Morgunblaðið - 19.02.1997, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 19.02.1997, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1997 41 Ljósálfar leita nýrra meðlima UÓSMYNDAFÉLAGIÐ Ljósálfar er félag áhugafólks um ljósmynd- un. „Félagið leitar nú eftir fólki með ferskar hugmyndir og áræði til að framkvæma þær. Það er öllum opið, jafnt áhugamönnum sem og atvinnumönnum, segir í I fréttatilkynningu. Félagsmenn verða með kynn- ingu á starfseminni og munu inn- rita nýja meðlimi laugardaginn 22. febrúar frá kl. 14-16 í nýju hús- næði Ljósmyndamiðstöðvarinnar Myndáss, Skólavörðustíg 41. Þá munu félagar í tilefni af ársaf- mæli félagsins verða með ) skyggnu- og ljósmyndasýningu í j sýningarsal Myndáss á sama stað. > Margmiðl- unardiskur frá Islandia > MARGMIÐLUNARDISKUR sem ) Islandia er að leggja lokahönd á || um þessar mundir, mun vera sá fyrsti sinnar tegundar á íslandi. „Diskurinn ræsir sjálfvirkt upp feril sem leiðir notandann beint að netinu, leysir hann því margs- konar vandamál sem notandi_ lend- ir í við notkun netsins. Ásamt þessu inniheldur diskurinn um 300 forrit sem tölvunotendur geta nýtt y sér, má þar m.a. nefna tölvuleiki, , ýmis áhöld, grafísk forrit, hljóðfor- ^ rit, alnetshugbúnað og kerfistól", P segir í fréttatilkynningu frá Islan- dia. Diskurinn er fyrst og fremst hannaður fyrir alnetsnotendur en kemur einnig að góðum notum fyrir þá sem ekki eru tengdir alnet- inu. Ennfremur segir: „Diskurinn _ hefur þá sérstöðu að gagnast bæði Macintosh- og PC-tölvum, | stækkar þar af leiðandi markaðs- | hópurinn til muna og má því gera ráð fyrir að diskurinn endi í flest- um tölvum landsmanna, hvort sem um er að ræða fyrirtækis- eða einkatölvur. Disknum verður dreift án endurgjalds í helstu tölvu- og bókaverslunum lands- ins.“ Diskurinn mun fara á markað 3 í lok febrúar. l Snyrtifræð- ingar þinga NORÐURLANDAÞING snyrti- fræðinga verður haldið í Helsinki, Pinnlandi, dagana 21.-23. febrúar. „Keppni verður í líkamsförðun — og þemað er þjóðareinkenni þitt. Undina Sigmundsdóttir tekur þátt í keppninni fyrir íslands hönd,“ seg- ■ ir í fréttatilkynningu frá Félagi ís- lenskra snyrtifræðinga. FRÉTTIR Astand mannrétt- indamála í Búrma MANNRÉTTINDASAMTÖKIN Amnesty Intemational hafa gefið út ítarlega skýrslu um ástand í mannréttindamálum í Myanmar (Burma). í skýrslunni er gerð grein fyrir handtökum og þvingunarað- gerðum stjórnvalda í garð stjómar- andstæðinga. „Á árinu 1996 er vitað um allt að 2.000 handtökur, vegna stjómmálaþátttöku. Þótt margir hafi verið leystir úr haldi em hundmð manna og kvenna enn í fangelsum af stjórnmálaástæð- um. Allt síðasta ár hefur herfor- ingjastjórnin reynt með öllum ráð- um að koma í veg fyrir að stjórnar- andstæðingar efndu til fundar- halda. Yfirvöld handtaka fólk hóp- um saman, slæm meðhöndlun og NÝLEGA var haldið lögliða- námskeið fyrir björgunarsveit- armenn Slysavarnafélags ís- lands í Mosfellsbæ og Kjalar- nesi. Námskeiðið var haldið í húsakynnum SVFÍ í Mosfellsbæ en leiðbeinendur á námskeiðinu komu frá lögreglunni í Reykja- vík, Eiríkur Beck, varðstjóri og Sævar Gunnarsson, aðalvarð- stjóri. Tilefni námskeiðsins var tvenns konar: Annars vegar er gert ráð fyrir björgunarsveitum við verndunar- og gæslustörf innan skipulags Almannavarna ríkisins og var undirritað sér- stakt samkomulag þess efnis milli almannavarnayfirvalda í Kjósarsýslu og björgunaraðila í héraðinu í febrúar 1996 og var námskeiðið liður í þjálfun sem gert er ráð fyrir skv. þvi sam- komulagi. Hins vegar var tilefnið það að skort hefur skilning björgun- arsveitarfólks á hlutverki lög- reglunnar í almennum björgun- araðgerðum, t.d. þegar maður hrasar í fjallgöngu og lögreglan óskar eftir aðstoð björgunar- SENDIHERRA Ungveijalands hjá Atlantshafsbandalaginu, NATO, í Brussel, András Símonyi, flytur er- indi á hádegisverðarfundi Samtaka um vestræna samvinnu og Varð- bergs á Hótel Sögu á laugardag um væntanlega stækkun bandalagsins til austurs. Gert er ráð fyrir að ákveðið verði á leiðtogafundi NATO í sumar að bjóða Pólveijum, Tékkum, Ungveij- um og ef til vill fleiri þjóðum aðild að NATO en enn er þó deilt um stefn- una í þessum málum í bandalaginu. Rússar hafa lagst eindregið gegn því að fyrrverandi kommúnistaríki í Mið- pyndingar við yfirheyrslur eru tíðkaðar, og hópréttarhöld notuð til að hræða almenning og neita fólki um grundvallarmannréttindi eins og tjáningar- og fundafrelsi. Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna hefur skipað sérstakan eftirlitsmann með mannréttinda- ástandinu í Myanmar, en þrátt fyrir alþjóðlegar skuídbindingar hafa yfirvöld í Myanmar hvorki veitt eftirlitsmanninum né öðrum fulltrúum Sameinuðu þjóðanna lejrfí til að koma til landsins. Mann- réttindasamtökin Amnesty Intern- ational hafa ítrekað reynt að fá rannsóknarleyfi í landinu en án árangurs," segir í fréttatilkynn- ingu frá Amnesty International. sveitar við að koma honum nið- ur úr fjallinu. Þar fer lögreglan formlega með yfirsljórn og slík björgunaraðgerð er lögreglu- mál og slíkt gildir um öll mál þar sem lögreglan óskar aðstoð- ar björgunarsveita. Á námskeiðinu var farið yfir helstu atriði sem lúta að björg- unarsveitarmanninum sem sinnir lögreglustörfum. Farið var yfir helstu reglur varðandi umferðarstjórnun, reglur og aðferðir varðandi handtöku og leysiaðferðir, óróastjórnun (crowd control), helstu þætti sem þarf að hafa í huga þegar vettvangsrannsókn er gerð, helstu þætti sem þurfa að koma fram í skýrslugerð lögreglu- mannsins varðandi atvik sem björgunarsveitir koma að, gæsla óvarðra eigna, líkvarsla - tilgangur hennar og störf ID-nefndar. Einnig var rætt um hlutverk lögreglunnar í al- mennum aðgerðum t.d. við leit að týndu barni eða í snjóflóði þar sem manna væri leitað. Var mönnum kynntur allur aðdrag- andi að útkalli og eftirmáli. og Austur-Evrópu fái aðild og telja að stækkun bandalagsins til austurs sé ógnun við öryggi Rússlands. Símonyi er fæddur 1952, hann eyddi sex árum æsku sinnar í Dan- mörku og er menntaður í hagfræði. Hann vann mjög að stúdentaskiptum Ungveija við ýmis ríki Evrópu og Bandaríkin en árið 1989 gerðist hann starfsmaður utanríkisráðu- neytisins og var um hríð aðstoðar- maður Lázló Kovácz sem nú er utan- ríkisráðherra Ungveijalands. Sendi- herra hjá NATO og Vestur-Evrópu- sambandinu, VES, í Brussel varð Símonyi 1995. Ferðagleði á Hótel Sögu SAMVINNUFERÐIR-Landsýn efna til ferðagleði í tilefni útkomu ferðabæklings ferðaskrifstofunn- ar. Skemmtunin verður haldin í Súlnasal Hótel Sögu fimmtudag- inn 27. febrúar kl. 18.30. Hátíðin hefst með ávarpi fram- kvæmdastjóra Samvinnuferða- Landsýnar, Helga Jóhannssonar. Kvöldverður verður borinn fram og undir borðhaldinu verður lagið tekið við undirleik. Steinunn Ing- varsdóttir hjúkrunarfræðingur mun stjóma fjöldasöng. Kristín Sigurðardóttir og Lilja Hilmars- dóttir kynna ferðamöguleika árs- ins fyrir Káta daga, Kátt fólk og dregið verður í happdrætti. Hljóm- sveit mun síðan leika fyrir dansi. Þar sem færri komust að en vildu á síðustu skemmtun, verða aðgöngumiðar seldir á skrifstofu Samvinnuferða-Landsýnar, Austurstræti 12. Verð aðgöngum- iða er 1.900 kr. Samband móður og barns FYRSTI félagsfundur Félags ís- lenskra háskólakvenna og Kven- stúdentafélags íslands á nýbyijuðu ári verður haldinn fimmtudaginn 20. febrúar nk. kl. 18 í Þingholti, Hótel Holti. Þar flytur Valgerður Ólafsdóttir félagssálfræðingur er- indi um samband móður og bams á íslandi. Fyrirlesturinn byggir hún á tveim rannsóknum, sem hún hefur gert hér á landi á sambandi móður og bams. Valgerður hefur . verið búsett í Bandaíkjunum, í Boston og Chicago, síðastliðin 15 ár. Að venju er fyrirlesturinn opinn öllum meðan húsrúm leyfir. Aðalfundur félagsins var hald- inn 6. febrúar sl. Stjómin var endurkjörin en hana skipa: Geir- laug Þorvaldsdóttir formaður. Aðr- ar í stjórn eru Margrét Sigurðar- dóttir, Brynja Runólfsdóttir, Ásdís Guðmundsdóttir, Áslaug Ottesen, Krisín Njarðvík og Ragnheiður Ágústsdóttir. „Lítill laugardagur“ FYRSTI „litli laugardagurinn" á Nelly’s Café, á horni Þingholts- strætis og Bankastrætis, verður miðvikudagskvöldið 19. febrúar. Kvennahljómsveitin Ótukt mun troða upp en hún er skipuð hljóm- listarkonunum Kiddu, Kristínu Ey- steins, Stínu Bongó ásamt Önnu Möggu og Elízu Kolrössum. Hitaveitu- stokkurinn genginn í MIÐVIKUDAGSGÖNGU sinni 18. febrúar heldur Hafnagöngu- hópurinn áfram að minna á hinn sérstæða berggrunn höfuðborgar- svæðisins. Genginn verður fyrsti áfanginn í ferðaröð sem farin verð- ur frá aðaldælustöð Hitaveitu Reykjavíkur við Bolholt upp að hitaveitutönkunum í Öskjuhlíð og þaðan upp í Mosfellsdal. Fylgt verður hitaveitulögninni eins og kostur er. Svo vill til að þessi leið liggur mikið til samhliða elstu fom- leið landsins, leiðinni sem fyrsta íslenska fjölskyldan myndaði og varð sennilega að þjóðleið um árið 900. Farið verður frá Hafnarhúsinu kl. 20 með SVR inn að dælustöð- inni við Bolholt. Þar hefst gangan kl. 20.30 og aðalhitaveituæðinni fylgt upp í Perlu og þaðan inn undir Élliðaárnar. Þaðan verður hægt að fara með SVR til baka. Guð, garpar, geð- sjúklingar og fleiri Erindi um færeyskar þýðingar FÉLAG íslenskra fræða boðar til fundar með Höskuldi Þráinssyni málfræðingi í Skólabæ, Suðurgötu 26, í kvöld, miðvikudagskvöldið 19. febrúar kl. 20.30. Hann nefnir er- indi sitt Guð, garpar, geðsjúklingar og fieiri. Höskuldur er prófessor í ís- lenskri málfræði við Háskóla ís- lands. Hann mun í erindinu fjalla um nokkrar færeyskar þýðingar, nánar tiltekið þýðingu Mattheusar- guðspjalls, Færeyingasögu og bók- anna Englar alheimsins og I afa- húsi. Hugað verður að völdum setningafræðilegum atriðum í þessum þýðingum og reynt að komast að því að hvaða marki þær endurspegla ólíkar mállýskur og að hve miklu leyti þær eru undir setningafræðilegum áhrifum frá framtextanum. Eftir framsögu Höskuldar verða almennar umræður. Fundurinn er öllum opinn. Þýzkaland og stækkun ESB „ÞÝZKALAND og stækkun Evr- ópusambandsins til austurs," er yfirskrift fundar, sem haldinn verður á vegum Evrópusamtak- anna í kvöld, miðvikudag, í Litlu- brekku við Lækjarbrekku. Frummælandi á fundinum verður dr. Ludger Kúhnhardt, prófessor í stjórnmálafræði við háskólann í Freiburg í Þýzkalandi. Flytur hann erindi sitt á ensku. Fundurinn hefst kl. 20.30 og er öllum opinn. Fundargjald er 500 kr., kaffi innifalið. Biskup aug- lýsir tvö prestaköll BISKUP íslands hefur auglýst lausar stöður sóknarprests í Garða- prestakalli, Kjalamesprófasts- dæmi, og stöðu sóknarprests í Ljósavatnsprestakalli, Þingeyjar- prófastsdæmi. Séra Bragi Friðriksson, sóknar- prestur og prófastur í Garðapresta- kalli, Kjalamesprófastsdæmi, hef- ur sótt um lausn frá embætti sínu frá og með 1. apríl nk. vegna ald- urs. Séra Magnús G. Gunnarsson sem hefur verið sóknarprestur í Ljósavatnsprestakalli, Þingeyjar- prófastsdæmi, hefur sem kunnugt er verið Iqorinn sóknarprestur í Dalvíkurprestakalli, Eyjafjarðar- prófastsdæmi. Umsóknarfrestur er til 17. mars nk. LEIÐRÉTT Sýning á fimmtudag í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær, þriðjudag, um sýningu Kristjáns Guðmundssonar í Ingólfsstræti 8 stóð, að hún hæfist „í dag, fímmtu- daginn 20. febrúar". Sem lesa mátti urðu mistök við birtingu þessarar fréttar, því sýningin hefst á fimmtudaginn, en byrjaði ekki í gær. Beðizt er velvirðingar á þess- um mistökum. ÞÁTTTAKENDUR og leiðbeinendur í lögliðanámskeiðinu. Lögliðanámskeið haldið fyrir björgunarsveitir Fundur um stækkun NATO
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.