Morgunblaðið - 19.02.1997, Page 12

Morgunblaðið - 19.02.1997, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Eignarhlutur KEA í AKVA USA minnkar úr 70 í 23% Fjárhagur fé- lagsins lagaður EIGNARHLUTUR Kaupfélags Eyfirðinga í AKVA USA, banda- rísku fyrirtæki sem sér um inn- fiutning, dreifingu og markaðs- setningu á Akva-vatni í Bandaríkj- unum hefur minnkað úr 70% í 23% eftir að hlutafé var fært niður. Gripið var til aðgerða á haustmán- uðum, en rekstur fyrirtækisins hef- ur frá upphafi verið erfiður. Ahugavert fyrir hugsanlega fjárfesta Á liðnu ári þótti fyrirséð að sal- an yrði minni en vonir stóðu til og tilraunir til að fá aukið hlutafé í reksturinn báru ekki árangur. í framhaldi af því var efnahagur félagsins endurskipulagður og var markmið aðgerðanna að laga stöðu þess og jafnframt að koma íjárhag fyrirtækisins í það horf að það yrði áhugavert fyrir hugsanlega fjárfesta. Magnús Gauti Gautason kaupfé- lagsstjóri sagði að m.a. hefði starfsfólki verið fækkað, þeir væru nú tveir, kostnaður hefði verið skorinn niður og hlutafé KEA fært niður. „Við erum að reka fyrirtæk- ið með lágmarkstilkostnaði,“ sagði Magnús Gauti. Hann sagði að hlut- deild þeirra sem áttu í fyrirtækinu hefði aukist en nýir fjárfestar enn ekki komið inn í félagið. „Það eru viðræður í gangi við nýja fjárfesta, en lítið hægt að segja á þessari stundu hvert þær leiða.“ Aðgerðirnar kostuðu hvorki KEA né dótturfélag þess, Akva, nein fjárútlát og tapið sem félögin urðu fyrir vegna vatnsútflutnings jókst ekki við aðgerðirnar. Ávinn- ingur þeirra fyrir íslensku félögin, KEA og Akva, er einkum fólgin í því að skuldbindingar sem þau höfðu gert gagnvart áframhald- andi rekstri AKVA USA féllu niður og verður árið 1996 það síðasta sem KEA og dótturfyrirtæki tapa á vatnsútflutningi að sögn kaupfé- lagsstjóra. Nýir markaðir að opnast AKVA USA verður gert upp með hagnaði á síðasta ári og er nú rekið með lágmarkstilkostnaði. Unnið er að því að fjölga dreif- ingaraðilum á núverandi markaðs- svæðum, sem eru fyrst og fremst Nýja England og Baltimore-Was- hington svæðið. Nýir markaðir hafa opnast fyrir vatnið, m.a. ligg- ur fyrsta pöntunin til Kalifomíu fyrir og þá er byrjað að dreifa vatninu í Ohio og Arizona. Auk þessa standa yfir viðræður við ýmsa um samstarf og eða eigna- raðild að fyrirtækinu, en of snemmt er að segja fyrir um hver árangur verður af þeim viðræðum. „Við vonum að þetta muni ganga upp, þó svo ekki sé hægt að fullyrða neitt strax,“ Magnús Gauti. Morgunblaðið/Hermína Gunnþórsdóttir Barokkkvöld í Dalvíkur- kirkju NEMENDUR og kennarar Tónlist- arskólans á Dalvík buðu upp á þemakvöld um barokk fyrir skömmu. Flutt var tónlist frá tíma barokksins (1600 til 1730) í formi söngs og hljóðfæraleiks. Einnig fluttu nemendur erindi um tíma- bilið, ríkjandi strauma í listum og hvað var að gerast á Islandi á þessum tíma. Þá var gestum boðið að skoða myndlistarsýningu í safnaðarheimili Dalvíkurkirkju sem nemendur Húsabakkaskóla í Svarfaðardal höfðu unnið um tímabilið með kennara sínum, Ornu Valsdóttur. Námskeið um mark- aðsmál EFNT verður til tveggja námskeiða í markaðsmálum á vegum endur- menntunardeildar Háskóla íslands í samstarfi við atvinnumálanefnd Ak- ureyrar og endurmenntunarnefnd Háskólans á Akureyri. Þau eru hluti af námskeiðaröð í markaðs-, sölu- og þjónustunámi. Atvinnumálanefnd hefur haft það að grunnmarkmiði að efla atvinnulíf á Akureyri en ein leiðin að því markmiði er að efla framboð á nám- skeiðum_ og endurmenntunarmögu- leikum. í viðamikilli atvinnulífskönn- un sem nefndin stóð fyrir í lok síð- asta árs kom m.a. fram að forsvars- menn atvinnufyrirtækja á Akureyri telja markaðsmál einn helsta veik- leika í rekstri síns fyrirtækis. Flest- ir, eða um 75% töldu almennt vera þörf á endurmenntun starfsmanna sinna og 92% voru tilbúnir að taka þátt í kostnaði vegna endurmenntun- ar. í ljósi þessa væntir atvinnumála- nefndin þess að viðbrögð verði góð við þeim námskeiðum sem nú standa til boða. Fyrra námskeiðið verður haldið föstudaginn 7. mars og nefn- ist Stefnumótun og stjórnun mark- aðsmála og það síðara 11. apríl næst- komandi og fjallar um markaðsrann- sóknir. Morgunblaðið/Kristján GUNNAR Garðarsson, framkvæmdastjóri Endurvinnslunnar, útskýrir endurvinnsluátakið fyrir börnum á leikskólanum Krógabóli. Stofnfundur nýs félags í Hrísey Endurbyggja á elsta húsið STOFNFUNDUR félags til endur- byggingar elsta húss Hríseyjar, „Gamla Syðstabæjar“ eða „Kaup- angs“ var haldinn nýlega. Tilgang- ur félagsins er að vinna að upp- byggingu „Gamla Syðstabæjar" og gæta hagsmuna hans meðan á upp- byggingunni stendur, vera í for- svari fyrir þeim framkvæmdum og afla fjár til verksins með öllum til- tækum ráðum. Á fundinum skráðu sig 17 stofn- félagar og í framhaldinu var ákveð- ið að halda framhaldsstofnfund 2. mars nk. Fram að þeim tíma geta allir þeir er áhuga hafa látið skrá sig sem stofnfélaga hvar á landinu sem þeir búa. Þegar eru skráðir 32 stofnfélagar frá fimm stöðum á landinu, allt frá Reykjavík og vestur um til Reyðarfjarðar. Allir sem tengsl eiga til þessa húss eru hvattir til að láta skrá sig en árgjaldið er að lágmarki 500 krónur. Öllum félagsmönnum verð- ur sendur óútfylltur gíróseðill með haustdögum og þeim sem vilja greiða hærri upphæð en 500 krónur er það velkomið. Þá verða öllum félögum send lög félagsins svo og fleiri upplýsingar. Það er von þeirra sem að þessu átaki standa að undirtektir verði góðar. Þeir sem áhuga hafa áJmssu máli geta haft samband við Ásgeir Halldórsson í síma 466-1769 eða við skrifstofu Hríseyjarhrepps í síma 466-1762, símbréf 466-1790. Böm á leikskólum safna pappír til endurvinnslu Síðasta önn Menntasmiðjunnar með fasta fjárveitingu Sótt um styrk til Evrópusambandsins ÖLLUM börnum á leikskólum á Akureyri verður afhentur plastpoki sem ætlaður er undir pappírsúrgang sem hentar til endurvinnslu. Þetta er liður í átaki sem miðar að því að auka endurvinnslu á pappírsúrgangi sem til fellur í Eyjafirði. Átakið hófst formlega þegar börnin á leikskólanum Króga- bóli fengu fyrstu pokana sem þau fór með heim og verða þeir sóttir aftur í leikskólann á morgun, fimmtudag, væntan- lega fullir af mjólkurfernum, tímaritum, dagblöðum, bækl- ingum, umslögum og öðrum endurvinnanlegum pappírsúr- gangi. Pappírinn plássfrekur Gunnar Garðarsson, fram- kvæmdastjóri Endurvinnslunn- ar, sagði tilgang átaksins m.a. að auka vitund fólks um það mikla magn pappírs sem til fell- ur og hversu plássfrekur hann væri í ruslatunnum og sorp- haugum bæjarins. Endurvinnsl- an hefur síðustu ár tekið við pappír og framleitt úr honum og plasti af rúllubaggaheyi brettakubba. Fyrirtækið getur tekið á móti mun meira af papp- ír en skilað er og því er efnt til þessa átaks. Nefndi Gunnar sem dæmi að í einum skóla á Akureyri hefði að jafnaði verið farið með 15 ruslapoka á haug- ana á viku, en eftir að farið var að flokka mjólkurfernur frá, lentu 12 pokar í endurvinnslu en einungis 3 færu á haugana. „Það er hægt að minnka mikið umfang ruslsins sem hent er á haugana ef menn flokka frá það sem hægt er að endurvinna," sagði hann. Að átakinu standa auk Endurvinnslunnar m.a. Ako- plast sem Ieggur til pokana, Gámaþjónusta Norðurlands sem sér um að hirða þá og Mjólkursamlag KEA, en þar á bæ er pakkað í 8-10 milljónir ferna á hverju ári. MENNTASMIÐJA kvenna hóf sína 6. önn og jafnframt þá síðustu með fasta fjárveitingu fyrir skömmu. Þetta er þriðja starfsár skólans, sem fór af stað sem þróunarverkefni, en að honum standa menntamála- og félagsmálaráðuneyti og Akureyrar- bær sem ber ábyrgð á verkefninu. Menntasmiðjan hefur verið í stöð- ugri þróun og er leitast við að hafa hugmyndafræði lýðháskóla á Norður- löndum að fyrirmynd. Aðaláhersla starfsins í vetur er þríþætt, bóklegt nám, verk- og listgreinar og sjálfs- sfyrking og er markmiðið að efla og auka sjálfsmat og styrk til að byggja á að námi loknu. Tekið var upp sam- starf við félags- og tómstundamið- stöðina Punktinn en þangað sækja nemendur Menntasmiðjunnar verk- legt nám sitt. Nú á vorönn sóttu 35 konur um námið og hófu það 22 konur. Námið stendur í 16 vikur alls. Að lokinni þessari önn hafa um 110 konur sótt sér þekkingu og sjálfsstyrk til Menntasmiðju kvenna. Tveggja ára tilraunaverkefni Ragnhildur Vigfúsdóttir, jafnrétt- is- og fræðslufulltrúi Akureyrarbæj- ar, hefur sótt um styrk frá Evrópu- sambandinu til að koma á tveggja ára tilraunaverkefni þar sem nám, starfsþjálfun og skiptivinna er tengt saman. Um tvíþætt námskeið yrði að ræða, annars vegar að gefa at- vinnulausum eða atvinnulitlum kon- um kost á menntun og mikilvægri starfsþjálfun og hins vegar starfs- mönnum með langa starfsreynslu kost á sí- eða endurmenntun í vinnu- tíma sínum. Gert er ráð fyrir að á námskeiðinu verði konum gefinn kostur á að kynnast hefðbundnum karlastörfum en bæði kyn myndu fá mikla jafnréttisfræðlu sem forsvars- menn þess vona að leiði til þess að þau endurmeti stöðu sína bæði heima og heiman. Námskeiðið myndi standa í 16 vikur, ein þeirra yrði ætluð í starfskynningu og þrjár í starfsþjálfun, viðkomandi myndi þá leysa fastráðinn starfsmann af hólmi meðan hann sækir endurmenntun- arnámskeið. Bent er á í umsókninni að reynslan af verkefninu gæti nýst víða í Evrópu, í þéttbýli eða dreif- býli, á opinberum stofnunum eða í einkafyrirtækjum. Áætlað er að kostnaður við verkefnið verði um 37,7 milljónir króna. Ragnhildur sagði að svar við umsókn Akureyrarbæjar myndi ber- ast í næsta mánuði og bjartsýni væri ríkjandi á að hann fengist. I I i > i \ I I I I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.