Morgunblaðið - 19.02.1997, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Istak bauð 246 milljónir í 1. áfanga Sultartangavirkjunar
Morgunblaðið/Þorkell
FIMM tilboð bárust í fyrsta áfanga Sultartangavirlqunar. Talsverð
spenna ríkti þegar tilboðin voru opnuð.
Lægsta tilboð nam 55%
af kostnaðaráætlun
Virkjanir á ÞjórsáKd^Jungnaársvæði
Suitartangaión Hrauneyjafoss
114 gi ,' J
Sultartangi
120 MWJ '
210 MW + 60 MW
■ Virkjun
k Stffla
— Skurður
— Göng
Ogiiaði
vaktmanní
með
skrúfjárni
VAKTMAÐUR á gistiheimili Hjálp-
ræðishersins við Kirkjustræti kom
að einum gesti heimilisins við pen-
ingakassa í afgreiðslu í fyrrinótt,
og var hann búinn að brjóta upp
kassann og næla sér í nokkurt fé.
Við truflunina dró þjófurinn upp
skrúíjám sem hann hafði notað við
að spenna upp kassann, og hafði
uppi hótanir við vaktmanninn og
háreysti. Eftir nokkrar fortölur skil-
aði hann hins vegar fénu en stökk
á braut áður en hægt væri að hand-
sama hann. Lögreglan handtók hann
síðan í gærmorgun og vistaði í
fangageymslum þangað til hægt
væri að yfirheyra hann, en viðkom-
andi var mjög dmkkinn.
Stútur stakkst inn í garð
Tveir menn vom staðnir að verki
við innbrot, rétt fyrir klukkan hálf-
þijú í fyrrinótt. Þeir vom þá búnir
að brjóta rúðu í fyrirtæki í Sigtúni.
Lögreglan handtók mennina á
staðnum og vistaði þá í fanga-
ge^nnslum, en um góðkunningja lög-
reglunnar er að ræða og áttu þeir
óuppgerð mál að baki á sama sviði
afbrota.
Þá ók maður bifreið sinni í gegn-
um girðingu við hús í Strýtuseli í
Breiðholti um klukkan 5 í fyrrinótt
og hafnaði hann inn í garði við hús-
ið. Bifreiðin skemmdist og sömuleið-
is eigur íbúa hússins, og þurfti að
fjarlægja bílinn með kranabíl. Gmn-
ur leikur á að ökumaðurinn hafí
verið ölvaður.
-----» ♦ ♦--
Kópavogur
6-700 at-
hugasemdir
bárust
UM 6-700 manns skrifuðu undir
athugasemdir vegna tillögu að deili-
skipulagi í vesturhluta miðbæjar í
Kópavogi. Að sögn Birgis H. Sig-
urðssonar skipulagsstjóra, beinast
mótmælin einkum gegn fyrirhugaðri
bensínstöð á gjábakkanum.
Frestur til að skila inn athuga-
semdum rann út 17. febrúar. Birgir
sagði að farið yrði yfir mótmælin á
næstu dögum og erindið síðan sent
til afgreiðslu í bæjarráði og bæjar-
stjórn. Sennilega yrði það tekið fyrir
11. mars í bæjarstjóm.
ÍSTAK hf. átti lægsta tilboð í fyrsta
áfanga Sultartangavirkjunar, en til-
boð í verkið vom opnuð í gær. ístak
bauðst til að vinna verkið fyrir 246,6
milljónir, sem er 55,4% af kostnaðar-
áætlun ráðgjafa Landsvirkjunar. Öll
tilboðin í verkið vom undir kostnað-
aráætlun Landsvirkjunar.
Næstlægsta tilboð áttu Völur hf.
og Lava hf. 277,5 milljónir. J.V.J.
hf. bauðst til að vinna verkið fyrir
279 milljónir, Háfell hf. og Rein sf.
buðu 297,6 milljónir og Suðurverk
hf. bauð 318,8 milljónir. Verkfræði-
stofa Sigurðar Thoroddsen hf., sem
er ráðgjafi Landsvirkjunar, gerði
kostnaðaráætlun fyrir verkið og
hljóðaði hún upp á 445,5 milljónir.
Hagstæð tilboð
„Þetta em mjög hagstæð tilboð
frá traustum og góðum fyrirtækjum.
Lægsta tilboð er 55% af kostnaðar-
áætlun okkar ráðgjafa. Það má því
segja að þessi framkvæmd byrji vel
og lofi góðu um framhaldið," sagði
Halldór Jónatansson, forstjóri
Landsvirkjunar.
Halldór sagði að á næstu dögum
myndi Landsvirkjun fara yfir tilboð-
in og bera þau saman. í framhaldi
af því tæki stjórn Landsvirkjunar
ákvörðun um hvaða tilboði yrði tek-
ið. Stefnt væri að því að undirrita
verksamning um miðjan mars.
Reiknað er með að framkvæmdir
hefjist í apríl, en þeim á að vera lok-
ið eigi síðar en 15. júlí nk. í byijun
mars verða auglýst útboð á öðmm
verkþáttum Sultartangavirkjunar.
Sultartangavirkjun nýtir fall
Þjórsár milli Sultartangalóns og
inntakslóns Búrfellsvirkjunar. Upp-
sett afl stöðvarinnar verður 120
MW í tveimur 60 MW vélasamstæð-
um. Gerð verða 3,4 km göng úr
Sultartangalóni í gegnum Sandafell
að jöfnunarþró og stöðvarhúsi sem
verður niðri í grafínni geil suðvestan
undir Sandafelli og þaðan verður
grafinn frárennslisskurður niður
með farvegi Þjórsár rúmlega 7 km
leið að stíflu og ísskolunarmann-
virkjum Búrfellsvirkjunar ofan
Bjarnalóns. Stefnt er að því að virkj-
unin verði tekin í notkun í október
1999.
Tilboð í Hágöngumiðlun
opnuð eftir helgi
Þessi fyrsti áfangi verksins felur
í sér gröft fyrir stöðvarhúsi og jöfn-
unarþró. Samtals verða grafin 93
þúsund rúmmetrar af lausum jarð-
lögum og sprengdir verða 304 þús-
und rúmmetrar af gijóti.
Að viku liðinni verða tilboð í
Hágöngumiðlun opnuð. Þar er um
mun stærra verk að ræða, en það
er allt boðið út í einu útboði. Gert
er ráð fyrir að samningar um það
verði undirritaðir í lok mars.
Landsvirkjun hefur enn ekki
fengið fulla tryggingu fyrir því að
Járnblendifélagið á Grundartanga
og Columbia Ventures kaupi þá
raforku af Landsvirkjun sem áætl-
anir og samningsdrög gera ráð fyr-
ir. Halldór sagði að vonast væri til
að þetta yrði orðið skýrara um miðj-
an mars en það er í dag.
Halldór sagði ekki ljóst hvernig
Landsvirkjun myndi bregðast við
ef áform um stækkun Jámblendi-
verksmiðjunnar yrðu lögð til hliðar.
Landsvirkjun kynni að þurfa að
endurskoða áætlanir sínar um virkj-
anir. Halldór sagði hins vegar að
fleiri stórir raforkukaupendur hefðu
sýnt áhuga á að kaupa orku af
Landsvirkjun, t.d. Atlantsál, Norsk
Hydro og Magnesíumfélagið.
Skemmdir á slipp-
kantinum á Akureyri
Grænlensk-
ur togari
líklegastur
SJÓPRÓF vegna tjónsins á slipp-
kantinum við Slippstöðina á Akur-
eyri í síðustu viku fóru fram í Héraðs-
dómi Norðurlands eystra í gær.
Eins og komið hefur fram í Morg-
unblaðinu, grófst fylling undan stál-
þili á 20-30 metra kafla og við það
rann fylling innan við þilið út í sjó
með þeim afleiðingum að þekja
bryggjunnar féll niður. Talið er að
tjónið nemi tugum milljónum króna.
Baldur Dýrfjörð bæjarlögmaður á
Akureyri segir að næsta skref í
málinu verði að fara fram á dóms-
kvaðningu matsmanna til að meta
tjónið. Talið er að grafist hafi undan
þilinu þegar verið var að prufukeyra
vél og skrúfubúnað grænlenska tog-
arans Nataarnaq við slippkantinn.
Baldur segir að einnig verði leitað
eftir því hvort útgerð og tryggingafé-
lag Nataarnaq viðurkenni bótaskyldu
og geri þeir aðilar það þarf að semja
um uppgjör tjónsins. „Ef þeir viður-
kenna ekki bótaskyldu sína þarf að
fara í málaferli til að staðreyna það
hvar ábyrgðin liggur, enda er nér
um mikið tjón að ræða.“
Árshátíð laganema
Dómkirkju-
klukkum
hringt í
kveðjuskyni
KIRKJUKLUKKUM Dómkirlrj-
unnar í Reykjavík var hringt á
laugardag þegar laganemar við
Háskóla Islands gengu til veislu
á Hótel Borg frá Alþingishús-
inu, þar sem þeir höfðu verið í
móttöku vegna árshátíðar
þeirra sem haldin var þann dag.
Séra Jakob Ágúst Hjálmars-
son dómkirkjuprestur sagði í
samtali við Morgunblaðið að
það væri gamall siður að klukk-
um væri hringt í kveðjuskyni
þegar skrúðgöngur færu fram
hjá kirkjum. Laganemamir
hefðu farið fram á að kirkju-
klukkunum yrði hringt þegar
þeir gengju frá Alþingishúsinu
yfir að Hótel Borg.
Séra Jakob sagði klukkna-
hringinguna hafa verið kveðju
frá kirkjunni, sem tákn um
langa samleið lögmannastéttar
og kirkju í íslenskri sögu.
Kona sem missti eiginmann og föður þegar Æsa fórst ritar ráðherrum og þingmönnum
Sakar stjórnvöld
um aðgerðarleysi
KOLBRÚN Sverrisdóttir, sem
missti eiginmann sinn og föður þeg-
ar kúfiskskipið Æsa ÍS-87 sökk í
júlí síðastliðnum, hefur farið fram
á við þingmenn og ráðherra að fjár-
munum verði veitt til að lyfta flak-
inu af hafsbotni. í erindi sínu kveðst
hún telja að með slíkum aðgerðum
væri unnt að varpa ljósi á orsök
slyssins og ná í lík mannanna sem
fórust.
Kolbrún kveðst hafa undir hönd-
um upplýsingar um að Rannsóknar-
nefnd sjóslysa hafi óskað eftir til-
boðum í að lyfta Æsu af hafsbotni
og nemi kostnaður samkvæmt til-
boði fyrirtækisins Djúpmynda um
18 milljónum króna.
Hvorki gengið
né rekið
Hún gagnrýnir lágar fjárveiting-
ar til rannsókna sjóslysa og sé til
að mynda Rannsóknarnefnd sjó-
slysa aðeins úthlutað sjö milljónum
króna á ársgrundvelli, sem renni
nær alfarið í skrifstofuhald, launa-
greiðslur og greiðslur fyrir nefndar-
setur, þannig að ekkert fé sé aflögu
til eiginlegra rannsókna.
„Nú eru næstum Iiðnir sjö mán-
uðir og í þessu máli hefur hvorki
gengið né rekið,“ segir hún og
kveðst telja að ekki verði unað við
ríkjandi ástand þessara mála leng-
ur. Umrætt sjóslys hafí orðið í góðu
veðri og sé með öllu óútskýrt og
verði ekki upplýst, miðað við
„óbreytt aðgerðaleysi stjómvalda,
nema með getgátum".
Hún segir að auk neðansjávar-
myndatökunnar á vegum sam-
gönguráðherra, hafi utanríkisráðu-
neytið tilkynnt ættingjum þeirra,
sem fórust þann 13. janúar sl., að
íslensk stjórnvöld hafí formlega far-
ið fram á við varnarliðið, að það
athugi möguleika á að aðstoða við
að ná líkum mannanna. Við því
hafi enn engin svör borist.
Kolbrún segir að henni virðist
málið hafa verið á nokkurs konar
einskismannslandi frá því skipið
sökk, og hafi opinberir aðilar með-
höndlað málið með þeim hætti að
henni virðist upplýsingar varðandi
það eiga að vera sér óviðkomandi.
Ragnhildur Hjaltadóttir, formað-
ur Rannsóknarnefndar sjóslysa,
segir ýmislegt sem fram kemur í
erindi Kolbrúnar á misskilningi
byggt og m.a. greiði ríkissjóður
ekki almennt fyrir upptöku skipa.
Hins vegar greiði tryggingafélögin
á stundum slíkan kostnað, en trygg-
ingafélag Æsu hafi greitt útgerð
hennar á milli 80 og 100 milljónir
króna vegna skipstapsins og teljist
því eigandi flaksins á hafsbotni.
Mörgum spurningum
ósvarað
„Nefndin ræddi mál Æsu og það
er ljóst að mjög mörgum spurning-
um er ósvarað um orsök þessa slyss,
og við þeim fæst væntanlega engin
svörj nema að báturinn sé skoðað-
ur. í því sambandi ákvað nefndin
að kanna kostnað við hugsanlega
upptöku, fyrst og fremst til að at-
huga hvort um væri að ræða viðráð-
anlegar stærðir og hvort upptaka
væri gerleg. Sú könnun leiddi í ljós
að kostnaður myndi nema um 20
milljónum króna og ekki hægt að
ábyrgjast árangur af slíkri tilraun.
Maður hefur gengið undir manns
hönd til að reyna að fá fjármuni til
verksins og ég veit að ættingjarnir
hafa unnið kappsamlega að því
marki, en það hefur því miður ekki
borið árangur. Ríkið getur ekki
sinnt þessu, enda fjármagn ekki
til, auk þess sem slíkt hefði fordæm-
isgildi,“ segir Ragnhildur.
Hún segir að kostnaður við neð-
ansjávarmyndatöku í nóvember hafí
verið greiddur af ríkissjóði og
tryggingafélagi skipsins, samtals
um tvær milljónir króna, og hafi
myndatakan ekki leitt neitt nýtt í
ljós. Óvíst sé að lík mannanna séu
enn um borð í skipinu.
Niðurstöðu að vænta
Ragnhildur segir niðurstöður
nefndarinnar vegna Æsu að vænta
innan skamms, jafnvel í næsta
mánuði.
i
I
»
>
l
í
i
\
\
i
r
I
i
l
r
I
t
i
I
I
l
I