Morgunblaðið - 19.02.1997, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 19.02.1997, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Helena Sigur- geirsdóttir and- aðist á Landspital- anum að morgni 9. febrúar síðastlið- inn. Hún fæddist á Drangsnesi á Ströndum 17. april 1935. Foreldrar hennar voru Sigur- geir Askelsson, f. 22.5. 1901, d. 26.5. 1975, og Ólöf Gests- dóttir, f. 22.8. 1907. Systkini Helenu eru Jóhanna, f. 7.11. 1926, býr með móð- ur sinni í Reykjavík, og Garð- ar, f. 11.6. 1948, búsettur í Noregi. Einnig átti hún tvo bræður, sem eru látnir. Helena fluttist til Reykjavíkur með for- eldrum sínum 1940. Hinn 22. júní 1956 giftist Lát Helenu kom okkur vinum hennar öllum á óvart. Fólk, sem er jafnglaðlynt, æðrulaust, góðviljað og gefandi og hún, virðist ekki þess- legt að það sé á förum. Eftir stend- ur ófyllt skarð, tómleiki og söknuð- ur. Það grunaði víst engan, þegar hún fór á spítalann, að hún ætti ekki afturkvæmt til heimilisins hlý- lega, sem hún hafði búið eigin- manni sínum og börnum í Brekku- seli 18. Þar réðu gestrisnin og greiðasemin ríkjum, hver sem í hlut átti. Minningamar um Lenu þyrp- ast að dansandi í ljósinu. Hlátur- mildi hennar og æðruleysi léttu mörgum sporið. Gestrisni hennar bjó mörgum heimili, bæði um stund- . arsakir og um lengri tíma, enda voru þau hjónin samtaka um að Helena eftirlifandi manni sínum, Bær- ingi Guðvarðssyni, múrara, f. 9.6.1928. Þau hafa alltaf búið í Reykjavík, síðast- liðin 14 ár í Brekk- useli 18. Börn þeirra eru: 1) Guðný, f. 12.6.1963. 2) Áslaug, f. 8.6. 1964. Hennar mað- ur er Jóhann Hall- dórsson, sjómaður. Þau eiga þijár dæt- ur. 3) Olöf Jóhanna, f. 11.5. 1970. Hún á tvær dætur. Sonur Bærings fyr- ir hjónaband er Ingi Rafn, með- ferðarfulltrúi hjá SÁÁ, f. 10.3. 1955. Hann á þrjú börn. Utför Helenu verður gerð frá Áskirkju i dag og hefst athöfn- in klukkan 13.30. öllum liði vel þar sem þau áttu heima. Þakklætið fyrir allar góðu stundimar á heimili Lenu og Bær- ings mun lifa í hjarta okkar sem nutum þeirra. Óhjákvæmilega verður skugg- sýnt hjá þeim, sem í ríkustum mæli nutu birtunnar og ylsins, sem af henni lagði. Þannig hlýtur alltaf að vera, þegar það fólk kveður, sem mikil eftirsjón er að. Þess vegna sendum við Ólöfu, Áslaugu, Guðnýju og Inga Rafni sérstakar samúðarkveðjur. Mikilvægt er að koma auga á björtu hliðarnar, sem sækja má huggun til. í ljós kom, að Helena var haldin ólæknandi alvarlegum sjúkdómi. En í huga kristinna manna er dauðinn ekki endalokin, heldur fæðing til fram- haldslífs, þar sem auðlegð hjartans er mælikvarði manngildis. Lítum á atburðina af sjónarhóli eilífðarinnar fremur en þúfunni okkar, sem eftir stöndum á tímans slóð. Var þessi lausn ekki náðargjöf úr því sem komið var? Henni var leyft að fara án þess að þreyta þrautagöngu, sem ella hefði beðið hennar. Enginn þarf að efast um, að þvílíku ljóssins barni sem hún var hlaut að vera tekið opnum örmum í ríki kærleik- ans. Þakkætið fyrir að hafa átt Hel- enu að vini mun búa með okkur svo lengi sem við lifum, þó að hún hafi um stund horfið okkur á huldar lendur þar sem við vonumst eftir að hitta hana aftur, þegar að okkur kemur. „Nú sjáum vér svo sem í skugg- sjá í óljósri mynd, en þá munum vér sjá augliti til auglitis. Nú er þekking mín í molum en þá mun ég gjörþekkja eins og ég er sjálfur gjörþekktur orðinn. En nú varir trú, von og kærleikur þetta þrennt, en þeirra er kærleikurinn mestur." (1. Kor. 13, 12-13) Fyrir hönd systkina Bærings og maka þeirra, Ulfur Ragnarsson, læknir. Mín kæra vinkona Helena, eða Lena eins og hún var gjaman köll- uð, er farin í ferðina löngu. Við höfðum gert okkur vonir um að hún hefði betur í baráttunni við þennan erfíða sjúkdóm en sú von brást, Sláttumaðurinn slyngi hafði betur eins og svo oft. Hún lést eftir stutta legu, aðeins 61 árs gömul. Dauðinn hefur skilið okkur að, en eftir lifír minningin um góða vinkonu og góðar stundir. Það er margs að minnast, á mörgum ámm en við höfum þekkst frá fermingar- aldri. Það sem einkenndi Lenu var glaðværðin, hláturinn og hæfíleik- inn til að sjá spaugilegu hliðamar á tilvemnni. Hún var hrókur alls fagnaðar og vildi allt fyrir alla gera. Ef leitað var til hennar var hún vön að segja: „Komdu bara, ég er með heitt á könnunni." Þegar við vomm ungar bjó Lena á Ægisíðu við Kleppsveg sem þá var nánast fyrir utan bæinn en ég vestast í vesturbænum. Vegalengd- in aftraði okkur þó ekki frá því að hittast og bralla margt saman. Mér er einnig sérstaklega minnisstæð Ítalíuferðin með saumaklúbbnum þar sem Lena var hrókur alls fagn- aðar eins og henni var lagið. Henn- ar á ekki síst eftir að verða sárt saknað í saumaklúbbnum sem hist hefur reglulega í 24 ár. Lena átti fallegt heimili þar sem alltaf var gott að sækja hana heim í faðm fjölskyldunnar. Góð vinkona hefur kvatt þennan heim og ég kveð hana með sökn- uði. Ástvinum hennar votta ég mína dýpstu samúð. Sigmunda Hákonardóttir (Sísí). í fáum orðum vil ég minnast kærrar vinkonu, sem svo óvænt er burt horfin. Flensan sem hún fékk fyrir jólin reyndist annað og meira mein. Lena, eins og við kölluðum hana, lést eftir stutta sjúkrahús- legu. Lena ólst upp í kærleika hjá for- eldrum sínum og systkinum, í húsi þeirra, Ægisíðu við Kleppsveg. Þá var þessi staður eins og sveit, hrein- asta paradís fyrir okkur krakkana. Túnin og íjaran í Vatnagörðunum var aðalleiksvæði okkar. Það er margs að minnast eftir hálfrar aldar kynni. Bernskan svo björt, unglingsárin i glaumi og gleði og alltaf var Lena svo létt- lynd og hrókur alls fagnaðar. Al- varan og ábyrgðin tóku við með giftingu, barnauppeldi, að byggja upp fallegt og hlýlegt heimili með HELENA HÓLM * SIG URGEIRSDÓTTIR t ÁGÚSTA SIGBJÖRNSDÓTTIR frá Vík ■ Fáskrúðsfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Eir 9. febrúar sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðmunda og Gunnar Petersen, Greta og Steinar Petersen, Birna, Gunnar Már og Eva Hrönn. t Ástkaer eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞÓRÐUR JÚLIUSSON verkfrœðingur, Krókabyggð 24, Mosfellsbæ, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 24. febrúar kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er vin- samlegast bent á Hjartavernd. Karen Lövdahl, Jóhanna Þórðardóttir, Rúnar Björgvinsson, Snorri Þórðarson, Inga Jónsdóttir, Hildur Þórðardóttir, Ingemar Báck og barnabörn. -Jt t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÍNA JENSEN frá Kúvíkum, Hrafnistu í Reykjavík, lést á Landspítalanum mánudaginn 17. febrúar sl. Fyrir hönd aðstandenda, Friðrikka Sigurðardóttir, Rut Sigurðardóttir, Pétur Sigurðsson, Kristjana Sigurðardóttir, Hjördfs Sigurðardóttir, Karl Jensen Sigurðsson, Matthildur Sigurðardóttir, Guðbjörg Sigurðardóttir, Friðbjörn Gunnlaugsson, Guðjón Júníusson. Hilmir Sigurðsson, Ágúst Karlsson, Elín Þórdís Björnsdóttir, Tómas Þórhallsson, Sigurbjörn Árnason, Nanna Hansdóttir, Einar Gunnarsson, Hjördís Hjörleifsdóttir, SIGRÍÐUR ÞÓRÐARDÓTTIR tilbúin að hjálpa mér og hugga. Ég vildi að ég hefði getað verið hjá þér síðustu stundimar, en ég veit að þú skilur hvers vegna ég gat það ekki. Elsku amma mín, ég gleymi þér aldrei. Guð- jón og Svandís eiga eftir að sakna þín eins og svo margir aðrir. Amma góða, eins og Svandís sagði alltaf. Guð blessi þig, elsku amma mín. + Sigríður Þórð- ardóttir fæddist í Hraunsmúla í Kol- beinsstaðahreppi 15. september 1907. Hún lést á Elli- heimilinu Grund 10. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Herdís Kristjánsdóttir og Guðmundur Þórður Jónasson. Sigríður hóf sam- búð með Júlíusi Þorkelssyni og eignaðist með hon- um flmm börn sem eru: Svan- dís, f. 17. 10. 1934, Hulda, f. 19.4. 1936, Birna, f. 27.4. 1937, Hrafnhildur, f. 25.1. 1940 og Þráinn, f. 3.3.1946. Bamabörn- in eru 17 og barnabarnabörnin 2L Útför Sigríðar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku amma Sigga. Mig langar að kveðja þig og minnast þín með örfáum orðum, þó að það sé sárt og ég sakni þín svo mikið, elsku amma mín. Þó er ég ánægð því ég veit að nú líður þér vel og þú ert komin til Guðs. Ég er svo þakklát fyrir að hafa átt þig sem ömmu. Alltaf varst þú til staðar þegar ég þurfti og alltaf Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði .sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. (V. Briem.) Bryiya. „Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá að þú grætur vegna þess, sem áður var gleði þín.“ (Spámaðurinn) Elsku amma, nú þegar við kveðj- um þig hinsta sinn, minnumst við allra góðu stundanna sem við áttum með þér. Við áttum margar skemmtilegar stundir saman. Sem börn hlökkuðum við alltaf til að heimsækja þig á sunnudögum. Formáli minningargreina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem Qallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka, og böm, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýs- ingar komi aðeins fram í formá- lanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. eiginmanni sínum Bæringi. Síðar kom að sumarbústaðabyggingum, ferðalögum bæði utan- og innan- lands. í hinum 30 ára gamla sauma- klúbbi Vatnadísunum var margt ráðgert og síðast en ekki síst koma upp í hugann hinar notalegu morg- unstundir sem við áttum saman vinkonurnar, þar sem hin ýmsu mál voru tekin upp og þá oftar en ekki hlegið mikið og hátt. Allt eru þetta dýrmætar minn- ingar sem koma upp í hugann nú þegar sorgin kveður dyra. En þetta eru kærar minningar um kæra vin- konu sem munu lifa áfram. Um leið og við hjónin sendum eiginmanni hennar, móður, börnum, tengdabörnum, bamabörnum og systkinum, okkar innilegustu sam- úðarkveðjur, kveðjum við kæra vin- konu með þakklæti og söknuði og biðjum henni Guðs blessunar. Þín vinkona, Sigríður Guðnadóttir (Sísí). Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt sem dropi breytir veig heillar skálar. Þel getur snúist við atorð eitt, aðgát skal höfð í nærveru sálar. Hve oft leyndist strengur í bijósti, sem brast við biturt andsvar, getið án saka. Hve iðrar margt líf eitt augnakast, sem aldrei verður tekið til baka. (Einar Ben.) Það er hræðilegt að vera í burtu þegar svona gerist. Ég frétti ekki af þessu fyrr en sl. föstudag og mig langar svo heim. Amma var yndisleg kona og ég á margar góðar minningar frá heimili hennar og afa. Hún átti alltaf til bros og hafði mjög góða kímnigáfu. Við sjáumst aftur, amma mín. Til ættingja minna sendi ég sam- úðarkveðjur. Ég vildi óska þess að ég kæmist til ykkar. Hildur Ýr. Þá kom ijölskyldan saman í kaffi. Þú sást alltaf til þess að kaffiborð- ið væri hlaðið kræsingum og frá þér fór enginn svangur út. Væntan- lega eigum við öll barnabörnin og barnabarnabömin þín hlýjar lopa- peysur sem þú pijónaðir handa okk- ur^og erum við ekki svo fá. í minningu okkar ert þú yndis- leg, blíð og góð. Þú barst alltaf hag okkar fyrir bijósti sem og allra annarra. Elsku amma, við kveðjum þig nú með söknuði og sorg. Minning þín mun ávallt lifa í hjörtum okkar. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesú, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgr. Pét.) Ingunn, Markús og Sigríður. Elsku amma mín er dáin. Hún var mér svo kær og stór hetja í mínum augum. Fyrir utan að vera dugnað- arforkur og bráðgreind var hún umhyggjusöm með eindæmum og umhyggjan sem hún sýndi mér alla tíð var slík að það hálfa hefði verið nóg. Amma var hetja af gamla skól- anum, þegar það var dygð að hugsa um aðra á undan sjálfum sér og gefa frekar en að þiggja. Ég veit að guð tekur vel á móti ömmu, því hún var öllum góð og gerði aldrei neinum neitt til miska, besta manneskja sem ég hef þekkt. Þér mun ég aldrei gleyma og alltaf sakna þín, elsku amma mín. Far í friði og þökk fyrir allt og allt. Þú ert fallinn amma okkar kær sem ætíð vildir hjálpa, blessa, styðja. Þinn hinsti blundur megi verða vær við getum aðeins kvatt með því að biðja. Ég minnist þín svo marga góða stund morgna, daga, nætur, kvöld og árin, leiðin best að fara á þinn fund þér fannst það Ijúft að þerra bamatárin. Og nú er okkar hinsta kveðja klökk, það kemur aldrei það sem burt er farið. Við kistu þína hvísla hjörtun þökk, á kerti þínu út er bmnnið skarið. (Ók. höf.) Karl Valur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.