendingar æfðu raunveralegt tilfelli og það væri því alveg sjálf- sagt að leyfa öðram að vera með,“ segir hún. Sólveig segir að enn hafi ekki verið ákveðið hvort af þátttöku þessara aðila verði. ------» --» 4--- Samninganefnd Dags- brúnar og Framsóknar Vill aðgerð- ir í febrúar SAMNINGANEFND Dagsbrúnar og Framsóknar fundaði á mánu- dagskvöld og samþykkti eftirfar- andi ályktun: „Samninganefnd Dagsbrúnar og Framsóknar átelur harðlega þann seinagang sem einkennt hefur kjaraviðræður frá upphafi. Samninganefndin skorar á stjórnir Dagsbrúnar og Framsóknar að hefja þegar í stað undirbúning aðgerða, sem komi til framkvæmda þegar í þessum mánuði.“ Tillaga um útvarpsráð Hætti afskiptum af ráðningu fréttamanna MÖRÐUR Árnason og Svanfríður Jónasdóttir, þingflokki jafnað- armanna, hafa lagt fram tillögu um breytingu á útvarpslögum þess efnis að vald útvarpsráðs til af- skipta af ráðningu fréttamanna á fréttastofu Ríkisútvarpsins verði afnumið. Tillöguflytjendumir telja að þessi lög séu arfur frá þeim tíma þegar stjómmálaflokkar voru ráð- andi í fjölmiðlun á Islandi. Nú séu hins vegar breyttir tímar og fag- mennska, menntun og hæfni ráði meiru en meint stjómmálaviðhorf fréttamanna. Þingmennimir telja að með nú- verandi kerfi sé hætta á að blokkir myndist í útvarpsráði um einstaka umsækjendur um fréttamannastöð- ur og undir hælinn sé lagt hvort fagleg hæfni sé látin ráða. Þeir sem ráðnir séu undir þeim kringumstæð- um mæti tortiyggni í starfí og hætt sé við að reynt sé að beita þá pólitískum þrýstingi. Ráðstefna um einkavæðingu Ljóst að einka- væðing er rétta leiðin Birgitta Kantola BIRGITTA Kantola, framkvæmdastj óri hjá Alþjóðafjár- festingastofnun- inni (International Financ- ial Corporation), flytur í dag ávarp á ráðstefnu, sem haldin er á vegum ríkis- stjómar íslands, um mark- aðs- og einkavæðingu. Alþjóðafjárfestinga- stofnunin var stofnuð að upplagi Alþjóðabankans árið 1956 til að ýta undir fjárfestingu í einkageiran- um í fátækum ríkjum. Átti hún að starfa samhliða Alþjóðabankanum, sem var stofnaður til að fjármagna uppbyggingu eftir heims- styijöldina síðari og þróun- arverkefni með því að lána aðildarríkjum. - Hefur hlutverk Al- þjóðafjárfestingastofn un - arinnar breyst frá því að hún var stofnuð? I grundvallaratriðum hefur verkefnið ekki breyst. Stofnuninni var ætlað að ýta undir þróun einkageirans í aðildarríkjum henn- ar og það er enn meginverkefnið. Starfsemin verið sveiflukennd, en í augnablikinu er mikið um að vera hjá okkur enda mikið fjár- magnsstreymi í heiminum. - Þegar talað er um að auka Ijárfestingu í einkageiranum, er þá átt við stuðning við fyrirtæki í viðkomandi landi eða fá utanað- komandi fyrirtæki inn í iandið? Að hluta til snýst málið um að Iána til einkageirans í þróunarríkj- um, en ekki aðeins að lána, heldur einnig hvetja til stofnunar og vaxt- ar fyrirtækja á staðnum. Við ger- um miklu meira en að færa pen- inga inn í viðkomandi land. Við hjálpum fyrirtækjum á staðnum með því að ráðleggja um skipulag, við veitum ráð um það í hvaða verkefnum sé ráðlegt að fjárfesta. Við erum aldrei ein um að lána. Stefna okkar er sú að lána aldrei meira en fjórðung kostnaðar við hvert verkefni. Hlutverki okkar má því líkja við hvata vegna þess að með því að taka þátt í verkefni tryggjum við að fleiri bætist við. Um leið reynum við að sýna frumkvæði með því að ráðast í verkefni, sem aðrir geta síðan endurtekið. Á því sviði hefur okkur gengið vel. Við kom- um mjög við sögu í Suður-Kóreu og Chile, en nú er engin þörf þar fyrir okkur. Við gegn- um því þróunarhlut- verki og þegar við sjáum að einkaframtakið er komið á skrið víkjum við til hliðar. - Getur þú nefnt verkefni, sem lýsa starfsemi ykkar? Við eigum þátt í þúsund verk- efnum í hundrað löndum. Við get- um nefnt fjárfestingarsjóðinn, sem var stofnaður árið 1984 fyrir Suð- ur-Kóreu og var sá fyrsti sinnar tegundar. Nú er þetta gert mjög víða í heiminum og má nota sem dæmi um frumkvæði af hálfu AI- þjóðafjárfestingastofnunarinnar. Dæmi allt annars eðlis væri kona ein, sem selur rósir í Kenýa. Þar er um að ræða lán til eiganda lítils fyrirtækis, sem fékk þá hug- mynd að selja rósir til Evrópu. Stofnunin veitti henni lítið lán og nú blómstra viðskiptin. Á milli þessara dæma, sem eru á sitt hvorum enda litrófsins, en dæmigerð verkefni eru sennilega virkjanir, námur og olíuvinnsla. - Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og ► Birgitta Kantola fæddist í Vasa í Finnlandi árið 1948. Hún útskrifaðist frá verslunarhá- skóianum í Vasa árið 1969 og lauk lögfræðiprófi frá háskól- anum í Helsinki árið 1973. Á áttunda áratugnum starfaði hún hjá tveimur stórum viðskipta- bönkum í Finnlandi. Hún var einnig hjá Alþjóðagjaldeyr- issjóðnum í tvö ár. Arið 1980 gekk hún til liðs við Norræna fjárfestingabankann. 1987 tók hún að sér verkefni fyrir Alþjóð- afjárfestingastofnunina. 1988 sneri hún aftur til fjárfestinga- bankans, og 1991 varð hún fram- kvæmdastjóri hjá honum. Gegndi hún því starfi til 1995 þegar hún var ráðin fram- kvæmdastjóri hjá Alþjóðafjár- festingastofnuninni. Alþjóðabankinn hafa oft verið gagnrýndir fyrir að knýja ríkis- stjórnir til að grípa til harkalegra aðhaldsaðgerða og virða mannlega þáttinn að vettugi. Hvemig svarar þú slíkri gagnrýni? Hér er vitaskuld um að ræða fjár- málastofnanir og áherslan er því á efnahagsþáttinn. En Alþjóðabank- inn og stofnanir hans vanrækja ekki félagslega þáttinn. Auðvitað er hægt að gagnrýna okkur eftir á fyrir ýmsa hluti, sem við höfum tekið þátt í; verkefni sem gengu ekki vel, en það var vitaskuld ekki ásetningur. I upphafí síðasta ára- tugar var hinum fátæku ekki veitt næg athygli og við höfum lært af því. Nú er farið að leggja áherslu á um- hverfísmál, sem _ skipta okkur öll máli. í þeim efnum höfum við líka lært mikið. Ég kom til stofnunarinnar fyrir ári og hef aldrei hitt fólk, sem er jafnhlynnt málstað þróunarríkja og ákveðið í að draga úr fátækt. - Fyrirlestur þinn er um einka- væðingu. Hvers vegna er þessi áhersla lögð á einkavæðingu? Það er einfalt að svara því frá sjónarhóli Alþjóðaijárfestinga- stofnunarinnar þar sem hlutverk okkar er að ýta undir einkafram- takið og fá ríkisstjórnir til að einkavæða. En það er einnig stefna bankans og stofnana hans því að íflestum tilfellum hefurþað reynst góð aðferð til að ná árangri og eftir fall kommúnismans hefur verið Ijóst að það var rétta leiðin. Ég held að í þróunarríkjunum hafi verið fallist á að það sé ein af staðreyndum lífsins að ríkis- stjórnir eigi ekki að vasast í hlut- um, sem einkafyrirtæki geta gert jafnvel eða betur. Vanrækjum ekki félags- lega þáttinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.