Morgunblaðið - 19.02.1997, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
2.927
Sjávarútvegsnefnd Alþingis fundar um stjórnun síldveiðanna
sögðujá
við álveri
AFRAKSTUR undirskrifta-
söfnunarinnar „Álver, já
takk“ sem Áhugafólk um at-
vinnuuppbyggingu á Vestur-
landi hefur staðið að síðustu
daga var afhentur Finni
Ingólfssyni iðnaðarráðherra
í gærdag.
Jón Sigurðsson, verkamaður
og einn aðstandenda söfnunar-
innar, sem afhenti undir-
skriftalistana, sagði að alls
hefðu 2.927 einstaklingar ritað
nöfn sin til stuðnings álveri á
Grundartanga.
Jón segir að farið hafi verið
í gegnum listana til að eyða
tvíritunum og taka spaugara
út af listunum. Til að mynda
var talið vafasamt að enski
knattspyrnumaðurinn Robbie
Fowler hefði gert sér ferð til
íslands til að styðja málstað-
inn.
fleiri þingmenn sögðu að ákvæði
þess um að ekki mætti mismuna
sjúklingum væru ekki nógu skýr,
sérstaklega þar sem ekki væri
sérstaklega tekið fram að ekki
mætti mismuna eftir aldri. Ýmsir
þingmenn töldu einnig að í frum-
varpinu væri ekki nógu langt
gengið í stuðningi við foreldra
veikra barna.
Margrét Frímannsdóttir, for-
maður Alþýðubandalagsins, gagn-
rýndi að í kostnaðaráætlun frum-
varpsins væri aðeins gert ráð fyrir
átta milljóna króna ijárveitingu,
en ekki tekin fram kostnaður við
ýmsar stórframkvæmdir, til dæm-
is byggingu barnaspítala, sem hún
taldi nauðsynlega til að framfylgja
ákvæðum frumvarpsins.
Morgunblaðið/Kristinn
INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra sagði við umræður á
Alþingi í gær að í svonefndri for-
gangsröðunamefnd fyrir heilbrigð-
iskerfið væri ekki stefnt að því að
dýrar og umfangsmiklar aðgerðir
yrðu aðeins gerðar á fólki innan
ákveðins aldurs. Danir hafa meðal
annars farið þá leið að gera ekki
ákveðnar aðgerðir á öldruðum.
Frumvarp til laga um réttindi
sjúklinga er nú til umræðu á Al-
þingi í annað sinn með nokkrum
breytingum. Þingmenn sem til
máls tóku um frumvarpið í gær
fögnuðu því, en stjórnarandstöðu-
þingmenn gagnrýndu ýmis atriði
sem þeir töldu óskýr.
Guðmundur Árni Stefánsson,
Þingflokki jafnaðarmanna, og
Aðgerðir ekki
bundnar við
aldurshámark
Ekkí ástæða til breyt-
inga á úthafsveiðilögnm
SJÁVARÚTVEGSNEFND Alþingis
sér ekki ástæðu til að breyta úthafs-
veiðilögunum vegna nýlegrar
ákvörðunar Þorsteins Pálssonar sjáv-
arútvegsráðherra um að leyfa öllum
skipum veiðar úr norsk-íslenzka sfld-
arstofninum á þessu ári án einstakl-
ingsbundins aflahámarks. Nefndin
ræddj þetta mál á fundi í gærmorg-
un. Árni Ragnar Ámason, varafor-
maður nefndarinnar, segir að ákvæði
laganna endurspegli þó ekki þann
skilning, sem þingmenn hafi lagt í
málin fyrir samþykkt þeirra í desem-
ber og hugsanlegt sé að breyta þeim
í framtíðinni ef hegðun sfldarstofns-
ins breytist.
„Niðurstaða fundarins var alveg
skýr. Nefndin tekur lögin ekki upp
að eigin fmmkvæði og telur þessa
ákvörðun sjávarútvegsráðherra ekki
vera ástæðu til þess. Við sjáum
ekki betur en hún sé í samræmi við
ákvæði laganna," segir Árni.
Veiðar undanfarinna ára ekki
dæmigerðar fyrir framtíðina
Hann segir að íslendingar hafí
ekki veitt úr síldarstofninum lengi
og um hann eigi því ekki við ákvæði
laganna um að miða beri annað
hvort við þriggja ára veiðireynslu
við úthlutun varanlegs kvóta til ein-
stakra skipa eða þá þqu beztu árin
af sex síðustu veiðiárum. „Auk þess
hefur stjómarmeirihlutinn í sjávar-
útvegsnefnd verið þeirrar skoðunar
að um þennan stofn gildi_ alveg sér-
stakar væntingar okkar íslendinga,
þ.e. að hann eigi eftir að ganga inn
í lögsöguna og vonandi í þeim
mæli, sem hann gerði á fyrri áratug-
um. Þá er ljóst að veiðamar, eins
og þær hafa verið stundaðar und-
anfarin tvö ár, eru engan veginn
dæmigerðar um það, sem slíkt gæti
leitt til. Við viljum ekki veita varan-
lega aflahlutdeild í þessum stofni
strax,“ segir Árni.
Endurspeglar ekkí
skilning þingmanna
Hann segir að þrátt fyrir þetta
hafi neftidarmenn verið sammála um
að texti úthafsveiðilaganna end-
urspegli ekki skilning þingmanna,
sem hafi gert ráð fyrir að hægt yrði
að viðhafa sömu aðferð og í fyrra
við veiðistjórnun á sfldarstofninum,
þ.e. að útdeila aflamarki á skip, sem
miðað var m.a. við burðargetu. Ein
ástæða þess að menn vildu hafa
þennan hátt á var að talið var að
frjálsar veiðar myndu hækka sóknar-
kostnað og draga úr aflaverðmæti,
lflct og útgerðarmenn hafa bent á.
„Það er hugsanlegt í framtíðinni
að lögin verði tekin upp af þessari
ástæðu, en við teljum ekki ástæðu
til að fara í sjíka umræðu á þessu
stigi,“ segir Árni. „Það er nánast
ekki unnt að finna leið, sem kemur
til móts við öll sjónarmið."
Hann segir að nefndin hafi verið
samtaka í afstöðu sinni. „Eftir þær
upplýsingar, sem menn fengu, töldu
þéir að lagalegur grundvöllur væri
fyrir þessari ákvörðun. Hins vegar
er hugsanlegt að skoða þurfi málið
betur með tilliti til framtíðarinnar."
Afrýjunarnefnd samkeppnismála staðfestir
úrskurð samkeppnisráðs í máli Póstdreifingar ehf.
Gildir ótvírætt um
Póst og síma hf.
Hlutabréf
í sjávarút-
vegi lækka
í verði
GENGI hlutabréfa í mörgum sjáv-
arútvegsfyrirtækjum lækkaði
nokkuð í viðskiptum á Verðbréfa-
þingi íslands og Opna tilboðs-
markaðnum í gær, eða um allt að
6,7%. Lækkaði sérstök hlutabréfa-
vísitala sjávarútvegs í gær um
2,5%. Gengislækkanir bréfanna
koma í kjölfar fregna um óhag-
stæða útkomu loðnufrystingar á
yfirstandandi vertíð.
Af einstökum félögum má nefna
að hlutabréf Síldarvinnslunnar hf.
lækkuðu um 6,7%, bréf í Granda
lækkuðu um 2,5%, Haraldi Böð-
varssyni um 2,48%, Útgerðarfé-
lagi Ákureyringa um 4%, Vinnslu-
stöðinni um 3,3%, Búlandstindi um
2,6% og Hraðfrystihúsi Eskifjarð-
ar um 4,2%. Hafa ber í huga að
gengi bréfa í mörgum þessara
fyrirtækja hefur hækkað verulega
undanfarna mánuði.
■ Þingvísitalan/15
ÁFRÝJUNARNEFND samkeppn-
ismála hefur í öllum meginatriðum
fallist á niðurstöður og forsendur
í ákvörðun samkeppnisráðs um
erindi Póstdreifíngar ehf. að Póst-
og símamálastofnun hafi misbeitt
markaðsráðandi stöðu sinni í póst-
dreifingu.
Póstur og sími hf. kærði ákvörð-
un samkeppnisráðs sem birt var í
desember sl. í kærunni var dregið
í efa að fyrirmæli samkeppnisráðs
samkvæmt ákvörðuninni beindust
að nýstofnuðu hlutafélagi. Fullyrt
var að megininntak allra ákvarð-
ana, álitsgerða og tilmæla sam-
keppnisráðs sem vörðuðu Póst- og
símamálastofnun hafi verið virt
við gerð frumvarps um póstþjón-
ustu sem tekið hafi gildi um ára-
mót en þá tók hlutafélagið til
starfa.
Af þeim sökum hafi hvorki ver-
ið ástæða né grundvöllur fyrir ráð-
ið að beina fyrirmælum til eða
leggja á hlutafélagið kvaðir eins
og gert hafi verið í ákvörðuninni.
í niðurstöðum áfrýjunarnefnd-
arinnar segir að kvaðir sem lagðar
hafi verið á Póst- og símamála-
stofnun með ákvörðun samkeppn-
isráðs teljist ótvírætt til þeirra
skuldbindinga sem Póstur og sími
hf. tók á sínar herðar með gildis-
töku laga um stofnun hlutafélags
um rekstur Póst- og símamála-
stofnunar 1. september 1996. Fyr-
irmæli tengd ákvörðun samkeppn-
isráðs giltu þess vegna tvímæla-
laust um hið nýja hlutafélag.
Dreifingarskylda staðfest
Áfrýjunamefndin féllst á niður-
stöður samkeppnisráðs að öllu
leyti að undanskildum þeim þætti
ákvörðunarinnar sem laut að
skyldu Pósts og síma hf. um að
verða við ósk Póstdreifíngar að
dreifa pósti á tilteknum stöðum á
sömu kjörum og samkeppnishluti
Pósts og síma hf. nýtur.
Nefndin telur, með vísan til
grunnreglna samkeppnislaga, að
Pósti og síma hf. sé skylt að fram-
fylgja slíkri dreifíngarskyldu
gagnvart hveijum þeim dreifing-
araðila sem þess óskar.
Siglufjörður
Smyglaður
bjór gerður
upptækur ,
Siglufjörður. Morgunblaðið. •
TALSVERT magn af bjór, alls
29 kassar, var gert upptækt á '
Siglufirði um síðastliðna helgi.
Um var að ræða smyglvaming
sem komið hafði til Siglufjarð-
ar með MS Hauki.
Skipið, sem stundar milli-
landasiglingar, var tollafgreitt
á Seyðisfirði en grunsemdir
vöknuðu hjá lögreglunni á
Siglufirði er hún komst að
áfengiskaupum siglfirskra ,
unglinga við skipveria á f
Hauki. "
Kassarnir fundust við leit í
bifreiðum og á heimilum. Hús-
ráðendur voru teknir til yfír-
heyrslu og kom í ljós að varn-
ingurinn var að mestu leyti í
eigu skipstjórans og eins skip-
veq'a. Þó tengdust tveir sigl-
firskir aðilar í landi þessu máli.
Að sögn Guðgeirs Eyjólfs-
sonar, sýslumanns á Siglu-
fírði, telst málið að fullu upp- (
lýst.