Morgunblaðið - 19.02.1997, Side 38

Morgunblaðið - 19.02.1997, Side 38
««88 MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ RAÐAUGi YSINGAR A TVINNUAUGL ÝSINGAR Laugargerðisskóli Kennara vantar til forfallakennslu tíma- bundið frá 1. mars 1997. Allar upplýsingar gefur skólastjóri Laugar- gerðisskóla í síma: 435 6600 eða 435 6601. Eftirlitsstofnun EFTA auglýsir lausar stöður tveggja sérfræðinga og eins skjalavarðar. Meginhlutverk Eftirlitsstofnunar EFTA er að tryggja að EFTA-ríkin standi við skuldbind- ingar sínar samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES) og að þau beiti rétt reglum samningsins um fyrirtæki. Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel ætlar að ráða tvo sérfræðinga í deild, sem annast málefni á sviði frjálsra flutninga manna, þjónustu- starfsemi og fjármagnsflutninga og einn skjalavörð í skjalasafn. Miðað er við að störf hefjist 1. júlí 1997. Laus staða nr. 1/97: Sérfræðingur sem ber ábyrgð á málefnum sem varða: • Fjarskiptaþjónustu, • hljóð- og myndmiðlun, • flutninga á vegum, járnbrautum, skip- gengum vatnaleiðum og á sjó. Laus staða nr. 2/97: Sérfræðingur sem ber ábyrgð á málefnum sem varða: • Öryggi og hollustuhætti á vinnustöðum, • gagnkvæma viðurkenningu á starfs- menntun og hæfi. Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi í lögum eða annarrí grein, sem gerir viðkom- andi kleyft að stunda störf á einu eða fleiri fyrrnefndra sviða. Einnig er krafist nokkurra ára reynslu á að minnsta kosti einu þeirra, helst fjarskiptasviði, hvað varðar stöðu nr. 1/97 og helst á sviði öryggis og hollustu- hátta á vinnustöðum fyrir stöðu nr. 2/97. Æskilegt er að umsækjandi hafi þekkingu á EES-samningnum og löggjöf Evrópusam- bandsins á viðkomandi sviðum og á hlut- verki og starfsemi Eftirlitsstofnunar EFTA og/eða framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins. Laus staða nr. 3/97: Yfirskjalavörður sem ber ábyrgð á skráningu á öllu efni, sem berst stofnuninni og sent er frá henni, sem og innri bréfaskiptum samkvæmt sérhæfðu skjalaskráningarkerfi og jafnframt á skjala- skráningu og vörslu á öllum málaskrám. Ef starfsmaður, sem þegar starfar hjá stofn- uninni, verður ráðinn í stöðuna, kann staða -r* aðstoðarmanns við skjalavörslu eða ritara að losna. Ef umsækjandi hefur áhuga á slíkri stöðu, skal hann geta þess í umsókninni. Eftirfarandi kröfur eru gerðar um allar stöð- urnar þrjár: Fullkomið vald á ritaðri og tal- aðri ensku, sem er opinbert tungumál stofn- unarinnar, svo og þýsku, íslensku eða norsku. Kunnátta í frönsku og reynsla frá alþjóðastofnun er æskileg. Frekari upplýsingar og upplýsingaeyðublöð ^ (nr. /97) fást hjá: Eftirlitsstofnun EFTA, Director of Administration, Rue de Tréves 74, B-1040 Brussel, Belgíu. Sími 00 32 2 286 18 91. Bréfsími 00 32 228618 00. ~ Síðasti umsóknardagur er 28. febrúar 1997. Gula Bókin '97 Ggla bókin 1997 kemur út 28.febrúar nk. 11 árgangur. Gula bókin er frumkvöðull á Islandí i útgáfu upplýsingarita um rekstur og þjónustu fyrirækja fyrir almenning. Ný kynslóð af þessum ritum verður kynnt með útgáfu Gulu bókarinnar 1997. Hjá Gulu bókinni starfa nú að jafnaði 20 manns. Skráning I Gulu bókina 1998 hefst 3.mars nk.. Vegna mikilla verkefna framundan og stækkun bókarinnar hefur verið ákveðið að bæta við nokkrum framtiðarstarfsmönnum. Skráningarfulltrúar á vettvangi og með símaviðtölum: Fulltrúar Gulu bókarinnar heimsækja 20 þúsund fyrirtæki á hverju ári. Þeir yfirfara með rekstraraðilum upplýsingar sem fyrir eru í gagnabanka bókarinnarog skrá leiðréttingar. Þá kynna þeir valkosti öflugri skráninga og auglýsinga. Umsækjendur þurfa að vera vel að sér í íslensku, hafa góða rithönd, góða framkomu, söluhæfileika, bíl til umráða og vera tilbúnir að vinna krefjandi starf sem býður upp á mikla tekjumöguleika og sjálfstæði. Nauðsynlegt er fyrir símaviðtalsfulltrúa að hafa að auki þekkingu og reynslu af innslætti á tölvu. Sölumaður í gagnadeild: Gagnabanki Gulu bókarinnar inniheldpr upplýsingar um 45 þúsund rekstraraðila á íslandi. Ur gagnabankanum eru unnar ýmsar safnskrár sem seldar eru til fyrirtækja. Umsækjendur þurfa að hafa góða innsýn í tölvur, góða framkomu og söiuhæfileika, geta unnið eftir skipulagðri dagskrá, vera sjálfstæðir, hafa góða rithönd og menntun við hæfi. Um nýja stöðu er að ræða þannig að nýr starfsmaður tekur þátt í þróun starfs síns. Umsóknir skulu vera skriflegar ( eiginhandar | og innihalda nauðsynlegar upplýsingar um viðkomandi. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skifstofu okkar að Suðurlandsbraut 20. Umsóknum skal skilað merktar viðkomandi starfi á sama stað fyrir 21. febrúar nk. Viðtöl er hægt að panta i sima 588- 1200 á skrifstofutima. Einbýlishús í Fossvogi óskast Staðgreiðsla íboði Traustur kaupandi hefur beðið okkur að út- vega 250-300 fm einbýlishús í Fossvogi. Bein kaup. Allt greitt strax í peningum og húsbréfum. Æskilegur afhendingartími er 1. júní nk. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Krist- insson. Ahyrg þjónusta í ártugi Sfmi 588 9090 - Síðumúli 21 Sverrir Kristinsson, lögg. fas.e.s. Hella - húsnæði óskast Ríkissjóður leitar eftir kaupum á skrifstofu- og geymsluhúsnæði fyrir Skattstofu Suður- landsumdæmis á Hellu, samtals u.þ.b. 450-500 m2. Æskilegt er að húsnæðið sé á einni hæð og allt aðgengi innan dyra sem utan í góðu lagi með tilliti til fatlaðra. Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, bygg- ingarár- og efni, brunabóta- og fasteigna- mat, afhendingartíma og söluverð, sendist eignadeild fjármálaráðuneytisins, Arnarhváli, 150 Reykjavík, fyrir 28. febrúar 1997. Fjármálaráðuneytið, 17. febrúar 1997. TIL SÖLU Menntamálaráðuneytið Styrkveiting úr Þróunarsjóði leikskóla Auglýst er eftir umsóknum í Þróunarsjóð leikskóla. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að þróunarverkefnum í leikskólum. Með þróun- arverkefnum er átt við nýjungar, tilraunir og nýbreytni í uppeldisstarfi. Um styrk geta sótt sveitarstjórnir/leikskólastjórar/leikskóla- kennarar. Sækja má um styrk til nýrra verk- efna og verkefna sem þegar eru hafin. Um- sókn skal fylgja umsögn viðkomandi rekstr- araðila leikskóla. Styrkumsóknir skulu berast menntamála- ráðuneytinu fyrir 1. apríl næstkomandi á þar til gerðum eyðublöðum sem liggja frammi í afgreiðslu menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. FJðLBRAUTASXÚUNN BRE1ÐH01JI Námskeið fyrir sjúkraliða Tengslamyndun við sjúklinga Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist meira sjálfstraust í samskiptum við skjólstæðinga og samstarfsmenn. Að geta flutt mál sitt áheyrilega, sagt frá og komið hugsun sinni í orð. Námskeiðið er 6 stundir. Kennt verður 26. og 27. feb. nk. í Fjölbrauta- skólanum Breiðholti. Námskeiðið hefst kl. 16.15 báða dagana. Enn eru nokkur sæti laus. Skráning á skrif- stofu skólans og í síma 557 5600. Skólameistari. Konur á Norðurlöndum Velkomnar til Kalmar í Svíþjóð dagana 20.-25. maí 1997. Þá breytist bærinn í móts- stað kvenna frá öllum Norðurlöndunum. Á „Kvinnor sá I Norden“-hátíðinni verður vörusýning, áhugaverðirfyrirlestrar, markað- ir o.m.fl. Laugardaginn 22. febrúar kl. 15.00 verður Lena Garucob, markaðsstjóri hátíðarinnar, með kynningarfund í Kornhlöðunni við Bankastræti í Reykjavík. Allar konur hjartan- lega velkomnar. Sérstaklega hvetjum við konur sem hafa áhuga á að taka þátt í vöru- sýningunni að mæta. Nánari upplýsingar hjá Elínu Antonsdóttur, Iðnþróunarfélagi Eyjafjarðar, í síma 461 2740 og hjá Handverki & hönnun í síma 551 7595. Fiskvinnsla sem starfrækt er á Norðurlandi auglýsir hér með til sölu gelpokaframleiðslu fyrirtækisins. Áætluð eru ca 2-3 stöðugildi við framleiðsluna og myndi hún henta vel til flutnings hvert á land sem er. Framleiðslan þarf ca 80-100 fm pláss. Kaupunum fylgja þau tæki sem þarf til framleiðslunnar, lager og viðskiptamannalisti. Allar nánari upplýs- ingar gefa sölumenn fyrirtækjasölu Hóls. Tilboð Sögunefnd Keflavíkur auglýsir eftir tilboði í prentvinnu við 2. bindi af sögu Keflavíkur. Verklýsing og tilboðsgögn fást hjá Bjarna Guðmarssyni, Hringbraut 47, 107 Reykjavík, sími 552 4435. Tilboðum sé skilað eigi síðar en 27. febrúar 1997. Sögunefnd Keflavíkur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.